5. október 2026 /
Innviðaráðuneytið

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 7. október – dagskrá

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

 

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 7. október nk. á Hilton Reykjavík. Á fundinum verður fjallað um störf sjóðsins og ársskýrslu síðasta árs, 2025. Fundarstjóri er Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Dagskrá fundarins:

  • Setning
    Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
  • Ávarp ráðherra
    Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra
  • Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
    Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
  • Nýtt líkan Jöfnunarsjóðs – úttekt Intellecon
    Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon

Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs. Fundurinn verður jarðhæð og hefst kl. 16. Áætlað er að fundinum ljúki um kl. 17:30.