17. des. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa
Samningur við MetamorPhonics um endurhæfingu og inngildingu
Ráðherrar heilbrigðisráðuneytis, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis og menningar- og viðskiptaráðuneytis undirrituðu fyrir skömmu styrktarsamning við MetamorPhonics um frumkvöðla- og samstarfsverkefni á sviði endurhæfingar. Samningurinn, sem gildir frá ársbyrjun 2025 til ársloka 2026, miðar að því að styðja við tónlistarverkefni sem nýtist einstaklingum í endurhæfingu. Endurhæfingarstarfið felst í námskeiðum og þátttöku í tónlistarsmiðjum. Áhersla er lögð á þátttöku fólks með geðvanda sem þurfa aðstoð til aukinnar þátttöku í samfélaginu og vinna þannig gegn jaðarsetningu hópsins. Verkefnið er unnið í samstarfi MetamorPhonics við Listaháskóla Íslands, Tónlistarborginga Reykjavík, Hörpu og starfsendurhæfingarstöðvar um allt land.