11. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Burður – nýr samstarfsvettvangur í mannvirkjarannsóknum og prófunum
Burður, nýr samstarfsvettvangur um mannvirkjarannsóknir og prófanir, var opnaður í dag af Ingu Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra og Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, í húsnæði HMS í Borgartúni. Hlutverk Burðar er að efla og samræma rannsóknir og prófanir í húsnæðis- og mannvirkjagerð á Íslandi. Að vettvanginum koma stjórnvöld, menntastofnanir og atvinnulíf.