Beiðni um endurupptöku
fimmtudaginn, 30. apríl 2026, var í atvinnuvegaráðuneytinu
kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Stjórnsýslukæra
Með tölvubréfi, dags 18. mars 2026, óskaði [A] (hér eftir kærandi), f.h. [B], kt. […] (hér eftir félagið), eftir endurupptöku á úrskurði menningar- og viðskiptaráðuneytisins frá 3. júní 2024.
Beiðnin er byggð á 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 (hér eftir stjórnsýslulög).
Málsatvik og ágreiningsefni málsins
Ráðuneytinu barst erindi kæranda, dags. 29. desember 2025. Frekari gögn og upplýsingar bárust frá kæranda, 2., 7., 15., og 24. janúar 2026. Þá fóru frekari samskipti fram á milli ráðuneytisins og kæranda 11., 14., og 16. febrúar 2026.
Ráðuneytinu bárust fleiri gögn frá kæranda ásamt nýjum kröfum með tölvubréfi, dags. 14. mars 2026. Ráðuneytið svaraði kæranda með tölvubréfi, dags. 17. mars 2026. Í bréfi ráðuneytisins var kærandi upplýstur um að erindi hans væri óskýrt og var kæranda leiðbeint að skýra mál sitt. Kærandi svaraði ráðuneytinu með tölvubréfi, dags. 18. mars 2026, í bréfinu óskaði kærandi m.a. eftir endurupptöku á úrskurði menningar- og viðskiptaráðuneytisins MVF23120044 frá 3. júní 2024. Ráðuneytið staðfesti móttöku á þeirri ósk kæranda samdægurs með tölvubréfi og upplýsti kæranda að beiðni hans um endurupptöku yrði tekin fyrir í sjálfstæðum úrskurði.
Í kjölfar þess að beiðni um endurupptöku var móttekin óskaði ráðuneytið, með tölvubréfi hinn 9. apríl 2026, eftir afstöðu gagnaðila kæranda í máli MVF23120044 frá 3. júní 2024. Svar gagnaðila kæranda barst samdægurs og kom fram að gagnaðili samþykkti ekki endurupptöku málsins.
Ráðuneytinu bárust frekari gögn frá kæranda, 16. apríl 2026, m.a. greinargerð, þar sem kærandi reifaði veigamiklar ástæður sem myndu réttlæta endurupptöku samkvæmt 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Í greinargerð sinni óskaði kærandi einnig eftir því að ráðuneytið myndi meta hvort tilefni væri fyrir afturköllun á grundvelli 25. gr. stjórnsýslulaga samhliða mati um endurupptöku. Frekari gögn og sjónarmið bárust frá kæranda 20. og 21. apríl 2026.
Sjónarmið kæranda
Kærandi óskar eftir því að ráðuneytið meti hvort að veigamiklar ástæður í skilningi 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga séu fyrir hendi. Í því sambandi vísar kærandi aðallega til umsagnar frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, dags. 7. janúar 2026, þar sem fram kemur að orðið „[…]“ sé ekki almennt orð í íslensku máli. Kærandi vísar einnig til svars frá utanríkisráðuneytinu þar sem fram kemur að orðið „[…]“ hafi ekki verið viðurkennt sem heiti Íslands af hálfu ríkisins. Kærandi vísar einnig m.a. til dreifibréfs utanríkisráðuneytisins frá 28. febrúar 2023, drög að samkomulagi [C] um kaup á firmaheitum og vörumerkjum frá nóvember 2022, alþjóðlegan og evrópskan lagagrundvöll, 72. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, kerfisbundið rannsóknargallamynstur með tilvísun til 10. gr. stjórnsýslulaga og laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls nr. 61/2011.
Forsendur og niðurstaða
I.
Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. tölul. ákvæðisins, eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 2. tölul. ákvæðisins.
Samkvæmt 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga verður endurupptökubeiðni ekki tekin til greina eftir að þrír mánuðir eru liðnir frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun skv. 1. tölul. 1. mgr., eða aðila var eða mátti vera kunnugt um breytingu á atvikum þeim sem ákvörðun skv. 2. tölul. 1. mgr. var byggð á, nema að fengnu samþykki frá öðrum aðilum málsins. Mál verður þó ekki tekið upp að nýju ef ár er liðið frá fyrrgreindum tímamörkum nema veigamiklar ástæður mæli með því.
II.
Þeir tímafrestir sem koma fram í 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga eru liðnir. Þarf því að meta hvort skilyrði fyrir endurupptöku á grundvelli 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga séu fyrir hendi. Í áliti umboðsmanns Alþingis í málum nr. 11308/2021, 11312/2021 & 11315/2021 kemur eftirfarandi fram:
Í 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga er sem fyrr greinir kveðið á um takmarkanir á rétti aðila máls til að fá mál sitt endurupptekið þegar slík beiðni byggist á þeim ástæðum sem fjallað er um í 1. og 2. tölulið 1. mgr. greinarinnar. Þessar takmarkanir lúta einkum að tímafrestum og því hvort fyrir hendi séu aðrir málsaðilar sem hafi andstæðra hagsmuna að gæta. Í niðurlagi málsgreinarinnar er þó ákvæði sem veitir stjórnvöldum heimild til þess að víkja frá téðum tímafrestum mæli „veigamiklar ástæður“ með því.“
Í máli þessu liggur fyrir afstaða gagnaðila kæranda en gagnaðili samþykkir ekki endurupptöku málsins. Ljóst er að þessi afstaða vegur þungt en samt sem áður þarf að meta hvort veigamiklar aðstæður séu fyrir hendi. Í framangreindu áliti umboðsmanns Alþingis kemur eftirfarandi fram um mat á veigamiklum ástæðum: „[...] við að mat á því hvort „veigamiklar ástæður“ mæli með endurupptöku þess, eða hvort skylt sé að taka það upp á ólögfestum grunni, lúti einkum að því hversu sannfærandi rök hafi verið leidd að því hvort þörf sé á endurskoðun með tilliti til þess hvort líklegt sé að ákvörðun verði breytt eða hún afturkölluð.
Það er mat ráðuneytisins að sannfærandi rök af hálfu kæranda hafi ekki verið lögð fram. Sannarlega hefur kærandi lagt fram mikið af gögnum. Þessi gögn hagga þó ekki því mati sem fór fram í máli MVF23120044 frá 3. júní 2024. Í þeim efnum vegur þungt að ráðuneytið tók sérstaklega til skoðunar hvaða þýðingu það hafði fyrir málið að álits frá stofnun Árna Magnússonar hefði ekki verið aflað og ákvað ráðuneytið að gera ekki athugasemd við þá framkvæmd. Þá lítur ráðuneytið einnig til þess að gagnaðili hefur andmælt endurupptöku og að skilyrði afturköllunar eru ekki fyrir hendi, sbr. 1. tölul. 25. gr. stjórnsýslulaga. Að framangreindu virtu er því beiðni um endurupptöku málsins hafnað. Þá er vakin athygli á að úrskurðurinn verður einungis sendur með rafrænum hætti, nema annars sé óskað.
Úrskurðarorð
Beiðni kæranda um endurupptöku er hafnað.