Heil og sæl,
það var nóg um að vera hjá ráðherra og utanríkisþjónustunni í vikunni. Í gær tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, á móti Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, Múte B. Egede, utanríkisráðherra Grænlands, Jozef Síkela, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins sem fer með málefni alþjóðlegs samstarfs og þróunar- og uppbyggingarmál (DG INTPA), og Kirti Vardhan Singh, varautanríkisráðherra Indlands. Vert er að vekja athygli á sameiginlegri yfirlýsingu Þorgerðar Katrínar og Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, sem birt var eftir fundinn þeirra, en í henni eru m.a. sterk tengsl Íslands og Kanada áréttuð með áherslu á öryggi, stöðugleika, jafnréttismál og velmegun.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þáði boð Þorgerðar Katrínar, utanríkisráðherra, um heimsókn til Íslands og kom hann til landsins á mánudaginn.
Ráðherrarnir áttu góðan fund saman í Höfða í Reykjavík þar sem tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna voru í brennidepli, bæði á sviði varna- og öryggismála sem og efnahagssamvinnu. Ráðherrarnir fengu leiðsögn um Höfða áður en fundur þeirra hófst, en í ár eru fjörutíu ár síðan leiðtogafundur Ronalds Reagans, Bandaríkjaforseta, og Míkhaíls Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, fór fram á sama stað.
Líkt og vikið var að í síðasta Föstudagspósti fór
fundur varnarmálaráðherra Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force - JEF) fram á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á föstudaginn sl. Á fundinum fóru ráðherrarnir yfir stöðu öryggismála í Norður-Evrópu og ræddu hvernig styrkja megi sameiginlegan viðbúnað og varnir á svæðinu. Einnig var fjallað um æfingar, viðbragðsgetu, þróun varnarsamstarfs og aukna samvinnu á sviði varnariðnaðar. Auk Bretlands, sem leiðir samstarfið, eiga Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin og Holland aðild að JEF. Þá var varnarmálaráðherra Kanada sérstakur gestur á fundinum og varnarmálaráðherra Úkraínu ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundarbúnað. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var gestgjafi fundarins. Hægt er að nálgast sameiginlega yfirlýsingu varnarmálaráðherranna fundarins
hér.
Það var nóg um að vera hjá teyminu okkar í Nýju-Delí þegar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sótti borgina heim í vikunni þar sem hann tók þátt í viðburði EFTA-ríkjanna og Indlands í tilefni þess að eitt ár er nú liðið frá því að fríverslunarsamningur EFTA og Indlands tók gildi. Á viðburðinum áttu sér m.a. stað umræður um sjálfbær orkumál og nýsköpun í orkugeiranum með fulltrúum úr íslensku og indversku atvinnulífi.
Bókmenntir voru efst á baugi hjá sendiráðsteyminu okkar í Þýskalandi í vikunni. Í gær var haldinn viðburður í sendiráðsbústaðnum í tilefni af þýskri þýðingu bókar Elízu Reid, fyrrum forsetafrúr Íslands, sem ber heitið Intrigen auf Island. Á viðburðinum átti sér stað umræða við Elizu Reid og sendiherra Kanada um stöðu alþjóðamála og jafnréttismála. Á miðvikudag opnaði árlega bókamessan í Frankfurt, en hún er ein stærsta bókmenntahátíð í Evrópu þar sem útgefendur, þýðendur, rithöfundar og aðrir lykilaðilar í bókmenntageiranum koma saman. Það var enginn skortur á íslenskum bókmenntum í sameiginlega Norræna básnum á hátíðinni. Menningarfulltrúi sendiráðsins sótti bókamessuna og nýtti ferðina til samráðs við Bókmenntamiðstöð og þýska útgefendur íslenskra bókmennta í Þýskalandi. Á miðvikudag var einnig útgáfuhóf í sendiráðsbústaðnum í Berlín vegna nýrrar bókar með verkum Erlu Haraldsdóttur, myndlistarkonu, í samstarfi við Galleri Gudmundsdottir og forlagið Distanz Verlag. Á mánudaginn var rithöfundurinn Ragnar Jónasson með upplestur í Fellashus, sameiginlegu sendiráðsbyggingu Norðurlanda í Berlín.
Síðustu helgi stóð University College London háskólinn (UCL) fyrir norrænni kvikmyndahátíð í tilefni 200 ára afmælishátíð háskólans. Íslensku kvikmyndirnar Veðurskeytin og Ljósbrot voru meðal mynda sem sýndar voru á viðburðinu. Norrænu sendiráðin í London stóðu fyrir sameiginlegri móttöku og flutti sendiherra okkar þar í borg, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, opnunarávarp. Sendiherra fór einnig í heimsókn til hafnarborganna Grimsby og Hull sem eiga margþætt söguleg og viðskiptatengsl við Ísland í gegnum sjávarútveg og viðskipti. Þórdís kynnti sér starfsemi m.a. sjávarútvegsklasans Humber Seafood Cluster og fiskvinnslu á svæðinu og fundaði jafnframt með borgarstjórum og fulltrúum úr atvinnulífinu.
Starfsfólk á vegum Jafnréttisskóla GRÓ heimsóttu teymið okkar í Lilongwe, Malaví, í vikunni til þess að kynnast þróunarsamvinnuverkefnum Íslands þar í landi. Hópurinn heimsótti Kalimanjira miðstöð fyrir fórnarlömb kynbundins ofbeldis í Nkhotakota-héraði til þess að fræðast um aðgerðir í þágu kynjajafnréttis og aðstoð við fórnarlömb kynbundins ofbeldis. Hópurinn heimsótti einnig Nkhotakota LEA grunnskóla sem er með sérstakt fræðslusetur fyrir börn með fötlun.
Yfir 600 nemendur við sænska skóla sóttu viðburð sem sendiráð Íslands í Stokkhólmi tók þátt í á evrópska tungumáladeginum, en a viðburðinum gafst nemendum kostur á að kynnast mismunandi tungumálum. Íslenski básinn vakti athygli þar sem nemendur fengu m.a. að kynnast íslenskri nafnahefð (og að sjálfsögðu íslenskum lakkrís!).
Sendiherra okkar í Stokkhólmi, Elín R. Sigurðardóttir, tók einnig á móti stórum hóp listaunnenda frá Gautaborg í sendiráðsbústaðnum sem fengu kynningu á íslenskri menningu og list. Hópurinn var á vegum Vinafélags listasafnsins í Gautaborg. Eftir kynninguna var gestum boðið upp á ýmsar íslenskar kræsingar líkt og heimagert rúgbrauð með silungi, íslenskar pönnukökur og fleira.
Pétur Ásgeirsson, sendiherra okkar í Kaupmannahöfn, bauð til viðburðar í sendiráðsbústaðnum í gær um formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu 2026-2027. Árni Þór Sigurðsson, formaður embættisnefndar Eystrasaltsráðsins, kynnti áherslur Íslands á formennskutímabilinu
Kristján Andri Stefánsson, sendherra Íslands í Madríd, tók þátt í afhjúpun minnsvarða um úkraínska skáldið og rithöfundinn Lesja Úkraínka í Madríd í síðustu viku ásamt öðrum sendiherrum og fulltrúum borgarstjórnar Madrídar.
Sendiherra bauð einnig í kynningu í sendiráðsbústaðinn á bókinni El chico islandés eða Íslenski strákurinn eftir Jordi Pujola, en bókin fjallar um áskoranir og upplifanir Ángel Puig sem flytur til Íslands. Úa Matthíasdóttir, útgefandi hjá Forlaginu, stýrði umræðum á viðburðinum og ræddi við Jordi.
Tónskáldið Benedikt Hermann Hermannsson, betur þekkur sem Benni Hemm Hemm, og Kórinn, sem samanstendur af hópi íslenskra tónlistarkvenna, voru stödd í Þórshöfn í vikunni þar sem þau sýndu Ljósið & ruslið. Sýningin er marglaga sviðs- og tónverk eftir Benna Hemm Hemm og Ásrúnu Magnúsdóttur, danshöfund. Hópurinn kíkti ekki bara í heimsókn í Aðalræðisskrifstofu Íslands í Þórshöfn heldur hituðu þau upp fyrir sýninguna og tóku lagið!
Gleðin var allsríkjandi í París á mánudaginn þegar hin árlega gleðiganga fór fram. Starfsfólk sendiráðs Íslands í París tók þátt í göngunni ásamt starfsfólki annarra sendiráða og fastanefnda.
Sendiherra okkar í Helsinki, Nína Björk Jónsdóttir, fór til Eistlands og birti myndband þar sem hún fjallar um vináttu Íslands og Eistlands og um götuna Íslandstorg í Tallin, en við þá götu má finna utanríkisráðuneyti Eistlands! Í vikunni heimsótti sendiherra einnig finnska þingið og fundaði þar með þingmönnum og formanni vináttufélags finnskra og íslenskra þingmanna, Anna-Kristiina Mikkonen.
Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York, undirstrikaði mikilvægi jafnréttis- og mannréttindamála í íslenskri utanríkisstefnu í ávarpi sínu á umræðu þriðju nefndar allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, en hún er ein af sex undirnefndum allsherjarþingsins og fer með félags-, mannréttinda- og menningarmál. Fastafulltrúi okkar ítrekaði það að Ísland myndi beita sér ötullega fyrir mannréttindum hinsegin fólks, kynjajafnrétti og mannréttindum barna.
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna lauk í gær þriðju og síðustu fundarlotu þessa árs. Fjölmörg málefni voru til umræðu í haustlotunni, en meðal þeirra voru umræður um gervigreind, mannréttindi og málefni Úkraínu áberandi.
Starfsfólk Umboðsmanns Alþingis heimsóttu sendiráðið okkar í Brussel á föstudaginn sl. til þess að kynnast starfsemi sendiráðsins, verkefnum utanríkisþjónustunnar og EES-samstarfinu.
Meira verður það ekki í bili!
Bestu kveðjur,
upplýsingadeild.