Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 701–750 af 3362
    Raða eftir:
    29. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ráðherranefnd um málefni íslenskrar tungu kynnir aðgerðir

    Aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu verður lögð fram sem þingsályktunartillaga á Alþingi á næstu dögum. Ráðherranefnd um málefni íslenskrar tungu kynnti í dag tillögur sínar að alls 19 aðgerðum sem miða að því að styrkja stöðu tungumálsins til framtíðar.

    29. nóv. 2023Forsætisráðuneytið

    Trausti Fannar Valsson skipaður formaður úrskurðarnefndar um upplýsingamál

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað Trausta Fannar Valsson, forseta lagadeildar Háskóla Íslands, formann úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

    28. nóv. 2023Forsætisráðuneytið

    Hjálparsamtök styrkt í aðdraganda jóla

    Samþykkt var á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að veita tíu hjálparsamtökum sem starfa hér á landi styrk í aðdraganda jóla eins og gert hefur verið undanfarin ár. Að þessu sinni nemur styrkurinn alls átta milljónum króna og skiptist hann jafnt á milli hjálparsamtakanna tíu.

    28. nóv. 2023Rit og skýrslur, Stjórnskipan og þjóðartákn, Forsætisráðuneytið

    Greinargerðir sérfræðinga vegna endurskoðunar stjórnarskrár

    nóvember 2023 / Forsætisráðuneytið Greinargerðir sérfræðinga vegna endurskoðunar stjórnarskrár Greinargerðir sérfræðinga vegna endurskoðunar stjórnarskrár

    28. nóv. 2023Rit og skýrslur, Stjórnskipan og þjóðartákn, Forsætisráðuneytið

    Greinargerðir sérfræðinga vegna endurskoðunar stjórnarskrár

    nóvember 2023 / Forsætisráðuneytið Greinargerðir sérfræðinga vegna endurskoðunar stjórnarskrár Greinargerðir sérfræðinga vegna endurskoðunar stjórnarskrár

    24. nóv. 2023Grindavík, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Stuðningur við Grindvíkinga vegna húsnæðis

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á ríkisstjórnarfundi í dag stuðningsaðgerðir til að mæta húsnæðisþörfum Grindvíkinga vegna jarðhræringa á svæðinu. Aðgerðirnar fela annars vegar í sér tímabundinn fjárhagslegan stuðning vegna aukins húsnæðiskostnaðar og hins vegar verður sett í forgang að tryggja Grindvíkingum húsnæði til leigu á meðan á almannvarnarástandi og rýmingu stendur og eftir atvikum lengur ef þörf krefur. ​ ​

    14. nóv. 2023Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Grindavík

    Framkvæmdir við gerð varnargarðs til verndar orkuverinu í Svartsengi hafnar

    Framkvæmdir eru hafnar við byggingu varnargarðs til að verja orkuverið í Svartsengi fyrir hugsanlegum afleiðingum eldsumbrota. Ráðist er í gerð varnargarðsins samkvæmt ákvörðun Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og byggir ákvörðunin á heimild í lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesi. Ákvörðun var tekin í dag í kjölfar lögbundins samráðs og að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra.

    14. nóv. 2023Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Heimsþing kvenleiðtoga í Reykjavík

    Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum, sem er orðinn fastur vettvangur alþjóðlegrar umræðu og tengslamyndunar um réttindi kvenna og kynjajafnrétti, hófst í Hörpu í gær en þinginu lýkur síðdegis í dag. Um 500 þátttakendur skráðu sig til leiks frá um 80 löndum, fimmtungur þeirra frá Íslandi.

    10. nóv. 2023Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Friðarráðstefna í Hörpu: „Alþjóðleg samstaða og samvinna lykilatriði“

    Norræn samstaða um frið er umfjöllunarefni fjölmennrar friðarráðstefnu sem nú stendur yfir í Hörpu og er send út í beinu streymi. Höfði friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands heldur ráðstefnuna í samstarfi við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Yfirskrift íslensku formennskunnar er „Norðurlönd – afl til friðar“.

    09. nóv. 2023Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum í dag, mánudaginn 11. september, kl. 14.00.

    05. nóv. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Ísland upp í fimmta sæti á Regnbogakorti ILGA Europe og í efsta sæti á réttindakorti trans fólks í Evrópu

    Ísland er komið upp í fimmta sæti á Regnbogakorti Evrópusamtaka hinsegin fólks (ILGA Europe) og í fyrsta sæti á réttindakorti trans fólks í Evrópu en niðurstöðurnar voru kynntar í dag á árlegum samráðsfundi IDAHOT+ sem stendur yfir í Hörpu en Ísland er er gestgjafi ráðstefnunnar í ár.

    30. okt. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1155/2023. Úrskurður frá 20. október 2023

    Kærandi óskaði eftir að fá afhent gögn frá Reykjavíkurborg sem vörpuðu ljósi á það fyrirkomulag sem væri viðhaft hjá borginni varðandi ráðstöfun fræsisvarfs. Reykjavíkurborg afhenti kæranda nokkurt magn af gögnum sem vörðuðu fræsun malbiksslitlaga. Af hálfu Reykjavíkurborgar var fullyrt að engin frekari gögn lægju fyrir sem fallið gætu undir beiðni kæranda. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa og var ákvörðun Reykjavíkurborgar því staðfest.

    30. okt. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1154/2023. Úrskurður frá 20. október 2023

    Deilt var um synjun Tækniskólans á beiðni kæranda um aðgang að skýrslu sálfræði- og ráðgjafastofunnar Lífs og sálar um athugun á fylgni skólans við lög og reglugerðir. Úrskurðarnefndin rakti að gildissvið upplýsingalaga næði til einkaaðila, meðal annars þegar þeim væri falið að sinna þjónustu sem kveðið væri á um í lögum að stjórnvald skyldi sinna. Tækniskólinn væri að öllu leyti í eigu einkaaðila. Að mati nefndarinnar gætu starfsmannamál skólans hins vegar ekki talist vera hluti af þeirri opinberu þjónustu sem skólanum væri falið að veita samkvæmt lögum um framhaldsskóla. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    30. okt. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1153/2023. Úrskurður frá 20. október 2023

    Deilt var um synjun Akraneskaupstaðar á beiðni kæranda um aðgang að skipulagslýsingum sem lagðar höfðu verið fram á fundi skipulags- og umhverfisnefndar sveitarfélagsins. Meðan málið var til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni voru kæranda afhend gögnin. Þar sem ljóst var að ekki lægi lengur fyrir ákvörðun að synja kæranda um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    30. okt. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1152/2023. Úrskurður frá 20. október 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum sem Tryggingastofnun afhendir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti vegna eftirlits með framkvæmd fjárlaga. Synjun ráðuneytisins var á því byggð að gögnin væru vinnugögn í skilningi upplýsingalaga, sem aðeins hefðu verið afhent ráðuneytinu sem eftirlitsaðila og misstu þannig ekki stöðu sína sem vinnugögn þótt þau hefðu verið afhent út fyrir Tryggingastofnun. Úrskurðarnefndin taldi hluta gagnanna ekki uppfylla það skilyrði upplýsingalaga að hafa verið útbúin af Tryggingastofnun til eigin nota. Þau gögn sem eftir stæðu uppfylltu skilyrði þess að teljast vinnugögn og að þau misstu ekki stöðu sína sem slík þótt þau hefðu verið afhent ráðuneytinu, þar sem Tryggingastofnun væri skylt að lögum að afhenda þau.…

    30. okt. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hlýtur styrk í tilefni af 30 ára afmæli

    Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á 30 ára afmæli um þessar mundir. Að því tilefni var undirritaður sérstakur styrktarsamningur við starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

    24. okt. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra úthlutar tíu milljónum til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til sex verkefna á sviði jafnréttismála en heildarfjárhæð styrkjanna er tíu milljónir króna. Styrkirnir eru veittir á grundvelli reglna um úthlutun styrkja sem forsætisráðherra veitir til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála.

    19. okt. 2023Norðurslóðir, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði þing Hringborðs Norðurslóða

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp við opnun þings Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle sem fram fer í Hörpu. Um er að ræða tíunda þing Hringborðs Norðurslóða sem haldið er í Reykjavík.

    17. okt. 2023Forsætisráðuneytið

    Áslaug María Friðriksdóttir ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar

    Áslaug María Friðriksdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Meginverkefni hennar verða tengd undirbúningi stjórnarskrárvinnu og samhæfingu mála milli ráðuneyta.

    13. okt. 2023Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til fundar á Bessastöðum á morgun, laugardaginn 14. október, kl. 14.00.

    07. okt. 2023Sjálfbært Ísland, Forsætisráðuneytið

    Viðburður Íslands um smitáhrif og sjálfbæra þróun

    Íslensk stjórnvöld í samstarfi við UNICEF standa fyrir sérstökum hliðarviðburði um svokölluð neikvæð smitáhrif í tengslum við ráðherrafund Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Streymi frá viðburðinum hefst kl. 14 á morgun, þriðjudaginn 11. júlí.

    07. okt. 2023Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Vilníus

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Vilníus á morgun og stendur fram á miðvikudag.

    05. okt. 2023Forsætisráðuneytið, Velsæld

    Alþjóðleg velsældar- og sjálfbærniráðstefna í Reykjavík 14.-15. júní

    Forsætisráðuneytið í samvinnu við embætti landlæknis, Reykjavíkurborg og fleiri aðila stendur að alþjóðlegri velsældar- og sjálfbærniráðstefnu í Hörpu dagana 14-15. júní nk.

    02. okt. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Neytendamál, Forsætisráðuneytið

    Neytendur munu geta fylgst með daglegu matvöruverði á einum stað

    Samningur um sérstaka Matvörugátt þar sem neytendur geta fylgst með verði á helstu neysluvörum stærstu matvöruverslana landsins var undirritaður í dag í Ráðherrabústaðnum. Gáttin er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga sem gerðir voru á almennum vinnumarkaði í desember þar sem kveðið er á um að veittur verði stuðningur til að auka aðhald á neytendamarkaði með því að bæta aðgengi almennings að upplýsingum um þróun verðlags og skapa þannig hvata fyrir fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum.

    26. sep. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Norrænir jafnréttisráðherrar funduðu í Reykjavík

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stýrði fundi í Norrænu ráðherranefndinni um jafnrétti og hinsegin málefni í dag. Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár en nefndin er opinber samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna.

    21. sep. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Úttektarskýrsla ECRI: Jákvæðri þróun á Íslandi fagnað en ákveðin atriði þó talin áhyggjuefni

    Sjötta úttektarskýrsla Evrópunefndarinnar gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi (European Commission against Racism and Intolerance, ECRI) hefur verið birt. ECRI er sjálfstæður eftirlitsaðili á vegum Evrópuráðsins á sviði mannréttinda. Nefndin fagnar jákvæðri þróun á Íslandi frá því að síðasta úttekt var birt árið 2017 og undirstrikar að framfarir hafi orðið og góðar starfsvenjur verið mótaðar á mörgum sviðum. Þrátt fyrir framfarirnar séu ákveðin atriði þó enn talin áhyggjuefni.

    20. sep. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði leiðtogafund um loftslagsmál

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði leiðtogafund um loftslagsmál sem haldinn er í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York en fulltrúar um 30 ríkja voru beðnir að ávarpa þann fund.

    19. sep. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra stýrði umræðum á leiðtogafundi um heimsmarkmiðin

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, hið 78. í röðinni, var sett formlega í höfuðstöðvum samtakanna í New York í dag. Leiðtogafundi um heimsmarkmiðin var fram haldið en leiðtogar heims hafa samþykkt yfirlýsingu um að hraða aðgerðum til að ná heimsmarkmiðunum fyrir 2030.

    18. sep. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi um heimsmarkmiðin

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í dag viðstödd opnun leiðtogafundar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í New York. Fundurinn er haldinn í tengslum við 78. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem verður formlega sett á morgun.

    15. sep. 2023Stjórnskipan og þjóðartákn, Forsætisráðuneytið

    Greinargerðir sérfræðinga vegna endurskoðunar stjórnarskrár

    Greinargerðum sérfræðinga sem forsætisráðherra fól að taka saman um kafla stjórnarskrárinnar sem fjalla um Alþingi, dómstóla og mannréttindi hefur nú verið skilað til forsætisráðuneytisins. Vinna sérfræðinganna er liður í heildaráætlun um endurskoðun stjórnarskrárinnar á tveimur kjörtímabilum sem hófst 2018 og í samræmi við áform sem fram koma í stjórnarsáttmála.

    13. sep. 2023Forsætisráðuneytið

    Stefnuræða forsætisráðherra og þingmálaskrá

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í kvöld stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

    08. sep. 2023Forsætisráðuneytið

    Umboðsmaður barna afhendir forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir 2022

    Salvör Nordal, umboðsmaður barna, afhenti í dag Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2022.

    31. ágú. 2023Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin fundaði með fulltrúum sveitarfélaga á Austurlandi

    Árlegur sumarfundur ríkisstjórnarinnar fór fram á Egilsstöðum í dag. Eftir hefðbundinn ríkisstjórnarfund fundaði ríkisstjórnin með fulltrúum sveitarfélaga á Austurlandi og var viðstödd athöfn í tengslum við verkefnið Römpum upp Ísland.

    30. ágú. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna birtir lokaathugasemdir

    Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna (e. Committee on the Elimination of Discrimination against Women) hefur birt lokaathugasemdir sínar við níundu reglubundnu skýrslu Íslands um framkvæmd samnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum.

    28. ágú. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fær kynningu á aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsótti Samband íslenskra sveitarfélaga í morgun þar sem hún fékk kynningu á aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni fyrir árin 2021-2025.

    22. ágú. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1148/2023. Úrskurður frá 26. júlí 2023

    A kærði synjun barnaverndarþjónustu Garðabæjar á beiðni hans um aðgang að öllum gögnum máls í barnaverndarmáli dóttur sinnar. Úrskurðarnefndin taldi að um rétt kæranda til aðgangs að gögnunum gilti ákvæði 45. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og yrði því ágreiningur um aðgang að þeim borinn undir úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 6. gr. laga nr. 80/2002. Var málinu því vísað frá.

    22. ágú. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1147/2023. Úrskurður frá 26. júlí 2023

    Kærð var synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni A, fréttamanns, um aðgang að minnisblaði ráðherra sem lagt var fyrir á ríkisstjórnarfundi, um sjónarmið Almannavarna um samgöngumál á Austfjörðum. Úrskurðarnefndin taldi ljóst að minnisblaðið til ríkisstjórnar Íslands hefði verið lagt fyrir ráðherrafund og því undanþegin upplýsingarétti almennings með vísan til 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Synjun ráðuneytisins á afhendingu minnisblaðisins var því staðfest.

    22. ágú. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1146/2023. Úrskurður frá 26. júlí 2023

    Deilt var um rétt kærenda til aðgangs að gögnum í vörslum Samgöngustofu sem vörðuðu ábendingar og athuganir stofnunarinnar á tilteknum flugmanni og félagi hans. Synjun Samgöngustofu byggðist á því gögnin væru undirorpin sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laga nr. 119/2012, og girti fyrir aðgang kærenda að gögnunum samkvæmt upplýsingalögum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki unnt að líta á ákvæði 2. mgr. 8. gr. laga nr. 119/2012 sem sérstakt þagnarskylduákvæði gagnvart þeim upplýsingum sem beiðni kærenda í málinu beindist að, heldur færi úrlausn þess eftir ákvæðum upplýsingalaga. Af þeim sökum var það niðurstaða nefndarinnar að Samgöngustofa hefði ekki leyst úr beiði kærenda á réttum lagagrundvelli.…

    17. ágú. 2023Forsætisráðuneytið

    Álitsgerð Lagastofnunar varðandi þjónustu við einstaklinga sem misst hafa réttindi sem umsækjendur um alþjóðlega vernd

    Lagastofnun Háskóla Íslands hefur skilað forsætisráðuneytinu álitsgerð um samspil ákvæða útlendingalaga og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga hvað varðar þjónustu við einstaklinga sem misst hafa réttindi sem umsækjendur um alþjóðlega vernd.

    17. ágú. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með fyrsta ráðherra Skotlands

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Humza Yousaf, fyrsta ráðherra skosku heimastjórnarinnar, í Edinborg.

    12. ágú. 2023Forsætisráðuneytið

    Breytingar á siðareglum ráðherra

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur staðfest breytingar á siðareglum ráðherra og hafa uppfærðar reglur verið birtar í Stjórnartíðindum.

    12. ágú. 2023Grindavík, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Leigutorg fyrir íbúa Grindavíkur opnað

    Klukkan 14 í dag verður opnað leigutorg á Ísland.is fyrir íbúa Grindavíkur. Þar verður hægt að skoða leiguíbúðir sem skráðar hafa verið í kjölfar auglýsingar þar sem óskað var eftir húsnæði til að leysa tímabundið úr húsnæðisþörf Grindvíkinga. Margir hafa brugðist við, en á torginu eru um 150 eignir auglýstar til leigu á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og víðar. Áfram verður tekið við skráningum á leigueignum á Ísland.is.

    03. ágú. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1131/2023. Úrskurður frá 20. febrúar 2023

    Kærð var afgreiðsla Landspítala á beiðni um aðgang að upplýsingum um sambýliskonu kæranda. Úrskurðarnefndin taldi umbeðnar upplýsingar vera sjúkraskrárupplýsingar í skilningi laga um sjúkra­skrár, nr. 55/2009. Þá hafði nefndin ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að upplýsingarnar væru aðeins vistaðar í sjúkraskrá konunnar. Ákvörðun að synja um aðgang að slíkum upplýsingum væri ekki kæranleg til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, þar sem lög um sjúkraskrár mæltu fyrir um sérstaka kæruleið í slíkum málum og teldust þannig sérlög gagnvart upplýsingalögum. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    03. ágú. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1130/2023. Úrskurður frá 20. febrúar 2023

    Kærð var afgreiðsla Skattsins á beiðni um aðgang að tilteknum bindandi álitum tollyfirvalda um toll­flokkun. Skatturinn afgreiddi beiðni kæranda við meðferð málsins hjá nefndinni og afhenti hluta umbeðinna gagna, þar sem afmáðar höfðu verið upplýsingar með vísan til 1. mgr. 188. gr. tollalaga, nr. 88/2005. Úrskurðarnefndin vísaði til þess að ákvæðið teldist sérstakt þagnarskylduákvæði að því er varðaði upplýsingar um viðskipti einstakra manna og fyrirtækja. Var það mat úrskurðarnefndarinnar að þær upplýsingar sem höfðu verið afmáðar teldust í heild sinni falla undir ákvæðið og því næði upplýsingaréttur kæranda ekki til þeirra.

    03. ágú. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1129/2023. Úrskurður frá 20. febrúar 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum um annars vegar aðila sem nýttu sér fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands og hins vegar upplýsingum um stöðugleikasamninga. Synjun Seðlabankans var byggð á því að upplýsingarnar væru undirorpnar sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019. Úrskurðarnefndin staðfesti synjunina og tók fram að valdheimildir nefndarinnar næðu ekki til þess að leggja mat á það hvort og þá hvernig Seðlabankinn nýti þá heimild sem bankanum er veitt í 6. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019 til að birta upplýsingar opinberlega sem undirorpnar eru þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. sama ákvæðis.

    03. ágú. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1128/2023. Úrskurður frá 27. febrúar 2023

    Landsnet hf. synjaði kæranda um aðgang að gögnum sem innihéldu staðsetningar loftlínumastra fyrirtækisins á miðhálendi Íslands. Synjunin var á því byggð að gögnin teldust ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, sbr. 1. mgr. 5. gr. laganna, auk þess sem upplýsingarnar vörðuðu öryggi ríkisins, sbr. 1. tölul. 10. gr. sömu laga. Úrskurðarnefndin taldi að sá hluti þeirrar skrár sem afhent var nefndinni sem innihéldi staðsetningar loftlínumastra á öllu landinu teldist tiltekið fyrirliggjandi gagn í skilningi upplýsingalaga. Hins vegar væri Landsneti óskylt á grundvelli laganna að útbúa gagn sem innihéldi staðsetningar loftlínumastra aðeins á miðhálendi Íslands, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    03. ágú. 2023Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Nýtt og skilvirkara kerfi um atvinnuréttindi útlendinga utan EES

    Komið verður á nýju og skilvirkara kerfi um atvinnuréttindi útlendinga utan EES. Forsætisráðherra, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ​og félags- og vinnumarkaðsráðherra kynntu tillögur þess efnis á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag.

    03. ágú. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Evrópuráðið, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flutti opnunarávarp á viðburði Evrópuráðsins

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í gær opnunarávarp á viðburði Evrópuráðsins þar sem fjallað var um réttindi kvenna og stúlkna á flótta í heiminum. Viðburðurinn fór fram í New York í tengslum við 67. fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna.

    18. júl. 2023Sjálfbært Ísland, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Staða Íslands gagnvart heimsmarkmiðunum kynnt á ráðherrafundi um sjálfbæra þróun

    Staða Íslands og vinna í þágu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna verður kynnt á árlegum ráðherrafundi um sjálfbæra þróun í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur myndbandsávarp.

    18. júl. 2023Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Vísinda- og nýsköpunarráð skipað í fyrsta sinn

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað fulltrúa í Vísinda- og nýsköpunarráð til næstu fjögurra ára í samræmi við lög um Vísinda- og nýsköpunarráð nr. 137/2022. Samkvæmt 5. gr. laganna skipar ráðherra níu fulltrúa í ráðið á grundvelli tillagna sérstakrar tilnefningarnefndar, þar af einn sem formann ráðsins. Varamenn eru tilnefndir og skipaðir með sama hætti.

    • First
    • Prev
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband