12. des. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Dómsmálaráðuneytið, Sendiskrifstofa
Framlag íslenskra stjórnvalda til Alþjóðaráðs Rauða krossins kynnt
Íslensk stjórnvöld og Rauði kross Íslands tilkynntu um sameiginlegar skuldbindingar sínar um aðgerðir og markmið í þágu Alþjóðaráðs Rauða krossins og Rauða hálfmánans til næstu fjögurra ára. Í þeim er lögð rík áhersla á forvarnir og stuðning við baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi í vopnuðum átökum og aðgerðir vegna mansals.