10. þáttur - Nýsköpun og uppbygging 


Manneskjan er mest skapandi lífveran á jörðinni. Við höfum allt sem við þurfum til að leysa þau vandamál sem koma upp og þurfum á nýsköpun að halda. Ný viðfangsefni kalla á nýjar lausnir. Við stöndum t.d. frammi fyrir risastóru verkefni sem er að leysa loftslagsvandann og þar þurfum við skapandi lausnir.

Á skólavef Félags Sameinuðu þjóðanna er að finna ýmis konar kennslugögn tengd heimsmarkmiðunum. Um er að ræða verkefnahugmyndir sem nýtast kennurum á grunn- og framhaldsskólastigi en markmiðið er að nemendur öðlist aukinn skilning á alþjóðamálum og sjálfbærri þróun og þjálfist í gagnrýnni hugsun. Hér að neðan er að finna verkefni sem tengist markmiði 9.

Þá hefur Menntamálastofnun einnig gefið út námsefni þar sem heimsmarkmiðin koma fyrir og er hluti af því birt hér samhliða þáttunum. 

Kennslugögn tengd markmiði 9:

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira