Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1151–1200 af 2497
    Raða eftir:
    29. ágú. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Verklag í heilbrigðisþjónustu við móttöku þolenda heilbrigðisofbeldis

    ágúst 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Verklag í heilbrigðisþjónustu við móttöku þolenda heilbrigðisofbeldis Verklag í heilbrigðisþjónustu við móttöku þolenda heilbrigðisofbeldis

    27. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Verklag heilbrigðisþjónustu við móttöku þolenda heimilisofbeldis verði samræmt

    Ýtarleg greining á fyrirkomulagi móttöku þolenda heimilisofbeldis í heilbrigðisþjónustunni sýnir að brýn þörf er á samræmdu verklagi, bættri og samræmdri skráningu þessara mála og aukinni fræðslu fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur til úrbóta og Drífa Jónasdóttir afbrotafræðingur fór fyrir, hefur skilað skýrslu með tillögu að verklagi ásamt tillögum um aðgerðir til að tryggja innleiðingu samræmds verklags og betri þjónustu við þennan hóp á landsvísu.

    27. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ráðstöfun rúmlega 100 milljóna króna til geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungt fólk

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 102 milljónum króna í tiltekin þverfagleg átaksverkefni á vegum Landspítala sem miða að því að efla geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungt fólk. Meðal þessara verkefna eru gagnreynd námskeið í félagsfærni hjá BUGL (Barna- og unglingageðdeild Landspítala), fjölgun greiningarviðtala hjá BUGL fyrir börn með mögulega röskun á einhverfurófi samfara öðrum geðrænum vanda til að stytta bið eftir greiningu, auk markvissra aðgerða til að stytta bið eftir þjónustu þunglyndis- og kvíðateymis geðþjónustu Landspítala, þjónustu átröskunarteymisins og þjónustu áfallateymisins. ​

    26. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum frá og með 28. ágúst

    Fjöldatakmarkanir miðast áfram við 200 manns og reglur um 1 metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar. Aftur á móti verður sund- og baðstöðum, heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að taka á móti leyfðum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi, eins metra regla felld niður meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum og í sviðslistum, auk fleiri tilslakana sem nánar eru raktar hér að neðan. Heilbrigðisráðherra kynnti þessar breytingar á fundi ríkisstjórnar í morgun og eru þær í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerð þessa efnis tekur gildi 28. ágúst og gildir til 17. september.

    26. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð um endurgreiðslur fyrir þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna framlengd

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildistíma reglugerðar um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands til 30. nóvember. Samhliða er framlengdur gildistími reglugerðar um endurgreiðslu kostnaðar fyrir einnota áhöld og efni vegna þjónustu þeirra, einnig til 30. nóvember. Framlenging reglugerðanna tryggir sjúklingum áframhaldandi greiðsluþátttöku sjúkratrygginga samkvæmt gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands, þrátt fyrir að enn hafi ekki tekist samningar milli SÍ og sjálfstætt starfandi sérgreinalækna um þjónustu þeirra.

    24. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri

    Ný reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 hefur tekið gildi. Með reglugerðinni er einstaklingum sem eru metnir minna útsettir fyrir COVID-19 veirunni heimilað að sæta smitgát í stað sóttkvíar í samræmi við endurskoðaðar leiðbeiningar sóttvarnalæknis.

    23. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hraðpróf og sjálfspróf

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglugerð nr. 415/2004 sem fjallar m.a. um hraðpróf. Breytingin er unnin í samráði við sóttvarnalækni.

    19. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Beint streymi frá heilbrigðisþingi, föstudag 20. ágúst kl. 9-16

    Framtíðarsýn um heilbrigðisþjónustu við aldraða verður meginefni heilbrigðisþingsins föstudaginn 20. ágúst sem hefst kl. 9.00 með ávarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Fólk er hvatt til að fylgjast með áhugaverðu þingi í beinu streymi og taka virkan þátt í gegnum forritið Slido. Streymt er á vefnum www.heilbrigdisthing.is og þar eru einnig nánari upplýsingar um þingið.

    18. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sérhæfð heilbrigðisþjónusta við aldraða í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu efld

    Öldrunarteymið SELMA sem stofnað var á liðnu ári og veitir sérhæfða þjónustu við aldraða í heimahúsum í Reykjavík verður stóreflt og þjónusta þess aukin. Þjónustusvæðið verður stækkað þannig að þjónustan nái til allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og hún verður nú einnig í boði um helgar. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verja 250 milljónum króna af fjárlögum ársins til þessa verkefnis. Markmiðið er að bæta þjónustu við einstaklinga í heimahúsum sem ekki komast til mats og meðferðar á heilsugæslu eða göngudeild og draga úr þörf viðkomandi fyrir heimsókn á bráðamóttöku eða sjúkrahúsinnlögn.

    18. ágú. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um heilsueflingu aldraðra

    ágúst 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun um heilsueflingu aldraðra Aðgerðaáætlun um heilsueflingu aldraðra

    18. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun um heilsueflingu aldraðra birt

    Komið verður á formlegu samstarfi ríkis og sveitarfélaga um heilsueflingu aldraðra, stefnumótun um heilsueflingu og virkni verður liður í sóknaráætlunum landshluta, hlutverk heilsugæslunnar á þessu sviði verður aukið, unnið verður að markvissri fræðslu fyrir aldraða um heilsueflingu sömuleiðis verður stuðlað að betra heilsulæsi aldraðra. Þetta eru dæmi um aðgerðir sem ráðist verður í samkvæmt nýrri aðgerðaáætlun um heilsueflingu aldraðra sem unnin var af starfshópi á vegum heilbrigðisráðherra.

    16. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Forval vegna hönnunar nýbyggingar við endurhæfingardeild Grensáss

    Aðstæður til endurhæfingar munu gjörbreytast og endurhæfingarrýmum fjölga með nýbyggingu við endurhæfingardeild Landspítala við Grensás sem er í undirbúningi. Ríkiskaup auglýsa nú eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði vegna hönnunar húsnæðisins. Áætlaður heildarkostnaður við nýbygginguna sem verður allt að 3.800 fermetrar er um 2,9 milljarðar króna.

    13. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Öldrunarlæknirinn doktor Samir Sinha gestafyrirlesari á heilbrigðisþinginu 20. ágúst

    Minnt er á heilbrigðisþing 2021 sem heilbrigðisráðherra hefur boðað til 20. ágúst og fjallar um framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Meðal fyrirlesara á þinginu verður Dr. Samir Sinha frá Kanada. Auk læknismenntunar er Sinha með doktorsgráðu í félagsfræði, hann hefur víðtæka reynslu og þekkingu á heilbrigðisþjónustu við aldraða, er eftirsóttur stefnumótandi á því sviði og hefur veitt ráðgjöf til spítala og heilbrigðisyfirvalda víða um lönd. Á þinginu verður m.a. fjallað um drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar í byrjun júlí síðastliðinn.

    10. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Gildandi samkomutakmarkanir innanlands framlengdar um tvær vikur

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis að framlengja gildandi reglugerð um samkomutakmarkanir um tvær vikur, þ.e. til og með 27. ágúst. Áfram verður því kveðið á um 200 manna fjöldatakmarkanir, 1 metra nálægðarreglu m.a. í verslunum og öðru opinberu húsnæði og óbreyttar reglur um grímunotkun. Meðfylgjandi minnisblað sóttvarnalæknis með tillögu um framlengingu samkomutakmarkana ásamt áhættumati var rætt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    10. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Bólusetningar 12-15 ára barna hefjast í ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19 með það að markmiði að veita þeim vörn gegn sjúkdómnum. Bólusett verður með bóluefni Pfizer þar sem meiri reynsla er fyrirliggjandi um bólusetningar þessa aldurshóps með því efni en bóluefni Moderna sem einnig hefur fengið markaðsleyfi til notkunar fyrir börn á þessum aldri. Ef allir þiggja boð um bólusetningu þarf um 35.000 bóluefnaskammta til að fullbólusetja allan aldurshópinn. Miðað við birgðir af Pfizer og afhendingaráætlanir á næstu vikum ætti að vera unnt að ljúka bólusetningu hópsins með síðari bólusetningu um miðjan september.

    10. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Framvinda aðgerða til að styðja við heilbrigðiskerfið í heimsfaraldri

    Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við Landspítala, heilbrigðisstofnanir og fleiri aðila, vinnur nú að ýmsum aðgerðum sem miða að því að styðja við Landspítala, styrkja getu hans til að takast á við kórónaveirufaraldurinn og sinna annarri mikilvægri þjónustu við sjúklinga. Ráðuneytið hefur fengið til starfa tímabundið Vilborgu Hauksdóttur, fyrrverandi skrifstofustjóra í ráðuneytinu, til að liðsinna við áætlanir og framkvæmd þessara aðgerða í samvinnu við hlutaðeigandi stjórnendur og ábyrgðaraðila.

    10. ágú. 2021Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Óskað eftir fleirum á skrá í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

    Um 120 einstaklingar úr tíu heilbrigðisstéttum eru nú skráðir í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Heilbrigðisstofnanir, einkum Landspítali, eru nú undir miklu álagi vegna Covid-19 og því þörf á frekari stuðningi við mönnun. Heilbrigðisráðuneytið hvetur heilbrigðisstarfsfólk sem vill og getur ráðið sig til tímabundinna starfa í heilbrigðisþjónustu ef eftir því er óskað, til að skrá sig í bakvarðasveitina. Sérstaklega er óskað eftir hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og læknum á skrá.

    06. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað í starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað í Hildigunni Svavarsdóttur í starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri var auglýst þann 25. júní sl. og voru sjö umsækjendur um embættið.

    06. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bólusetningar, landamæri og styrking innviða

    Á fundi sínum í morgun ræddi ríkisstjórnin ýmis atriði er lúta að aðgerðum vegna COVID-19. Brýnast er að herða aðgerðir á landamærum, styrkja innviði heilbrigðiskerfisins og bæta við örvunarbólusetningum vegna COVID-19.

    05. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Aðgengi að sóttvarnahúsum verður takmarkað

    Heilbrigðisráðuneytið hefur gert breytingu á reglugerð nr. 747/2021 þar sem aðgengi að sóttvarnahúsum verður takmarkað. Undanfarið hefur verið mikið álag á sóttvarnahús en með breytingunni verður áhersla lögð á að nýta húsin fyrst og fremst fyrir fólk sem þarf á einangrun að halda.

    29. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir aðstoð við sýnatökur

    Vegna mikilla anna leitar Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins eftir liðsinni fólks sem getur aðstoðað við sýnatökur á Keflavíkurflugvelli og á Suðurlandsbraut 34.

    26. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breytingar á reglugerð varðandi takmarkanir á samkomum

    Heilbrigðisráðuneytið hefur gert tvær breytingar á reglugerð varðandi núgildandi takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 farsóttarinnar, en reglugerðin gildir sem fyrr til og með 13. ágúst.

    25. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Grímunotkun og almenn nálægðartakmörkun

    Um helgina tók í gildi ný reglugerð sem felur meðal annars í sér nálægðartakmörkun og grímuskyldu. Nokkurs misskilnings hefur gætt varðandi grímuskylduna og því vill ráðuneytið árétta og skýra reglurnar sem gilda til og með 13. ágúst næstkomandi.

    23. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Samkomutakmarkanir frá og með sunnudeginum 25. júlí

    Hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman verður 200 og nálægðarregla tekin upp þegar nýjar reglur um takmarkanir á samkomum taka gildi sunnudaginn 25. júlí.

    23. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Kallað eftir bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

    Vegna mikillar fjölgunar greindra smita af COVID-19 á undanförnum dögum hefur verið ákveðið að endurvekja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar.

    21. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Gildistaka aðgerða á landamærum og tilmæli sóttvarnalæknis

    Sóttvarnalæknir hefur gefið út tilmæli þar sem því er beint til ferðamanna sem búsettir eru á Íslandi eða með tengslanet hér á landi að fara strax í skimun eftir komuna til landsins, þrátt fyrir að hafa engin einkenni vegna COVID-19.

    19. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Farið fram á neikvætt Covid-19 próf hjá bólusettum á landamærum

    Allir bólusettir einstaklingar eða þeir sem eru með staðfesta fyrri sýkingu sem koma til Íslands þurfa að framvísa ekki eldra en 72 klst. gömlu neikvæðu Covid-prófi, PCR eða antigen (hraðprófi), við byrðingu erlendis samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra á grundvelli minnisblaðs sóttvarnalæknis.

    19. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    McKinsey valinn til ráðgjafar um framtíðarþjónustu Landspítala háskólasjúkrahúss

    Nýr Landspítali rís nú við Hringbraut og er áætlað að nýr meðferðarkjarni verði tekinn í notkun árið 2025-2026. Í upphafi framkvæmda var gerð þarfagreining en nú er kominn tími til að uppfæra hana. Áður en sú vinna hefst er mikilvægt að forsendur slíkrar þarfagreiningar liggi fyrir frá heilbrigðisráðuneytinu.

    16. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr rammasamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna um nauðsynlegar tannlækningar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest rammasamning Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna um nauðsynlegar tannlækningar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.

    15. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjö sækja um embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

    Sjö umsóknir bárust til heilbrigðisráðuneytis um embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri en umsóknarfrestur rann út þann 12. júlí síðastliðinn.

    14. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Síðasti stóri bólusetningardagurinn

    Í dag er síðasti stóri bólusetningardagurinn fyrir sumarfrí gegn COVID-19 í Laugardalshöll. Sprautað verður með Moderna og Astra Zeneca, en meðal þeirra sem hljóta seinni sprautuna í dag er Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    08. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðuneyti staðfestir ákvörðun landlæknis

    Mánudaginn 28. júní sl. var kveðinn upp í heilbrigðisráðuneytinu úrskurður nr. 6/2021.

    07. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Stafrænt COVID-19 vottorð

    Ný reglugerð um stafræn COVID-19 vottorð tók gildi hér á landi þann 1. júlí síðastliðinn en vottorðin munu gilda í öllum ríkjum Evrópusambandsins auk Íslands, Noregs, Liecthenstein og Sviss.

    02. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu við aldraða komin í samráðsgáttina

    Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda og verða aðgengileg þar til umsagnar fram til 1. september næstkomandi.

    01. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ákvörðun tekin um að hefja undirbúning á að rannsóknir á leghálssýnum verði fluttar til Landspítala

    Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins, hefur tekið ákvörðun um að hefja undirbúning á að rannsóknir á leghálssýnum verði fluttar til Landspítalans. Ákvörðunin byggist á því að Landspítali telur sig nú geta sinnt rannsóknunum en einnig til að koma til móts við athugasemdir fagaðila og almennings. Áður en af flutningi verður er mikilvægt að öllum undirbúningi sé lokið og öllum nauðsynlegum forsendum fullnægt, hvort sem er HPV mælingar eða skoðun frumusýna,

    30. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Næringaruppbót niðurgreidd fyrir fyrirbura

    Sjúkratryggingum Íslands er nú heimilt að veita styrki til kaupa á næringaruppbót fyrir fyrirbura sem fæðast fyrir 32 vikna meðgöngu og þarfnast næringaruppbótar þar til þeir hafa náð 40 vikna meðgöngualdri. Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um þetta hefur tekið gildi. Kostnaður foreldra sem hingað til hafa greitt næringaruppbótina að fullu nemur um 60.000 krónum. Styrkur samkvæmt reglugerðinni nemur 57.300 krónum en það sem út af stendur greiða foreldrarnir sjálfir.

    29. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stefnt að opnun dagdvalarrýma í Suðurnesjabæ

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að ósk bæjaryfirvalda í Suðurnesjabæ, að taka upp viðræður um að koma á fót allt að átta almennum dagdvalarrýmum fyrir aldraða í sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að reksturinn verði fjármagnaður með daggjöldum sem ríkið greiðir en að sveitarfélagið leggi til húsnæðið og beri ábyrgð á rekstrinum. Ljóst er að þörf er fyrir fjölgun dagdvalarrýma í heilbrigðisumdæmi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sé horft til nýtingar þeirra rýma sem eru fyrir hendi og mannfjölda í umdæminu.

    29. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Kvennamóttaka sett á fót hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samráði við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að ráðast í tilraunaverkefni um sérstaka móttöku fyrir konur innan heilsugæslunnar. Þetta er gert þar sem vísbendingar eru um að þörfum kvenna fyrir heilbrigðisþjónustu þegar um ræðir sértæk heilsufarsvandamál kvenna, sé ekki mætt sem skyldi. Heilsugæslan hefur fengið 60 milljóna króna viðbótarframlag vegna verkefnisins, þar af fær Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu 15 milljónir króna. Hlutverk þróunarmiðstöðvarinnar verður að tryggja þekkingaröflun á þessu sviði og koma þeim á framfæri á landsvísu.

    28. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað

    Um 100 fulltrúar veitenda geðheilbrigðisþjónustu og notenda þjónustunnar komu saman á vinnustofu nýverið í þeim tilgangi að rýna þjónustuferla í geðheilbrigðisþjónustu og gera tillögur að úrbótum. Markmiðið er að bæta þjónustu við fólk með geðrænan vanda, auka skilvirkni hennar og draga úr biðlistum. Landspítalinn annaðist skipulag og utanumhald vinnustofunnar sem efnt var til að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins.

    28. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Blóðgjafafélagið styrkt um hálfa milljón á afmælisári

    Þann 15. júlí næstkomandi eru 40 ár liðin frá formlegri stofnun Blóðgjafafélags Íslands. Í tilefni afmælisársins hitti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra forsvarmenn félagsins í liðinni viku og veitti félaginu 500.000 króna styrk. Blóðgjafafélagið hefur það markmið að efla blóðgjafastarfsemi og gæta hagsmuna blóðgjafa. Félagið sinnir öflugu kynningarstarfi og vinnur markvisst að því að fjölga blóðgjöfum, enda mikið í húfi eins og endurspeglast í kjörorði félagsins; Blóðgjöf er lífgjöf. Til að mæta þörf fyrir blóðgjöf hér á landi þarf Blóðbankinn um 12.000 blóðgjafir á ári, eða um 250 blóðgjafir á viku.

    25. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Embætti laust til umsóknar: Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. september 2021.

    25. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Staða í bólusetningum með besta móti á Íslandi

    Þann 24. júní höfðu 258.120 Íslendingar fengið að minnsta kosti fyrri bólusetningu. Þar af höfðu 174.732 fengið fulla bólusetningu. Staðan hér á landi er nú með besta móti í alþjóðlegu samhengi ef litið er til fjölda sem fengið hefur að minnsta kosti einn skammt bóluefnis.

    24. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Svar við ákalli: Að hlusta á þúsund lækna

    Forsvarsmenn fésbókarsamtaka lækna afhentu í gær heilbrigðisráðherra undirskriftalista um þúsund lækna sem lýsa áhyggjum af stöðu heilbrigðismála á Íslandi.

    24. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ákvæði um forgangsröðun við bólusetningu afnumin

    Samkvæmt áætlun verður í lok þessarar viku búið að bjóða öllum bólusetningu gegn Covid-19 sem skilgreindir eru í forgangshópum samkvæmt gildandi reglugerð um bólusetningar. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fella brott ákvæði reglugerðar sem kveður á um forgangshópa. Bólusetning gegn Covid-19 byggist þar með á sömu reglugerðarheimildum og bólusetning við öðrum smitsjúkdómum hér á landi. Með þessari reglugerðarbreytingu verður ákvörðun um bólusetningu vegna Covid-19 alfarið á forræði sóttvarnalæknis samkvæmt læknisfræðilegu mati hverju sinni.

    23. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu

    Alls bárust 18 umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu. Umsóknarfrestur rann út 21. júní síðastliðinn. Hæfnisnefnd skipuð þremur einstaklingum mun nú meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til heilbrigðisráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum um ráðgefandi nefndir um embætti við Stjórnarráð Íslands.

    23. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hraðpróf í heilsugæslu

    Heilsugæslan hefur tekið í notkun hraðpróf til greiningar á kórónuveirunni sem veldur Covid-19. Hraðprófin eru ekki notuð við einkennasýnatöku, heldur eru þau eingöngu ætluð þeim sem þurfa á þeim að halda, t.d. vegna ferðalaga, þar sem krafist er neikvæðrar niðurstöðu úr sýnatöku á landamærum og niðurstaða úr hraðprófi er tekin gild. Gjald fyrir sýnatöku með hraðprófi er 4.000 krónur, hvort sem hlutaðeigandi einstaklingur er sjúkratryggður hér á landi eða ekki.

    16. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hækkun styrkja til kaupa á hjálpartækjum 1. júlí

    Fjárhæðir styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum hækka umtalsvert 1. júlí með nýrri heildarreglugerð heilbrigðisráðherra. Með reglugerðinni eru styrkirnir færðir upp til verðlags sem ekki hefur verið gert frá árinu 2008. Áætlað er að framlög til niðurgreiðslu vegna kaupa á hjálpartækjum aukist með þessu um 214 milljónir króna á ársgrundvelli. Um er að ræða hjálpartæki sem auðvelda fólki að takast á við athafnir daglegs lífs.

    15. jún. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda. - Skýrsla starfshóps

    júní 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda. - Skýrsla starfshóps Framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda

    15. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda

    Birt hefur verið til umsagnar skýrsla starfshóps heilbrigðisráðherra með tillögum að heildstæðu framtíðarskipulagi heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda. Þar eru m.a. skilgreind viðfangsefni fyrsta, annars, og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu út frá samfelldum forvörnum til endurhæfingar og bata. Til grundvallar tillögunum liggur samþætting fræðilegra kenninga og þekkingar um þróun vímuefnanotkunar barna og ungmenna og samspil áhættu og verndandi þátta í því ferli. Frestur til að skila umsögnum er til 29. júní næstkomandi. Í framhaldinu mun heilbrigðisráðuneytið vinna aðgerðaáætlun um framkvæmd tillagnanna.

    14. jún. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu árin 2022 – 2026

    júní 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu árin 2022 – 2026 Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu árin 2022 – 2026

    • First
    • Prev
    • 22
    • 23
    • 24
    • 25
    • 26
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband