16. maí 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
1188/2024. Úrskurður frá 16. maí 2024
Kæranda var synjað um aðgang að gögnum í vörslum Faxaflóahafna sf. sem vörðuðu lóðirnar Klettagarða 7 og 9, með vísan til þess að þau væru vinnugögn í skilningi upplýsingalaga, fælu í sér bréfaskipti við sérfróða aðila, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og innihéldu upplýsingar um einkamálefni annarra. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á rökstuðning Faxaflóahafna og lagði fyrir félagið að afhenda kæranda þau gögn sem kæran laut að.