Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 501–550 af 3362
    Raða eftir:
    19. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1234/2024. Úrskurður frá 19. desember 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að dómsátt í vörslu Isavia ohf. um viðurkenningu á greiðslu skuldar. Ákvörðun Isavia að synja beiðninni byggðist á 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og að félaginu væri óheimilt að veita aðgang að gagninu því það varðaði mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni þess lögaðila sem í hlut ætti. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gagnið og taldi að vandséð væri hvernig afhending þess til kæranda kynni að valda lögaðilanum tjóni. Var því lagt fyrir Isavia að veita kæranda aðgang að dómsáttinni.

    19. des. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1233/2024. Úrskurður frá 19. desember 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslu Sjúkratrygginga Íslands sem vörðuðu útboð stofnunarinnar á liðskiptaaðgerðum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um rétt kæranda til aðgangs að gögnunum færi ýmist samkvæmt 5. eða 14. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin fór yfir þau gögn sem aðgangur hafði verið takmarkaður að og lagði fyrir Sjúkratryggingar Íslands að veita kæranda aðgang að tilteknum gögnum, en staðfesti synjanir stofnunarinnar að öðru leyti.

    13. des. 2024Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Unnið að úrbótum úrræða og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum

    Minnisblað með fyrstu tillögum starfshóps sjö ráðuneyta um úrbætur á úrræðum og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    03. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þing kvennanefndar SÞ: Jafnrétti kynjanna forgangsverkefni íslenskra stjórnvalda

    Jafnrétti kynjanna er og hefur verið forgangsverkefni íslenskra stjórnvalda, hvort sem er heima fyrir eða í alþjóðlegu samstarfi – þar á meðal í framboði Íslands til Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2025-2027. Þetta kom fram í ávarpi Íslands sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, flutti á þingi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í gærkvöldi.

    27. nóv. 2024Forsætisráðuneytið

    Símafundur við verðandi Bandaríkjaforseta

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra átti í gær símafund við Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, þar sem þeir ræddu góð samskipti ríkjanna, viðskipti og öryggis- og varnarsamstarf.

    25. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1226/2024. Úrskurður frá 25. nóvember 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að samkomulagi Íslandsbanka hf. við Seðlabanka Íslands um að ljúka máli með sátt vegna brota Íslandsbanka við sölumeðferð eignarhluta ríkisins í bankanum, án yfirstrikana. Seðlabankinn taldi m.a. að þær upplýsingar sem strikað hefði verið yfir væru undirorpnar þagnarskyldu á grundvelli laga um Seðlabanka Íslands og laga um fjármálafyrirtæki. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun Seðlabankans með þeirri breytingu að ekki skyldi strika yfir ákveðnar upplýsingar sem væru opinberlega aðgengilegar.

    25. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1225/2024. Úrskurður frá 25. nóvember 2024

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst kæra vegna ófullnægjandi afgreiðslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á erindi kæranda. Úrskurðarnefndin taldi mega ráða af samskiptum kæranda við stofnunina að ekki væri óskað aðgangs að gögnum í skilningi upplýsingalaga heldur skýringum um þýðingu og túlkun á færslum í log-skrá í þinglýsingarkerfi fasteignaskrár. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    25. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1224/2024. Úrskurður frá 25. nóvember 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að upplýsingum frá Skattinum um hvort tiltekið félag hefði staðið skil á greiðslu gjalda á grundvelli laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur. Ákvörðun Skattsins að synja kæranda um aðgang að upplýsingunum byggðist á því að þær væru undirorpnar þagnarskyldu samkvæmt lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti að 20. gr. laganna teldist vera sérstakt þagnarskylduákvæði og að upplýsingarnar sem óskað væri eftir féllu undir ákvæðið. Var ákvörðun Skattsins því staðfest.

    25. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1223/2024. Úrskurður frá 25. nóvember 2024

    Vestmannaeyjabær óskaði eftir öllum upplýsingum í vörslu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis sem legið hefðu til grundvallar ákvörðun ráðuneytisins að staðfesta hækkun á gjaldi fyrir heitt vatn í Vestmannaeyjum. Sundurliðaðar fjárhagsupplýsingar um afkomu hitaveitustarfsemi HS Veitna í Vestmannaeyjum voru ekki afhentar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti að upplýsingalög tækju samkvæmt orðalagi sínu og markmiðum ekki til þeirrar aðstöðu þegar stjórnvöld óskuðu eftir upplýsingum hjá öðrum stjórnvöldum. Var kæru Vestmannaeyjabæjar því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    13. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar er komin út

    Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar 2024 er komin út. Skýrslan skiptist í fimm meginkafla sem fjalla um efnahagsmál, vinnumarkað, laun og launaþróun sem flokkað er eftir mörkuðum og heildarsamtökum launafólks, kjarasamninga gerða í yfirstandandi samningalotu, auk sérstakrar umfjöllunar um heildarsamtök launafólks eftir mörkuðum.

    13. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Starfshópur fer yfir tjón bænda vegna kuldatíðar og skoðar stuðningsaðgerðir

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum sl. föstudag tillögu matvælaráðherra um skipun starfshóps til að fara yfir tjón bænda vegna óvanalegs veðurfars fyrr á árinu og gera tillögur um útfærslu og umfang stuðningsaðgerða.

    10. nóv. 2024Forsætisráðuneytið

    Efling opinberrar hagskýrslugerðar

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem skila á tillögum um hvernig megi efla Hagstofu Íslands sem miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu. Nefndinni er jafnframt falið að skila tillögum um hvernig megi best mæta auknum upplýsingaþörfum samfélagsins og nýta gervigreind við öflun, úrvinnslu og birtingu opinberra tölfræðiupplýsinga.

    10. nóv. 2024Forsætisráðuneytið

    Umsækjendur um embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu

    Embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu var auglýst laust til umsóknar 19. september sl. og rann umsóknarfrestur út 10. október sl. Sjö sóttu um embættið. Forsætisráðherra mun skipa þriggja manna hæfnisnefnd til að fjalla um hæfni umsækjenda áður en ákvörðun verður tekin um skipun.

    09. nóv. 2024Forsætisráðuneytið

    Stefnuræða forsætisráðherra og þingmálaskrá

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti í kvöld stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 155. löggjafarþing hefur nú verið birt á vef Stjórnarráðsins í samræmi við þingsköp Alþingis.

    09. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Samstaða um auknar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum

    Stjórnvöld hafa ákveðið að fjölga aðgerðum vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og auka fjármagn til aðgerðanna. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í gær. Alvarlegt ofbeldi sem hefur átt sér stað á síðustu misserum undirstrikar þörfina á samstilltu átaki til að bregðast við þróuninni af festu.

    07. nóv. 2024Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Samstaða innan Atlantshafsbandalagsins um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu

    Áframhaldandi og einarður stuðningur Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu var áréttaður á þriggja daga leiðtogafundi bandalagsins, sem lauk í Washington D.C. í Bandaríkjunum í dag. Bandalagsríkin ítrekuðu jafnframt mikilvægi þess að halda áfram að styrkja fælingar- og varnarstöðu sína samhliða því að efla samvinnu við helstu samstarfsríki til mæta nýjum áskorunum.

    06. nóv. 2024Sjálfbært Ísland, Velsæld, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði velsældarþing í Hörpu

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti í dag opnunarávarp á alþjóðlegu velsældarþingi (Wellbeing Economy Forum) sem fram fer í Hörpu. Þingið sem er haldið í annað sinn er skipulagt af embætti landlæknis í samstarfi við forsætisráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið en dagskrá þess lýkur á morgun.

    06. nóv. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Forsætisráðuneytið

    Ísland sýnir stuðning í verki vegna mannúðarmála á Gaza

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sótti í dag fyrir hönd forsætisráðherra ráðstefnu um mannúðarástandið á Gaza sem haldin var í Jórdaníu. Jórdaníukonungur, forseti Egyptalands og aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna bjóða til ráðstefnunnar og hana sækja þjóðarleiðtogar og ráðamenn víða að.

    03. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þing kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sett í dag

    Árlegt þing kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna var sett í New York í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, sækir þingið fyrir hönd Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Hann flytur ávarp Íslands á þinginu.

    31. okt. 2024Velsæld, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um innleiðingu velsældaráherslna í áætlanagerð og ákvarðanatöku stjórnvalda

    Starfshópur sem ríkisstjórnin fól að vinna tillögur um markvissa innleiðingu velsældaráherslna ríkisstjórnarinnar í alla áætlanagerð stjórnvalda þ.m.t. gerð fjármálaáætlunar og frumvarps til fjárlaga, hefur skilað skýrslu til forsætisráðherra.

    30. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1222/2024. Úrskurður frá 30. október 2024

    Óskað var aðgangs að niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem gerð hefði verið árið 2022, sundurliðuðum eftir skólum og fögum sem prófað hefði verið í. Mennta- og barnamálaráðuneyti svaraði því til að ekki væru gefnar út niðurstöður fyrir einstaka skóla. Ráðuneytið byggi ekki yfir gögnum sem sýndu niðurstöður um frammistöðu í PISA-könnuninni fyrir einstaka íslenska skóla. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu ráðuneytisins í efa. Með vísan til þess að ekki lægi fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, var ákvörðun ráðuneytisins staðfest.

    30. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1221/2024. Úrskurður frá 30. október 2024

    Óskað var aðgangs að gögnum um mál sem formaður tiltekins ráðs í sveitarfélagi hefði tekið að sér að kanna. Formaðurinn kvaðst aðeins hafa undir höndum gögn sem kærendur hefðu sent honum og samskipti við kærendur. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga í efa að ekki lægju fyrir frekari gögn en að framan greinir. Þar sem ekki lægi fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, var hin kærða afgreiðsla staðfest.

    29. okt. 2024Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Þátttaka forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra var viðstaddur setningu þings Norðurlandaráðs í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Forsætisráðherra tók þar þátt í leiðtogaumræðum með forsætisráðherrum Norðurlandanna.

    29. okt. 2024Norrænt samstarf, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Fjórði leiðtogafundur Norðurlandanna og Úkraínu fór fram á Þingvöllum

    Forsætisráðherrar Norðurlandanna og forseti Úkraínu funduðu í gær á Þingvöllum. Um var að ræða fjórða leiðtogafund Norðurlandanna og Úkraínu en sá fyrsti fór fram vorið 2023.

    27. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Volodómír Selenskí kemur til Íslands

    Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til Íslands á morgun. Í heimsókn sinni mun hann funda með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og taka þátt í fjórða leiðtogafundi Norðurlandanna og Úkraínu.

    25. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1220/2024. Úrskurður frá 25. október 2024

    Isavia innanlandsflugvellir ehf. gerði kröfu um að úrskurðarnefnd um upplýsingamál frestaði réttaráhrifum úrskurðar nefndarinnar nr. 1219/2024 frá 10. október 2024, þar sem hagsmunir Colas Ísland ehf. og Isavia yrðu skertir með ófyrirsjáanlegum afleiðingum og óbætanlegum hætti yrði aðgangur veittur í samræmi við úrskurðarorð. Úrskurðarnefndin taldi sérstakar ástæður standa til þess að veita Isavia kost á að bera úrskurðinn undir dómstóla, m.a. með hliðsjón af því að ekki yrði séð að dómstólar hefðu tekið afstöðu til sambærilegs ágreinings og leyst hefði verið úr með úrskurði nefndarinnar varðandi afhendingu á einingarverðum samninga einkaaðila við opinberan aðila í þeim tilvikum þegar heildarfjárhæðir lægju fyrir. Var því fallist á kröfu Isavia að hluta til.

    18. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Breytingar á skipan ráðherraembætta

    Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í gær var fallist á tillögur um að veita Svandísi Svavarsdóttur, Guðmundi Inga Guðbrandssyni og Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur lausn frá ráðherraembættum sínum.

    17. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum í dag

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til fundar á Bessastöðum í dag, fimmtudaginn 17. október, kl. 18.

    16. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók við undirskriftum um átakið Hnífalaus framtíð

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók í dag á móti fulltrúum átaksins Hnífalaus framtíð. Þær Hrefna Dís Héðinsdóttir, Karen Birna Einarsdóttir Stephensen, Tinna Sigríður Helgadóttir og Valdís Eva Eiríksdóttir, úr Verzlunarskóla Íslands, afhentu forsætisráðherra á annað þúsund undirskriftir þar sem hvatt er til hertra laga um vopnaburð.

    16. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Unnið að brúun bilsins á milli fæðingarorlofs og leikskóla

    Forsætisráðherra skipaði í síðustu viku aðgerðahóp um brúun bilsins á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Hópnum er m.a. falið að horfa heildstætt á umönnun og menntun barna og skoða hvort þörf sé á kerfisbreytingum til að loka umönnunarbilinu.

    15. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Lausnarbeiðni ríkisstjórnar samþykkt – forsætisráðherra leiðir starfsstjórn

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra gekk í dag á fund Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og baðst lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Forseti féllst á beiðnina og fór fram á að ríkisstjórnin starfaði áfram sem starfsstjórn þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Forsætisráðherra staðfesti að hann myndi verða við því og leiða starfsstjórnina.

    10. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1219/2024. Úrskurður frá 10. október 2024

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í tengslum við verðfyrirspurn Isavia þar sem leitað var tilboða í malbikun á Akureyrarflugvelli og samningsgerð við félagið Colas Ísland ehf. Ákvörðun Isavia að synja beiðni kæranda um aðgang að gögnunum var að meginstefnu byggð á því að óheimilt væri að afhenda gögnin því þau vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni Colas Ísland. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin og lagði fyrir Isavia að afhenda kæranda hluta þeirra, en að öðru leyti voru ákvarðanir félagsins staðfestar.

    07. okt. 2024Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Traust til opinberrar stjórnsýslu og fjölmiðla almennt gott

    Traust mælist hátt til opinberrar stjórnsýslu og fjölmiðla á Íslandi í samanburði við önnur OECD-ríki. Félagslegt traust mælist jafnframt hátt hér á landi og fer vaxandi á milli mælinga.

    04. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Bjarni Benediktsson tekur við lyklavöldum

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók í dag með táknrænum hætti við lyklavöldum í forsætisráðuneytinu úr hendi Katrínar Jakobsdóttur, fráfarandi forsætisráðherra.

    01. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stórt skref í átt að nýrri þjóðarhöll

    Stofnað hefur verið félag sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal, Þjóðarhöll ehf. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu samning milli ríkis og Reykjavíkurborgar um stofnun félagsins í dag. Fyrsta verk Þjóðarhallar ehf. er að efna til forvals og samkeppni um hönnun og byggingu þjóðarhallarinnar. Auk þess tekur félagið við verkefnum framkvæmdanefndar um þjóðarhöll í Laugardal sem lætur af störfum.

    01. okt. 2024Forsætisráðuneytið

    Viðburðir í tilefni 80 ára afmælis lýðveldisins

    Íslenska lýðveldið fagnar á árinu sem nú er hafið 80 ára afmæli og verður tímamótanna minnst með ýmsum hætti.

    25. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1218/2024. Úrskurður frá 25. september 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að PDF-skjölum í vörslum Garðabæjar sem innihéldu yfirlit úr málaskrá sveitarfélagsins yfir mál og gögn sem varða kæranda og dóttur hans. Ákvörðun Garðabæjar að synja beiðni kæranda var byggð á því að PDF-skjölin væru vinnugögn í skilningi upplýsingalaga, sem heimilt væri að takmarka aðgang að. Úrskurðarnefndin taldi að gögnin uppfylltu ekki skilyrði upplýsingalaga að teljast vinnugögn. Beiðni kæranda var vísað til Garðabæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    25. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1217/2024. Úrskurður frá 25. september 2024

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningum framkvæmdastjóra og útgerðarstjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. Ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs var á því byggð að gögnin vörðuðu málefni starfsmanna félagsins og væru því undanþegin aðgangi samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin taldi að ráðningarsamningar væru gögn í málum sem vörðuðu ráðningu einstakra starfsmanna í starf og því væri almennt heimilt að takmarka aðgang að slíkum samningum á grundvelli upplýsingalaga. Nefndin taldi hins vegar með vísan til þess að framkvæmdastjóri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs teldist til æðstu stjórnenda félagsins að kærandi ætti rétt til aðgangs að upplýsingum um launakjör hans sem fram kæmu í ráðningarsamningnum.…

    23. sep. 2024Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi um framtíðina

    Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samþykktu sáttmála um framtíðina í gær á leiðtogafundi í New York. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og ákall um aukið traust í alþjóðlegri samvinnu eru meginatriði sáttmálans.

    20. sep. 2024Forsætisráðuneytið

    Breytingar á skipulagi forsætisráðuneytisins

    Forsætisráðherra hefur staðfest breytingar á skipulagi forsætisráðuneytisins og hefur nýtt skipurit tekið gildi.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1216/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál var vísað frá nefndinni, þar sem upplýsingalög gilda ekki um gögn í vörslu dómstóla um meðferð einstakra dómsmála.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1215/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst beiðni um endurupptöku máls sem lauk með úrskurði nr. 1201/2024, með vísan til þess að úrskurðurinn væri haldinn verulegum annmarka. Nefndin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, fyrir endurupptöku væru ekki uppfyllt. Þá væru ekki vísbendingar um að á úrskurði nefndarinnar væri haldinn annmarka sem leitt gæti til endurupptöku á ólögfestum grundvelli. Beiðni um endurupptöku var því hafnað.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1214/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst beiðni um endurupptöku sem litið var svo á að lyti að tveimur málum sem lauk með úrskurðum árin 2020 og 2022. Nefndin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, fyrir endurupptöku væru ekki uppfyllt. Þá væru ekki vísbendingar um að á úrskurðum nefndarinnar væru verulegir annmarkar að lögum. Beiðni um endurupptöku var því hafnað.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1213/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Vestmannaferjan Herjólfur ohf. synjaði beiðni um aðgang að rekstraráætlun félagsins fyrir árið 2024, með vísan til þess að áætlunin væri vinnugagn. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að gagnið uppfyllti skilyrði þess að teljast vinnugagn. Þá væri í áætluninni ekki að finna neinar þær upplýsingar sem tilgreindar væru í 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Með vísan til þess var ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs staðfest.

    09. sep. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1212/2024. Úrskurður frá 9. september 2024

    Utanríkisráðuneyti synjaði beiðni um aðgang að samskiptum í tengslum við þá ákvörðun ráðherra að senda farþegaflugvél til Ísrael til að ferja heim Íslendinga sem þar væru strandaglópar. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á því að hluti gagnanna varðaði einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt og eðlilegt væri að færu leynt, sbr. 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, auk þess sem annar hluti þeirra hefði að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir, sbr. 2. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál felldi úr gildi þann hluta ákvörðunarinnar sem var byggður á 1. málsl. 9. gr. laganna og lagði fyrir ráðuneytið að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu að því leyti.…

    04. sep. 2024Forsætisráðuneytið

    Annað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar skipað

    Annað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar var skipað á fundi ríkisráðs Íslands í kvöld.

    04. sep. 2024Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundir á Bessastöðum

    Ríkisráð Íslands mun koma saman til tveggja funda í dag, þriðjudaginn 9. apríl.

    04. sep. 2024Forsætisráðuneytið

    Framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2024-2027 samþykkt í ríkisstjórn

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi þann 5. apríl sl. tillögu til þingsályktunar um áttundu framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2024-2027 og var hún samþykkt.

    04. sep. 2024Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið gefur út handbók um siðareglur ráðherra

    Forsætisráðuneytið hefur gefið út handbók um siðareglur ráðherra. Handbókin var samin af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni forsætisráðuneytisins og í samvinnu við ráðuneytið.

    02. sep. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Frumvarp um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík

    Ríkissjóður mun bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla. Umfang aðgerðarinnar er metið allt að 61 milljarði króna.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband