23. október 2026 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar fyrirtækjaksrár um að hafna niðurfellingu dagsekta.

Föstudaginn, 23. október 2026, var í atvinnuvegaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

 

Stjórnsýslukæra

Með erindi, dags. 21. júlí 2026, barst ráðuneytinu kæra [A] ehf., kt. […] (hér eftir kærandi eða félagið), vegna ákvörðunar fyrirtækjaskrár frá 28. apríl 2026 um að hafna beiðni félagsins um niðurfellingu dagsekta vegna ófullnægjandi upplýsinga í fyrirtækjaskrá.

Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og barst innan kærufrests.

 

Kröfur

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Kærandi krefst þess til vara að dagsektir verði lækkaðar verulega með hliðsjón af meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins. Kærandi krefst þess einnig að ríkissjóði verði gert að greiða kæranda málskostnað vegna kærunnar.

 

Málsatvik

Samkvæmt gögnum málsins eru málavextir eftirfarandi. Með erindi til fyrirtækjaskrár, dags. 31. mars 2023, sagði eini stjórnarmaður félagsins sig úr stjórn þess. Hinn 7. janúar 2025 var félaginu tilkynnt um fyrirhugaða álagningu dagsekta með bréfi sem birt var í stafrænu pósthólfi félagsins. Í bréfinu kom fram að við eftirlit ríkisskattstjóra hefði komið í ljós að enginn stjórnarmaður væri skráður í stjórn félagsins í fyrirtækjaskrá og að einungis væru skráðir varamaður/varamenn. Félaginu var veittur frestur til svara til og með 14. mars 2025. Engin svör bárust.

Þann 17. mars 2025 var félaginu birt ákvörðun í stafrænu pósthólfi félagsins. Fram kom að dagsektir myndu leggjast á félagið þangað til að úrbætur færu fram á skráningu stjórnar. Félagið tilkynnti um breytingu á stjórn hinn 9. september 2025 og var álagning dagsekta stöðvuð í kjölfarið. Hinn 30. september 2025 óskaði félagið eftir niðurfellingu dagsekta. Með ákvörðun fyrirtækjaskrár, dags. 28. apríl 2026, var beiðni félagsins hafnað. Hinn 21. júlí 2026 kærði félagið ákvörðun fyrirtækjaskrár, dags. 28. apríl 2026, til ráðuneytisins.

Hinn 28. júlí 2026, óskaði ráðuneytið eftir umsögn fyrirtækjaskrár um stjórnsýslukæruna ásamt öllum gögnum málsins. Þann 12. ágúst 2026 barst ráðuneytinu umbeðin umsögn. Ráðuneytið veitti kæranda tækifæri til þess að andmæla umsögn fyrirtækjaskrá með bréfi, dags. 15. september 2026. Í svari kæranda, dags. 21. september 2026, kom fram að kærandi hygðist ekki leggja fram frekari gögn eða athugasemdir og ítrekaði málsástæður í kæru sinni.

Um atvik máls vísast að öðru leyti til þess sem segir í hinni kærðu ákvörðun.

 

Sjónarmið félagsins

Málsástæður aðalkröfu kæranda skiptast í tvo þætti. Sá fyrri snýr að því að aðstæður hafi verið utan valds og vitneskju kæranda. Í því samhengi vísar kærandi til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 17/2003 um fyrirtækjaskrá. Kærandi vísar til þess að af athugasemdum með frumvarpi því er innleiddi 4. mgr. 10. gr. laga um fyrirtækjaskrá megi leiða að dagsektir geti verið lækkaðar eða felldar niður ef utanaðkomandi eða óviðráðanleg atvik hafa valdið því að umbeðnar upplýsingar eða gögn hafa ekki borist innan tilskilins frests. Kærandi telur að aðstæður félagsins réttlæti niðurfellingu dagsekta og færir einkum þrenn rök fyrir því.

Í fyrsta lagi hafi fráfarandi stjórnarmaður vanrækt lögbundna tilkynningarskyldu sína samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög en kærandi hafi ekki haft tilefni til að ætla að félagið væri orðið stjórnlaust. Í öðru lagi er vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 40. gr. laga um einkahlutafélög beri þeim sem síðast gegndi stjórnarmennsku, verði félag stjórnlaust, að boða hluthafa til fundar svo unnt sé að kjósa nýja stjórn. Kærandi byggir á því að hluthafar hafi mátt treysta því að fráfarandi stjórnarmaður sinnti þessari skyldu. Í þriðja lagi er lögð áhersla á að félagið hafi enga eiginlega starfsemi. Það væri hvorki sanngjarnt né raunhæft að gera þær kröfur að hluthafi hafi eftirlit í óvirku félagi með skráningum eða stafrænu pósthólfi félagsins. Kærandi hafi því verið grandlaus og í góðri trú.

Seinni þáttur málsástæðna til stuðnings aðalkröfu kæranda lýtur að því að dagsektirnar hafi þegar náð tilgangi sínum. Kærandi vísar til þess að tilgangur dagsekta samkvæmt 10. gr. laga um fyrirtækjaskrá sé að knýja fram úrbætur en ekki að vera refsing. Í því samhengi er vísað til þess að þegar kærandi hafi fengið vitneskju um stöðu mála hafi tafarlaust verið farið í úrbætur og ný stjórn skráð.

Til stuðnings varakröfu er vísað til þess að hin kærða ákvörðun hafi brotið í bága við reglur stjórnsýsluréttar. Í fyrsta lagi hafi verið brotið gegn rannsóknarreglu og leiðbeiningarskyldu stjórnsýslulaga. Kærandi kveður fyrirtækjaskrá hafa vitað að stafrænt pósthólf félagsins væri í reynd óaðgengilegt en engu að síður haldið áfram að senda tilkynningar þangað. Jafnframt hafi ekki verið reynt að hafa samband við skráðan raunverulegan eiganda félagsins eða aðra hluthafa. Í öðru lagi telur kærandi að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu 12. gr. sömu laga. Í því sambandi vísar kærandi aðallega til upphæðar sektarinnar en einnig til þess að um formgalla sé að ræða sem hafi engu tjóni valdið. Jafnframt er vísað til grandleysis kæranda og vanrækslu fyrrum stjórnarmanns.

Einnig er vísað til þess að ekki hafi verið tekið tillit til 1. mgr. 10. gr. laga um fyrirtækjaskrá, þar sem tekið sé fram að við ákvörðun dagsekta skuli líta til „eðlis vanrækslu eða brots og fjárhagslegs styrkleika“. Kærandi telur að fyrirtækjaskrá hafi horft fram hjá þessum sjónarmiðum en fjárhagslegur styrkleiki félagsins sé enginn.

Hvað varðar málskostnaðarkröfu kæranda er vísað til þess að kæruferlið sé kostnaðarsamt. Enn fremur er vísað til þess að ákvörðun fyrirtækjaskrár sé haldin slíkum annmörkum að hún teljist saknæm og stofni ríkinu bótaskyldu.

 

Sjónarmið fyrirtækjaskrár

Í umsögn fyrirtækjaskrár er vísað til hlutverks stjórnvaldsins sem sé m.a. að gæta þess að skráning félaga sé í samræmi við lög. Fyrirtækjaskrá hafi heimildir til þess að krefja félög um úrbætur þegar misbrestur sé á því. Í því sambandi hafnar fyrirtækjaskrá að utanaðkomandi eða óviðráðanleg atvik hafi valdið því að kröfu um úrbætur hafi ekki verið sinnt.

Fyrirtækjaskrá vísar einnig til þess að hinn 31. mars 2023 hafi stjórnvaldinu borist tilkynning um úrsögn stjórnarmanns úr félaginu. Í tilkynningunni komi m.a. fram að félaginu hafi verið tilkynnt um úrsögn stjórnarmanns úr stjórninni.

Áréttað er að ekki sé um það deilt að stjórn félagsins hafi ekki verið í samræmi við lög. Fyrirtækjaskrá vísar til þess að samkvæmt samþykktum félagsins skuli stjórn skipuð á aðalfundi til eins árs í senn en síðast hafi verið tilkynnt um stjórn árið 2007. Fyrirtækjaskrá vísar til ábyrgðar félagsins á að kjósa stjórn á næsta aðalfundi, sbr. samþykktir félagsins og 2. mgr. 40. gr. laga um einkahlutafélög. Fyrirtækjaskrá greinir frá því að frá tímamarki úrsagnar stjórnarmanns 2023 og þar til dagsektir voru lagðar á 2025, hefði félagið átt að halda a.m.k. einn aðalfund og kjósa þar stjórn.

Varðandi birtingu vísar fyrirtækjaskrá til þess að samkvæmt lögum nr. 105/2021, um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, teljist gögn birt þegar þau séu aðgengileg í pósthólfi, sbr. 7. gr. laganna. Fyrirtækjaskrá vísar einnig til þess að aðilar sem fá gögn send í sitt pósthólf beri ábyrgð á því að kynna sér þau og geti ekki byggt á grandleysi um efni þeirra. Í þessu sambandi vísar stjórnvaldið til þess að félagið hafi fengið nægilegan frest og leiðbeiningar í umræddum bréfum um hvernig unnt væri að bæta úr fyrirliggjandi annmörkum. Enn fremur er vísað til þess að þar sem varamaður sem gegndi stöðu stjórnarmanns við úrsögn fráfarandi stjórnarmanns hafi haft aðgang að umræddu pósthólfi hafi meðferð málsins verið í samræmi við rannsóknarreglu stjórnsýslulaga.

Fyrirtækjaskrá hafnar þeirri málsástæðu kæranda að dagsektir þjóni ekki lengur lögmætu markmiði eftir að félagið skráði nýja stjórn. Lögin séu skýr um að álagðar dagsektir falli ekki niður þó farið sé að kröfu um úrbætur. Einnig hafnar fyrirtækjaskrá þeirri málsástæðu að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga með vísan til þess að stefnt hafi verið að lögmætu markmiði, vægasta úrræði hafi verið beitt og hófs gætt við beitingu úrræðisins.

 

Forsendur og niðurstaða

Aðalkrafa kæranda um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi, byggist á því að utanaðkomandi eða óviðráðanleg atvik séu til staðar og þar af leiðandi eigi ríkisskattstjóri að fallast á að skilyrði fyrir lækkun eða niðurfellingu dagsekta, skv. 4. mgr. 10. gr. laga um fyrirtækjaskrá, séu til staðar. Til stuðnings þessu byggir kærandi á því að fráfarandi stjórnarmaður hafi vanrækt lögbundna tilkynningarskyldu sína samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga um einkahlutafélög. Kærandi byggir enn fremur á því að í 3. mgr. sama ákvæðis felist lágmarksskylda til þess að upplýsa hluthafa um stöðuna. Kærandi hefur jafnframt, til stuðnings því að utanaðkomandi eða óviðráðanleg atvik séu til staðar, vísað til þess að félagið hafi enga starfsemi.

Hvað varðar málsástæðu kæranda um tilkynningarskyldu stjórnarmanns vísar ráðuneytið til tilkynningar um úrsögn stjórnarmanns, dags. 31. mars 2023, sem lögð var fram af hálfu fyrirtækjaskrár. Í þeirri tilkynningu kom fram að félaginu hafi verið tilkynnt um úrsögn stjórnarmanns úr stjórninni. Hvað varðar málsástæðu um lágmarksskyldu 3. mgr. 40. gr. laga um einkahlutafélög vísar ráðuneytið til þess að samkvæmt dómi Hæstaréttar frá 2. september 2011 í máli nr. 378/2011 tekur sérregla 3. mgr. 40. gr. laga um einkahlutafélög aðeins til tilvika þar sem aðrir leitast við að fylgja eftir réttindum sínum gagnvart félagi. Þar að auki bendir ráðuneytið á að samkvæmt 4. mgr. 4. gr. laga um fyrirtækjaskrá sé einstaklingum og lögaðilum skylt að láta ríkisskattstjóra í té án tafar allar upplýsingar og gögn sem honum séu nauðsynleg til að tryggja rétta skráningu. Enga undantekningu frá þeirri skyldu sé að finna fyrir félög með enga eða litla starfsemi. Ráðuneytið telur því að hafna beri þessum málsástæðum kæranda.

Annar þáttur til stuðnings aðalkröfu kæranda er að dagsektirnar hafi þegar náð tilgangi sínum. Jafnframt er vísað til þess að dagsektir eigi ekki að vera refsing. Þar að auki hafi kærandi tafarlaust farið í úrbætur og ný stjórn verið skráð. Hvað þessa málsástæðu varðar bendir ráðuneytið á að þótt dagsektir séu þvingunarúrræði séu þær jafnframt viðurlög í eðli sínu. Þetta viðhorf komi m.a. fram í frumvarpi því er innleiddi heimild ríkisskattstjóra í 10. gr. laga um fyrirtækjaskrá til að leggja á dagsektir vegna vanrækslu á tilkynningarskyldu. Ráðuneytið bendir enn fremur á að ef uppsafnaðar dagsektir ættu að falla niður þegar hið ólögmæta athæfi hefur verið leiðrétt þar sem dagsektum væri ekki ætlað að vera refsing, þá félli þar með tilgangur dagsekta niður, enda væri enginn hvati fyrir greiðanda sektanna að flýta framfylgni við viðkomandi skyldu. Ráðuneytið telur því ekki tilefni til að fella úr gildi ákvörðun fyrirtækjaskrár á þeim grundvelli.

Varakrafa kæranda um að hinar álögðu sektir verði lækkaðar verulega grundvallast á því að fyrirtækjaskrá hafi brotið gegn reglum stjórnsýsluréttar. Kærandi vísar til þess að brotið hafi verið gegn leiðbeiningarskyldu og rannsóknarreglu, sbr. 7. og 10. gr. stjórnsýslulaga, m.a. af þeim sökum að tilkynningar hafi verið sendar í stafrænt pósthólf félagsins þrátt fyrir að fyrirtækjaskrá hefði mátt vita að pósthólfið væri óaðgengilegt.

Ráðuneytið áréttar að ákvörðun um álagningu dagsekta er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun. Af því leiðir eru gerðar strangari kröfur en ella að stjórnvöld sinni rannsóknarskyldu sinni. Eins og fram kemur í gögnum málsins fékk félagið tilkynningu um fyrirhugaða álagningu dagsekta sem birt var í stafrænu pósthólfi félagsins hinn 7. janúar 2025. Eftir að engin svör bárust var félaginu birt ákvörðun þann 17. mars 2025 í sama pósthólfi. Samkvæmt 7. gr. laga um stafrænt pósthólf teljast gögn birt þegar þau eru aðgengileg í pósthólfi viðtakanda. Ráðuneytið telur að með framangreindu bréfi, þar sem tilkynnt var um fyrirhugaða álagningu dagsekta, hafi fyrirtækjaskrá sinnt rannsóknar- og leiðbeiningarskyldu sinni í samræmi við stjórnsýslulög. Vísar ráðuneytið þar til 7. gr. laga um stafrænt pósthólf og umfjöllunar um ákvæðið í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um stafrænt pósthólf, þar sem m.a. kemur fram: „Þeir einstaklingar og lögaðilar sem fá gögn send í sitt pósthólf bera ábyrgð á því að kynna sér þau og geta því ekki byggt á grandleysi um efni þeirra við meðferð mála.” Einnig vísar ráðuneytið til úrskurðar menningar- og viðskiptaráðuneytisins frá 14. apríl 2023, sem varðaði niðurfellingu dagsekta og birtur er á heimasíðu stjórnarráðsins.

Kærandi telur einnig að málsmeðferð fyrirtækjaskrár hafi brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga, sbr. 12. gr. laganna, og vísar aðallega til upphæðar sektarinnar. Fyrirtækjaskrá hafnar þessari málsástæðu og hefur bent á að skilyrðum meðalhófs sé fullnægt. Stefnt hafi verið að lögmætu markmiði, þ.e. skipun stjórnar í samræmi við lög. Í því sambandi hafi verið skorað á kæranda að framkvæma úrbætur og í kjölfarið dagsektum beitt. Þá hafi dagsektir numið lögbundnu lágmarki skv. 1. mgr. 10. gr. laga um fyrirtækjaskrá. Ráðuneytið telur, með vísan til þess sem að framan greinir, að fyrirtækjaskrá hafi sýnt nægilega fram á að meðalhóf hafi verið haft að leiðarljósi við meðferð málsins. Þessari málsástæðu kæranda er því hafnað.

Enn fremur vísar kærandi til þess að hin kærða ákvörðun sé haldin slíkum annmörkum að hún teljist saknæm og stofni til bótaskyldu ríkisins vegna þess kostnaðar sem af henni hlaust.

Ráðuneytið vísar til þess að það er meginregla íslensk réttar að borgararnir verði sjálfir að bera þann kostnað sem þeir hafa af erindum sínum til stjórnvalds og málarekstri fyrir þeim. Kjósi þeir að nota aðstoð sérfræðinga við slík erindi og hafi af því kostnað geta þeir almennt ekki krafist þess að sá kostnaður verði þeim bættur. Í þessu samhengi má vísa til dóms Landsréttar frá 28. nóvember 2024 í máli nr. 11/2024 og dóms Hæstaréttar frá 30. október 2008 í máli nr. 70/2008. Eins og að framan greinir hefur kröfum kæranda, m.a. um annmarka í málsmeðferð fyrirtækjaskrár, verið hafnað. Ráðuneytið telur því ekki tilefni til að víkja frá umræddri meginreglu og hafnar málskostnaðarkröfu kæranda.

Að öllu framangreindu virtu telur ráðuneytið að hafna beri kröfum kæranda og staðfesta ákvörðun fyrirtækjaskrár. Vakin er athygli á því að úrskurðurinn verður einungis sendur með rafrænum hætti, nema annars sé óskað.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun fyrirtækjaskrár Skattsins, dags. 28. apríl 2026, um að hafna beiðni [A] ehf. um niðurfellingu dagsekta vegna ófullnægjandi upplýsinga í fyrirtækjaskrá er hér með staðfest.

Var efnið hjálplegt?