13. jún. 2023Sjálfbært Ísland, Forsætisráðuneytið, Velsæld
Velsældarþing hefst í Hörpu á morgun
Velsældarþing, alþjóðleg ráðstefna um velsæld og sjálfbærni, hefst í Hörpu á morgun og stendur fram á fimmtudag. Markmið ráðstefnunnar, sem haldinn er á vegum forsætisráðuneytisins og embættis landlæknis er að efla samstarf ríkja um velsældarhagkerfi og sjálfbærni og stuðla að umræðu opinberra aðila, atvinnulífs og almennings um það hvernig við höfum velsæld fólks og náttúru að leiðarljósi í stefnumótun og ákvarðanatöku til að byggja upp farsælt samfélag til framtíðar.