24. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Atvinnuvegir
Þorgeir Örlygsson fv. forseti Hæstaréttar leiðir starfshóp sem skoðar breytingu á stofnanaumgjörð samkeppnis- og neytendamála á Íslandi
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, hefur skipað starfshóp sem falið er að skoða leiðir til að skapa eftirliti samkeppnis- og neytendamála nýja stjórnsýslulega stöðu innan stofnanakerfis ríkisins. Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna er kveðið á um að stefnt verði að sameiningu Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu. Þá er einnig stefnt að því að kannaðir verði eftir atvikum kostir á sameiningu við aðrar stofnanir þar með talið fyrirtækjaskrá, ársreikningaskrá og hlutafélagaskrá sem aukið geti samlegðaráhrif og skilvirkni í opinberu eftirliti.