22. september 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 391/2026

Hinn 22. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 391/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU25120065

Kæra [...] og barna hennar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 8. desember 2025 kærði [...], fd. [...] (hér eftir kærandi), ríkisborgari Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 25. nóvember 2025, um að synja henni og börnum hennar, [...], fd. [...] (hér eftir A), [...], fd. [...] (hér eftir B), og [...], fd. [...] (hér eftir C), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela ásamt þáverandi eiginmanni sínum (hér eftir M) og lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd 6. febrúar 2024. Kváðust kærandi og M sækja um alþjóðlega vernd í leit að öryggi þar sem þau hafi orðið fyrir hótunum í heimaríki. Þá kemur fram að M hafi unnið fyrir lögregluyfirvöld í Venesúela.

Kærandi kom fyrst til viðtals hjá Útlendingastofnun 29. febrúar 2024 ásamt fulltrúa þáverandi talsmanns síns og greindi frá ástæðum flóttans frá heimaríki. Kvaðst kærandi vera fædd í [...] í Venesúela, uppalin í [...] og hafa búið í Karakas áður en hún hafi yfirgefið heimaríki. Þá kvaðst kærandi eiga tvo syni sem væru búsettir í Venesúela. Kærandi kvaðst hafa starfað fyrir kólumbískt fyrirtæki og haft upp úr því u.þ.b. fimm hundruð bandaríkjadollara í mánaðarkaup. Greindi kærandi frá því að starfið hafi mestmegnis falist í fjarvinnu en stundum hafi hún þurft að ferðast til Kólumbíu og því verið með dvalarleyfi á grundvelli atvinnu þar í landi. Þá kvaðst kærandi hafa átt efni á mat og öðrum nauðsynjavörum. Aðspurð kvaðst kærandi hafa þurft að leita til heilbrigðisyfirvalda í heimaríki vegna áverka á höfði af völdum [...]. Í kjölfarið hafi kærandi legið meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í níu til tíu daga. Kvaðst kærandi ekki hafa fengið viðeigandi aðhlynningu á sjúkrahúsinu heldur aðeins [...]. Þrátt fyrir að þjónustan hafi verið ókeypis hafi kærandi sjálf þurft að afla þeirra tækja og tóla sem til þurfti fyrir aðhlynningu. Þegar kærandi var spurð út í geðheilsu sína greindi hún frá því að hafa átt erfitt andlega eftir að hafa upplifað kynferðisofbeldi í heimaríki. Þá kvaðst hún ekki hafa sagt eiginmanni sínum frá ofbeldinu af ótta við viðbrögð hans og hafi því ekki viljað segja frá því fyrr.

Aðspurð um helstu ástæðu flóttans frá heimaríki kvað kærandi M hafa starfað hjá rannsóknarlögreglu í heimaríki og í störfum sínum komið að málum er vörðuðu starfsemi glæpahópanna Tren de Aragua og Tren [...]. Hafi kæranda og M borist hótanir í kjölfarið og því flutt frá [...] til Karakas. Þá hafi hótanirnar haldið áfram í um það bil eitt ár og orðið ágengari með tímanum. Kærandi greindi frá því að [...] hafi hún verið á leið að sækja börnin sín úr skólanum þegar einstaklingar hafi ráðist á hana, [...] henni og skotið hana í höfuðið. Aðspurð kvað kærandi árásarmennina vera þekkta í heimaríki og njóta jafnvel hygli yfirvalda. Kærandi kvaðst hafa verið meðvitundarlaus í nokkra daga eftir árásina og á meðan hafi M haldið áfram að fá hótanir. Kvað kærandi hótanirnar hafa verið á þá leið að ef hún myndi ekki deyja myndu þeir sem höfðu í frammi hótanirnar leita uppi börn hennar og M og taka þau af lífi. M hafi því farið með börnin til móður kæranda í [...] borg. Kvaðst kærandi hafa gert tilraun til að kæra hótanirnar til lögregluyfirvalda en í hvívetna mætt mótlæti. Þá greindi kærandi frá því að ári síðar hafi M veikst með Covid-19 faraldurinn og kærandi farið á vinnustað hans í þeim tilgangi að sækja tilteknar eigur en yfirmaður M hafi þá komið illa fram við og uppnefnt hana. Þegar M hafði náð bata hafi hann farið með kæranda og tilkynnt atvikið. Í kjölfar þess hafi M mátt þola erfiða meðferð í vinnunni og m.a. verið neitað um að fá að flytja sig um set til [...]. Í desembermánuði sama árs hafi kæranda byrjað að berast hótanir á ný. Kærandi hafi farið gegn ráðum M og leitað til lögregluyfirvalda að nýju hinn 25. janúar 2024. Kvaðst kærandi hafa verið ráðþrota og börnin hennar hafi m.a. hætt að ganga í skóla vegna hótananna. Aðspurð kvaðst kærandi hvergi vera óhult í heimaríki þar sem glæpahóparnir starfi á landsvísu. Kærandi telji lögregluyfirvöld aðeins hafa vilja og getu til að veita henni takmarkaða vernd, hún hafi þegar leitað til þeirra og jafnvel þó að M sé vel tengdur lögreglunni hafi hún enga aðstoð fengið.

Í gögnum málsins er að finna afrit af staðfestingu frá kólumbískum yfirvöldum, dags. 18. apríl 2024, um niðurfellingu tímabundinnar verndar kæranda í Kólumbíu frá og með 1. apríl 2024. Í ljósi þess var kærandi boðuð aftur í viðtal hjá Útlendingastofnun 6. maí 2024. Kvaðst kærandi eiga þrjú börn, tvo stráka í Venesúela og eitt barn sem væri í Brasilíu hjá föður sínum. Kærandi kvaðst eiga erfitt andlega vegna þeirra aðstæðna sem börnin hennar væru í. Þá hafi skóli barna hennar í Venesúela tekið þá ákvörðun að ekki væri óhætt fyrir þau að halda áfram námi við skólann vegna ástandsins. Að öðru leyti snerist viðtalið um stöðu kæranda í Kólumbíu og almennt ástand þar í landi.

Með ákvörðun, dags. 21. maí 2024, komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og að henni skyldi brottvísað frá landinu til Kólumbíu. Með úrskurði nr. 1087/2024, dags. 4. nóvember 2024, komst kærunefnd útlendingamála að þeirri niðurstöðu að fella ákvörðunina úr gildi og lagði fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Í úrskurðinum kemur meðal annars fram að ákvörðunina hafi skort umfjöllun um hvernig ólík málsmeðferð á afgreiðslu umsókna kæranda og M, sem ekki hafi haft tengsl við annað ríki en Venesúela, samrýmist reglunni um einingu fjölskyldunnar og hvers vegna mál þeirra hafi verið aðskilin hjá stofnuninni.

Kærandi kom til efnismeðferðarviðtals hjá Útlendingastofnun 13. nóvember 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flóttans. Þegar fulltrúi Útlendingastofnunar bað kæranda að nefna heimabæ sinn á nafn svaraði kærandi [...] í Karakas. Þá endurtók fulltrúinn frásögn kæranda úr fyrri viðtölum um að bærinn væri við landamæri Kólumbíu og bað um staðfestingu á því. Kærandi staðfesti frásögnina og kvað vel hægt að fara fótgangandi þaðan yfir landamæri Venesúela og Kólumbíu. Var kærandi því næst beðin um að greina aftur frá því hvar hún hafi unnið í heimaríki og kvaðst hún þá hafa unnið fjarvinnu fyrir [...].

Í viðtalinu gerði fulltrúi Útlendingastofnunar misræmi úr fyrri viðtölum kæranda við stofnunina að umfjöllunarefni. Var kærandi m.a. beðin um skýringar á því að hafa í viðtali 29. febrúar 2024 greint frá því að eiga tvö börn en þrjú í viðtali 6. maí s.á. Kærandi neitaði fyrir það að hafa lýst því yfir að eiga aðeins tvö börn og kvað um misskilning að ræða. Þá vísaði fulltrúi Útlendingastofnunar í frásögn kæranda frá 6. maí 2024 þar sem hún hafi greint frá því að eiga tvo drengi í Venesúela og eina stúlku sem væri í öruggum höndum föður síns í Brasilíu. Kærandi þvertók fyrir framangreinda tilvitnun í fyrri viðtöl hennar hjá stofnuninni og kvað A alltaf hafa búið hjá ömmu sinni. Þá kvað kærandi öll börnin hennar þrjú hafa búið saman í Karakas. Skýrði fulltrúi Útlendingastofnunar þá fyrir kæranda að af hljóðupptöku viðtals dagsettu 6. maí 2024 væri ljóst að hún hafi talað um Brasilíu í samhengi við A. Kvaðst kærandi mögulega hafa sagt að börnin hennar myndu búa við landamæri Brasilíu ef ske kynni að þau yrðu seld í námuvinnslu. Svaraði kærandi játandi aðspurð til nánari skýringar hvort að faðir A hafi búið nálægt brasilísku landamærunum og útskýrði að hann byggi í nálægð við námuvinnsluna. Var kærandi þá upplýst um að A hefði í barnaviðtali greint frá því að hafa ekki gengið í skóla frá því að hún hafi verið átta ára. Kvað kærandi A hafa verið taugaóstyrka í viðtalinu og hið rétta væri að A hefði ekki gengið í skóla frá því að kærandi hafi flúið til Íslands, þ.e. í átta mánuði. Þá gerði fulltrúi Útlendingastofnunar kæranda kunnugt um að A hafi í viðtali greint frá því að hafa ekki farið í skólann vegna þess að eiginmaður ömmu hennar væri slæmur maður sem vildi henni og fjölskyldu hennar illt. Þegar kærandi var beðin um að skýra betur frá framangreindu tók hún undir frásögn A og kvað eiginmann móður hennar m.a. hafa svelt börnin. Kvaðst kærandi ekki hafa áttað sig á þeim aðstæðum sem börnin hennar hafi verið í þar sem hún hafi verið upptekin af áðurnefndum hótunum af hálfu Tren de Aragua. Var kærandi spurð að því hvort eiginmaður móður hennar væri tengdur Tren de Aragua. Játaði kærandi því og vísaði til þess að „þau“ hafa talað um sig og væru með íslenska símanúmerið hennar. Kærandi kvaðst halda að eiginmaður móður hennar ynni fyrir Tren de Aragua. Þá var kærandi upplýst um að A hafi greint frá því að hafa dvalið hjá föður sínum í tvo daga áður en hún hafi komið til Íslands. Kvað kærandi A hins vegar hafa dvalið hjá föður sínum í átta daga. A hafi ekki átt í neinu sambandi við föður sinn og eina föðurímyndin í hennar lífi væri M. Kvaðst kærandi þó hafa reynt að fá aðstoð föður A en hann hafi ekki sýnt vilja til þess að hjálpa til. Þá var kærandi beðin um skýringar á frásögn A þess efnis að lögreglan hafi þurft að hafa afskipti af henni þegar hún hafi dvalið hjá föður sínum. Greindi kærandi þá frá því að eiginkona föður A hafi látið hana sjá um ýmis húsverk á heimilinu og hún hafi verið látin sofa á gólfinu. Kvaðst kærandi hafa verið í tölvupóstasamskiptum við venesúelsk stjórnvöld til að fá aðstoð við að koma A af heimili föður síns og áðurnefnd föðursystir kæranda hafi jafnframt aðstoðað. Þá hafi yfirvöld í heimaríki svipt föður A forsjá með henni og komið henni út af heimilinu. Aðspurð kvað kærandi föður A hafa ætlað að taka hana á námuvinnslusvæðið en það hafi ekki gerst. Fyrr í viðtalinu greindi kærandi frá því að faðir A hafi selt hana í vændi á námuvinnslusvæðinu og CICPC hafi bjargað henni þaðan.

Í viðtalinu var kærandi jafnframt spurð nánar út í helstu ástæðu flóttans frá heimaríki. Greindi kærandi á ný frá [...] og [...] sem hún kvað hafa gerst 9. eða [...]. Aðspurð um sjúkragögn kvaðst kærandi eiga ljósmyndir af sér meðvitundarlausri og einhver gögn frá spítalanum. Þá leitaðist fulltrúi Útlendingastofnunar eftir svari kæranda við því hvers eðlis þær hótanir sem henni hafi borist hafi verið. Kvaðst kærandi þá hafa verið hótað mörgum sinnum. Kvaðst kærandi viss um þátt Tren de Aragua í hótununum þar sem M hafi orðið þess valdandi að meðlimir hópsins hafi verið handteknir og fangelsaðir. Var kærandi jafnframt spurð hvort að eiginmaður móður hennar væri hluti af Tren de Aragua samtökunum. Kærandi kvað samtökin hafa komist yfir mikið af upplýsingum um sig, m.a. íslenskt símanúmer, og hafi hún dregið ályktun um tengsl eiginmanns móður hennar við þau. Kvað kærandi A hafa heyrt umræddan mann segja frá áætlunum sínum um að greiða einhverjum fyrir að taka kæranda af lífi. Aðspurð um form meintra hótanna sýndi kærandi fulltrúa Útlendingastofnunar myndskeið af grímuklæddum manni með myndir á borði og kvað hann vera að hóta börnum hennar. Því næst var kærandi spurð hvort að hún hafi leitað til lögreglu í kjölfar árásarinnar og játaði kærandi því. Þegar kærandi var upplýst um að Útlendingastofnun hafi aðeins borist lögregluskýrsla dagsett 29. apríl 2022 kvaðst hún ekki hafa leitað til lögreglu að því er varðar [...] þar sem yfirmaður M hafi ekki viljað aðstoða. Þegar kærandi var spurð út í frásögn sína þess efnis að mennirnir sem hafi ráðist á hana væru í fangelsi kvað kærandi störf M hafi leitt til fangelsunar sumra þeirra en um væri að ræða stóran hóp og þá væri annar angi málsins mögulegar hefndaraðgerðir af þeirra hálfu.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kærandi hafi verið boðuð í nýtt viðtal hjá Útlendingastofnun vegna ósamræmis í framburði hennar. Í ljósi þess kom kærandi að nýju til viðtals 20. mars 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Í upphafi viðtals var kærandi spurð út í barnsfeður sína, samband við þá og búsetu. Greindi kærandi frá því að eiga þrjú börn og tvo barnsfeður en A og B væru samfeðra. Aðspurð kvað kærandi báða barnsfeður sína búsetta í Venesúela. Var kærandi þá minnt á frásögn sína í fyrri viðtölum að því er varðar börnin. Í fyrsta viðtali hafi kærandi aðspurð sagst eiga tvo drengi en í næsta viðtali eina stelpu til. Kærandi kvaðst telja að um misskilning væri að ræða. Þegar hún hafi komið hingað til lands hafi hún verið rugluð í ljósi ástandsins í heimaríki. Faðir A hafi aldrei verið í myndinni, kærandi hafi beðið hann um aðstoð þar sem börnin hafi verið í hættu og hann hafi aldrei svarað. Þá hafi kærandi ákveðið að skilja börnin eftir hjá móður sinni. Hafi hún viljað bíða og sjá hvernig Ísland yrði og síðan fá börnin til sín hingað til lands. Kvaðst kærandi hafa verið sorgmædd þar sem faðir A hafi ekki viljað aðstoða hana með börnin og fyrsta viðtalið hjá Útlendingastofnun hafi litast af hugarástandi kæranda á þeim tíma. Þegar fulltrúi Útlendingastofnunar sagði kæranda að framangreint svar útskýrði ekki hvers vegna hún hafi ekki greint frá því að eiga dóttur kvaðst kærandi mögulega hafa misskilið spurninguna í viðtalinu og áréttaði að hún eigi þrjú börn. Síðar í viðtalinu var kærandi upplýst um að í fyrstu heilsufarsskoðun hennar hér á landi hafi hún einnig greint frá því að eiga aðeins tvö börn og tók kærandi þá fyrir það og kvaðst alltaf hafa greint frá því að eiga þrjú börn Svaraði kærandi þá að sú frásögn hafi litast af því að hún hafi beðið föður A um að sjá um hana og haldið að hann myndi gera það. Þetta hafi verið tveimur vikum eftir komuna til Íslands og kærandi hafi beðið hann um aðstoð. Þá var kærandi jafnframt minnt á frásögn um heilsufar barnanna en í fyrsta viðtalinu greindi hún aðeins frá heilsufari B og C. Kvaðst hún aðeins hafa svarað því sem hún hafi verið spurð. Var kærandi því næst minnt á að hafa aðeins talað um að B og C byggju í Venesúela og ættu ekki gott líf þar í landi en hvergi minnst á dóttur sína í því samhengi. Kvað kærandi á ný að um misskilning væri að ræða. Hún hafi verið að biðja föður A um hjálp, þ.e. að hann myndi taka á móti dóttur sinni.

Var því næst vikið að meintri árás í byrjun árs 2023. Kvaðst kærandi hafa verið lengi á spítalanum í kjölfar árásarinnar í ljósi þess að hún hafi verið meðvitundarlaus. Kvaðst hún hafa komið á spítalann [...] og hafa verið í níu daga á gjörgæslu. Að níu dögum liðnum hafi kærandi byrjað í [...], útskrifast af spítalanum og farið heim til móður sinnar. Var kæranda bent á að í afriti af þýðingu á framlagðri læknaskýrslu, dags. [...], komi fram að kærandi sé með meðvitund og ekkert komi fram sem gefi til kynna að hún hafi legið í dái. Kvaðst kærandi þá hafa legið í dái á gjörgæslunni og framangreind skýrsla væri læknaskýrsla frá tiltekinni deild en ekki gjörgæslunni. Skýrslan hafi ekki að geyma réttar upplýsingar að þessu leyti. Aðspurð kvaðst kærandi ekki geta nafngreint árásarmennina en vita að Tren de Aragua hafi staðið að baki árásinni. Þá minnti fulltrúi Útlendingastofnunar kæranda á frásögn hennar um að einn árásarmannanna hafi verið þekktur söngvari sem færi inn og út úr fangelsi eftir eigin höfði og bað kæranda um útskýringu á misræminu. Kvaðst kærandi aðeins hafa vitað að áðurnefndur söngvari hafi ráðist á hana þar sem hann sé leiðtogi Tren de Aragua. Kvaðst kærandi vita að árásaraðilarnir hafi verið hluti af Tren de Aragua þar sem það hafi komið skýrt fram í hótununum gegn M. Kærandi telji að skotárásin og kynferðisofbeldið tengist þeim hótunum þar sem árásarmennirnir hafi verið að hefna fyrir uppljóstrun M. Kvaðst kærandi ekki hafa leitað til sálfræðings í heimaríki í kjölfar árásarinnar fyrir utan eitt skipti á spítalanum. Þá var kærandi spurð hvers vegna hún hafi ekki sagt M frá [...] og kvaðst hún hafa haft áhyggjur af því að hann myndi hafna henni. Þegar kærandi var spurð hvort að því hvort að hún hafi lagt fram kæru vegna skotárásarinnar og kynferðisofbeldisins kvað hún yfirmann M ekki hafa viljað taka við kærunni. Þegar kærandi hafi ákveðið að flýja til Íslands hafi hún þrátt fyrir það farið og kært allt það sem hún hafi lent í. Í afriti viðtalsins kemur fram að framlagð skjal af kæru, dags. 24. janúar 2024, hafi verið þýtt og þar kæmi ekkert fram um [...] eða kynferðisofbeldi gagnvart kæranda. Kvað kærandi aðeins koma fram upplýsingar um mannrán og fjárkúganir í kærunni en lét spurningu um hvort önnur kæra væri til um [...] eftir ósvaraðri.

Var kæranda þá gefið tækifæri til að skýra misræmi í frásögnum hennar að því er varðar skólagöngu barnanna, en kærandi hafi bæði greint frá því að hafa sjálf tekið þau úr skólanum og að skólinn hafi tekið ákvörðun um skólagöngu þeirra. Kvaðst kærandi hafa verið að fá hótanir á þessum tíma, upplýst skólann um þær og skólinn hafi ekki viljað taka við börnunum vegna þessa. Eftir það hafi börnin ekki farið í skólann en stundum fengið fjarkennslu. Kvað kærandi aðspurð börnin hafa hætt í skólanum á mismunandi tíma en þetta hafi allt gerst þegar fjölskyldan hafi flutt til mömmu kæranda í Karakas. Var kærandi þá beðin um að greina frá því hvaða borgir eða bæi fjölskyldan hafi flutt í eftir að kæranda og M hafi byrjað að berast hótanir. Kvað kærandi fjölskylduna fyrst hafa búið í [...], næst í Karakas, svo [...] og síðast [...]. Hafi fjölskyldan flutt til móður kæranda í [...] eftir að kærandi hafi orðið fyrir áðurnefndri árás en M hafi farið á undan kæranda ásamt börnunum þremur. Kvað kærandi börnin hennar hafa búið þar þangað til þau sameinuðust henni og M hér á landi. Eiginmaður móður kæranda hafi farið illa með börnin og barnavernd í Venesúela hafi þurft að hafa afskipti af þeim. Kvað kærandi barnavernd hafa tekið börnin frá móður hennar og eiginmanni í júní eða júlí 2024 og flutt þau til frænku sinnar (hér eftir L), sem hafi komið með þau til Íslands. Þá greindi kærandi frá því að móðir hennar hafi komið í veg fyrir samskipti hennar við börnin sín. Kvaðst kærandi ekki hafa vitað um afdrif barna sinna og því haft samband við L til að athuga hvað væri í gangi. Kærandi kvað L hafa gert sér ferð á heimili móður kæranda og fengið að taka B og C í pössun yfir eina helgi en ekki fengið að taka A með. B og C hafi þá sagt frænku sinni frá því að eiginmaður ömmu þeirra hefði bundið þá og að hann og amma þeirra væru að skipuleggja að fara með A til Suður-Bólivar til að selja hana í námuvinnslu. Þá hafi L farið með börnin til lögreglunnar. Í kjölfarið hafi lögregla og barnavernd mætt heim til móður kæranda en enginn verið til húsa. Kærandi kvað barnavernd hafa reynt að gera föður A grein fyrir því að ef hann færi með stelpuna úr fylkinu myndi það teljast mannrán. A hafi síðan fundist á heimili föður síns í [...]. Kvað kærandi A hafa flutt inn til L í kjölfarið hvar bræður hennar hafi þá búið í einhvern tíma. Kvað kærandi A, B, og C hafa dvalið hjá L þar til barnavernd hafði lokað málum þeirra og aðstoðað þau til Íslands. Síðar í viðtalinu var kæranda bent á heilbrigðisgögn þar sem haft er eftir henni að börnin hafi búið í húsnæði barnayfirvalda en í öðrum gögnum að þau hafi búið hjá L. Kvað kærandi barnavernd þá hafa komið í heimsókn til L á tveggja daga fresti til að hafa eftirlit með börnunum. Börnin hafi farið í skýrslutökur hjá geðlækni og saksóknara og þá mætt í einskonar skála hjá barnayfirvöldum til að líða betur. Börnin hafi því ekki búið í húsnæði barnayfirvalda heldur aðeins farið þangað í viðtöl og eins hafi barnavernd og lögreglumenn fylgst með þeim. Var kærandi þá minnt á að í framlögðum heilsufarsgögnum komi fram að kærandi hafi sagt glæpagengi hafa rænt A. Kærandi kvað haft eftir A í framburðarskýrslu hjá lögreglu í heimaríki að nágranni hefði sagt henni að barnshafandi konur væru geymdar í húsinu á meðan þær væru barnshafandi. Í ljósi svars kæranda var hún aftur spurð hvers vegna hún hafi greint frá því að glæpahópur hefði rænt A. Kvaðst kærandi þá alltaf hafa sagt að faðir A hafi rænt henni og jafnframt hafi hann verið eftirlýstur og á flótta. Því næst var innt eftir svari kæranda við því hvort að A hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu eiginmanns ömmu hennar. Kærandi kvað lækni hafa athugað það en ekkert hafi bent til þess og þá hafi A ekki borið því við. Var kæranda bent á í heilsufarsgögnum hafi verið haft eftir henni frásögn þess efnis og kvað kærandi hafa verið uppi grunur um slíkt ofbeldi en ekkert hefði gerst. Þá var kærandi beðin um að skýra misræmi í frásögn um mögulega sölu A í námuvinnslu og vændi af hálfu föður hennar. Hafi kærandi greint frá því í fyrra viðtali að A hafi verið seld í námuvinnslu og vændi, en í síðara viðtali að henni hafi verið bjargað rétt áður en þau áform hafi raungerst. Kærandi kvað það þá hafa staðið til og A hafi verið undirbúin því að verða seld í vændi. Kvaðst kærandi þá aðspurð eiga myndband af því þegar A hafi verið bjargað en hún hafi fengið það sent á samskiptamiðlinum WhatsApp. Kvaðst hún einnig geta lagt fram gögn um samskipti við lögreglu í heimaríki og forsjársviptingu föður A. Þá var kæranda bent á að í heilsufarsgögnum komi fram að hún hafi vitað af ofbeldishegðun móður sinnar og eiginmanns hennar áður en hún hafi yfirgefið heimaríki. Kvað kærandi vera um misskilning að ræða sem búið væri að leiðrétta við barnavernd. Þá var innt eftir svari kæranda við því hvers vegna farið hafi verið fram á [...] á A, B og C á mismunandi tíma og á mismunandi stöðum. Kvað kærandi móður sína hafa hindrað samskipti hennar við A og því hafi [...] á B og C átt sér stað litlu fyrr en hjá systur þeirra. Ástæða þess að [...] á A hafi farið fram í [...] en ekki í [...] líkt og á B og C væri sú að A hafi fundist í fyrrnefnda fylkinu og sálfræðingar, lögreglumenn og barnaverndarfulltrúar tekið á móti henni þar.

Bað fulltrúi Útlendingastofnunar þá um staðfestingu á því að kærandi hafi fengið hótanir í íslenska númerið sitt. Gekkst kærandi við því og kvað son hennar hafa séð hótanirnar á undan henni og komist í uppnám. Aðspurð kvað kærandi móður hennar, systkini og nokkra vini vera með íslenska símanúmerið hennar. Þegar kærandi var spurð hvort að móðir hennar hafi sætt einhverjum afleiðingum vegna framkomu hennar við A, B og C kvað kærandi hana vera eftirlýsta af lögreglu í heimaríki en hún og eiginmaður hennar hafi horfið.

Í lok viðtalsins var athygli kæranda vakin á því að hún hafi í síðasta viðtali greint frá því að hún héldi að eiginmaður móður hennar ynni fyrir Tren de Aragua. Var kærandi spurð að því hvers vegna hún héldi það. Kvaðst kærandi halda það vegna þess að A hefði tjáð henni að hún hefði heyrt hann segja að ef kærandi sneri aftur til Venesúela myndi hann drepa hana. Aðspurð hvort það væri eitthvað sem staðfesti að eiginmaður móður hennar ynni fyrir Tren de Aragua svaraði kærandi að það væri í rannsókn.

A mætti til viðtala hjá Útlendingastofnun 5. nóvember 2024 og 20. mars 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki. A kvaðst vera fædd í [...] og uppalin í Karakas hjá móður sinni hvar hún hafi búið ásamt stjúpföður og tveimur bræðrum. A kvað föður hennar hafa búið í [...] en hún hafi ekki þekkt hann. Greindi A þá frá því að faðir C væri fallinn frá en faðir B hafi verið búsettur í [...]. Þá greindi A frá því að hafa búið hjá móðurömmu sinni í [...] eftir flótta móður hennar. A kvað aðspurð föður hennar hafa komið til hennar og ömmu hennar og dvalið þar í þrjá daga þar til hún hafi síðan farið tilneydd með honum til [...]. Kvaðst A hafa dvalið hjá föður sínum í átta daga, en ástandið þar hafi verið slæmt og eiginkona hans komið illa fram við A, m.a. hent henni á gólfið og gert henni að sofa þar. Þá hafi nágranni föður A sagt henni að faðir hennar hefði í hyggju að selja A í námuvinnslu. A kvaðst hafa hringt í móður sína sem þá hafi verið stödd hér á landi og hún hafi gert lögreglunni á svæðinu viðvart um ástandið. Lögregluþjónar hafi síðan sótt A á heimili föður hennar og keyrt hana til frænku sinnar. Þegar A var spurð hvað hafi gefið í skyn að faðir hennar hafi viljað selja hana kvað hún föður sinn hafa sagt að hún yrði að fara í námuvinnslu með ókunnugum mönnum. Þegar A var spurð út í skólagöngu og líðan kvaðst hún ekki hafa mætt í skólann í heimaríki þar sem að eiginmaður ömmu hennar hafi viljað drepa fjölskyldu hennar. Kvaðst hún hafa gengið í skóla frá fimm til átta ára aldri en síðan hætt að mæta í skólann.

B mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun 26. nóvember 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki. Kvaðst B ekki vita hvar hann væri fæddur og uppalinn en hafa búið hjá ömmu sinni og afa ásamt systkinum sínum í Karakas eftir að foreldrar hans hafi yfirgefið heimaríki. Þá kvaðst B vera [...] og hafi vegna þess þurft að leita til heilbrigðisyfirvalda bæði í heimaríki og hérlendis. B kvaðst aðspurður ekki vita hvers vegna foreldrar hans hafi farið frá heimaríki. Þá kvaðst hann alltaf hafa átt nóg að borða í heimaríki.

Í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar að því er varðar C kemur fram að hann hafi verið boðaður til barnaviðtals hjá stofnuninni 26. nóvember 2024. Þegar C hafi mætt hafi hann neitað að koma inn í viðtalsherbergið og tjá sig við fulltrúa Útlendingastofnunar. Því hafi framburður kæranda um málsástæður C verið talinn fullnægjandi til að leggja til grundvallar ákvörðunar án þess að taka viðtal við hann sjálfan.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda og börnum hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 8. desember 2025 og kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum 5. janúar 2026. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum frá kæranda 2. september 2026. Svör frá kæranda bárust 7. september 2026.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er vakin athygli á því að kærandi sé skilin við M. Að öðru leyti er vísað til fyrirliggjandi gagna málsins að því er varðar málsatvik.

Í greinargerðum kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Vísar kærandi til þess að undanfarna mánuði hafi ástandið í Venesúela verið eldfimt og ofsóknir gegn almennum borgurum hafi margfaldast. Þá vísar kærandi einnig til þess að samkvæmt skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2024 hafi stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum þar í landi á undanförnum árum farið minnkandi. Jafnframt er vísað til þess að lögreglumenn séu sérstakt skotmark glæpasamtaka í Venesúela þegar störf þeirra hindra starfsemi samtakanna líkt og í tilfelli M.

Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kæranda og því mati mótmælt. Telji kærandi að hinar kærðu ákvarðanir sé haldnar verulegum ógildingarannmörkum samkvæmt rannsóknarreglu útlendinga- og stjórnsýsluréttar. Í fyrsta lagi er því mótmælt að í hinni kærðu ákvörðun hafi Útlendingastofnun ekki talið þýðingu á framlagðri læknaskýrslu vera fullnægjandi og að erfitt væri að lesa skriftina. Kærandi telji Útlendingastofnun í lófa lagið að láta þýða umrætt skjal af þar til bærum aðila eða að óska eftir nánari upplýsingum kæranda hvað það varðar. Í öðru lagi mótmælir kærandi þeirri niðurstöðu Útlendingastofnunnar í hinni kærðu ákvörðun að sönnunargildi framlagðra ljósmynda sé takmarkað þar sem stofnunin fái ekki staðfest að myndirnar séu raunverulega af kæranda. Kærandi telji lítið mál að staðfesta að myndirnar séu af henni með smávægilegri skoðun. Auk þess séu umræddar ljósmyndir að fullu leyti í samræmi við önnur framlögð gögn og sönnunargildi þeirra sé því talsvert. Í þriðja lagi mótmælir kærandi því að Útlendingastofnun hafi talið framlagða lögregluskýrslu hafa takmarkað sönnunargildi. Stofnunin vísi til þess að aðgangur á tilteknum samfélagsmiðli sé ekki að finna og þá sé M ekki á myndunum í færslu frá sama aðgangi. Kærandi vísar í að samkvæmt skýrslunni hafi umræddur aðgangur verið stofnaður í þeim tilgangi að hóta henni og M og því sé ekki ótrúverðugt að honum hafi verið eytt. Þá telji kærandi jafnframt ljóst að M sé á myndunum í færslunni og hægt sé að sannreyna það með því að bera þær saman við aðrar ljósmyndir af M. Í fjórða lagi mótmælir kærandi því mati Útlendingastofnunar að framlögð lögregluskýrsla, dags. 25. janúar 2024, dragi úr trúverðugleika frásagnar kæranda um [...] og kynferðisofbeldi þar sem ekki sé minnst á það sérstaklega í skýrslunum. Kærandi geri alvarlega athugasemd við framangreint mat enda hafi hún greint frá því að hafa óttast að segja M frá [...] og eðli máls samkvæmt ekki viljað upplýsa lögreglu um ofbeldið. Mótmælir kærandi í fimmta lagi mati Útlendingastofnunar um takmarkað sönnunargildi framlagðra skjáskota af hótunum á tilteknum samskiptamiðli. Vísar kærandi m.a. til þess að ekki fái staðist að vísa til þess að u.þ.b. sjö vikur hafi liðið frá umræddum hótunum og þar til kærandi hafi kært þær. Kærandi hafi jafnframt eftir það tímamark fengið fjölmargar hótanir sem Útlendingastofnun hafi afskrifað með ómálefnalegum hætti. Vísar kærandi í því samhengi í mat stofnunarinnar á framlögðu myndbandi hvar henni er hótað þar sem bæði er fundið að því að myndbandið sé óskýrt og jafnframt að búið sé að þýða það. Þá mótmælir kærandi í sjötta lagi að hafa verið margsaga í frásögn sinni líkt og Útlendingastofnun heldur fram í hinni kærðu ákvörðun. Þar sé einungis greint frá því að kærandi hafi verið margsaga um aðdraganda skotárásarinnar og er því mótmælt af hálfu kæranda. Í hinni kærðu ákvörðun sé ekki greint frá með nánari hætti hvað felist í meintu misræmi og ekkert í viðtölum kæranda bendi til ósamræmis hvað varðar staðsetningu skotárásarinnar. Þá hafnar kærandi því jafnframt að frásögn hennar að því er varðar sjúkrahúsdvölina hafi verið svo óskýrt að það varði við trúverðugleika hennar. Í ljósi áfallasögu kæranda séu minnistruflanir, sérstaklega að því er varðar tímalengd, eðlilegar og erfiðleikar kæranda við að rifja upp nákvæman dvalartíma á sjúkrahúsi varði ekki trúverðugleika hennar. Þá mótmælir kærandi einnig að misræmi hafi gætt milli kæranda og M um lengd sjúkrahúsdvalar kæranda og hvar börnin hafi verið á þeim tíma. Eftir níu daga samfellda dvöl kæranda á gjörgæslu á spítala hafi hún í framhaldinu þurft að halda áfram að sækja sér aðstoð á spítala og M hafi vísað til þess tímabils sem hafi varað í nokkra mánuði. Í sjöunda lagi mótmælir kærandi að frásögn hennar hvað varðar starfið í Kólumbíu hafi verið metin ótrúverðug. Kærandi telji að um misskilning sé að ræða að því er varðar frásögn hennar um að hafa gengið frá Karakas yfir til Kólumbíu. Hið rétta væri að kærandi hafi ferðast frá Karakas til San Antonio del Tachira og síðan yfir landamærin fótgangandi til Cúcuta í Kólumbíu. Í áttunda og síðasta lagi mótmælir kærandi að misræmi hafi verið í frásögn hennar að því er varðar A, B og C. Hafi kærandi verið spurð út í misræmið í viðtölum 13. nóvember 2024 og jafnframt 20. mars 2025 og vísar til svara sinna þar. Kærandi hafi alltaf greint frá því að eiga þrjú börn og telji annað misskilning eða mistök við túlkun og hið sama gildi að því er varðar búsetu A í Kólumbíu. Þá mótmælir kærandi því jafnframt að misræmi hafi verið til staðar á milli frásagnar hennar og A. Mæðgurnar eigi báðar mikla áfallasögu að baki sem geti haft áhrif á minningar, m.a. að því er varðar tímalengdir. Þá sé fæðingardagur A hinn sami í öllum framlögðum skjölum á skjön við það sem segi í hinni kærðu ákvörðun.

Kærandi krefst þess aðallega að henni og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á ástæðuríkum ótta vegna þjóðernis og aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi, sbr. c og d-liðir 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi sé þolandi ofbeldis á grundvelli þess að hún hafi orðið fyrir ítrekuðum hótunum glæpahóps og lífshættulegu ofbeldi. Þá eigi kærandi á hættu ofsóknir af hálfu glæpamanna, sér í lagi samtakanna Tren de Aragua, sbr. c-liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Í öðru lagi byggir kærandi á því að líta verði á málið hennar hliðstætt og byggir hún á samsafni ástæðna, sbr. 2. máls. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi óttist ekki aðeins eigið líf heldur líf barna sinna en ástæða flóttans tengist störfum M fyrir CICPC með beinum hætti. Þá hafi M flúið land án þess að láta formlega af störfum og vinnuveitandi hans oftar en einu sinni haft uppi á fyrrverandi tengdamóður kæranda í leit af honum. Ekki verði fram hjá því litið að A, B og C hafi orðið fyrir ómannúðlegri meðferð af hálfu náskyldra fjölskyldumeðlima í heimaríki með tilheyrandi líkamlegum og andlegum afleiðingum. Ótti kæranda sé huglægur sem nægi til að uppfylla skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá liggi fyrir að kærandi og börn hennar hafi ekki og geti ekki notið verndar yfirvalda í heimaríki, enda séu yfirvöld sjálf valdur af ofsóknum með ýmsum hætti, sbr. a-liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefst kærandi þess til vara að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hún og börn hennar eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þau send aftur til heimaríkis. Vísar kærandi sérstaklega til viðkvæms líkamlegs og andlegs ástands B í þessu samhengi. Þá hafi kærandi og börn hennar orðið fyrir viðvarandi hótunum, áreiti, pyndingum og ofbeldi.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst kærandi þess að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi m.a. á því að B glími við alvarlegan [...] og vísar í lýsingar lækna hans í fyrirliggjandi sjúkragögnum því til stuðnings. Þar komi fram að B komi til með að vera í lífshættu yrði honum gert að yfirgefa landið þar sem það sé í besta falli óvíst hvort að honum standi til boða viðeigandi meðferð og eftirfylgni í heimaríki.

Með endursendingu kæranda og barna hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telji kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar, einkum að því er varðar mat á framlögðum gögnum, sem leiði til þess að fella beri ákvarðanirnar úr gildi.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru i í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

  1. ríkið,

  2. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

  3. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi og börn hennar hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi og börn hennar séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
  • ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Country Security Report – Venezuela (OCAS, U.S. Department of State, 12. mars 2025);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • Freedom in the World 2025 – Venezuela (Freedom House, 26. febrúar 2025);
  • Freedom in the World 2026 – Venezuela (Freedom House, 19. mars 2026);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for human rights (OHCHR), 28. ágúst 2025);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 12. janúar 2026);
  • UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 14. júní 2026);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, júlí 2026);
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 29. maí 2026);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders

(UNCHR, 22. mars 2023);

  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025) og
  • World Report 2026 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2026.

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Þrátt fyrir að hluti stjórnarandstöðunnar hafi lýst Juan Guaido yfir sem bráðabirgðaforseta hafi Nicolás Maduro haldið raunverulegum yfirráðum ríkisins með stuðningi öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar leitt til þess að í desember 2022 hafi bráðabirgðastjórn Juan Guaido verið lögð af. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan tilnefnt Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum, en 30. október s.á. hafi Hæstiréttur Venesúela ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan tilnefnt Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Samkvæmt heimildum fóru forsetakosningar fram í Venesúela 28. júlí 2024 og í kjölfarið hafi landkjörstjórn lýst því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör, á skjön við fullyrðingar stjórnarandstöðunnar. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi verið kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert. Í skýrslu Freedom House frá 2026 kemur fram að stjórnarandstaðan hafi sniðgengið þingkosningar í maí 2025 í mótmælaskyni og, líkt og í forsetakosningunum 2024, hafi landskjörstjórnin ekki opinberað niðurstöður kosninganna, hvorki kjörsókn né kosningaúrslit.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024, 2025 og 2026 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.

Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. í skýrslum Human Rights Watch og Freedom House frá 2026, kemur fram að í kjölfar forsetakosninganna árið 2024 hafi stjórnvöld, með aðstoð vopnaðra hópa, haldið áfram að fremja umfangsmikil mannréttindabrot. Í skýrslu Freedom House kemur ennfremur fram að þrátt fyrir að venesúelsk stjórnvöld hafi látið um tvö hundruð pólitíska fanga lausa frá júlí fram í desember 2025 bendi heimildir til þess að rúmlega níu hundruð pólitískir fangar hafi enn verið í haldi í árslok 2025.

Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 hafi saksóknara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í mars 2022 verið heimilt að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að dómstóllinn hafi tilkynnt um áframhaldandi rannsókn meintra glæpa gegn mannkyni í Venesúela og opnun skrifstofu þarlendis í júní 2023. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2026 var rannsóknin enn yfirstandandi árið 2025.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi hvorki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar. Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 28. ágúst 2025, kemur fram að frá því í maí 2024 og fram í apríl 2025 hafi takmarkanir á borgaralegum réttindum almennings í Venesúela aukist enn frekar.

Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Nýrri heimildir, m.a. skýrsla Human Rights Watch frá 2026 og upplýsingar á vefsíðu Insight Crime, renna jafnframt stoðum undir hlutverk Colectívos sem hópa sem starfi að undirlagi yfirvalda.

Í skýrslu EUAA frá 2023 og 2026 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Samkvæmt skýrslu EUAA frá júlí 2026 hafi áætluð morðtíðni árið 2024 vegna dauðsfalla af völdum ofbeldis verið 26,2 á hverja hundrað þúsund íbúa skv. Venezuealan Observatory of Violence sem sé fækkun frá árinu 2023, sem var 26,8, og enn frekar frá árinu 2022 sem var 40,4.

Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2023 og 2026 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Fjölbreyttir aðilar standi þar að baki, þar á meðal öryggissveitir ríkisins, vopnaðir hópar og skipulögð glæpasamtök. Aðferðirnar séu margvíslegar og feli meðal annars í sér svokölluð verndargjöld, ólögmæta skatta, mannrán gegn lausnargjaldi, hótanir og ofbeldi. Helstu fórnarlömb séu almennir borgarar, fyrirtæki, kaupmenn, flutningafyrirtæki og einstaklingar í viðkvæmri stöðu. Árið 2026 hafi upplýsingar bent til aukinna fjárkúguna og ofbeldis gegn bændum, þar á meðal morðum, íkveikjum og hótunum af hálfu skipulagðra glæpahópa. Einnig hafi meðlimir glæpagengis í Aragua verið handteknir fyrir að hafa kúgað fjölda fyrirtækja. Samhliða efnahagskreppunni hafi sum venesúelsk glæpagengi fært starfsemi sína til annarra ríkja í Suður-Ameríku, en haldi jafnframt áfram að kúga íbúa innanlands, einkum í fátækum hverfum þar sem yfirvöld grípi sjaldan til árangursríkra aðgerða. Fjárkúgun af hálfu öryggissveita ríkisins byggist oft á því að einstaklingar séu stöðvaðir við eftirlitsstöðvar eða handteknir með upplognum ásökunum. Einstaklingum sé síðan boðið að greiða háar fjárhæðir til að forðast ákæru eða langvarandi málsmeðferð. Ef einstaklingar neiti greiðslu geti þeir orðið fyrir frekari kúgun innan réttarkerfisins af hálfu dómara, saksóknara eða annarra embættismanna. Þessi framkvæmd bitni einkum á ungu fólki og eldri einstaklingum, þar sem talið sé að fjölskyldur þeirra geti greitt lausnargjöld sem nemi oft nokkrum þúsundum Bandaríkjadala. Glæpasamtök beiti einnig harðri fjárkúgun og grípi til hefndaraðgerða, svo sem eignaspjalla, þjófnaðar, líkamsárása eða mannrána, ef fórnarlömb greiði ekki. Aðstoð frá yfirvöldum sé almennt takmörkuð vegna útbreiddrar spillingar, samráðs embættismanna við glæpasamtök og veikra stofnana. Þótt til staðar séu staðbundin forvarnarverkefni hafi raunverulegur árangur verið lítill og efnahagsástand landsins, þar á meðal aukin dollaravæðing hagkerfisins, hafi gert fjárkúgun að enn arðbærari tekjulind fyrir skipulagða glæpastarfsemi.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun trúar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu, einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.

Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2026 hafi tæplega átta milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta frá því árið 2014.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum.

Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2026 kemur fram að margir hafi neyðst til að grípa til sjálfslyfjameðferðar eða treysta á stuðning fjölskyldu og annarra persónulegra tengslaneta til að afla sér meðferðar.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2026 hafi tæplega átta milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta frá því árið 2014.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum.

Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2026 kemur fram að margir hafi neyðst til að grípa til sjálfslyfjameðferðar eða treysta á stuðning fjölskyldu og annarra persónulegra tengslaneta til að afla sér meðferðar. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2026 kemur fram að tæplega 18% Venesúelabúa standi frammi fyrir vannæringu. Opinberar heilbrigðisstofnanir skorti enn nauðsynleg lyf og tæki. Margir notist við lyf án samráðs við lækni (e. self-medication)og reiði sig á eigið stuðningsnet vegna takmarkaðs aðgangs að læknum og lyfjum. Samkvæmt skýrslu Landinfo frá 2026 hafi bandarísk stjórnvöld sent fleiri birgðir af lyfjum og búnaði til Venesúela. Í febrúar 2026 hafi Bandaríkin sent yfir 65 tonn af lækningatækjum til Venesúela þar á meðal lyf og búnað fyrir sjúkrahús. Þá kemur fram að skv. MedCOI virki einkarekna heilbrigðiskerfið ágætlega og sé stöðugt, þar sé enginn almennur skortur á heilbrigðisstarfsfólki eða lyfjum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.

Heimildum kemur saman um að á árunum 2024 og 2025 hafi bandarísk stjórnvöld haldið áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beinst hafi að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Hinn 7. ágúst 2025 birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna myndskeið hvar þáverandi dómsmálaráðherra landsins, Pam Bondi, hét því að verðlauna hvern þann sem veitt gæti upplýsingar sem leitt gætu til handtöku Maduro 50 milljónir bandaríkjadollara. Á seinni hluta árs 2025 hafi þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela aukist enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Samkvæmt fréttatilkynningum fjármála- og dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak með það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á sama tíma hafi bandarísk yfirvöld kyrrsett fjölda olíuskipa sem þau hafi talið reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Samkvæmt heimildum, þ. á m. frétt á vefsíðu The Washington Post 16. desember 2025, tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í færslu á Truth Social um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Í fréttinni er aðgerðinni lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.

Í skýrslu EUAA frá júlí 2026 kemur fram að í byrjun árs 2026 hafi verulegar pólitískar breytingar átt sér stað í Venesúela í kjölfar hernaðarinngrips Bandaríkjanna. Hinn 3. janúar 2026 framkvæmdu bandarískir hermenn aðgerð í Karakas sem leiddi til handtöku Nicolás Maduro forseta og eiginkonu hans. Í kjölfarið hafi yfirvöld í Bandaríkjunum lýst því yfir að þau myndu styðja tímabundin umskipti í Venesúela og jafnframt endurskipuleggja samskipti ríkjanna, þar á meðal aflétta hluta viðskiptaþvingana. Fjöldi þeirra sem hafi fallið í aðgerðinni sé ekki ljós, en heimildir bendi til þess að tugir meðlima öryggissveita Venesúela og kúbverskra hermanna hafi látið lífið. Hinn 5. mars 2026 hafi Delcy Rodríguez verið skipuð bráðabirgðaforseti af þjóðþinginu. Þrátt fyrir að stjórnskipan landsins hafi að mörgu leyti haldist óbreytt hafi Rodríguez að sögn tekið nokkra stefnumarkandi fjarlægð frá stjórnarháttum Maduro og hafið náið samstarf við Bandaríkin. Sama dag hafi stjórnmálasambönd ríkjanna verið endurvakin eftir sjö ára hlé og nokkrum dögum síðar hafi Bandaríkin viðurkennt Rodríguez formlega sem forseta.

Í kjölfar valdatökunnar hafi verið gerðar breytingar á framkvæmdavaldinu í Venesúela, hernum og öryggisstofnunum. Meðal annars hafi varnarmálaráðherra verið leystur frá störfum, nýir herforingjar skipaðir og breytingar gerðar á stjórn leyniþjónustunnar og forsetavarðliðsins. Hins vegar hafi kröfum um tafarlausar forseta- og þingkosningar verið hafnað og þeim frestað um óákveðinn tíma. Heimildir bendi til þess að borgaralegt og pólitískt svigrúm hafi aukist eftir brottvikningu Maduro. Skoðanakannanir sýni að meirihluti svarenda telji að borgaraleg réttindi og lýðræðisleg skilyrði hafi batnað. Stjórnmálaflokkar og frjáls félagasamtök hafi endurvakið starfsemi sína, rannsóknir og opinbera gagnrýni, auk þess sem þátttaka í mótmælum hafi aukist. Þrátt fyrir þessar jákvæðu breytingar beiti stjórnvöld sér enn gegn stjórnarandstæðingum og enn sé hætta á mannréttindabrotum af þeirra hálfu.

Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 8. mars 2026, hafði 670 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Telja samtökin að enn séu um 508 pólitískir fangar í haldi. Ennfremur voru svokölluð sakaruppgjafarlög (e. Amnesty law) samþykkt á venesúelska þjóðþinginu sem vonir standi til að leiði til þess að fjölda pólitískra fanga verði sleppt. Lögin nái þó ekki til þeirra sem hafi verið ákærðir eða sakfelldir fyrir að hvetja til hernaðaraðgerða gegn landinu. Hafa stjórnvöld verið hvött til þess að ganga úr skugga um að aðeins þeir sem hafi verið handteknir fyrir að nýta sér rétt sinn til tjáningar, skoðunar og samkomu/funda njóti verndar laganna en ekki aðilar sem hafi gerst sekir um alvarleg mannréttindabrot og glæpi gegn mannkyni, s.s. herlið á vegum yfirvalda og skæruliða.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsóknir hennar og barna hennar um alþjóðlega vernd á ástæðuríkum ótta við ofsóknir vegna þjóðernis og aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi. Kærandi og börn hennar hafi upplifað ofbeldi af hálfu glæpasamtaka sem rekja megi til starfs M sem lögreglumanns í Venesúela. Þá byggir kærandi á því að líta beri til samsafns ástæðna í samræmi við almennt ástand í heimaríki.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar og barna hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram fjölmörg gögn máli sínu til stuðnings. Meðal þeirra er afrit af lögregluskýrslu, dags. 29. apríl 2022, sem ber með sér að vera framburðarskýrsla þar sem M greinir frá því að óþekktir aðilar hefðu birt líflátshótun gegn honum í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook í nafni Tren de [...]. Meðfylgjandi er ódagsett færsla á Facebook undir notandanafninu Tren de [...] sem ber með sér að hafa að geyma hótanir í garð lögreglu eða tiltekinna lögreglumanna á samnefndu svæði. Með færslunni eru birtar tvær ljósmyndir, önnur af einstaklingi sem stendur fyrir framan auðkennismerki CICPC og hin af hópi karlmanna. Einstaklingarnir á ljósmyndunum eru ópersónugreinanlegir og er ekki að sjá að M sé sérstaklega nefndur á nafn eða vísað í hann að öðru leyti. Færslan bendir fremur til þess, líkt og heimildir benda til, að um sé að ræða einhverskonar hræðsluáróður staðbundins glæpahóps í [...]. Kærandi lagði einnig fram skjáskot af skilaboðum á Whatsapp frá óvistuðu símanúmeri dags. 8. – 11. desember 2023. Af skilaboðunum má m.a. ráða að kærandi sé ítrekað krafin um svör við ótilgreindri spurningu en ellegar megi hún eiga von á því að hún eða börnin hennar verði beitt ofbeldi. Þá er minnst á [...] sem kærandi kveðst hafa orðið fyrir í janúar 2023 og því hótað að hún verði endurtekin. Af vélrænni þýðingu á framlagðri lögreglukæru, dags. 25. janúar 2024, má ráða að kærandi hafi leitað til lögregluyfirvalda í heimaríki 24. janúar s.á. vegna fjárkúgunarskilaboða sem henni hafi borist frá og með 9. desember 2023. Skilaboðin hafi falið í sér kröfu um greiðslu tíu þúsund bandaríkjadollara gegn því að ekki yrði ráðist gegn líkamlegu öryggi hennar eða fjölskyldu hennar. Í afriti kærunnar er hvorki minnst á [...] né kynferðisofbeldi. Þá kemur hvergi fram hver sendandi skilaboðanna sé. Þá lagði kærandi fram nokkur myndskeið af meintum hótunum gegn henni og fjölskyldu hennar. Í einu þeirra má sjá mann sem situr við borð hvar sjá má útprentaðar myndir af M og börnum kæranda auk skammbyssu. Búið er að setja enskan texta undir myndbandið, en þar kemur m.a. fram að M eigi ekki afturkvæmt til Venesúela án þess að verða tekinn af lífi ásamt börnum kæranda og að þau geti hvergi verið óhult þar í landi. Óljóst er hvernig aðilinn á myndbandinu hafði uppi á umræddum myndum af M og börnum kæranda. Þá lagði kærandi einnig fram afrit af starfsmannaskírteini M hjá CICPC.

Meðal gagna málsins er jafnframt afrit af læknaskýrslu vegna meintrar árásar og þýðing á skýrslunni. Læknaskýrslan, dags. [...], ber með sér að vera handskrifað bréf með einkennalýsingu sjúklings. Í þýðingu sem send var með bréfinu kemur fram að um sé að ræða [...] sem hafi ekki haft þekkta sjúkrasögu fram til [...] þegar hún hafi fengið [...] á hvirfil- og hnakkasvæðið. Hún hafi þá verið flutt á skurðstofu þar sem skurðhreinsun [...] hafi verið framkvæmd. Þá kemur jafnframt fram að [...] sé greinilegt eftir skurðaðgerð og eins að sjúklingurinn hafi verið með meðvitund og áttaður á stund, stað og eigin persónu. Þá lagði kærandi jafnframt fram fjórar ljósmyndir, þrjár af [...] og eina persónugreinanlega af einstaklingi með sárabindi um höfuðið. Í afriti af framlögðum samskiptaseðli frá göngudeild sóttvarna, dags. [...], er haft eftir kæranda að hún sé með [...] á höfði eftir [...] árinu áður. Kemur fram að kærandi hafi bent lækni á [...]. Þá kemur einnig fram að hún muni ekki eftir árásinni en þegar hún hafi vaknað hafi hún fundið fyrir miklum verkjum á kynfærasvæðinu. Kærandi hafi engum sagt frá, ekki viljað að M vissi af, og ekki verið skoðuð af kvensjúkdómalækni í kjölfarið.

Í viðtali 29. febrúar 2024 greindi kærandi frá því að hafa flúið heimaríki vegna hótanna og árásar sem hún hafi upplifað í tengslum við rannsóknarlögreglustörf M. Tveimur árum áður hafi M komið að handtöku meðlima glæpasamtakanna Tren de Aragua og Tren de [...] sem gert hafi hann og fjölskyldu hans, þ.m.t. kæranda, að skotmörkum. Kærandi og M hafi þá flutt með börnin frá [...] til Karakas en hótanirnar haldið áfram í ár þar til kærandi hafi orðið fyrir líkamlegri árás. Kvaðst kærandi hafa verið á leið að sækja börnin sín í skólann hinn [...] þegar menn hafi neytt hana inn í bifreið, [...] henni og skotið hana í höfuðið. Kærandi kvaðst muna eftir því að hafa vaknað á spítalanum eftir að hafa verið meðvitundarlaus í átta eða níu daga. Í viðtali 6. maí 2024 greindi kærandi frá því að árásin hafi verið mjög skipulögð, það hafi verið öryggi í byggingunni en árásarmennirnir hafi komist fram hjá því. Þegar kærandi var beðin um útskýringar á framangreindu misræmi í viðtali 20. mars 2025 kvaðst hún alltaf hafa greint frá því að árásin hafi gerst þegar hún hafi verið á leiðinni í skólann. Um leið og kærandi hafi stigið út úr byggingunni hafi hún verið skotin. Eru skýringar kæranda hvað þetta varðar einnig að nokkru leyti á skjön við fyrri frásögn hennar hvar hún segir mennina hafa beitt hana kynferðisofbeldi áður en þeir hafi skotið hana í höfuðið. Í viðtali 20. mars 2025 var kærandi jafnframt spurð út í árásarmennina og kvaðst hún ekki þekkja þá að öðru leyti en að þeir hafi heyrt til Tren de Aragua. Var kærandi þá minnt á að í viðtali 29. febrúar 2024 hafi hún upplýst stofnunina um að einn árásarmannanna væri tónlistamaðurinn [...]. Þegar innt var eftir svari kæranda við því hvaðan hún hefði upplýsingar um umræddan mann ef hún gæti ekki nafngreint þá aðila sem hafi ráðist á hana kvað hún hann vera leiðtoga glæpasamtakanna. Þá kvaðst hún vita að árásarmennirnir hafi tilheyrt Tren de Aragua þar sem það hafi komið skýrt fram í hótunum gagnvart M og kærandi telji [...] og [...] tengjast hótununum. Í viðtali 29. febrúar 2024 kvaðst kærandi hafa gert tilraunir til að kæra árásina til lögregluyfirvalda en ekki orðið framgengt í því. Í viðtali 13. nóvember 2023 kvaðst kærandi aðspurð hafa leitað til lögreglu í heimaríki vegna árásarinnar. Þegar fulltrúi Útlendingastofnunar gerði kæranda vart við að stofnuninni hafi aðeins borist afrit kæru dags 29. apríl 2022, þ.e. tæplega tveimur árum fyrir meinta árás, kvaðst kærandi ekki hafa getað fylgt málinu eftir í heimaríki þar sem yfirmaður M hjá CICPC hafi ekki veitt henni lið. Var kærandi þá upplýst um að í framlagðri kæru dagsettri 25. janúar 2024, kæmi ekkert fram um meinta árás gegn henni í janúarmánuði ári fyrr. Aðspurð um tilvist annarrar kæru þess efnis svaraði kærandi ekki með beinum hætti en endurtók að í kærunni væri frásögn um mannrán og fjárkúgun. Kvaðst hún þá að nýju aðspurð ekki hafa lagt fram kæru í kjölfar atviksins vegna mótlætis áðurnefnds yfirmanns M. Í viðtalinu var kæranda jafnframt gefið tækifæri á að skýra misræmi að því er varðar afleiðingar árásarinnar. Var kæranda gerð grein fyrir því að í afriti af þýðingu læknaskýrslu, dags. [...], kæmi fram að kærandi hafi verið með meðvitund sem ekki færi saman við frásögn kæranda um að hafa verið meðvitundarlaus í níu daga eftir árásina. Kærandi bar því við að hafa legið meðvitundarlaus á gjörgæslunni en skýrslan væri frá annarri deild og væru upplýsingarnar ekki réttar að þessu leyti. Í viðtölum 13. nóvember 2024 og 20. mars 2025 kvaðst kærandi halda að eiginmaður móður hennar ynni fyrir Tren de Aragua. Aðspurð í síðara viðtalinu hvort hún gæti lagt eitthvað fram sem staðfesti framangreint svaraði kærandi að það væri í rannsókn. Kærandi hefur engin gögn lagt fram sem renna stoðum undir það að eiginmaður móður hennar hafi tengsl við Tren de Aragua eða vinni fyrir samtökin og virðist sú staðhæfing eingöngu byggja á getgátum kæranda sjálfrar.

Samkvæmt nýlegum heimildum eru Tren de Aragua valdamestu og stærstu glæpasamtök í Venesúela og teygja anga sína til fjölda landa í Suður-Ameríku, m.a. Kólumbíu, Ekvador, Perú, Bólivíu og Chile. Foringi samtakanna var lengi vel [...] en í júní 2026 birti forseti Bandaríkjanna færslu hvar andlát hans var staðfest. Samkvæmt heimildum feli helsta brotastarfsemi samtakanna í sér ólöglega námuvinnslu, viðskipti með fíkniefni og vopn, mansal, mannrán, fjárkúganir, þvingaðar nýliðaskráningar, dráp og rán. Samtökin fái einnig staðbundna glæpahópa til að framkvæma sum afbrot fyrir glæpasamtökin eða leyfa glæpahópum að nota nafn samtakanna í sinni starfsemi. Þungamiðja stjórnar samtakanna hafi áður verið í Tocorón fangelsinu í [...] en í september 2023 hafi stjórnvöld í Venesúela tekið yfir stjórn fangelsisins aftur. Þá hafi samtökin jafnframt haft viðveru í fimm öðrum ríkjum í Venesúela, fylkjunum Carabobo, Sucre, [...], Guárico og Lara. Þá kemur heimildum frá heimaríki kæranda saman um að fjárkúganir hafi aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Landaupplýsingar bendi til þess að fjárkúganir sem framdar séu af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum séu ítrekaðar og þolendur þurfi reglulega að greiða samtökunum fjárhæðir í samræmi við kaupmátt. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgunum séu ófullnægjandi og þá bera heimildir með sér að lögreglumenn hafi tekið þátt í fjárkúgunum og krafist verndargjalds af fyrirtækjum.

Með hliðsjón af landaupplýsingum og framlögðum gögnum telur kærunefnd á hinn bóginn ekki unnt að útiloka að kærandi hafi verið þolandi [...] þegar hún hafi átt heima í Karakas í janúar 2023. Þá er ekki ástæða til að útiloka að kærandi hafi orðið fyrir einhvers konar áreiti ótilgreindra einstaklinga eða glæpamanna í heimaríki. Kærandi hefur þó ekki lagt neitt fram til stuðnings því að árásin og hótanirnar hafi verið að undirlagi meðlima Tren de Araguaog/eða einstaklings sem þekktur sé undir viðurnefninu [...]. Lítur kærunefnd til þess að í framlögðum gögnum kemur hvergi fram hver sendandi hótananna hafi verið eða hver ástæða þeirra væri að öðru leyti. Þá hefur kærandi ekkert lagt fram sem rennir stoðum undir tengsl eiginmanns móður hennar við Tren de Aragua eins og áður segir. Með hliðsjón af framangreindu metur kærunefnd frásögn kæranda um hótanir Tren de Aragua í hennar garð ótrúverðuga.

Þá verður ekki talið að það áreiti sem kærandi hefur lýst nái því marki að teljast ofsóknir af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila í skilningi 38. gr. laga um útlendinga. Við það mat lítur kærunefnd til að kærandi hafi leitað til lögreglu og er ekkert sem bendir til þess að hún geti ekki leitað til lögreglu á ný telji hún þess þörf. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá hefur dómsmálaráðherra Venesúela sett á fót stofnun sem samkvæmt landaupplýsingum taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Með vísan til framangreinds verður gengið út frá því að kæranda standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda vegna kynbundins áreitis eða ofbeldis telji hún þörf á slíku.

Í greinargerð kæranda er byggt á samsafni ástæðna og að líta beri á mál hennar með hliðsjón af aðstæðum barna hennar í heimaríki. Börn kæranda hafi orðið fyrir miklu ofbeldi í heimaríki af hálfu náinna fjölskyldumeðlima. Mikils misræmis hefur gætt í frásögn kæranda að því er varðar börnin hennar, bæði innbyrðis og í samanburði við frásagnir A og B. Líkt og áður hefur komið fram var kæranda veitt tækifæri í viðtali 13. nóvember 2024 á að útskýra misræmi í fyrri viðtölum, m.a. að því er varðar fjölda barna hennar. Kærandi neitaði fyrir það að hafa í viðtali 29. febrúar 2024 sagst eiga tvö börn í Venesúela og kvað um misskilning að ræða enda eigi hún þrjú börn. Þegar innt var eftir svari kæranda við því hvers vegna hún hafi sagt að A væri búsett hjá föður sínum í Brasilíu kvaðst hún mögulega hafa talað um það í samhengi við fyrirætlanir um að A yrði seld í námuvinnslu. Faðir A hafi búið í [...] við landamæri Brasilíu og Venesúela, nálægt ólöglegri námuvinnslu. Að sögn kæranda hafi misræmið einnig getað litast af því að hún hafi beðið föður A um aðstoð með dóttur sína. Í barnaviðtali kvaðst A aldrei hafa heimsótt Brasilíu. Að því er virðist hafi kærandi bundið vonir við að faðir A myndi taka við forsjá hennar og þ.a.l. aðeins greint frá aðstæðum B og C í heimaríki framan af í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Þá kemur fram í samskiptaseðli hjúkrunar, dags. [...], að kærandi eigi að sögn tvö börn og að baki [...].

Í viðtali 29. febrúar 2024 greindi kærandi frá því að hún og M hafi flutt með börnin hennar til móður kæranda í [...] borg í kjölfar árásarinnar í janúar 2023. Líkt og fram hefur komið kvaðst kærandi eiga tvö börn í sama viðtali. Aðspurð um andlega heilsu í viðtali 6. maí s.á. kvaðst kærandi hafa áhyggjur af börnunum sínum. B og C hafi þurft að hætta að ganga í skóla í heimaríki af öryggisástæðum en A hafi verið í öruggum höndum föður síns í Brasilíu. Í viðtali 13. nóvember 2024 kvað kærandi M hafa farið með A, B og C til [...] eftir árásina og börnin hafi haldið áfram að búa hjá ömmu sinni þar til þau hafi komið til Íslands. Eftir að kærandi og M hafi flutt hingað til lands hafi þeim reynst erfitt að ná sambandi við börnin í heimaríki. Kærandi hafi þá haft samband frænku sína, L, til að athuga með ástandið á heimilinu. Kærandi kvað B og C hafa farið í helgarpössun hjá L en A verið eftir hjá ömmu sinni. B og C hafi sagt L frá því að stjúpafi þeirra hafi beitt þá ofbeldi. Kvað kærandi L hafa tekið B og C til lögreglunnar eftir að hafa fengið veður af framkomu ömmu þeirra og stjúpafa við þá. Eftir að barnavernd hafi verið gert viðvart um ástandið hafi fulltrúar þeirra farið ásamt lögreglu að sækja A heim til ömmu sinnar en hún hafi ekki verið þar. Eftir leit hafi A fundist á heimili föður síns í [...] og í kjölfarið hafi hún flutt til frænku sinnar og bræðra. Þegar kæranda var í viðtali 20. mars 2025 gert kunnugt um að í heilsufarsgögnum hafi verið haft eftir henni að glæpahópur hafi rænt A kvað hún það haft eftir A í lögregluskýrslu að nágranni hennar í [...] hafi sagt henni að barnshafandi konur væru hafðar í tilteknu húsi á meðan meðgöngu stæði. Þá var að nýju innt eftir svari kæranda við því að hafa greint frá því að glæpahópur hafi rænt A. Kvaðst kærandi alltaf hafa sagt að faðir A hafi rænt henni, öll gögnin gefi það til kynna og núna sé hann eftirlýstur og á flótta. Í viðtali 13. nóvember 2024 greindi kærandi frá því að faðir A hafi farið með hana í námuvinnslu hvar hann hafi selt hana í vændi. Í viðtali 20. mars 2025 kvað kærandi hafa staðið til að selja A í vændi í námuvinnslu en sú áætlun ekki orðið að veruleika. Þegar kærandi var spurð út í framangreint misræmi endurtók hún frásögn úr sama viðtali og kvað A hafa þakkað Guði fyrir að barnayfirvöld í [...] hafi fundið hana í tæka tíð.

Í gögnum málsins er að finna skjöl frá barnayfirvöldum í [...] í [...]. Í skjölum, dags. 23. júlí 2024, kemur fram að B og C hafi greint frá slæmum heimilisaðstæðum hjá ömmu sinni og stjúpafa. Þeir hafi m.a. sagt að amma þeirra og stjúpafi væru vond og hafi talað illa um móður þeirra. Hafi bræðurnir jafnframt sagt að amma þeirra og stjúpafi haldi upp á A og tali sérstaklega illa um kæranda í návist hennar til að vekja hjá henni tortryggni í garð móður sinnar. Þá hafi þeir greint frá því að A kenni bræðrum sínum um eigin hegðun sem leiði til þess að þeim sé refsað, m.a. líkamlega. Einnig hafi bræðurnir greint frá því að amma þeirra og stjúpafi hafi hindrað samskipti þeirra við móður sína. Sama frásögn er höfð eftir B og C í framlögðum samskiptaseðlum hjúkrunar hér á landi. Þá lagði kærandi jafnframt fram kvörtunarbréf til CICPC lögreglunnar í heimaríki, dags. 26. júlí 2024, þar sem fram kemur að L hafi leitað til yfirvalda vegna þeirrar meðferðar sem börnin hafi hlotið heima hjá ömmu sinni og stjúpafa. Þá lagði kærandi fram afrit af skjali, dags. 8. ágúst 2024, sem ber með sér að vera bréf til saksóknara í Venesúela í nafni L þar sem hún leggur fram skjáskot af Whatsapp skilaboðum frá föður A til kæranda hvar hann hóti henni lífláti. L óttist þær afleiðingar sem hótanir föður A geti haft á A, B og C. Skjal frá barnayfirvöldum í [...] í [...], dags. 31. júlí 2024, ber með sér að vera tilkynning til barnayfirvalda í [...] um hvarf A hvar þau eru beðin um að hafa uppi á föður A og ömmu hennar í þeim tilgangi að finna A. Í skjali, dags. 10. september 2024, kemur fram að A hafi aðspurð sagst hafa búið hjá frænku sinni, L, frá því að barnayfirvöld hafi fundið hana í [...] þangað sem faðir hennar og amma hafi neytt hana til að flytja. A hafi búið hjá föður sínum með frændfólki sínu og stjúpmóður sem komið hafi illa fram við hana.

Með vísan til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Venesúela telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga frásagnir kæranda í efa hvað varðar aðstæður A, B og C í heimaríki. Heimildir benda til þess að ólögleg námuvinnsla sé víðtæk í Venesúela og meðal þess sem þekkist á slíkum svæðum sé barnaþrælkun og kynferðisofbeldi, m.a. gegn börnum. Aftur á móti er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að þær athafnir sem kærandi hafa lýst hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Af gögnum málsins er ljóst að barnaverndaryfirvöld í Venesúela hafi haft umtalsverð afskipti af börnunum og að börnin hafi notið aðstoðar og verndar lögreglu í heimaríki. Þá bera frásagnir kæranda, A og B með sér að ofbeldið hafi verið af hálfu móður kæranda og eiginmanns hennar en A hafi jafnframt orðið fyrir ofbeldi af hálfu föður síns. Samkvæmt kæranda hafi móðir hennar og eiginmaður hennar flúið Venesúela og faðir A fari ekki með forsjá A. Telur kærunefnd ekki ástæðu til annars en að ætla að kæranda og börnum hennar standi til boða aðstoð barnaverndaryfirvalda og lögreglu í heimaríki verði þau fyrir áreiti af hálfu fjölskyldumeðlima kæranda eða annarra aðila.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda, viðtölum við A og B og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi kæranda aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd kæranda sem er heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings hennar. Eins og áður greinir stendur börnum kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum hennar og barna hennar í heimaríki, telst kærandi ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún og börn hennar eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í greinargerð kæranda er byggt á því að hún og börn hennar eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þau send aftur til heimaríkis. Er vísað til reynslu B og C af pyntingum og þá einkum í ljósi andlegs ástands B.

Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga áhættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda og barna hennar er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka. Hefur kærunefnd við það mat litið sérstaklega til stöðu barna kæranda og heilsufars C.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsett í Karakas, höfuðborg Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Karakas í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og börn þeirra hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi og börn hennar eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og börn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem voru samþykkt á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 6. febrúar 2024 og A, B og C 21. október 2024. Kærandi og börn hennar höfðu því ekki fengið niðurstöðu í máli sínu innan þeirra tímamarka sem getið var um í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga fyrir gildistöku breytingarlaganna og á ákvæðið því við. Er því heimilt að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar eru færð rök fyrir því að frásögn kæranda og framkoma hennar við málsmeðferð hafi verið með slíkum hætti að hún teldist ekki uppfylla skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, þ.e.a.s. að hún hafi ekki aðstoðað við úrlausn málsins í skilningi ákvæðisins. Vísaði stofnunun einkum í misræmi í frásögn kæranda hvað varðaði fjölda barna sem hún ætti sem hafi leitt til þess að ástæða var talin til að gera rannsókn á skyldleika A og kæranda. Þá hafi verið töluvert misræmi í framburði kæranda og hún hafi þrætt fyrir það misræmi í síðari viðtölum. Þrátt fyrir að fallast megi á það með Útlendingastofnun að nokkuð misræmi hafi verið í frásögn kæranda um ákveðin atriði er vörðuðu flótta hennar frá heimaríki, s.s. hvað varðar [...] og fjölda barna líkt og rakið hefur verið hér að framan, þá verður ekki talið að frásögn kæranda hafi í heild verið ótrúverðug eða að misræmið hafi leitt til slíks dráttar á málsmeðferð að það hafi leitt til þess að mál fjölskyldunnar hafi fallið á tímafrestum.

Að mati kærunefndar uppfyllir kærandi því skilyrði a- til d-liða 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vegabréf fyrir sig og börn sín. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærandi eða börn hennar séu, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kæranda skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinar kærðu ákvörðunar er hún staðfest hvað varðar umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar hvað varðar umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

The decision of the Directorate of Immigration regarding the appellants application for international protection is affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellant and her children residence permitas based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Var efnið hjálplegt?