Mælikvarðar

 

Hér er dregin upp tölfræðileg svipmynd af Íslandi út frá þeim viðmiðum sem lögð hafa verið til grundvallar heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Alls hafa 232 mælikvarðar verið lagðir til grundvallar til að meta með samhæfðum hætti stöðu þjóða gagnvart heimsmarkmiðunum. Hagstofa Íslands var verkefnastjórn heimsmarkmiðanna til ráðgjafar við samantekt á tölfræðiupplýsingunum gagnvart 67 af þessum mælikvörðum. Jafnframt var leitað til fræðasamfélagsins og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands fengin til að leiða gæðamat okkar færustu fræðimanna á þeim upplýsingum sem lagðar eru til grundarvallar mati á stöðu Íslands. 

Vinnan á alþjóðavettvangi við að skilgreina og lýsa tölfræðilegum mælikvörðum Sameinuðu þjóðanna heldur áfram og mun gefa af sér sífellt ítarlegri mynd af stöðu þjóða gagnvart heimsmarkmiðunum. Fyrir Ísland eru meðfylgjandi 67 mælikvarðar ágætis upphafspunktur fyrir almenna umræðu og til að glöggva sig á stöðu Íslands. Framundan er að styrkja tölfræðilegar stoðir heimsmarkmiðanna með það að markmiði að draga upp enn skýrari mynd af stöðu Íslands.

Logo fyrir heimsmarkmið 1 - Engin fátækt Logo fyrir heimsmarkmið 2 - Ekkert hungur Logo fyrir heimsmarkmið 3 - Heilsa og vellíðan Logo fyrir heimsmarkmið 4 - Menntun fyrir alla Logo fyrir heimsmarkmið 5 - Jafnrétti kynjanna Logo fyrir heimsmarkmið 6 - Hreint vatn og hreinlætisaðstaða Logo fyrir heimsmarkmið 7 - Sjálfbær orka Logo fyrir heimsmarkið 8 - Góð atvinna og hagvöxtur Logo fyrir heimsmarkmið 9 - Nýsköpun og uppbygging Logo fyrir heimsmarkmið 10 - Aukinn jöfnuður Logo fyrir heimsmarkmið 11 - Sjálfbærar borgir og samfélög Logo fyrir heimsmarkmið 12 - Ábyrg neysla og framleiðsla Logo fyrir heimsmarkmið 13 - Aðgerðir í loftslagsmálum Logo fyrir heimsmarkmið 14 - Líf í vatni Logo fyrir heimsmarkmið 15 - Líf á landi Logo fyrir heimsmarkmið 16 - Friður og réttlæti Logo fyrir heimsmarkmið 17 - Samvinna um markmiðin

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira