30. ágú. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið
Úrskurður nr. 18/2024
Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja tilkynningu kæranda um breytingu á rekstri í heilbrigðisþjónustu. Í málinu reyndi á hvort frekari kröfur landlæknis, sem honum er heimilt að setja vegna rekstrartilkynninga, samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 41/2007 og 2. mgr. 26. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, fælu í sér of víðtækt framsal valds til landlæknis. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að nauðsynlegt gæti verið að veita landlækni heimild til að gera ákveðnar frekari kröfur til verndar öryggi sjúklinga og gæða heilbrigðisþjónustu. Þær yrðu þó ávallt að eiga sér stoð í ákvæðum fyrrgreindra laga og 75. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944.…