Þriðji fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2026
Þriðji fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2026 fór fram fimmtudaginn 8. október.
Á fundinum var farið yfir stöðu og horfur í fjármálakerfinu og hagkerfinu og helstu áhættuþættir ræddir. Meðal annars var rætt um þróunina erlendis að undanförnu og hækkun lengri markaðsvaxta. Sérstaklega var fjallað um þróun og horfur á byggingamarkaði og gjaldeyrismarkaði.
Á fundinum voru samþykktar uppfærðar starfsreglur fjármálastöðugleikaráðs, uppfærð opinber stefna fjármálastöðugleikaráðs um fjármálastöðugleika auk samstarfssamnings fjármála- og efnahagsráðuneytis og skilavalds Seðlabanka Íslands. Jafnframt voru kynnt áform fjármála- og efnahagsráðuneytisins um lagabreytingar sem ætlað er að draga úr vægi verðtryggingar á húsnæðislánamarkaði.
Á fundinum var gerð grein fyrir störfum skilavalds frá síðasta fundi ráðsins.