04. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Samgöngur
Aukið jafnræði og sjálfbærari fjármögnun vegasamgangna
Árangur í orkuskiptum kallar á að fjármögnun vegasamgangna verði óháð jarðefnaeldsneyti. Stefnt er að innleiðingu nýs, einfaldara og sanngjarnara kerfis á næstu árum, þar sem greitt er almennt kílómetragjald í stað sértækra gjalda á bensín og olíu sem nú eru í gildi.