Ársfundur Jöfnunarsjóðs: Fjárhagsstaða sjóðsins sterk og almenn jöfnunarframlög hækkuð
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var haldinn í gær og þá kom út ársskýrsla sjóðsins fyrir rekstrarárið 2025. Afkoma sjóðsins á síðasta ári var jákvæð sem nemur tæplega 1,1 milljarði kr. og eigið fé sjóðsins nam tæpum 1,4 milljörðum króna í árslok 2025..
Með hliðsjón af sterkri fjárhagsstöðu Jöfnunarsjóðs tilkynnti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra á ársfundinum að hann hafi samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar sjóðsins að hækka hin nýju almennu jöfnunarframlög um 1,4 milljarða kr. á þessu ári, sem verða þá alls 29,6 ma. kr. „Með þessari ákvörðun renna auknir fjármunir til sveitarfélaganna svo að þau geti sinnt lögbundnum verkefnum sínum ennþá betur,“ sagði ráðherra í ávarpi sínu.
Mikilvægur áfangi með gildistöku nýrra heildarlaga
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagði að mikilvægur áfangi hafi náðst í starfsemi sjóðsins þegar ný heildarlög um starfsemi sjóðsins tóku gildi 1. janúar sl. „Lögin fela í sér umfangsmestu breytingar sem gerðar hafa verið á regluverki sjóðsins um langt árabil. Markmið nýja framlagsins er að bæta gæði jöfnunarinnar, einfalda útreikninga og gera forsendur úthlutunar skýrari og gagnsærri. Jafnframt er leitast við að koma í veg fyrir yfirjöfnun og tryggja að sveitarfélög sem búa við sambærilegar aðstæður fái sambærileg framlög,“ sagði Eyjólfur.
Með nýju lögunum voru þrjú eldri framlög – tekjujöfnunarframlag, útgjaldajöfnunarframlag og fasteignaskattsframlag – sameinuð í eitt almennt jöfnunarframlag. Eldra fyrirkomulagið var komið til ára sinna og endurspeglaði ekki nægilega vel þær miklu breytingar sem hafa orðið á sveitarstjórnarstiginu undanfarna áratugi, ekki síst vegna sameininga sveitarfélaga.
Endurskoðun grunnskólaframlaga næsta skref
Ráðherra sagði næsta áfanga í þróun á regluverki sjóðsins vera að endurskoða framlög Jöfnunarsjóðs vegna reksturs grunnskóla. Forsendur hafi breyst mikið síðan rekstur grunnskóla var fluttur til sveitarfélaga árið 1996, skólum hafi fækkað og rekstrarumhverfið breyst. Hann sagði að unnið yrði að breytingum í nánu samstarfi við sveitarfélög og Samband íslenskra sveitarfélaga.
„Endurskoðunin þarf að byggjast á skýrum forsendum og hlutlægum mælikvörðum. Hún þarf jafnframt að taka mið af ólíkum aðstæðum sveitarfélaga. Ég legg sérstaka áherslu á að staðinn verði vörður um hinar dreifðu byggðir. Taka verður ríkt tillit til þeirra sérstöku aðstæðna og þess kostnaðar sem fylgir rekstri fámennra skóla. Tryggja þarf börnum aðgang að grunnskólaþjónustu eins nálægt heimabyggð og kostur er,“ sagði ráðherra.
Heildarafkoma og eiginfjárstaða sterk
Í máli Guðna Geirs Einarssonar forstöðumanns sjóðsins kom fram að tekjur sjóðsins hafi numið 100,7 milljörðum króna árið 2025 sem er aukning um 12,3% frá fyrra ári. Framlög sjóðsins námu 99,9 milljörðum króna og heildargjöld, að meðtöldum rekstrarkostnaði, voru 100,2 milljarðar króna.
Að teknu tilliti til fjármagnstekna var tekjuafgangur ársins 1,1 milljarður króna, samanborið við 267 milljóna króna halla árið 2024. Eigið fé sjóðsins nam tæpum 1,4 milljörðum króna í árslok 2025.
Í erindi sínu fjallaði Guðni Geir jafnframt nánar um fyrirhugaða heildarendurskoðun á grunnskólaframlögum sjóðsins en regluverk framlaganna hefur breyst lítið frá yfirfærslu grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga árið 1996.
Úttekt á nýju líkani
Lokaerindið á ársfundinni flutti dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon. Þar kynnti hann nýja úttekt á nýju líkani Jöfnunarsjóðs og fór yfir helstu breytingar og áhrif þeirra. Fram kom að helstu kostir nýja líkansins væru aukið gagnsæi, samræmd aðferðafræði og betri hvatar en í eldra úthlutunarlíkani sjóðsins. Þá fór Gunnar yfir ýmsa þætti í útreikningum og forsendum sem byggja að baki líkaninu.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs var fundarstjóri á ársfundinum.
Ný ráðgjafarnefnd tekur til starfa í upphafi nýs árs samkvæmt venju, að loknum sveitarstjórnarkosningum.