Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 601–650 af 1917
    Raða eftir:
    19. maí 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum um styrki í þágu farsældar barna

    Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem varða farsæld og samfélagslega virkni, þar á meðal menntun, frístundir, íþróttir, vernd og réttindi barna, í þjónustu við börn og fjölskyldur, m.a. forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir og þjónustu er miðar sérstaklega að börnum í viðkvæmri stöðu og þ.m.t. börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

    15. maí 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Sprotasjóður styrkir 25 verkefni

    Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 56,8 m.kr. til 25 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2023–2024. Mennta- og barnamálaráðherra og formaður stjórnar sjóðsins afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu í dag.

    12. maí 2023Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Niðurstöður PISA 2022

    Niðurstöður í PISA 2022 voru birtar í dag. Könnunin mælir hæfni 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði. Niðurstöðurnar sýna verri árangur nemenda í þátttökulöndum miðað við fyrri kannanir, m.a. á öllum Norðurlöndum og er lækkunin meiri á Íslandi.

    09. maí 2023Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Vinna við sameiningu MA og VMA sett af stað

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, og Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, héldu í dag fund með starfsfólki og nemendum beggja skóla þar sem kynntar voru tillögur stýrihóps um eflingu framhaldsskóla um sameiningu skólanna tveggja auk þess sem næstu skref í ferlinu voru kynnt.

    01. maí 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Fjárfesting í röddum kennara, skólastjórnenda og annars starfsfólks skóla um allt land

    Styrkir til kennara, skólastjórnenda og annars starfsfólks skóla á leik- grunn- og framhaldsskólastigi til þátttöku í samráði um uppbyggingu heildstæðrar skólaþjónustu á Íslandi.

    28. apr. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Könnun á auknu samstarfi eða sameiningu framhaldsskóla

    Mennta- og barnamálaráðherra skipaði í síðustu viku stýrihóp um eflingu framhaldsskóla. Hópnum var falið að leggja fram tillögur að framtíðarskipulagi til að auka gæði náms og bregðast við breytingum í umhverfi skólanna.

    28. apr. 2023Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 583/2022

    Kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

    28. apr. 2023Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 602/2022

    Staðfestur úrskurður um umgengni kæranda við syni sína.

    24. apr. 2023Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stýrihópur um eflingu framhaldsskóla

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur skipað stýrihóp um eflingu framhaldsskóla. Verkefni hópsins er að móta aðgerðir til að ná markmiðum menntastefnu stjórnvalda til 2030 og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um eflingu verk- og starfsnáms. Stefnan byggir á þeirri sýn að veitt skuli framúrskarandi menntun í umhverfi þar sem öll geta lært og öll skipta máli. Tillögur hópsins munu einnig byggja á markmiðum stjórnvalda um að auka farsæld barna og ungmenna, m.a. með samþættingu kerfa, aukinni skólaþjónustu og hagræðingu, eftirfylgni og samvinnu.

    21. apr. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Teitur Erlingsson er nýr aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra

    Teitur Erlingsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra.

    21. apr. 2023Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýtt húsnæði Tækniskólans – tillögur verkefnisstjórnar

    Nýr 24.000–30.000 fermetra Tækniskóli fyrir 2.400–3.000 nemendur mun rísa í Hafnarfirði og skoða þarf sameiningu Flensborgarskólans við Tækniskólann. Þetta er tillaga verkefnisstjórnar um framtíðarhúsnæði Tækniskólans til mennta- og barnamálaráðherra.

    10. apr. 2023Rit og skýrslur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál

    Skilabréf og tillögur starfshóps um framtíðarfyrirkomulag að Reykjum

    október 2023 / Mennta- og barnamálaráðuneytið Skilabréf og tillögur starfshóps um framtíðarfyrirkomulag að Reykjum Mennta- og barnamálaráðherra skipaði hinn 24. júní 2022 starfshóp til að koma með tillögur um framtíðarfyrirkomulag á Reykjum og Reykjatorfunni, eflingu starfsnáms, rannsókna og nýsköpunarstarfs á Reykjum

    09. apr. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Yfir 1.100 manns tóku þátt í Farsældarþingi

    Alls tóku yfir 1.100 manns þátt í Farsældarþingi sem mennta- og barnamálaráðuneytið stóð fyrir í Hörpu í dag, þar af voru um 700 manns á staðnum. Á þinginu fór fram víðtækt samtal fagfólks, þjónustuveitenda, stjórnvalda, barna og aðstandenda um farsæld barna og er þingið mikilvægur liður í stefnumótun og áætlanagerð þegar kemur að innleiðingu laga um farsæld barna. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra opnaði þingið og kynnti nýjan vef og mælaborð um farsæld barna.

    09. apr. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Flóttafólk

    Opnað fyrir aðra umferð umsókna um styrk til sveitarfélaga vegna barna á flótta

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir styrki til stuðnings sveitarfélaga þar sem börn á flótta eru búsett. Styrknum er ætlað að ná til allra barna sem fengið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum frá 1. janúar 2021 til 31. ágúst 2023. Markmiðið með styrknum er að styðja við móttöku barna sem hafa neyðst til þess að flýja heimaland sitt vegna átaka.

    09. apr. 2023Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 247/2023-Úrskurður

    Felld úr gildi ákvörðun barnaverndarþjónustu um að loka máli.

    05. apr. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir leik- og grunnskólum í þróunarverkefni um foreldrafærni

    Mennta- og barnamálaráðuneytið vekur athygli á auglýsingu þar sem óskað er eftir þátttöku leik- og grunnskóla í þróunarverkefni um fræðslu og ráðgjöf við foreldra um uppeldi barna.

    01. apr. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stuðningur við sálfræðiþjónustu SÁÁ

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur undirritað samning við SÁÁ. Samningnum er ætlað að styðja við starfsemi SÁÁ með eflingu þjónustu við börn eftir mikinn álagstíma vegna heimsfaraldurs COVID-19, bæta þjónustu fyrir börn sem búa við fíknisjúkdóm náinna aðstandenda og stytta bið eftir þjónustunni.

    30. mar. 2023Utanríkismál, Evrópuráðið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Vel heppnuð ráðstefna um fjárfestingu í börnum

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Evrópuráðið stóðu í dag fyrir ráðstefnu á Hótel Reykjavík Natura um kosti þess að fjárfesta í börnum. Viðburðinn var hluti af formennsku Íslands í ráðherranefnd Evrópuráðsins.

    28. mar. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Streymi: Fjárfesting í börnum – lykillinn að farsæld

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Evrópuráðið standa fyrir eins dags ráðstefnu fimmtudaginn 30. mars um kosti þess að fjárfesta í börnum. Viðburðinn er skipulagður sem hluti af formennsku Íslands í ráðherranefnd Evrópuráðsins.

    28. mar. 2023Barnaréttur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Stýrinefnd Evrópuráðsins um réttindi barna fundar á Íslandi

    Ísland heldur fyrsta fund nefndarinnar utan Strassborgar.

    17. mar. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna

    Landsteymi um farsæld barna í skólum

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur sett á fót landsteymi um farsæld barna í skólum. Landsteyminu er ætlað að styðja við börn, foreldra og starfsfólk skóla þegar alvarleg mál koma upp, s.s. vegna ofbeldismála eða úrræðaleysis í málum barna með fjölþættan vanda.

    13. mar. 2023Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Matsferill – stefna um nýtt námsmat grunnskóla til umsagnar í Samráðsgátt

    Matsferill er nýtt fyrirhugað námsmat fyrir grunnskóla landsins sem kemur í stað samræmdra könnunarprófa. Matsferli er ætlað að vera öflugt verkfæri fyrir skólana til að leggja mat á kunnáttu, leikni og hæfni nemenda á fjölbreyttan og einstaklingsmiðaðan hátt. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur markað stefnu við gerð matferils og kallar eftir umsögnum í Samráðsgátt stjórnvalda frá kennurum, skólastjórnendum og öðrum haghöfum.

    10. mar. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum um styrki í þágu farsældar barna

    Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem varða farsæld og samfélagslega virkni, þar á meðal menntun, frístundir, íþróttir, vernd og réttindi barna. Verkefnin skulu vera í þjónustu við börn og fjölskyldur og snúa m.a. að forvörnum, fyrirbyggjandi aðgerðum og þjónustu er miðar sérstaklega að börnum í viðkvæmri stöðu, þ.m.t. börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

    08. mar. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Morgunverðarfundur um aukna þjónustu við börn

    Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar til morgunverðarfundar um nýja framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar fyrir árin 2023 til 2027 mánudaginn 14. ágúst kl. 8:30–10:00 í Nauthóli. Á fundinum verða kynntar tillögur að aðgerðum og fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda.

    05. mar. 2023Menntamál, Norrænt samstarf, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tungumál sem lykill að samfélaginu og STEAM-greinar sem lykill að framþróun

    Leggja þarf meiri áherslu á tungumálakennslu barna með ólíkan tungumála- og menningarbakgrunn á Norðurlöndum og efla hæfni norrænna þjóða þegar kemur að STEAM-greinum. Þetta kom fram þegar norrænir ráðherrar menntamála ræddu mikilvægi menntunar fyrir skóla án aðgreiningar og þróun í nemendasamsetningu. Fundurinn var haldinn í Reykjavík sem liður í formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

    03. mar. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Streymi af þjóðfundi um framtíð skólaþjónustu

    Mikill áhugi er á þátttöku í að móta framtíð skólaþjónustu. Alls hafa tæplega 500 skráð sig til þátttöku á þjóðfund mennta- og barnamálaráðherra í Hörpu á mánudag. Þjóðfundi verður streymt á vef Stjórnarráðsins með táknmálstúlkun.

    03. mar. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Heimsins stærsta kennslustund

    Krakkar frá Ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna mættu í mennta- og barnamálaráðuneytið í dag og afhentu Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, verkefni nemenda sem unnin voru í Heimsins stærstu kennslustund í desember.

    27. feb. 2023Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 568/2022-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður um umgengni kæranda við dóttur sína.

    27. feb. 2023Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 569/2023-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður um umgengni fósturdóttur kærenda við föður hennar.

    27. feb. 2023Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 546/2022-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður um umgengni kæranda við börn hans.

    27. feb. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Meira og betra verknám – morgunverðarfundur

    Mennta- og barnamálaráðherra boðar til morgunverðarfundar um stórtæka uppbyggingu starfsnáms í framhaldsskólum landsins fimmtudaginn 2. mars kl. 8:30-10:00 í Nauthóli.

    24. feb. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Ný þjónustustofnun á sviði menntamála til umsagnar í Samráðsgátt

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lagt frumvarp um nýja þjónustustofnun á sviði menntamála til umsagnar í Samráðsgátt. Markmiðið með þessum breytingum er að svara ákalli um aukinn stuðning við fjölbreytt verkefni skólasamfélagsins. Nýja stofnunin mun taka yfir hluta verkefna Menntamálastofnunar, sem verður lögð niður. Hún verður þjónustumiðuð stofnun sem mun m.a. sinna verkefnum á grundvelli laga um heildstæða skólaþjónustu sem eru í undirbúningi. Frestur til umsagna er til 10. mars 2023.

    20. feb. 2023Barnaréttur, Barnasáttmálinn, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna

    Tíu ára afmæli lögfestingar Barnasáttmálans á Íslandi

    Í dag eru tíu ár liðin frá lögfestingu Barnasáttmálans á Íslandi. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, heimsótti Vesturbæjarskóla í tilefni dagsins þar sem myndband KrakkaRÚV og mennta- og barnamálaráðuneytisins um Barnasáttmálann var frumsýnt og skólabörn sungu frumsamið réttindalag byggt á sáttmálanum.

    16. feb. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Þjóðfundur um framtíð skólaþjónustu

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, boðar til þjóðfundar um framtíð skólaþjónustu á Íslandi mánudaginn 6. mars kl. 9:00–16:00 í Silfurbergi í Hörpu og í streymi á vef Stjórnarráðsins. Boð var sent til haghafa í síðustu viku og hafa þegar yfir 350 skráð sig til þátttöku í Hörpu. Opið er fyrir skráningar til og með 26. febrúar nk.

    13. feb. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Jóna Katrín Hilmarsdóttir er nýr skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Jónu Katrínu Hilmarsdóttur í embætti skólameistara Menntaskólans að Laugarvatni til fimm ára frá 15. febrúar 2023.

    11. feb. 2023Menntamál, Menntastefna, Norrænt samstarf, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Barnaréttur

    Ráðstefna: Hvernig getur réttinda- og lýðræðislegt skólaumhverfi unnið gegn hatursorðræðu í skólastofunni?

    Hvernig getur réttinda- og lýðræðislegt skólaumhverfi unnið gegn hatursorðræðu í skólastofunni er umfjöllunarefni ráðstefnu sem fer fram 16. nóvember kl. 9:00–15:30 í Hörpu. Mennta- og barnamálaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnunni sem er hluti af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og afmæli Barnasáttmálans sem fagnar 34 ára afmæli 20. nóvember nk.

    09. feb. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Streymi frá Farsældarþingi 2023

    Fyrsta Farsældarþing á sér stað á mánudag 4. september kl. 9:00–16:00. Það verður sýnt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.

    06. feb. 2023Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Streymi af samráðsfundi um framtíðarskipan skólaþjónustu

    Yfir fjögur hundruð hafa skráð sig á samráðsfund mennta- og barnamálaráðherra um framtíðarskipulag skólaþjónustu á Íslandi nk. mánudag 5. júní kl. 10:00–16:00 í Silfurbergi í Hörpu. Fundurinn markar þann síðasta í opna samráðsferlinu og er nýtt skipulag skólaþjónustu að taka á sig mynd. Honum verður verður streymt á vef Stjórnarráðsins með táknmálstúlkun.

    05. feb. 2023Norrænt samstarf, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mennta- og barnamálaráðherra Færeyja kynnir sér stefnu íslenskra stjórnvalda

    Mennta- og barnamálaráðherra Færeyja, Djóni N. Joensen, heimsótti mennta- og barnamálaráðuneytið í dag til að kynna sér stefnu íslenskra stjórnvalda í málefnum barna. Mennta- og barnamálaráðuneyti Færeyja er nýtt ráðuneyti þar í landi sem byggir m.a. á sömu nálgun og íslenska mennta- og barnamálaráðuneytið.

    03. feb. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Meira og betra verknám

    Auka þarf verulega námsaðstöðu til starfsnáms í framhaldsskólum og móta aðgerðaáætlun til draga úr húsnæðisnotkun í bóknámi út frá spá um þróun á fjölda nemenda í framhaldsskólum til ársins 2033. Þetta er niðurstaða greinargerðar um húsnæðisþörf í framhaldsskólum næstu tíu árin sem Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti í morgun. Mennta- og barnamálaráðuneytið vinnur nú að áætlun um hvernig brugðist verði við þessum breytingum á næstu árum.

    31. jan. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Forvarnir gegn hagræðingu úrslita í íþróttum

    Íþróttir þurfa ávallt að fara fram af heilindum og mikilvægt að fyrirbyggja hvers kyns óheiðarleika eða hagræðingu úrslita. Íslensk stjórnvöld hafa staðfest sáttmála Evrópuráðsins gegn hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum sem öðlast gildi 1. apríl nk. Með alþjóðleg viðmið að leiðarljósi hefur Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, falið Lyfjaeftirliti Íslands að sinna fræðslu og forvarnarstarfi í baráttunni gegn hagræðingu úrslita í íþróttum. Þetta bætist við hlutverk Lyfjaeftirlitsins að sinna lyfjaeftirliti í íþróttum hérlendis.

    27. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    27. janúar helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar

    Ákveðið hefur verið að 27. janúar ár hvert verði á Íslandi helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar​ og þá verði vakin sérstök athygli á aðdraganda hennar og þeim hryllingi sem í henni fólst. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa sammælst um að hefja vinnu til þess að móta þær leiðir sem farnar verða í þessu augnamiði hér á landi.

    27. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samstarfshópur um framhaldsfræðslu hefur störf

    Samstarfshópur um heildarendurskoðun framhaldsfræðslu hefur hafið störf. Formaður hans er Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, og hittist hópurinn á fyrsta fundi í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, ræddi við fundargesti og óskaði þeim velfarnaðar í störfum sínum.

    24. jan. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Vel gengur að fjölga kennurum

    Í dag er alþjóðlegur dagur menntunar. Án kennara getur menntun ekki átt sér stað og varð skortur á kennurum til þess að stjórnvöld settu af stað fimm ára átaksverkefni um nýliðun kennara vorið 2019. Útskrifuðum kennurum hefur fjölgað umtalsvert frá því að átaksverkefnið hófst. Á síðasta ári útskrifuðust 454 kennarar frá þeim háskólum sem bjóða upp á kennaranám hér á landi. Það er 160% aukning miðað við meðaltal áranna 2015–2019.

    21. jan. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Blásið til sóknar í afreksíþróttum – Vésteinn kemur heim

    Mennta- og barnamálaráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands skrifuðu í dag undir samstarfssamning um stefnumörkun og uppbyggingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Samkomulagið felur m.a. í sér að Vésteinn Hafsteinsson muni flytja til Íslands og starfa með íslenskum stjórnvöldum að mótun aðgerða til að bæta stöðu og réttindi afreksíþróttafólks.

    19. jan. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Frekari stækkun á aðstöðu FB til starfsnáms

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu í dag samning um frekari stækkun starfsnámsaðstöðu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Stækkunin nemur alls 2.400m2 og er fyrir starfsnám í húsasmíði, rafvirkjun og listgreinum.

    16. jan. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ný Þjóðarhöll – staðan og næstu skref

    Ný þjóðarhöll mun umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum, stórbæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni og aðra íþróttaiðkendur auk þess að vera fjölnota hús fyrir þjóðina alla samkvæmt tillögum framkvæmdanefndar. Hún verður 19.000m2 að stærð, mun taka 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 manns á tónleikum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynntu í dag stöðu og næstu skref við byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardalnum.

    11. jan. 2023Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýir styrkir til skólaþróunar – ertu með góða hugmynd?

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar- og skólaþróunarverkefna á vettvangi leik-, grunn- og framhaldsskóla og frístundastarfs. Um nýja styrki er að ræða til að efla skólaþróun um allt land í samræmi við aðgerð 2 í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030.

    29. des. 2022Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Sjónvarpsþættir um skaðsemi hatursorðræðu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í gær samning við Ketchup Productions um framleiðslu sjónvarpsþátta um skaðsemi hatursorðræðu. Greiðslur ráðuneytanna vegna verkefnisins nema alls fimm milljónum króna.

    27. des. 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Stuðningur við Okkar heim

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirrituðu um jólin styrktarsamning við góðgerðasamtökin Okkar heim. Markmiðið er að styðja við úrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda.

    • First
    • Prev
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband