08. maí 2017Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Frumbjörg fær fimm milljóna króna styrk til frumkvöðlastarfs
Félags- og jafnréttismálaráðherra veitti í liðinni viku Frumbjörgu - Frumkvöðlamiðstöð Sjálfsbjargar 5 milljóna króna styrk til að styðja frumkvöðla- og nýsköpunarstarf fatlaðs fólks. Brandur Karlsson, forvígismaður Frumbjargar, veitti styrknum viðtöku.