Mikill áhugi á málstofu um AMOC á Arctic Circle
Húsfyllir var á málstofu sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið stóð að um veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) á Arctic Circle – Hringborði norðurslóða í Hörpu föstudaginn 9. október. Málstofan var haldin í samstarfi við Planetary Guardians og þar var rætt hvernig vísindin rata inn í ákvarðanir stjórnvalda.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók þátt í málstofunni ásamt dr. Johan Rockström, Mary Robinson fyrrum forseta Írlands og Hindou Oumarou Ibrahim stjórnarformanni Planetary Guardians, auk Luc Bas Chief Planetary Science Officer Belgíu og Sóllilju Bjarnadóttur, doktorsnema í umhverfisfélagsfræði.
Mögulegt hrun AMOC rætt sem þjóðaröryggismál
Ráðherra og dr. Rockström tóku einnig þátt í umræðum á aðalsviði ráðstefnunnar fyrr sama dag. Þar ræddu þeir hvort mögulegt hrun AMOC væri ógn við þjóðaröryggi. Umræðurnar á aðalsviðinu í Silfurbergi fóru fram undir yfirskriftinni „AMOC Collapse: A National Security Threat?“ og var stýrt af Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Þar var fjallað um ástæður þess að íslensk stjórnvöld hafa nálgast veikingu og mögulegt hrun AMOC-hafstraumakerfisins sem öryggismál og hvernig ríki geta búið sig undir áhættu þótt óvissa ríki.
Ríkisstjórn Íslands vísaði málefnum AMOC til þjóðaröryggisráðs í október á síðasta ári og hefur frá þeim tíma verið unnið að samstilltum viðbrögðum þvert á stjórnkerfið. Þar á meðal skipaði Jóhann Páll stýrihóp sérfræðinga sem hefur það hlutverk að fjalla um AMOC, greina stöðu vísindalegrar þekkingar, loftslagsvendipunkta og möguleg viðbrögð Íslands. Þá tók Jóhann Páll málið upp á fundi norrænna umhverfis- og loftslagsráðherra í Kaupmannahöfn í vor og lagði áherslu á að loftslagsáhætta væri öryggismál við góðar undirtektir kollega sinna. Í vikunni stendur umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið fyrir sviðsmyndaæfingu um AMOC með þjóðaröryggisráði, fulltrúum Alþingis og stjórnvalda.
Bil brúað milli vísinda og ákvarðana
Málstofa ráðuneytisins á Arctic Circle skiptist í tvö pallborð. Í fyrra pallborðinu var rætt hvernig stjórnvöld geta búið sig undir ógnir á borð við hrun AMOC og var sjónum m.a. beint að því hvernig sérstakur vísindaráðgjafi, svokallaður „Chief Planetary Science Officer“, getur brúað bilið milli vísinda og ákvarðana. Þátttakendur voru dr. Johan Rockström, forstjóri Potsdam Institute for Climate Impact Research, Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra og Luc Bas, sem gegnir hlutverki Chief Planetary Science Officer í Belgíu. Hildigunnur Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands, stýrði umræðum.
Í umræðum kom fram að Ísland hefur nú til skoðunar að gerast þátttakandi í alþjóðlegu neti vísindamanna sem nú er í mótun, svokölluðu Chief Planetary Science Officer, sem tengir vísindamenn í leiðandi og ráðgefandi stöðu gagnvart stjórnvöldum í hverju landi fyrir sig. Luc Bas er fyrsti slíki leiðtoginn en Jóhann Páll staðfesti að hann hafi óskað álits Landsnefndar um loftslagsvísindi á þátttöku Íslands í verkefninu og er vongóður um svör á næstu vikum.
Í seinna pallborðinu snérist umræðan um hópa og samfélög sem finna fyrir afleiðingum loftslagsbreytinga nú þegar, um loftslagsréttlæti og mikilvægi fjölþjóðlegs samstarfs. Þátttakendur voru Mary Robinson, Hindou Oumarou Ibrahim og Sóllilja Bjarnadóttir, og var umræðunum stýrt af Magnúsi Erni Agnesar Sigurðssyni, skrifstofustjóra loftslagsskrifstofu ráðuneytisins.
Ísland haldið málefnum AMOC á lofti
„Ef við bíðum eftir fullri vissu gætum við þurft að bíða þar til of seint er að bregðast við. Ábyrg stjórnvöld byggja á bestu fáanlegu vísindum og hugsa í kynslóðum en ekki kjörtímabilum,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
AMOC hefur verið á dagskrá íslenskra stjórnvalda frá því að tugir vísindamanna beindu opnu bréfi til Norrænu ráðherranefndarinnar á Arctic Circle í október 2024. Jóhann Páll og Johan Rockström hafa unnið saman að loftslagsvendipunktum frá því á COP30 í Brasilíu árið 2025. Í janúar 2026 birtu þeir Jóhann Páll og Johan Rockström sameiginlega grein í Vísi og Dagens Nyheter. Þar hvöttu þeir Norðurlöndin til að styrkja forystu sína í aðgerðum gegn losun og byggja upp öflugt eftirlit og viðbúnað vegna vendipunkta í loftslagskerfinu.