Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 501–550 af 1713
    Raða eftir:
    15. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Amanda Riffo myndlistarmaður ársins

    Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent í sjöunda skipti í gærkvöldi við hátíðlega athöfn í Iðnó. Myndlistarráð stendur að baki verðlaunanna sem hafa það að meginmarkmiði að vekja athygli á því sem vel var gert á sviði myndlistar á liðnu ári.

    15. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Ábyrgðarmenn námslána felldir brott

    Frumvarp um breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu er ætlað að bregðast við annmörkum núverandi laga og byggir á skýrslu háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þar sem unnið var úr athugasemdum sem borist höfðu um Menntasjóðinn. Meðal þess sem lagt er til í frumvarpinu er að ábyrgðarmannakerfi námslána verði fellt úr gildi að fullu og að skilyrði fyrir námsstyrk verði rýmkuð.

    15. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Máltækniáætlun kynnt: Nýjasta tækni á íslensku, takk!

    „Þetta er einmitt markmið næstu máltækniáætlunar: Að tryggja hagnýtingu þeirra máltækniinnviða sem hafa verið smíðaðir og styðja við fyrirtæki í því verkefni að þróa tæknilausnir sem skilja og tala íslensku. Við erum að tryggja það að íslenskan verði ekki skilin eftir í gífurlega hraðri tækniþróun heimsins. Við viljum tryggja það að þegar ný tæknilausn kemur á markað sem gjörbyltir innri starfsemi fyrirtækja, og getur sparað starfsfólki tíma og vinnu, þá sé sú tækni á íslensku. Íslendingar eiga að geta notað nýjustu tækni á íslensku, geti nýtt sér þjónustu fyrirtækja á íslensku og talað við tæknina á íslensku.“

    15. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Drög að frumvarpi um breytingar á listamannalaunum í samráð

    Breytingar í frumvarpinu fela í sér fjölgun launasjóða sem starfslaun eru veitt úr og fjölgun árlegra úthlutunarmánaða. Starfslaunamánuðum verður fjölgað úr 1.600 í 2.850 á tímabilinu og þremur nýjum sjóðum bætt við kerfið; Launasjóði kvikmyndahöfunda,Vexti, sjóði 35 ára og yngri og Vegsemd sjóði listamanna 67 ára og eldri.

    13. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Heilbrigðismál, Menntamál

    Samstarf háskóla eflir hjúkrunarfræðinám

    Meðal verkefna sem fengu úthlutun úr Samstarfi háskóla á dögunum er samstarfverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands sem hefur það að markmiði að bæta nýtingu námsplássa í hjúkrunarfræði og minnka brottfall úr starfi að námi loknu. Þannig verður greint hvað spáir fyrir um styrk og áhuga í námi og starfi sem og aðferðir við val á nemendum í hjúkrunarfræði og möguleikar á samræmdri inntöku skólanna skoðaðir.

    09. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun

    Sameining sjóða í samráðsgátt

    Til stendur að fækka sjóðum á vegum ráðuneytisins úr átta í þrjá.

    07. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    111 verkefni fá úthlutað úr Tónlistarsjóði í seinni úthlutun ársins

    Sjóðnum er skipt í fjórar deildir sem allar hafa ólíkar áherslur og er ætlað að ná til breiðari hóps umsækjenda og styrkja þannig tónlistarlíf landsins á breiðum grunni. Frumsköpun og útgáfa: Úthlutað var 48.712.000 til 62 verkefna. Hæstu verkefnastyrkina hlutu Daníel Bjarnason, 2,9 milljónir og Nýdönsk, 2 milljónir. .....

    07. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðherra heimsótti Kringluna: Grettistak á rúmum 2 vikum

    Kringlunni var lýst sem byltingu þegar hún opnaði 1987 en hún var önnur stærsta bygging þjóðarinnar og lýsir fyrirsögn í Þjóðviljanum 26. ágúst spenningnum vel: Kringlan er bylting! Og það var hún sannarlega en fyrstu opnunarviku Kringlunnar heimsóttu hana 140.000 gestir.

    07. mar. 2024Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Styrkjum úthlutað úr Grænlandssjóði fyrir árið 2024

    Sex verkefni hljóta styrk úr Grænlandssjóði árið 2024 að upphæð 4.160.000. Verkefnin eru sumarskóli, æfingaferð, listsýning, fræðsluþing, námskeiðahald og þátttaka á Reykjavíkurleikunum.

    07. mar. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fatlað fólk, Stafrænt Ísland, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Áfram unnið að þróun lausna á stafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk

    Tillögur starfshóps um þróun lausna á stafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk voru kynntar í ríkisstjórn á dögunum. Vinnan byggir á viljayfirlýsingu sem fjórir ráðherrar undirrituðu vorið 2023 og var hópnum falið að útfæra tillögur og tryggja aukið samstarf á milli aðila innan og utan stjórnkerfisins.

    05. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Frumvarp um gististaði samþykkt: Rekstrarleyfi gististaða einskorðast við atvinnuhúsnæði í þéttbýli

    „Með þessari lagabreytingu verða skýrari skil á milli íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis þegar kemur að gistingu og horft er til raunverulegrar notkunar húsnæðis. Því er ekki lengur hægt að kaupa íbúðarhúsnæði í þéttbýli og gera það út sem gististað umfram 90 daga regluna líkt og gerst hefur í miðborginni þar sem jafnvel heilu íbúðablokkirnar hafi breyst í hótel,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

    04. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    Framtíðarsýn um vísindi og nýsköpun: Hæfni, innviðir og stöðugleiki

    Vísinda- og nýsköpunarráð hélt fyrsta staðfund sinn á þessu ári dagana 14. og 15. mars sl. Var það í fyrsta sinn sem erlendir fulltrúar í ráðinu koma til landsins á fund en erlendu fulltrúarnir eru Sir Paul Nurse, Nóbelsverðlaunahafi í lífeðlis- og læknisfræði, og Robert-Jan Smits, forseti tækniháskólans í Eindhoven.

    04. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Norrænar samstarfsáætlanir – opið fyrir álitsinnsendingar til 26. apríl

    Ráðherranefndin hefur sett samstarfsáætlanirnar í opið samráð frá 26. mars til 26. apríl. Við gerð samstarfsáætlananna var lögð áhersla á að frjáls félagasamtök, atvinnulíf og aðrir viðeigandi aðilar kæmu að ferlinu.

    04. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Frítekjumark námsmanna hækkar um 35%

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur sett nýjar úthlutunarreglur fyrir Menntasjóð námsmanna. Þær kveða meðal annars á um að frítekjumark námsmanna verði 2,2 milljónir króna á ári. Frítekjumarkið hafði áður verið 1.622.000 kr. og nemur hækkunin því 35 prósentum.

    01. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýr þjónustusamningur við Ríkisútvarpið

    Áhersla á íslenska tungu, miðlun á eldra efni, þjónustu við börn og ungmenni og aðgengi allra að miðlum RÚV eru meðal áhersluatriða í nýjum þjónustusamningi menningar- og viðskiptaráðherra við Ríkisútvarpið ohf. sem undirritaður var á dögunum. Gildistími samningsins er fjögur ár.

    29. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Átt þú klukkustund til að stækka framtíðina?

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag verkefnið Stækkaðu framtíðina. Verkefnið hefur það að markmiði að víkka sjóndeildarhring nemenda og gefa öllum ungmennum á Íslandi tækifæri til að eiga fjölbreyttar fyrirmyndir.

    29. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Guðrún Gunnarsdóttir skipuð skrifstofustjóri

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Guðrúnu Gunnarsdóttur í embætti skrifstofustjóra skrifstofu fjármála og gæða í menningar- og viðskiptaráðuneytinu frá og með 1. mars nk.

    29. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Auglýst er eftir umsóknum úr Barnamenningarsjóði

    Hlutverk sjóðsins er að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.

    29. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Bein útsending: Fjölmiðlar á tímum stafrænnar byltingar

    Sýnt verður frá málþinginu Fjölmiðlar á tímum stafrænnar byltingar í beinni útsendingu. Málþingið er öllum opið og hefst kl. 13 í dag í Grósku.

    27. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýtt nám í blaðamennsku við Háskóla Íslands

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu í dag samning um samstarf sem miðar að því að efla menntun blaða- og fréttamanna með nýju hagnýtu BA-námi í blaðamennsku við Stjórnmálafræðideild HÍ. Ráðuneytið mun veita námsleiðinni stuðning sem nemur 45 milljónum króna á næstu þremur árum.

    26. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Neytendamál: Frumvarp til markaðssetningarlaga í samráðsgátt

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur birt í samráðsgátt drög að frumvarpi til markaðssetningarlaga. Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005. Samhliða er lagt til að endurskoða lög um Neytendastofu nr. 62/2005 og lög um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd nr. 20/2020. Tillaga frumvarpsins er að ný markaðssetningarlög leysi framangreind lög af hólmi.

    26. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Málþing með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz

    Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, föstudaginn 1. mars kl. 12-13.30.

    23. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Úthlutað í fyrsta sinn úr nýjum Tónlistarsjóði

    Merkisáfangi raungerðist síðastliðinn föstudag þegar úthlutað var í fyrsta sinn úr nýjum Tónlistarsjóði.

    23. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Málþing um stöðu íslenskra fjölmiðla á tímum stafrænnar byltingar

    Hver er staða íslenskra fjölmiðla á tímum stafrænnar byltingar? Ættu Google og Meta að greiða útgefendum fjölmiðla fyrir fréttir og er hægt að verðmeta fréttir? Hver verða áhrif gervigreindar á blaðamennsku og ritstjórnir fjölmiðla?

    22. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Vel heppnuð ráðstefna um stöðu bókarinnar á Íslandi

    Á dögunum stóð menningar- og viðskiptaráðherra fyrir ráðstefnu um stöðu bókarinnar á Íslandi. Ráðstefnan var haldin í Veröld – húsi Vigdísar og var mjög vel sótt.

    22. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Menntamál

    Bætt stoðþjónusta og nýting innviða með Samstarfi háskóla

    Meistaranám við fleiri en einn háskóla, sýndarveruleiki í heilbrigðisnámi og nýting bitakeðjutækni til að sannreyna erlend prófskírteini eru meðal verkefna sem nýlega fengu úthlutun úr Samstarfi háskóla og hafa bætta stoðþjónustu og betri nýtingu innviða að markmiði.

    21. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tobba Marinós ráðin upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins

    Þorbjörg Marinósdóttir hefur verið ráðin nýr upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Hún hefur störf á næstu dögum.

    20. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Heilsuapp Norðurlandanna 2024

    Opið er fyrir umsóknir í samkeppni um Heilsuapp Norðurlandanna árið 2024.

    20. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum

    List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn.

    20. feb. 2024Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Útlendingar, Innflytjendur, Flóttafólk

    Heildarsýn í útlendingamálum

    Ríkisstjórnin sammæltist í dag um aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda. Á grundvelli þeirra aðgerða verður tekið utan um málaflokkinn með heildstæðum hætti með aukinni samhæfingu á milli ráðuneyta og stofnana. Markmiðið er að stuðla að betri, skilvirkari og skýrari framkvæmd innan málaflokksins, og bættri þjónustu til að renna styrkari stoðum undir stjórn útlendingamála. Með þessari heildarsýn er lögð áhersla á mannúð og virðingu og unnið gegn skautun í íslensku samfélagi. Horft er sérstaklega til framkvæmdar þessara mála á Norðurlöndum þannig að aukið samræmi sé á milli landa.

    20. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum

    Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Umsóknarfrestur rennur út 31. mars.

    19. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Landsbyggðin, Atvinnuvegir

    Lóan er komin: Opið fyrir umsóknir um styrki úr Lóu - nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Lóu. Styrkirnir eru nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina sem hafa það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Styrkjunum er aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni.

    19. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Þjóðarópera í sjónmáli

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur lagt fram frumvarp í Samráðsgátt varðandi stofnun Þjóðaróperu á Íslandi.

    19. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Aukin gæði með stærri háskólaeiningum og samstarfi

    Fyrirhuguð sameining Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst og háskólasamstæða Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum eru efst á blaði í áhersluflokknum Sameining háskóla í úthlutun úr Samstarfi háskóla sem kynnt var nýlega. Þar að auki eru vettvangsakademía á Hofstöðum í Mývatnssveit, ferðamálanám og þverfaglegt nám í sjálfbærri byggðafræði styrkt í þessum flokki.

    16. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Anna Jóna og Valgerður heiðraðar á degi íslensks táknmáls

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra afhenti Önnu Jónu Lárusdóttur sérstaka heiðursviðurkenningu Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH), fyrir framlag til varðveislu íslensks táknmáls.

    15. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Áframhaldandi stuðningur við Snorrastofu tryggður

    Fyrr í þessum mánuði undirrituðu menningar- og viðskiptaráðherra og Þorgeir Ólafsson, formaður stjórnar Snorrastofu, samning um áframhaldandi stuðning ráðuneytisins við Snorrastofu í Reykholti í Borgarfirði.

    15. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Spurt og svarað vegna skólagjalda í sjálfstætt starfandi háskólum

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur boðið sjálfstætt starfandi háskólum landsins fulla fjármögnun frá ríkinu gegn afnámi skólagjalda. Hér er algengum spurningum svarað.

    14. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Málþing um velferð barna í stafrænum heimi

    Málþing um velferð barna í stafrænum heimi verður haldið í stóra fyrirlestrarsalnum í Grósku á morgun, fimmtudaginn 15. febrúar, frá kl. 10:30-13:30.

    14. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Menningarmál

    Grænlandssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

    Stjórn Grænlandssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2024.

    13. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Fjármagn fylgi nemendum óháð rekstrarformi háskóla

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskólaráðherra, hefur boðið rektorum sjálfstætt starfandi háskóla að skólarnir hljóti óskert fjárframlög frá ríkinu gegn afnámi skólagjalda. Hafi einhver skólanna þriggja áhuga á þessu fyrirkomulagi er gert ráð fyrir að breytingin geti tekið gildi í áföngum frá og með hausti 2024.

    12. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Afdrif útskrifaðra kennara

    Könnun um afdrif útskrifaðra kennara úr opinberum háskólum leiðir í ljós að veruleg fjölgun varð á útskrifuðum kennurum frá árinu 2020 og að almenn ánægja er með námið hjá þeim sem útskrifast. Ríflega fimmtungur útskrifaðra telur þó að námið hafi ekki nýst þeim vel í starfi og hefur hlutfallið verið nær óbreytt í áratug. Að jafnaði eru aðeins 5-10% sem starfa við annað en kennslu tveimur árum eftir útskrift.

    12. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“

    „Maggi Eiríks, eins og þjóðin þekkir hann, er ekki bara iðinn og fær tónlistarmaður heldur hefur fjölbreytni hans gefið íslensku þjóðinni marga dýrgripi og fyllt fjöldann allan af listafólki innblæstri. Laga- og textasmiðnum, gítarleikaranum og söngvaranum Magga Eiríks eru færðar þakkir frá okkur öllum og um leið vil ég þakka öllu því stórbrotna tónlistarfólki sem flutti lög Magnúsar í gærkvöldi. Ég fyllist enn á ný lotningu yfir þeim fjársjóði sem listafólkið okkar er. Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

    09. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir úr Hvata til 23. september

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið veitir Hvata - styrki til verkefna á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra. Styrkjum skal úthlutað til ákveðinna verkefna á vegum félaga og samtaka til eins árs í senn. Verkefnin skulu ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Þá eru hvorki veittir styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS-, eða meistaraprófsverkefna.

    07. feb. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing landsins klárist innan þriggja ára

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra fjarskiptamála, kynnti í morgun áform um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026.

    07. feb. 2024Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýir samningar um rekstur Fab Lab-smiðjanna á Íslandi

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa ákveðið að framlengja samninga ráðuneytanna við Fab Lab-smiðjurnar á Íslandi um þrjú ár. Samhliða verða framlögin hækkuð um samtals 91 m.kr. á samningatímsbilinu, eða úr 324 m.kr. í 415 m.kr. á næstu þremur árum.

    05. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Norrænir menningarmálaráðherrar funduð í dag: Áhersla á tungumál og máltækni

    Danir og Íslendingar ræddu um gjaldtöku af erlendum streymisveitum sem nýtt verður til að styðja við framleiðslu á innlendu menningarefni. Stefnt er að því að innleiða gjaldtökuna hér á landi 1.janúar 2025 en menningar- og viðskiptaráðherra mun mæla fyrir frumvarpi þess efnis á Alþingi.

    04. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan - styrkir til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu: Opið fyrir umsóknir

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Fléttuna - styrki til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðistækni- og þjónustu. Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2024.

    04. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Ný stjórn Markáætlunar á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, hefur skipað nýja stjórn Markáætlunar á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar. Stjórnin er skipuð þremur einstaklingum úr stjórn Rannsóknasjóðs og þremur einstaklingum úr stjórn Tækniþróunarsjóðs.

    02. feb. 2024Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðstefna um stöðu bókarinnar á Íslandi

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið boðar til ráðstefnu um stöðu bókarinnar á Íslandi föstudaginn 9. febrúar kl. 15:00 í Veröld – Húsi Vigdísar. Á ráðstefnunni verður farið yfir þau áhrif sem setning laga um stuðning við útgáfu bóka á íslensku, nr. 130/2018, hefur haft á bókamarkaðinn. Lögin tóku gildi í ársbyrjun 2019 og nú er komin allnokkur reynsla af þeim.

    02. feb. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Menntamál, Vinnumál, Háskólar, Iðnaður, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Mat á námi og starfsréttindum á Island.is

    Þjónustugátt fyrir mat á námi og starfsréttindum hefur verið opnuð á Island.is. Markmiðið er að bæta aðgengi fólks, hvort sem það eru útlendingar eða Íslendingar, að þeim aðilum sem hafa með mat á menntun að gera. Um er að ræða stórt skref til einföldunar fyrir þá sem þurfa á mati að halda því loks geta þeir fengið á einum stað allar upplýsingar um kröfur sem gerðar eru til viðurkenningar á menntun eða hæfi.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband