Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Landbúnaður
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 801–850 af 949
    Raða eftir:
    16. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Ráðherra flýtir greiðslum til sauðfjárbænda vegna COVID-19

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð sem flýtir stuðningsgreiðslum við sauðfjárrækt um nokkra mánuði. Með því að flýta greiðslunum bregst ráðherra við áhrifum COVID-19 veirunnar á íslenskan landbúnað, en aðgerðin mun sérstaklega nýtast þeim stóra hópi sauðfjárbænda sem stundar aðra starfsemi samhliða búskap, t.d. í ferðaþjónustu, og hafa fundið fyrir miklum áhrifum COVID-19 á greinina.

    06. apr. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    ANR auglýsir eftir umsóknum um styrki: Ertu með snjallt verkefni?

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    03. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Starfshópur um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum og vaktþjónustu dýralækna hefur skilað tillögum

    Starfshópur um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum og vaktþjónustu dýralækna hefur skilað tillögum til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem miða að því að efla dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum, bæta starfsskilyrði dýralækna og tryggja að Matvælastofnun geti sinnt lögbundu eftirlitshlutverki sínu á skilvirkan og árangsríkan hátt. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skipaði starfshópinn haustið 2019. Full samstaða var um tillögurnar og lúta meginatriði þeirra að eftirfarandi þáttum:

    03. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Samningar fyrir íslenska hestinn undirritaðir

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað samning við félag Hrossabænda, Landsamband hestamannafélaga, Félag tamningamanna og Íslandsstofu um áframhald markaðsverkefnisins Horses of Iceland, til kynningar á íslenska hestinum. Við sama tilefni undirritaði ráðherra samning við Félag hrossabænda og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum um prófun á forvarnarbóluefni gegn sumarexemi í útfluttum hrossum. Samningarnir voru undirritaðir við nokkuð sérstakar aðstæður að þessu sinni eða í gegnum fjarfundabúnað þar sem allir staðfestu samninginn með undirritunum sínum.

    03. apr. 2020Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19

    Heimilt að veita undanþágu frá skilum á kýrsýnum

    Með breytingunni verður ráðuneytinu heimilt við sérstakar aðstæður að veita undanþágu frá skilyrði um skila þurfi inn niðurstöðum kýrsýna (mjólkursýna) úr öllum mjólkandi kúm sem mjólkurframleiðendur skulu taka tvisvar sinnum í hverjum ársfjórðungi, til þess að þátttaka í afurðaskýrsluhaldi teljist fullnægjandi.

    01. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust 227 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. apríl 2020.. Þetta er fyrsti markaðurinn með greiðslumark sem samið var um við endurskoðuðun á samstarfssamningi um nautgriparækt milli ríkis og bænda á síðasta ári.

    27. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Aðgerðir til að mæta áhrifum COVID-19 á landbúnað og sjávarútveg

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun 15 aðgerðir á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar á þessar greinar. Markmið aðgerðanna er að lágmarka neikvæð áhrif á íslenskan landbúnað og sjávarútveg til skemmri og lengri tíma, en um leið skapa öfluga viðspyrnu þegar þetta tímabundna ástand er gengið yfir. Aðgerðirnar eru eftirfarandi.

    24. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Horfur í landbúnaði og sjávarútvegi ræddar í ríkisstjórn

    Áhrif kórónaveirunnar eru víðtæk í íslensku samfélagi og gerði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, grein fyrir stöðunni eins og hún horfir við íslenskum landbúnaði og sjávarútvegi á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun en ráðuneytið hefur undanfarna daga og vikur fylgst grannt með þróun mála.

    23. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Covid-19

    Óskað eftir dýralæknum á útkallslista

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Matvælastofnun og Dýralæknafélag Íslands óska eftir liðsinni dýralækna í bakvarðasveit.

    20. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Covid-19

    Áhrif COVID-19 á íslenskan landbúnað og sjávarútveg rædd í ríkisstjórn

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir áhrifum COVID-19 á íslenskan landbúnað og sjávarútveg. Þar kom fram að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fylgdist náið með þróun mála og að ráðuneytinu berist reglulegar upplýsingar frá m.a. Bændasamtökum Íslands og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Eindregin samstaða væri um að lágmarka efnahagslega neikvæð áhrif veirunnar bæði til skemmri og lengri tíma.

    12. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Líf og heilsa, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Atvinnuvegir

    Einangrun fyrir hunda og ketti verður tvær vikur

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað nýja reglugerð um innflutning hunda og katta. Lágmarkstími fyrir einangrun dýranna við innflutning verða nú að lágmarki tvær vikur í stað fjögurra. Reglugerðin heimilar einnig að einangrun tiltekinna hjálparhunda fari fram í heimaeinangrun.

    05. mar. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landbúnaður, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Stutt við loftslagsvænni landbúnað

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafa skrifað undir samning um loftslagsvænni landbúnað.

    04. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Ráðherra veitti Espiflöt og Garði landbúnaðarverðlaunin 2020

    Kristján Þór Júlíusson, ráðherra landbúnaðarmála, veitti Garðyrkjustöðinni Espiflöt í Biskupstungum og Garði í Eyjafirði landbúnaðarverðlaunin 2020 á nýyfirstöðnu Búnaðarþingi. Hugmyndin að baki verðlaununum er að veita bændum og býlum sem á einn eða annan máta vekja athygli og eru til fyrirmyndar í íslenskum landbúnaði, viðurkenningar og hvatningarverðlaun. Ráðherra landbúnaðarmála hefur veitt verðlaunin frá árinu 1997.

    02. mar. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Landbúnaðarstefna verður mótuð fyrir Ísland

    Mótuð verður Landbúnaðarstefna fyrir Ísland um sameiginlega sýn og skýrar áherslur til framtíðar. Verkefnið verður í forgangi í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og mun fyrsti þáttur verkefnisins hefjast á næstu vikum, meðal annars með opnum fundum um allt land. Þetta kom fram í ávarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við setningu Búnaðarþings í dag. Tillaga um mótun stefnunnar er að finna í lokaskýrslu samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga og hefur undirbúningsvinna við mótun hennar staðið yfir síðustu mánuði.

    27. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt vegna framkvæmda 2019

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur greitt fjárfestingastuðning í nautgriparækt vegna framkvæmda á árinu 2019.

    25. feb. 2020Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aukið eftirlit með innflutningi á kjöti

    Frá afnámi leyfisveitingakerfis hinn 1. janúar sl. vegna innflutnings á tilteknum landbúnaðarafurðum innan EES hefur ein sending af ófrosnu kjöti farið í dreifingu hér á landi

    21. feb. 2020Landbúnaður, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Samningur við Landbúnaðarháskólann undirritaður

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, undirrituðu á Hvanneyri í dag samning um þjónustu á sviði rannsókna, þróunarvinnu og sérhæfðar ráðgjafar fyrir árin 2020-2023.

    21. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Ársuppgjör stuðningsgreiðslna í sauðfjárrækt

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur unnið ársuppgjör stuðningsgreiðslna í sauðfjárrækt 2019 fyrir alla framleiðendur í sauðfjárrækt sem standast skilyrði sem sett eru í búvörusamningum.

    11. feb. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Landbúnaður, Náttúruvernd, Rit og skýrslur

    Landbúnaður og náttúra - LOGN

    Skýrsla sem Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins vann fyrir umhverfis- og auðlindaráðuneytið um viðhorf bænda til náttúruverndar auk greiningar á samlegðaráhrifum landbúnaðar og náttúruverndar og umfjöllun um hvernig unnið er að samþættingu þessara þátta erlendis.

    11. feb. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landbúnaður, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Friðlýsingar

    Bændur jákvæðir í garð náttúruverndar

    Íslenskir bændur eru almennt jákvæðir í garð náttúruverndar og sjá fyrir sér að hægt sé að vinna að náttúruvernd samhliða landbúnaði. Þeir vilja leggja alúð við umhverfið til þess að viðhalda náttúrugæðum á bújörðum sínum og eru áhugasamir um að taka þátt í slíkum verkefnum.

    06. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fellir 144 reglugerðir úr gildi

    Alls hafa 1242 reglugerðir nú verið felldar brott á síðustu mánuðum, en í október sl. felldi Kristján Þór brott 1098 reglugerðir.

    04. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður stofnaður

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, stofnuðu í dag Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð og undirrituðu úthlutunarreglur sjóðsins með formlegum hætti.

    03. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Landbúnaðarstefna verður mótuð fyrir Ísland

    Mótuð verður Landbúnaðarstefna fyrir Ísland um sameiginlega sýn og skýrar áherslur til framtíðar. Verkefnið verður í forgangi í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og mun fyrsti þáttur verkefnisins hefjast á næstu vikum, meðal annars með opnum fundum um allt land. Þetta kom fram í ávarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við setningu Búnaðarþings í dag. Tillaga um mótun stefnunnar er að finna í lokaskýrslu samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga og hefur undirbúningsvinna við mótun hennar staðið yfir síðustu mánuði.

    30. jan. 2020Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    ASÍ kannar verð á innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum

    Alþýðusamband Íslands mun á næstunni gera verðkönnun á innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum og skila niðurstöðum sínum til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Þjónustusamningur þessa efnis var undirritaður í dag milli Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Auðar Ölfu Ólafsdóttur, hjá ASÍ.

    21. jan. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fyrstu stuðningsgreiðslur ársins til sauðfjárbænda

    Framleiðendur í sauðfjárrækt hafa fengið fyrstu stuðningsgreiðslur ársins 2020. Þær byggja á bráðabirgðaáætlun um heildarframlög vegna ársins 2020. Um er að ræða tvöfalda mánaðargreiðslu, fyrir janúar og febrúar. Bráðabirgðaáætlun er aðgengileg á Bændatorginu undir rafrænum skjölum.

    14. jan. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Starfsemi stofnana á landsbyggðinni efld

    Áætlun hefur verið gerð til að fjölga starfsmönnum stofnana á landsbyggðinni sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Sett hafa verið fram tölusett markmið um fjölgun árin 2021, 2023 og 2025. Þá munu sömu stofnanir leitast við að ná fram hagræði í rekstri með að hafa starfsstöðvar í sama húsnæði. Jafnframt munu þær bjóða starfsmönnum sínum upp á aukinn sveigjanleika varðandi val á starfsstöð. Bæði Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun munu á næstu þremur árum ráða í nýjar stöður tengdar fiskeldi á Austurlandi og á Vestfjörðum.

    09. jan. 2020Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kaup og sala greiðslumarks í sauðfé

    Niðurstaða úthlutunar er birt í umsókn hvers og eins á heimasvæði hvers framleiðanda í AFURÐ, greiðslukerfi landbúnaðarins (afurd.is).

    08. jan. 2020Líf og heilsa, Neytendamál, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra skipar samstarfsráð MAST

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samstarfsráð Matvælastofnunar.

    23. des. 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ákvörðun verðlagsnefndar um hækkun heildsöluverðs og lágmarksverðs til framleiðenda

    Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um að hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs á mjólk og mjólkurafurðum sem nefndin verðleggur. Eftirfarandi verðbreytingar munu taka gildi þann 1. janúar 2020.

    23. des. 2019Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Einfaldara regluverk í nýjum lögum á sviði matvæla

    Einföldun regluverks á sviði matvæla er meginstefið í nýju lagafrumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem samþykkt var á Alþingi á dögunum.

    18. des. 2019Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2020

    Miðvikudaginn 16. desember 2019 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2020, samtals 13.000 kg., sbr. reglugerð nr. 1075/2019.

    18. des. 2019Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2020

    Þriðjudaginn 17. desember 2019 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2020 sbr. reglugerð nr. 1076/2019.

    17. des. 2019Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Kristján Þór undirritar reglugerð um viðbótartryggingar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð sem kveður á um viðbótartryggingar varðandi salmonellu vegna innflutnings á svína- og nautakjöti.

    13. des. 2019Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar til júní 2020

    Þriðjudaginn 3. desember sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu

    06. des. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fundaði um heimaslátrun

    Á fundinum fór Kristján Þór yfir þá vinnu sem farið hefur fram í ráðuneytinu á undanförnum misserum

    04. des. 2019Atvinnuvegir, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

    Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 9. desember 2019.

    04. des. 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

    Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 10. desember 2019.

    19. nóv. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Breytingar á úthlutun tollkvóta til hagsbóta fyrir neytendur

    Neytendur eiga að njóta aukins vöruúrvals, lægra vöruverðs og aukinnar samkeppni á markaði með landbúnaðarvörur. Einföldun og skýrara regluverk er varðar úthlutun tollkvóta mun stuðla að þessu, segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, sem í gær mælti á Alþingi fyrir frumvarpi til laga um breytingu á búvörulögum og tollalögum (úthlutun tollkvóta).

    18. nóv. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Almannaöryggi, Atvinnuvegir, Neytendamál, Landbúnaður, Lyfjamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Alþjóðleg vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja: Ísland verði leiðandi í að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

    Í dag 18. nóvember 2019 hefst fimmta alþjóðlega vitundarvika Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um skynsamlega notkun sýklalyfja, „Antibiotic Awareness Week “.

    12. nóv. 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    MAST í átaksverkefni vegna afnáms leyfisveitingakerfisins

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunar (MAST), undirrituðu í dag samkomulag um átaksverkefni um aukið eftirlit í kjölfar afnáms leyfisveitingakerfis þann 1. janúar nk. vegna innflutnings á tilteknum landbúnaðarafurðum innan EES. ​

    11. nóv. 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Annað, Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.

    Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 20. nóvember 2019.

    11. nóv. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Landbúnaður

    Endurskoðun tollskrár fyrir landbúnaðarvörur lokið

    Með breytingunum fæst betri yfirsýn og nákvæmari upplýsingar yfir það hvaða vörur eru fluttar inn og út og þannig endurspegla betur raunveruleg utanríkisviðskipti.

    30. okt. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór heimsótti sjávarútvegssýninguna í Qingdao

    Á sýningu sem þessari kemur skýrt fram hin harða alþjóðlega samkeppni sem blasir við íslenskum sjávarútvegi á hverjum degi.

    29. okt. 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Vilji til að auka innflutning til Kína

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, átti í morgun fund með Zhang Jiwen, vararáðherra Kína á sviði tollamála og eftirlits með innflutningi matvæla. Á fundinum lýstu Kínversk stjórnvöld yfir vilja til að auka enn frekar innflutning til Kína frá Íslandi, m.a. með því að greiða frekar fyrir innflutningi á sjávarafurðum, fiskimjöli, laxi og lambakjöti. ​

    29. okt. 2019Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Íslandi heimilt að setja viðbótartryggingar vegna svína- og nautakjöts

    Ráðherra segir þennan áfanga bæði ánægjulegan og mikilvægan fyrir matvælaöryggi og vernd búfjárstofna.

    25. okt. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Endurskoðun nautgripasamnings í höfn - Íslensk nautgriparækt verði að fullu kolefnisjöfnuð og greiðslumark áfram við lýði

    Fulltrúar Bændasamtaka Íslands og stjórnvalda hafa skrifað undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar. Markmið samkomulagsins er að stuðla að framþróun og nýsköpun í nautgriparækt. Áhersla er lögð á rannsóknir og menntun ásamt sjálfbærari og umhverfisvænni framleiðslu. Samkomulagið er liður í endurskoðun samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar frá 19. febrúar 2016.

    23. okt. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Skipað í verðlagsnefnd búvara

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í samræmi við ákvæði búvörulaga skipað verðlagsnefnd búvara.

    21. okt. 2019Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Verslun, Fiskeldi, Atvinnuvegaráðuneytið

    Vel yfir þúsund reglugerðir felldar brott

    Íslenskt regluverk verður að vera aðgengilegt og auðskiljanlegt segja þau Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra sem í dag kynntu aðgerðaráætlun um einföldun regluverks.

    04. okt. 2019Atvinnuvegir, Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fundur um framgang aðgerðaáætlunar um matvælaöryggi o.fl.

    Í kynningunni ráðuneytisins kom fram að vinna við framgang aðgerðaáætlunar gangi vel og sé í forgangi í ráðuneytinu.

    27. sep. 2019Líf og heilsa, Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Vottorð verður skilyrði fyrir dreifingu alifuglakjöts

    Í því skyni að efla matvælaöryggi enn frekar og standa vörð um lýðheilsu hefur Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritað nýja reglugerð um vöktun á kampýlóbakter í alifuglum og alifuglakjöti. Í reglugerðinni eru settar nákvæmar reglur um vöktun á kampýlóbakter í því skyni að draga úr þeirri hættu sem kampýlóbakter getur valdið.

    • First
    • Prev
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband