Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Umhverfi og náttúruvernd
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1251–1300 af 1367
    Raða eftir:
    28. feb. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Óskað eftir tillögum að handhöfum umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

    Norðurlandaráð auglýsir eftir tillögum að handhöfum náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2018. Þema Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs á þessu ári er verndun lífríkis hafsins.

    27. feb. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Dagur umhverfisins

    Óskað eftir verkefnum frá varðliðum umhverfisins

    Óskað er eftir verkefnum til þátttöku í hinni árlegu verkefnasamkeppni, Varðliðum umhverfisins. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

    27. feb. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Dagur umhverfisins

    Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2017

    Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta Kuðunginn fyrir árið 2017. Kuðungurinn verður afhentur á Degi umhverfisins 25. apríl.

    22. feb. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherrar funda með Dr. Robert Costanza

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, funduðu í dag með dr. Robert Costanza, þekktum umhverfishagfræðingi.

    16. feb. 2018Atvinnuvegir, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Atvinnuvegaráðuneytið

    Vel sóttur kynningarfundur um landsáætlun um innviði

    Góðar umræður skópust á opnum kynningarfundi um um landsáætlun um innviði sem haldinn var í gær. Á fundinum var landsáætlunin kynnt, en um er að ræða stefnumarkandi áætlun til tólf ára sem setur fram sýn um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum svo vernda megi náttúru og menningarminjar. Þá var einnig kynnt þriggja ára verkefnaáætlun.

    31. jan. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tilnefning Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá UNESCO afhent í París

    Tilnefning Íslands um að Vatnajökulsþjóðgarður og hluti gosbeltisins verði tekinn inn á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna var afhent á skrifstofu UNESCO í París í dag.

    31. jan. 2018Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Tilnefning Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá UNESCO

    janúar 2018 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Tilnefning Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá UNESCO Tilnefningarskjal Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá UNESCO en umsóknin var afhent heimsminjaskrifstofu UNESCO í París 31. janúar 2018

    28. jan. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Vatnajökulsþjóðgarður hafi gildi fyrir allt mannkyn

    Vatnajökulsþjóðgarður og hluti gosbeltisins verða tilnefnd á heimsminjaskrá UNESCO en Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, undirrituðu í dag tilnefninguna fyrir hönd íslenska ríkisins. Umsóknin verður afhent heimsminjaskrifstofu UNESCO í París miðvikudaginn 31. janúar 2018.

    24. jan. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Hreindýrakvóti ársins 2018

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2018 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun.

    23. jan. 2018Umhverfi og náttúruvernd, Skipulagsmál, Náttúruvernd, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir að skipa þverpólitíska nefnd sem vinni að stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

    Ríkisstjórnin ákvað í dag, að tillögu Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra, að skipa þverpólítíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu til að leiða vinnu um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu.

    17. jan. 2018Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundar með formanni landsstjórnar Grænlands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti fund með Kim Kielsen, formanni landsstjórnar Grænlands í dag.

    17. jan. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra fundar með formanni grænlensku landsstjórnarinnar

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, átti fund í dag með Kim Kielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, en Kielsen fer einnig með umhverfismál í landsstjórninni.

    11. jan. 2018Umhverfi og náttúruvernd, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Tillögur í plastmálum afhentar ráðherra

    Samráðsvettvangur um aðgerðaáætlun í plastmálefnum hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra tillögu að aðgerðaáætlun um hvernig draga má úr notkun plasts, bæta endurvinnslu þess og takast á við plastmengun í hafi. Alls er um 18 aðgerðir að ræða.

    06. jan. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Atvinnuvegir

    Reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit tekur gildi

    Ný reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit hefur tekið gildi. Með reglugerðinni er lokið innleiðingu Evróputilskipunar um losun frá iðnaði.

    22. des. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Lausna leitað varðandi fráveitumál við Mývatn

    Ríkisstjórnin fól í dag fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti að ganga til viðræðna við sveitarstjórn Skútustaðahrepps um fráveitumál við Mývatn.

    14. des. 2017Umhverfi og náttúruvernd, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Skipulagsmál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir til rekstrar félagasamtaka á sviði umhverfismála lausir til umsóknar

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir til umsóknar rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa á málefnasviði ráðuneytisins. Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins og er umsóknarfrestur til kl. 16:00, 15. janúar 2018.

    14. des. 2017Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Auðlindir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Orri Páll og Sif aðstoðarmenn umhverfis- og auðlindaráðherra

    Orri Páll Jóhannsson og Sif Konráðsdóttir hafa verið ráðin aðstoðarmenn Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra. Þau hefja störf á næstu dögum.

    09. des. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2018 munu útgjöld til umhverfismála nema 16,9 milljörðum króna.

    Aðgerðaáætlun í loftslagsáætlun er í vinnslu og áætlað er að hún verði tilbúin til kynningar í upphafi árs 2018. Í áætluninni verða tímasettar og mælanlegar aðgerðir og þannig munu tekjur og gjöld vegna nýrra loftslagsaðgerða dreifast á mörg ráðuneyti.

    05. des. 2017Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    160 milljónir í átak í landvörslu í sumar

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tillögu umhverfis- og auðlindaráðherra að ráðast í átak í landvörslu í sumar. Verður 160 milljónum veitt aukalega til landvörslu á stöðum í náttúru Íslands sem fjölsóttir eru af ferðamönnum. Um er að ræða 70% aukningu landvarðavikna sem ráðið er í til skemmri tíma.

    05. des. 2017Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Utanríkismál, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Samvinna og sjálfbærni á norðurslóðum

    Utanríkisráðherrafundi Norðurskautsráðsins, sem fram fór í Fairbanks í Alaska, lauk í gærkvöld en á fundinum, sem markar lok formennsku Bandaríkjanna í ráðinu og upphaf formennsku Finnlands, ræddu utanríkisráðherrar Norðurskautsríkjanna átta málefni norðurslóða og störf og áætlanir Norðurskautsráðsins til næstu ára.

    22. nóv. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Hreint loft til framtíðar – áætlun um loftgæði fyrir Ísland

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út fyrstu almennu áætlunina um loftgæði fyrir Ísland og ber hún heitið Hreint loft til framtíðar. Áætlunin gildir fyrir árin 2018 – 2029 og er meginmarkmið hennar að stuðla að loftgæðum og heilnæmu umhverfi.

    22. nóv. 2017Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Hreint loft til framtíðar – Áætlun um loftgæði á Íslandi 2018 – 2029

    nóvember 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Hreint loft til framtíðar – Áætlun um loftgæði á Íslandi 2018 – 2029 Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út fyrstu almennu áætlunina um loftgæði fyrir Ísland og ber hún heitið Hreint loft til framtíðar. Áætlunin gildir fyrir árin 2018 – 2029 og er meginmarkmið hennar að stuðla að loftgæðum og heilnæmu umhverfi

    17. nóv. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Utanríkismál, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið

    Málefni hafsins rædd á loftslagsfundi í Bonn

    Árlegu aðildarríkjaþingi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, hinu 23. í röðinni, lýkur í Bonn í Þýskalandi í dag. Málefni hafsins hafa fengið sérstaka athygli á þinginu fyrir forgöngu Fiji, sem fer með formennsku þess. Ísland fagnaði frumkvæði Fiji í innleggi sínu á fundinum og sagði súrnun hafsins eina helstu ógn sem tengdist loftslagsbreytingum.

    24. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi og hefur hún nú þegar tekið gildi. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja fullnægjandi mengunarvarnir við meðhöndlun á olíu, lýsi, og líkum efnum.

    23. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Upptökur frá Umhverfisþingi aðgengilegar

    Góður rómur var gerður að X. Umhverfisþingi sem haldið var í Hörpu sl. föstudag en þar voru loftslagsmál í brennidepli. Nálgast má upptökur frá þinginu á dagskrársíðu þess.

    23. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2017

    Umhverfis og auðlindaráðuneytið minnir á að rjúpnaveiðitímabilið hefst föstudaginn 27. október og munu veiðidagar rjúpu í ár verða tólf talsins, sem skiptast á fjórar helgar á tímabilinu 27. október til 19. nóvember 2017. Leyfileg heildarveiði á rjúpum er um 57.000 rjúpur og miðað við fjölda veiðimanna síðasta ár, gera það 5-6 fugla á hvern veiðimann. Sölubann á er rjúpum.

    23. okt. 2017Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Skipulagsmál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir til verkefna lausir til umsóknar

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála og er umsóknarfrestur til kl. 16:00 23. nóvember 2017. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

    20. okt. 2017Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Milljón tonn – sviðsmynd til 2030

    október 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Milljón tonn – sviðsmynd til 2030 Samantekt Sigurðar Inga Friðleifssonar, sérfræðings verkefnisstjórnar um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, sem hann vann fyrir umhverfis- og auðlindaráðherra og kynnti var á Umhverfisþingi 20. október 2018

    20. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Sviðsmynd um aðgerðir til að draga úr losun kynnt á Umhverfisþingi

    Áætla má að Ísland þurfi að minnka árlegan útblástur gróðurhúsalofttegunda um allt að milljón tonn koldíoxíðs fyrir 2030. Hægt væri að ná um helmingi þessa samdráttar með aðgerðum í samgöngum. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Sigurðar Inga Friðleifssonar, sem hann vann fyrir umhverfis- og auðlindaráðherra og kynnti á Umhverfisþingi í dag.

    20. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Losun frá Íslandi verður að líkindum yfir heimildum Kýótó-bókunarinnar

    Umhverfisstofnun hefur skilað til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins greiningu á stöðu Íslands gagnvart skuldbindingum sínum á öðru tímabili Kýótó-bókunarinnar (2013-2020), sem ráðuneytið óskaði eftir. Umhverfisstofnun telur líklegt að Ísland verði ekki innan heimilda á tímabilinu og þurfi að kaupa heimildir til þess að standa við skuldbindingar sínar, sem nemi um 3,6 milljónum tonna af koldíoxíðígildum fyrir tímabilið í heild.

    20. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    X. Umhverfisþing hafið

    X. Umhverfisþing hófst í Silfurbergi, Hörpu kl. 9 í morgun. Að þessu sinni eru loftslagsmál í brennidepli þingsins.

    19. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    X. Umhverfisþing sett á morgun

    Skráningu er nú lokið á Umhverfisþing sem haldið verður í Hörpu á morgun, föstudaginn 20. október. Að þessu sinni eru loftslagsmál í brennidepli.

    10. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Skráning hafin á Umhverfisþing 2017

    Skráning er hafin á X. Umhverfisþing sem haldið verður föstudaginn 20. október 2017 í Silfurbergi í Hörpu í Reykjavík. Að þessu sinni verða loftslagsmál í brennidepli þingsins.

    07. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Forsætisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum - Kallað eftir hugmyndum almennings

    Vinna við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er hafin og hefur verið opnað sérstakt vefsvæði tileinkað vinnunni á slóðinni www.co2.is. Almenningur er hvattur til að senda hugmyndir og tillögur að aðgerðum til verkefnisstjórnar á netfangið [email protected]

    28. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Drög að reglugerð um vegi í náttúru Íslands í umsögn

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að reglugerð um vegi í náttúru Íslands. Reglugerðin fjallar um gerð skrár um vegi, aðra en þjóðvegi, í náttúru Íslands þar sem umferð vélknúinna ökutækja er heimil sbr. 32. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013.

    15. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Rætt um framtíðarstefnu í baráttu gegn eyðimerkurmyndun

    Fulltrúar Íslands sitja nú 13. aðildarríkjaþing samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD) sem haldið er í borginni Ordos í Innri Mongólíu í Kína. Þar er stefna í starfi samningsins til næstu 12 ára til umfjöllunar, en í henni eru sett fram fjögur meginmarkmið.

    15. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Dagur íslenskrar náttúru

    Viðurkenningar veittar í tengslum við Dag íslenskrar náttúru

    Ævar Þór Benediktsson hlaut fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Sigþrúður Jónsdóttir fékk Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í dag. Verðlaunin voru veitt í tengslum við Dag íslenskrar náttúru, sem er á morgun.

    14. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Evrópusamvinna

    Samgönguvika hefst á laugardag

    „Förum lengra – samferða“ er yfirskrift Evrópskrar samgönguviku í ár, en hún hefst á laugardag 16. september, á Degi íslenskrar náttúru. Um er að ræða samevrópska viku sem árlega stendur yfir dagana 16. – 22. september.

    10. sep. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Friðlýsing vegna stækkunar friðlandsins í Þjórsárverum undirrituð

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði í dag auglýsingu um friðlýsingu vegna stækkunar friðlandsins í Þjórsárverum.

    02. sep. 2017Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands - áfangaskýrsla nefndar

    febrúar 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands - áfangaskýrsla nefndar Áfangaskýrsla nefndar sem hefur fjallað um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Skýrslan felur í sér greiningu á núverandi stöðu miðhálendisins auk kortlagningar svæðisins

    31. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Teista friðuð fyrir skotveiðum

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur með reglugerð friðað teistu fyrir skotveiðum. Ákvörðun um friðun er tekin á grundvelli umsagna frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Umhverfisstofnunar.

    22. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfismál á norðurslóðum í brennidepli nýrrar skýrslu

    Hnattræn hlýnun hefur einna mest áhrif á norðurslóðum en Norðurheimskautssvæðið hlýnar nú tvöfalt hraðar en önnur svæði jarðar að jafnaði. Ríki Evrópu eiga sinn þátt í þessari hröðu hlýnun en álfan getur einnig lagt sitt af mörkum til að sporna við frekari hlýnun í norðri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýlegri skýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu um umhverfismál á norðurslóðum.

    18. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um Þjóðgarðastofnun kynnt í ríkisstjórn

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í dag í ríkisstjórn áform um að koma á fót Þjóðgarðastofnun sem tæki við verkefnum Vatnajökulsþjóðgarðs, Þjóðgarðsins á Þingvöllum, Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls auk annarra tiltekinna verkefna á sviði náttúruverndar á vegum Umhverfisstofnunar.

    11. ágú. 2017Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands – lokaskýrsla nefndar

    nóvember 2017 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands – lokaskýrsla nefndar Lokaskýrsla nefndar um forsendur fyrir stofnun miðhálendisþjóðgarðs. Skýrslunni er ætlað að vera grundvöllur fyrir áframhaldandi umræðu og ákvarðanatöku varðandi verndun miðhálendisins

    11. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Lokaskýrsla um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands afhent ráðherra

    Nefnd um forsendur fyrir stofnun miðhálendisþjóðgarðs hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra lokaskýrslu sinni. Skýrslunni er ætlað að vera grundvöllur fyrir áframhaldandi umræðu og ákvarðanatöku varðandi verndun miðhálendisins.

    09. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra fundar með sveitarfélögum um þjóðgarð á miðhálendinu

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur síðustu mánuði fundað með þeim sveitarfélögum sem eiga land að miðhálendinu vegna þeirrar vinnu sem fer fram í ráðuneytinu þar sem kannaðar eru forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Alls eiga 22 sveitarfélög stjórnsýslumörk innan miðhálendislínunnar.

    09. ágú. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Tilnefningar til fjölmiðlaverðlauna á Degi íslenskrar náttúru

    Dómnefnd hefur tilnefnt fjóra til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem veitt verða föstudaginn 15. september í tengslum við Dag íslenskrar náttúru.

    25. júl. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Jökulsárlón og nærliggjandi svæði friðlýst sem hluti Vatnajökulsþjóðgarðs

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Jökulsárlóns og umfangsmikilla svæða sem liggja að lóninu. Um leið er svæðið fellt inn í Vatnajökulsþjóðgarð. Þar með nær þjóðgarðurinn frá hæsta tindi landsins niður að fjöru. Þessi breyting felur í sér að hluti þjóðvegar 1 liggur nú í gegn um þjóðgarð í fyrsta sinn.

    21. júl. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra hefur endurheimt votlendis við Urriðavatn

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, markaði í gær upphaf vinnu við endurheimt votlendis við Urriðavatn í Garðabæ með því að moka ofan í skurð við vatnið. Um leið undirrituðu Garðabær, Landgræðsla ríkisins, Toyota á Íslandi, Urriðaholt ehf og Byggingarfélag Gylfa og Gunnars samning um endurheimt votlendisins.

    18. júl. 2017Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Samgöngur og fjarskipti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Óskað eftir umsögnum um breytingu á byggingarreglugerð vegna hleðslu rafbíla

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á byggingarreglugerð. Breytingin kveður á um að í nýbyggingum og við endurbyggingu skuli gera ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla.

    • First
    • Prev
    • 24
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband