Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN

    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 701–750 af 2497
    Raða eftir:
    29. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðráð, samráðsvettvangur um geðheilbrigðismál sett á fót

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Geðráð í samræmi við aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til ársins 2027. Í Geðráði eiga sæti fulltrúar stjórnvalda, notenda geðheilbrigðisþjónustu, aðstandenda og fagfólks sem fjalla um málaflokkinn. Með þessu er tryggð aðkoma helstu haghafa að stefnumótun, umbótum og þróun á sviði geðheilbrigðismála og geðheilbrigðisþjónustu. Formaður ráðsins er Páll Matthíasson.

    Heilbrigðisþing 2023 helgað stafrænni þróun - haldið í Hörpu 14. nóvember

    Heilbrigðisþing árið 2023 verður með sterkri norrænni skírskotun vegna formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni þetta árið. Þingið verður helgað stafrænni þróun innan heilbrigðiskerfisins með áherslu á gögn og gervigreind en Norðurlöndin í heild sinni stefna á að vera í fararbroddi þegar að þessu mikilvæga viðfangsefni kemur. Fyrirlestrar á ráðstefnunni fara fram á ensku en yfirskrift hennar er “Data and Digitalization: Crafting the Future of Sustainable Healthcare”.

    Viðhorf íbúa landsbyggðarinnar til bráðaþjónustu í heimabyggð

    Heilbrigðisráðuneytið birtir niðurstöður könnunar sem Gallup gerði fyrir ráðuneytið á viðhorfum fólks á landsbyggðinni til bráðaþjónustu í heimabyggð. Könnunin veitir m.a. innsýn í ólík viðhorf og væntingar fólks til þjónustunnar s.s. eftir búsetu, aldri, reynslu af bráðaþjónustu í heimabyggð og ýmsum fleiri þáttum. Niðurstöðurnar veita vísbendingar um styrkleika bráðaþjónustu í landinu og hvaða þætti hennar þarf helst að efla á hverju svæði. Þær geta því nýst við stefnumótun og þróun bráðaþjónustu í landinu.

    26. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Eygló Harðardóttir nýr formaður stjórnar Sjúkratrygginga Íslands

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Eygló Harðardóttur formann stjórnar Sjúkratrygginga Íslands og Guðmund Magnússon varaformann. Ný inn í stjórnina kemur einnig Ólafía B. Rafnsdóttir.

    25. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjarheilbrigðisþjónusta sem gæti gjörbylt geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn

    Nýtt meðferðarúrræði á netinu gæti tryggt mun fleiri börnum og forráðamönnum þeirra um allt land árangursríka geðheilbrigðisþjónustu. Háskólinn í Reykjavík og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vinna saman að verkefninu sem heilbrigðisráðuneytið hefur styrkt með 70 milljóna króna framlagi. Verkefnið byggist á hugrænni atferlismeðferð (HAM) þar sem foreldrum barna með kvíðaröskun eru kenndar aðferðir til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíða. Meðferðin er lágþröskuldaþjónusta sem krefst ekki sjúkdómsgreiningar til þess að tryggja tímanlega þjónustu, svokallaða snemmtæka íhlutun.

    Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja auglýst laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Umsóknarfrestur er til og með 16. október næstkomandi.

    25. sep. 2023Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Umsóknarfrestur er til og með 16. október næstkomandi.

    19. sep. 2023Innviðaráðuneytið, Líf og heilsa, Sveitarstjórnir og byggðamál, Byggðamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjarheilbrigðisþjónusta er byggðamál

    20 milljónir kr. voru veittar af byggðaáætlun til að styðja við verkefni á sviði fjarheilbrigðisþjónustu.

    18. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Minnt á ráðstefnuna um áfengi og lýðheilsu þriðjudaginn 19. september

    Enn eru nokkur sæti laus á norrænu ráðstefnuna „Alcohol and Public Health in the Nordics“ sem fram fer á Grand hótel Reykjavík á morgun. Fyrirlesarar koma víða að og búa að víðtækri þekkingu og reynslu á sviði rannsókna og stefnumótunar á sviði áfengismála og forvarna. Þeir sem ekki komast geta fylgst með ráðstefnunni í beinu streymi. Ráðstefnan hefst kl. 8.45 með ávarpi Willum Þórs Þórssonara heilbrigðisráðherra.

    18. sep. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir

    september 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir Áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir

    15. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lyf án skaða - málþing 5. október

    Landspítali stendur fyrir málþingi um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferðar fimmtudaginn 5. október næstkomandi. Málþingið er liður í alþjóðlega gæðaátakinu; Lyf án skaða sem hófst hér á landi árið 2020. Á málþinginu verður sjónum beint að vaxandi tíðni fjöllyfjameðferðar og mikilvægi þess að móta sameiginlega sýn og verklag um góðar venjur við ávísanir lyfja til að sporna við þessari þróun. Aðalfyrirlesari er Dr. Emily G McDonald sem er þekkt fyrir rannsóknir sínar á nýjum leiðum til að auka gæði lyfjameðferðar og hefur birt yfir 100 vísindagreinar um gæði í heilbrigðisþjónustu.

    13. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sigríður Dóra skipuð forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigríði Dóru Magnúsdóttur forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til næstu fimm ára, frá 15. september nk. Lögskipuð hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana mat Sigríði Dóru mjög vel hæfa. Sex sóttu um embættið.

    06. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur um tannlæknaþjónustu

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gert nýjan samning um tannlæknaþjónustu. Þjónustan sem samningurinn fjallar um eru forvarnir og tannlækningar barna til 18 ára aldurs, tannlækningar aldraðra og öryrkja og tannlækningar vegna alvarlegra meðfæddra galla, slysa eða sjúkdóma, annarra en tannréttinga. Samningurinn tekur við af þremur eldri samningum um sömu þjónustu.

    05. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla: Stafrænt aðgengi barna að klámi og áhrif þess á heilsu og líðan

    Embætti landlæknis hefur lokið mati á áhrifum stafræns aðgengis barna og ungmenna að klámi á heilsu þeirra og líðan og hefur skýrsla með niðurstöðum matsins verið birt. Matið var gert í samræmi við ályktun Alþingis um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi. Á grundvelli þess verða mótaðar tillögur um aðgerðir sem stuðla að kynheilbrigði ungs fólks.

    02. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra mælir fyrir frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga. Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu varða einkum stjórnsýslu sóttvarna og opinberar sóttvarnaráðstafanir í ljósi fenginnar reynslu af heimsfaraldri Covid-19.

    02. sep. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Syklalyfið Staklox innkallað hjá einstaklingum í varúðarskyni

    Einstaklingar sem eru í sýklalyfjameðferð með sýklalyfinu Staklox eru beðnir um að skila því í næsta apótek sem fyrst. Þeim verður afhent annað lyf í staðinn að kostnaðarlausu svo þeir geti haldið sýklalyfjameðferð áfram og lokið henni. Þeir sem eiga afgangs birgðir af Staklox eru einnig beðnir um að skila þeim í apótek. Innköllun lyfsins er gerð í varúðarskyni líkt og nánar er fjallað um í tilkynningu frá Lyfjastofnun.

    31. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkfjárhæðir vegna almennra tannréttinga nær þrefaldast

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur, með breytingu á reglugerð um þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar, nær þrefaldað styrki til almennra tannréttinga. Hækkunin tekur gildi 1. september næstkomandi. Styrkir til tannréttinga eru tvískiptir. Styrkur til meðferðar í bæði efri og neðri góm hækkar úr 150.000 kr. Í 430.000 kr og styrkur vegna tannréttinga sem krefjast einungis meðferðar í efri eða neðri gómi hækkar úr 100.000 kr. í 290.000 kr.

    28. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Frumvarp til breytinga á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði

    Birt hefur verið til umsagnar frumvarp til breytinga á 13. gr. laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði. Markmið frumvarpsins er að einfalda og stytta málsmeðferð umsókna um tilteknar vísindarannsóknir, m.a. með því að skilgreina hvers konar umsóknir vísindasiðanefnd og siðanefndum heilbrigðisrannsókna er skylt að senda til umfjöllunar hjá Persónuvernd. Efni frumvarpsins er byggt á sameiginlegum tillögum vísindasiðanefndar og Persónuverndar þessa efnis. Umsagnarfrestur er til 20. september næstkomandi.

    25. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Geislavarna ríkisins

    Tveir sóttu um embætti forstjóra Geislavarna ríkisins sem auglýst var laust til umsóknar í byrjun ágúst sl.

    25. ágú. 2023Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Norræn ráðstefna um áfengi og lýðheilsu 19. september

    Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við embætti landlæknis stendur fyrir norrænni ráðstefnu um áfengi og lýðheilsu á Grand hótel Reykjavík 19. september næstkomandi. Ráðstefnan er liður í viðburðum sem efnt er til í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári. Ráðstefnan fer fram á ensku og ber yfirskriftina Alcohol and Public Health in the Nordics.

    23. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    SPOEX styrkt til tækjakaupa vegna meðferðar við psoriasis og exemi

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra heimsótti göngudeild SPOEX, samtaka psoriasis- og exemsjúklinga, þegar tekin voru í notkun ný tæki til meðferðar við psoriasis. Þörf fyrir endurnýjun búnaðarins var orðin brýn og með 15 milljóna króna fjárframlagi frá heilbrigðisráðuneytinu var félaginu gert kleift að kaupa nýja ljósaskápa og nýtt fóta- og handaljósatæki. Allt að 70 manns nýta sér þjónustu göngudeildarinnar nokkrum sinnum í viku hverri og eru komur allt að 200.

    17. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um menntun lækna

    Heilbrigðisráðherra hefur sett nýja reglugerð sem kveður á um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Eldri reglugerð nr. 467/2015 fellur þar með úr gildi. Nýja reglugerðin felur í sér töluverðar breytingar á umgjörð og stjórnskipulagi sérnáms lækna. Einnig hefur fagleg umgjörð sérnámsins verið endurskoðuð og efld með hliðsjón af þeirri þróun sem orðið hefur á sérnámi í læknisfræði hér á landi á liðnum árum. Kröfur til námsins hafa verið skýrðar nánar og hvernig mat á sérnámi fer fram, framvinda, og námslok. Öflugt sérnám lækna er enda mikilvægur þáttur í mönnun heilbrigðiskerfisins til framtíðar.

    11. ágú. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Betri svefn og bætt sálfræðiþjónusta innleidd með nýsköpun

    Þrjú af tólf verkefnum sem styrkt eru af Fléttunni í ár hafa sett á fót samstarf með heilsugæslustöðvum. Verkefnin eru fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að felast í nýjum meðferðarlausnum sem stuðla að bættri þjónustu við skjólstæðinga og aukinni skilvirkni.

    11. ágú. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu

    ágúst 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu Hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu

    11. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla um hlutverk veitenda geðheilbrigðisþjónustu

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að skilgreina hlutverk og verkefni þeirra aðila sem veita fyrsta, annars og þriðja stigs geðheilbrigðisþjónustu hefur skilað skýrslu með niðurstöðum sínum. Verkefnið er liður í framkvæmd aðgerðaáætlunar í geðheilbrigðismálum til ársins 2027 sem samþykkt var á Alþingi í júní sl.

    08. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Embætti forstjóra Geislavarna ríkisins laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Geislavarna ríkisins. Umsóknarfrestur er til 22. ágúst næstkomandi.

    02. ágú. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerðarbreyting varðandi lyfjatiltekt og lyfjagjöf á heilbrigðisstofnunum

    Birt hafa verið til umsagnar drög að breytingu á reglugerð um val, geymslu og meðferð lyfja á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Með breytingunni er lagt til að auk lækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, verði öðrum heilbrigðisstarfsmönnum einnig heimilt að taka lyf úr lyfjageymslu, sinna lyfjatiltekt og skammta sjúklingum lyf, að því gefnu að þeir uppfylli náms- og þjálfunarkröfur sem embætti landlæknis setur.

    27. júl. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tímamótasamningur um tannréttingar

    Heilbrigðisráðherra ásamt fulltrúum Sjúkratrygginga og tannréttingasérfræðinga undirrituðu samning um tannréttingar í heilbrigðisráðuneytinu í dag en þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur hefur verið gerður um þjónustu tannréttingasérfræðinga. Samningurinn felur í sér mikilvæg tímamót og skapar meðal annars forsendur til þess að auka greiðsluþátttöku ríkisins í tannréttingum.

    27. júl. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu 2024 til 2028

    júlí 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu 2024 til 2028 Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu 2024 til 2028

    26. júl. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ólafur Baldursson leiðir verkefni um framtíð læknisþjónustu á Íslandi

    Heilbrigðisráðherra hefur falið dr. Ólafi Baldurssyni framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala að leiða verkefnið „Framtíð læknisþjónustu á Íslandi“. Hans hlutverk er að tryggja samhæfingu og samþættingu verkefnisins með viðeigandi aðkomu, samþykki og þátttöku haghafa. Ólafur hefur fengið ársleyfi frá stjórnunarstörfum á Landspítala til að vinna við þetta umfangsmikla og mikilvæga verkefni.

    • First
    • Prev
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband