12. október 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Opið fyrir umsóknir um viðbótarstuðning vegna fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um viðbótarstuðning til einkarekinna fjölmiðla, sem sinna fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu. Viðbótarstuðningurinn er hluti af aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla. Um nýmæli er að ræða og er væntanlegum umsækjendum bent á að kynna sér sérstaklega þau skilyrði sem sett eru í 62. gr. h laga um fjölmiðla nr. 38/2011, sem eru eftirfarandi:
- Rekstrarkostnaður er stuðningshæfur, sbr. 62. gr. i laga um fjölmiðla, og uppfyllt eru önnur skilyrði fyrir almennum rekstrarstuðningi, sbr. 62. gr. g sömu laga.
- Fjölmiðill sinnir daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu.
- Efnistök fjölmiðils eru fjölbreytt og með víðtæka og almenna skírskotun en ekki bundin við afmörkuð svið samfélagsins.
- Ritstjórnarefni prent- og vefmiðils skal vera að lágmarki 50% efnis á móti auglýsingum og a.m.k. 25% ritstjórnarefnis prent- og vefmiðils skal vera efni sem er frumunnið á ritstjórn.
- Á ritstjórn fjölmiðils starfa að lágmarki 20 blaðamenn, blaðaljósmyndarar og myndatökumenn í fullu starfi við að afla og miðla efni og ritstjórn hefur viðbragðsgetu allan sólarhringinn.
- Fjölmiðill sinnir kosningaumfjöllun á landsvísu.
Til úthlutunar árið 2026 verða 60 m.kr. Úthlutunarnefnd leggur mat á umsóknir, sem skal skilað í gegnum netfang fjölmiðlanefndar. Nánari upplýsingar er að finna á vef nefndarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2026.