29. október 2026 /

Úrskurður nr. 482/2026

Hinn 29. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 482/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26030010

Kæra [...]

  1. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 4. mars 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Perú (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. febrúar 2026, um að synja henni um langtímavegabréfsáritun á Íslandi.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni hennar um langtímavegabréfsáritun á grundvelli 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsmeðferð

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi til landsins á grundvelli 90 daga áritunarfrelsis sem ríkisborgari Perú. Kærandi kom inn á Schengen-svæðið 28. nóvember 2025. Hinn 18. febrúar 2026 lagði kærandi fram umsókn um langtímavegabréfsáritun fyrir dvöl umfram 90 daga. Umsókn kæranda var lögð fram á Íslandi. Samkvæmt umsókninni var tilgangur dvalar kæranda að aðstoða frænku sína við umönnun barna hennar og veita þeim stuðning en kærandi væri í heimsókn hjá frænku sinni. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. febrúar 2026. Fram kom í ákvörðuninni að kærandi ætti ekki aðstandendur hér á landi í skilningi þágildandi a-liðar 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga. Þá vísaði Útlendingastofnun til d-liðar 1. mgr. 7. gr. reglugerðar um útlendinga. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda samdægurs. Með tölvubréfi, dags. 4. mars 2026, lagði kærandi fram stjórnsýslukæru. Greinargerð kæranda barst 18. mars 2026.

3 Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kemur fram að kærandi eigi aðstandanda hér á landi sem hún hyggist sinna eftir fremsta megni í formi félagslegs og tilfinningarlegs stuðnings. Kærandi telur að hún uppfylli öll skilyrði langtímavegbréfsáritunar enda verði tilgangur dvalar hennar ekki heimfærður undir aðrar tegundir dvalarleyfa. Þá er niðurstöðu Útlendingastofnunar andmælt þar sem hún leiði til þess að kærandi falli milli skips og bryggju í dvalarleyfiskerfinu hér á landi.

4 Langtímavegabréfsáritun

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga og stjórnsýslulaga. Með lögum um vegabréfsáritanir nr. 37/2026, sem tóku gildi 4. maí 2026, voru m.a. gerðar breytingar á 21. gr. laga um útlendinga. Breytingarnar fólu í sér að nú geta umsækjendur sem óska eftir dvöl umfram 90 daga lagt fram umsókn til Útlendingastofnunar um skammtímadvalarleyfi í stað umsóknar um langtímavegabréfsáritun.

Í þágildandi 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga kom fram að heimilt væri að veita langtímavegabréfsáritun þegar umsækjandi óskaði eftir dvöl umfram 90 daga en tilgangur dvalar væri ekki af ástæðu sem tilgreind væri almennt í dvalarleyfisflokkum og ekki væri ætlun umsækjanda að setjast að á landinu. Vegabréfsáritun samkvæmt ákvæðinu yrði ekki veitt til lengri tíma en 180 daga. Í þágildandi a-lið 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga kom fram að heimilt væri að gefa út langtímavegabréfsáritun, m.a. til aðstandenda, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga, sem hygðust koma í lengri heimsókn hingað til lands. Heimilt væri að víkja frá aldursskilyrði foreldra umsækjanda við útgáfu langtímavegabréfsáritunar.

Eftir framangreindar breytingar orðast 21. gr. laga um útlendinga svo:

Útlendingastofnun er heimilt að veita útlendingi skammtímadvalarleyfi þegar umsækjandi óskar eftir dvöl umfram 90 daga en tilgangur dvalar er ekki af ástæðu sem tilgreind er almennt í dvalarleyfisflokkum og ekki er ætlun umsækjanda að setjast að á landinu. Skammtímadvalarleyfi samkvæmt þessu ákvæði verður ekki veitt til lengri tíma en 180 daga og skal aðeins veitt einu sinni á hverju 12 mánaða tímabili. Útlendingi er ekki heimil dvöl hér á landi umfram gildistíma dvalarleyfis.

Heimilt er að afturkalla skammtímadvalarleyfi ef útlendingur brýtur gegn skilyrðum þess, t.d. með því að stunda atvinnu á innlendum vinnumarkaði án heimildar.

Dvöl samkvæmt ákvæði þessu getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis eða skapað grundvöll lögheimilis hér á landi samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur.

Umsókn um dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu skal hafnað ef líklegt er talið að umsækjandi muni ekki yfirgefa landið þegar leyfi hans rennur út.

Á grundvelli 5. mgr. 21. gr. laga um útlendinga, eins og þeim var breytt með lögum um vegabréfsáritanir, setti ráðherra reglugerð nr. 725/2026 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Með reglugerðinni voru gerðar breytingar á II. kafla reglugerðar um útlendinga en kaflinn fjallar um skammtímadvalarleyfi.

Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. reglugerðar um útlendinga má veita útlendingi skammtímadvalarleyfi að fenginni umsókn og að uppfylltum skilyrðum laga ef jafnframt er fullnægt skilyrðum samkvæmt reglugerðinni. Í 2. mgr. segir að skammtímadvalarleyfi feli í sér heimild til dvalar hér á landi í allt að 180 daga. Dvöl útlendings þegar sótt er um slíkt dvalarleyfi skuli vera í samræmi við 49. gr. laga um útlendinga nema annað sé tekið fram. Í 3. mgr. kemur fram að samfelld dvöl útlendings hér á landi skuli ekki vara lengur en 180 daga í senn og skuli gildistími dvalarleyfis taka mið af því. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu skuli jafngilda dvöl hér á landi. Þá segir í 4. mgr. að útlendingi sé ekki heimil dvöl hér á landi umfram gildistíma dvalarleyfis. Þrátt fyrir það sé útlendingi, sem sé undanþeginn áritunarskyldu heimil dvöl innan Schengen-svæðisins í allt að 90 daga að loknum gildistíma leyfisins.

Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga er heimilt að gefa út skammtímadvalarleyfi í þeim tilvikum sem greinir í a- og b-liðum ákvæðisins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er heimilt að gefa út skammtímadvalarleyfi til nánustu fjölskyldumeðlima en til þeirra teljast hjúskaparmaki, foreldri, barn og systkini sem hyggjast koma í lengri heimsókn hingað til lands. Samkvæmt b-lið 1. mgr. er heimilt að gefa út skammtímadvalareyfi til listamanna, vísindamanna eða íþróttamanna, enda kalli dvöl þeirra ekki á útgáfu atvinnuleyfis. Fjallað er nánar um skilyrði fyrir veitingu skammtímadvalarleyfis í reglugerðinni.

4.2 Niðurstaða

Fyrir liggur að kærandi lagði fram umsókn um langtímavegabréfsáritun 18. febrúar 2026 til að vera stuðningur við frænku sína, sem búsett er hér á landi, og börn hennar. Meðfylgjandi umsókninni fylgdi læknisvottorð, dags. 12. febrúar 2026, þar sem fram kemur að frænka kæranda þurfi á aðstoð kæranda að halda vegna erfiðra félagslegra aðstæðna, veikinda elstu dóttur sinnar og hennar sjálfrar.

Með ákvörðun, dags. 20. febrúar 2026, synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda með þeim rökum að kærandi ætti ekki aðstandendur hér á landi í skilningi þágildandi a-liðar 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga. Þá var það mat Útlendingastofnunar að heimsókn kæranda knýði hana ekki til þess að vera hér á landi í lengri tíma en 90 daga. Uppfyllti kærandi því ekki skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar þágildandi 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt þágildandi a-lið 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga var heimilt að gefa út langtímavegabréfsáritun til aðstandenda, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga, sem hygðust koma í lengri heimsókn hingað til lands. Samkvæmt 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga teljast til nánustu aðstandenda maki, sambúðarmaki, börn viðkomandi yngri en 18 ára í forsjá hans og á framfæri og foreldrar 67 ára og eldri. Fyrir liggur að frænka kæranda er ekki nánasti aðstandandi kæranda í skilningi framangreinds ákvæðis. Þá verður ekki talið að framlenging á heimsókn kæranda til þess að hún gæti hjálpað frænku sinni með börnin sín og verið stuðningur fyrir fatlaða dóttur hennar sem glími við veikindi falli undir sérstakan lögmætan tilgang í skilningi b- eða c-liðar þágildandi 5. gr. reglugerðar um útlendinga. Voru skilyrði langtímavegabréfsáritunar því ekki uppfyllt þegar Útlendingastofnun tók hina kærðu ákvörðun.

Með framangreindri breytingu á reglugerð um útlendinga voru skilyrði fyrir skammtímadvalarleyfi rýmkuð en nú heyra systkini undir aðstandendur í skilningi reglugerðarinnar, en frændtengsl falla enn utan gildissviðs ákvæðisins. Þá höfðu framangreindar laga- og reglugerðarbreytingar ekki tekið gildi, þegar Útlendingastofnun tók ákvörðun um umsókn kæranda um langtímavegabréfsáritun 20. febrúar 2026, en þær tóku gildi 12. maí 2026. Loks er sá dvalartími sem 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga kveður á um jafnframt liðinn.

Með vísan til framangreinds er ljóst að kærandi uppfyllti ekki þágildandi skilyrði 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga og var því ekki rétt að veita henni langtímavegabréfsáritun á grundvelli 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á langtímavegabréfsáritun staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?