Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Skipulagsmál, Húsnæðis- og mannvirkjamál
Lög samþykkt á Alþingi: Ein öflug stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála
Alþingi samþykkti í dag lög sem fela í sér að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sameinast. Allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, er nú á höndum einnar stofnunar: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.