16. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa
Framúrskarandi Landspítali - grein eftir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fjallar í blaðagrein í dag um breytingar á stjórnskipulagi Landspítala, innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar og margvísleg umbótaverkefni sem hafa skilað góðum árangri: ,,Í ljósi þeirra umbóta sem átt hafa sér stað á Landspítala þá er afar ánægjulegt að rýna í starfsemistölur spítalans á árinu 2023 og sjá að þessar breytingar og aðgerðir eru að bera raunverulegan árangur. Afköst spítalans hafa aukist umtalsvert á sama tíma og spítalinn skilaði hagstæðri rekstrarafkomu sem nemur, samkvæmt bráðabirgðauppgjöri, rúmum 600 milljónum króna."