21. okt. 2020Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar, Úrskurðir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mál nr. 251/2020
Meðlag.
Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda. Tryggingastofnun ber lögbundna skyldu til að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur sé þess farið á leit við stofnunina í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir, sbr. 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Ekki fallist á að um brot á stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, væri að ræða.