Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN

    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1351–1400 af 2497
    Raða eftir:
    31. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Í ljósi umræðu síðustu daga um samninga um bóluefni og afhendingu efnanna vill heilbrigðisráðuneytið árétta eftirfarandi:

    Það er styrkur Íslands að hafa átt þess kost að vera með í breiðu og öflugu samstarfi Evrópuþjóða um samninga og kaup á bóluefni. Við höfum þegar tryggt okkur með þeim samningum bóluefni sem er mun meira en við þurfum á að halda. Ísland er samferða Evrópusambandinu og hinum Norðurlöndum og reiknað er með því að stór hluti Íslendinga verði bólusettur fyrir sumarið.

    30. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um byggingu 64 rýma hjúkrunarheimilis við Boðaþing í Kópavogi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ármann Kristinn Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, hafa undirritað samning sem kveður á um byggingu hjúkrunarheimilis í Kópavogi fyrir 64 íbúa. Heimilið mun rísa á lóð Kópavogsbæjar við Boðaþing og verður samtengt við þjónustumiðstöð og 44 rýma hjúkrunarheimili sem þegar er á lóðinni. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina eru rúmir 3 milljarðar króna. Ríkið greiðir 85% kostnaðarins og sveitarfélagið 15%.

    Öryrkjar og aldraðir greiða minna fyrir tannlækningar frá áramótum

    Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar öryrkja og aldraðra eykst 1. janúar næstkomandi úr 50% í 57%. Þetta er liður í áætlun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga. Áætlaður kostnaður ríkisins vegna þessa nemur 200 milljónum króna. Stefnt er að því að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tannlækniskostnaðar þessara hópa verði komin í 75% árið 2024. Til að ná því markmiði er í gildandi fjármálaáætlun gert ráð fyrir að framlög hins opinbera verði aukin um 200 milljónir króna á næstu fjórum árum.

    30. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Undirritun samnings Íslands um bóluefni Moderna og viðbótarsamnings um bóluefni frá Pfizer

    Samningur Íslands um bóluefni Moderna og viðbótarsamningur um bóluefni frá Pfizer voru undirritaðir í heilbrigðisráðuneytinu í dag. Samningurinn við Moderna tryggir Íslendingum 128.000 bóluefnaskammta og dugir fyrir 64.000 einstaklinga. Þetta er það sama og aðrar þjóðir í samstarfi Evrópuþjóða eiga rétt á sem hlutfall af mannfjölda.

    29. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bólusetning hafin við COVID-19

    Fjórir starfsmenn heilbrigðisþjónustu voru bólusettir við COVID-19 kl. 9.00 í morgun og voru þar með fyrstir allra til að hljóta bólusetningu hér á landi. Klukkan 10.00 hófst bólusetning á hjúkrunarheimilum. Þorleifur Hauksson var fyrstur íbúa á hjúkrunarheimili til að fá bólusetningu en hann býr á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð í Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fylgdust með bólusetningu Þorleifs, ásamt starfsfólki Seljahlíðar og fjölmiðlafólki og var tímamótunum vel fagnað af Þorleifi og öðrum viðstöddum.

    28. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ísland fær 80.000 viðbótarskammta af bóluefni frá Pfizer

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að gera viðbótarsamning um kaup á 100 milljónum skammta bóluefnis frá Pfizer til viðbótar þeim 200 milljónum sem framkvæmdastjórnin hafði áður samið um. Þetta gefur öllum ríkjum sem aðild eiga að Evrópusamstarfinu, Íslandi þar með töldu, kost á að kaupa meira bóluefni frá framleiðandanum. Samningur Íslands um kaup á 80.000 skömmtum til viðbótar frá Pfizer verður undirritaður á morgun. Viðræður framkvæmdastjórnarinnar og Pfizer um afhendingaráætlun standa yfir og verða þær niðurstöður kynntar um leið og þær eru ljósar.

    Lækkun komugjalda í heilsugæslu og fleiri breytingar um áramót

    Almenn komugjöld í heilsugæslu lækka úr 700 krónum í 500 krónur 1. janúar næstkomandi og sem fyrr greiða börn, öryrkjar og aldraðir ekkert komugjald. Fellt verður niður sérstakt komugjald hjá þeim sem sækja aðra heilsugæslustöð en þeir eru skráðir hjá. Heilsugæslan um allt land tekur um áramót við skimunum fyrir krabbameini í leghálsi. Gjald fyrir leghálsstrok lækkar þá úr 4.818 krónum í 500 krónur.

    COVID 19: Bóluefni Pfizer komið til landsins – bólusetning hefst á morgun

    „Dag­ur­inn í dag er dag­ur góðra frétta og senni­lega betri frétta en við höf­um lengi heyrt“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra við móttöku fyrstu 10.000 skammtanna af bóluefni Pfizer við COVID-19 í dag. Hún sagði engan hafa órað fyrir því að takast myndi að þróa bóluefni við þessum skæða og alvarlega heimsfaraldri á svo skömmum tíma. Það hefði gerst hraðar en nokkur þorði að vona eða taldi raunhæft. Þetta væri ótrúlegur árangur sem þakka mætti víðtækri samstöðu og samvinnu vísindamanna, fyrirtækja, heilbrigðiskerfa og þjóða. Fyrsta COVID-19 smitið greindist hér á landi í lok febrúar á þessu ári og rúmt ár er frá því að fyrsta smitið greindist í heiminum.

    22. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hjúkrunardeild fyrir heimilislaust fólk sett á fót á næsta ári

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja á fót 12 rýma sérhæfða hjúkrunardeild ætlaða heimilislausu fólki sem þarfnast hjúkrunar og umönnunar og glímir við langvarandi neysluvandamál, oft samhliða geðrænum vanda. Þörf fyrir sértækt úrræði sem þetta er brýn að mati verkefnahóps sem fjallað hefur um málið. Um sé að ræða viðkvæman hóp sem við núverandi aðstæður fær ekki fullnægjandi þjónustu. Heimilið verður samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga.

    22. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Undirritun samnings við Janssen um bóluefni fyrir 235.000 manns

    Samningur Íslands um bóluefni frá lyfjaframleiðandanum Janssen var undirritaður í dag. Þetta er þriðji samningur íslenskra heilbrigðisyfirvalda um kaup á bóluefnum við COVID 19. Samningurinn við Janssen tryggir bóluefni fyrir 235.000 einstaklinga. Áður var búið að gera samning um bóluefni frá Pfizer fyrir 85.000 einstaklinga og Astra Zenca fyrir 115.000 einstaklinga.

    21. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Skólastarf frá áramótum samkvæmt nýrri reglugerð

    Takmarkanir á skólahaldi verða rýmkaðar frá gildandi reglum samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Breytingarnar leiða meðal annars til þess að mögulegt verður að bjóða upp á staðnám í öllum framhaldsskólum, einnig skólum með áfangakerfi. Á háskólastigi verður heimilt að hafa allt að 50 manns saman í rými en blöndun milli hópa er óheimil. Reglugerðin gildir til 28. febrúar en með fyrirvara um breytingar ef þörf krefur.

    21. des. 2020Covid-19, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Íþrótta- og æskulýðsstarfi komið í gegnum COVID-19

    Ráðist verður í aðgerðir til þess að styðja við starf íþrótta- og æskulýðsfélaga sem raskast hefur verulega vegna afleiðinga sóttvarnaráðstafana COVID-19

    21. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Fáum hlutfallslega sama magn bóluefna og önnur ríki í Evrópusamstarfi

    Þátttaka Íslands í samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bóluefnum í gegnum samninga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tryggir Íslandi hlutfallslega sama magn bóluefna og öllum öðrum þjóðum sem taka þátt í samstarfinu. Framkvæmdastjórnin kveður á um hve mikið ríkin fá og er þar alfarið byggt á hlutfallslegri úthlutun miðað við höfðatölu hverrar þjóðar.

    21. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um stóraukna heimahjúkrun í Reykjavík

    Sjúkratryggingar Íslands og Reykjavíkurborg hafa gert með sér nýjan samning um heimahjúkrun í Reykjavík til fjögurra ára. Árlegur kostnaður við samninginn nemur um 2 milljörðum króna. Nýlega var gerður sérstakur samningur um rekstur öldrunarteymis sem sinnir sérhæfðri heilbrigðisþjónustu við aldraða í heimahúsum í Reykjavík. Við gerð hans tryggði heilbrigðisráðherra 150 milljónir króna á ársgrundvelli til reksturs teymisins og styrkingu innviða heimahjúkrunar. Þess er vænst að þjónusta teymisins bæti til muna þjónustu við aldraða í heimahúsum, fækki sjúkrahússinnlögnum og sé einnig til þess fallin að vinna gegn þeim vanda sem oft skapast á bráðamóttöku Landspítala þegar ekki er unnt að útskrifa fólk af sjúkrahúsinu að meðferð lokinni vegna skorts á úrræðum.

    20. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Þegar búið að tryggja bóluefni fyrir 87% þjóðarinnar

    Íslensk stjórnvöld hafa þegar tryggt bóluefni sem dugir fyrir 87% þjóðarinnar í gegnum samstarf Evrópuþjóða með samningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Samningar sem Ísland hefur þegar lokið við lyfjaframleiðendurna Pfizer og Astra Zeneca tryggja 400.000 bóluefnaskammta sem nægja fyrir 200.000 einstaklinga. Þriðji samningurinn við bóluefnaframleiðandann Janssen verður undirritaður 23. desember næstkomandi og tryggir Íslandi 235.000 skammta sem nægja fyrir 117.500 manns. Alls tryggja þessir þrír samningar bóluefni fyrir rúmlega 376.000 einstaklinga. Þann 31. desember næstkomandi verður undirritaður samningur við Moderna en umfang samningsins varðandi fjölda skammta liggur ekki fyrir að svo stöddu.…

    18. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Vegna umræðu um dreifingu bóluefna gegn COVID-19

    Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á eftirfarandi tilkynningu frá sóttvarnalækni frá í gær vegna umræðu um dreifingu bóluefna gegn COVID-19: Að gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir taka fram að á þessari stundu liggja einungis fyrir áreiðanlegar upplýsingar um afhendingu fyrstu skammta bóluefnis frá Pfizer. Á upplýsingafundi í morgun mátti skilja á orðum mínum að ekki væri að vænta bóluefna frá öðrum framleiðendum fyrr en á síðari hluta næsta árs. Þetta var ofsagt. Ísland hefur þegar tryggt sér kauprétt á bóluefni fyrir um 60–70% þjóðarinnar en ekki liggur enn fyrir hvenær og hversu mikið bóluefni kemur í hverri sendingu. Áætlanir framleiðenda munu skýrast þegar fram í sækir.

    17. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Forgangsröðun við bólusetningu þegar fyrstu skammtar bóluefnis berast

    Sóttvarnalæknir hefur í samráði við heilbrigðisráðherra ákveðið hvaða hópar munu njóta forgangs við bólusetningu við COVID-19 þegar fyrstu skammtar bóluefnis berast til landsins. Þetta er í samræmi við reglugerð þar að lútandi sem heimilar sóttvarnalækni að víkja frá forgangsröðun reglugerðarinnar telji hann það nauðsynlegt og skal hann þá tilkynna það ráðherra með rökstuðningi.

    17. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Yfirlit um stöðu samninga um bóluefni

    Heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit með upplýsingum um stöðu samninga um bóluefni vegna COVID 19 sem Íslandi bjóðast á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur. Á yfirlitinu má einnig sjá hver staðan er á prófunum viðkomandi bóluefnis, hvenær megi vænta útgáfu markaðsleyfis og hve marga skammta bóluefnis Ísland muni fá eftir því sem upplýsingar um það liggja fyrir. Yfirlitið er myndrænt og verður uppfært reglulega eftir því sem málum vindur fram.

    17. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun um endurhæfingu til fimm ára

    Heilbrigðisráðherra hefur sett fram aðgerðaáætlun um endurhæfingu til ársins 2025. Grundvöllur áætlunarinnar er að endurhæfingarhugtakið og stig endurhæfingar verði skilgreind í reglugerð í samræmi við skilgreiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, að öll endurhæfingarstarfsemi í landinu falli undir ábyrgðarsvið heilbrigðisráðuneytisins og að sett verði á fót endurhæfingarráð. Rík áhersla er lögð á aukið hlutverk heilsugæslu í endurhæfingu og stefnt er að því að stórauka fjarheilbrigðisþjónustu í endurhæfingu.

    16. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samkomulag um uppsafnaðan halla Landspítala

    Heilbrigðisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa gert með sér samkomulag um fjármál Landspítala sem miða að því að Landspítali þurfi ekki að vinna á uppsöfnuðum rekstrarhalla á árunum 2021–2023. Skilyrði fyrir þessu er að spítalinn leggi fram áætlanir sem tryggi að rekstrinum verði hagað í samræmi við fjárveitingar hvers árs. Gert er ráð fyrir fjárheimildum í fjármálaáætlun 2022–2026 til uppgjörs á halla Landspítala gangi eftir forsendur um hallalausan rekstur árin 2020–2023.

    15. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingar áformaðar á lögum um réttindi sjúklinga til að draga úr nauðung

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um réttindi sjúklinga. Markmið áformaðrar lagabreytingar er að draga úr nauðung í heilbrigðisþjónustu með ráðstöfunum sem tryggja betur réttindi sjúklinga. Samkvæmt frumvarpinu verður öll nauðung bönnuð nema í skilgreindum undantekningartilvikum samkvæmt lögunum eða ef um neyðartilvik er að ræða. Heilbrigðisstofnanir og starfsmenn þeirra skulu því forðast að grípa til ráðstafana sem fela í sér nauðung gagnvart sjúklingum nema brýn nauðsyn krefji og þá í samræmi við fyrirmæli laga.

    15. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um rekstur Öldrunarheimila Akureyrar framlengdur

    Undirritaður hefur verið samningur milli Akureyrarbæjar og Sjúkratrygginga Íslands um framlengingu á rekstri bæjarins á Öldrunarheimilum Akureyrar til loka apríl á næsta ári og hefur heilbrigðisráðherra staðfest samninginn.

    15. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breytingar varðandi afhendingu bóluefnis frá Pfizer

    Áætlun Pfizer um afhendingu bóluefna hefur raskast og ljóst að færri skammtar koma til Íslands um áramót en samningar gerðu ráð fyrir. Miðað var við að Ísland fengi þá rúmlega 21.000 skammta en þeir verða um 10.000. Í janúar og febrúar er von á um 17.500 skömmtum til viðbótar. Samtals dugir þetta bóluefni fyrir tæplega 14.000 manns. Nánari upplýsingar um afhendingu bóluefnis Pfizer á fyrsta ársfjórðungi næsta árs ættu að liggja fyrir á næstu dögum.

    15. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sérnámi í ráðgjöf á sviði heilabilunar komið á fót á Akureyri

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Háskólanum á Akureyri sjö milljóna króna styrk til að koma á fót sérnámi fyrir ráðgjafa á sviði heilabilunar. Námið verður 60 ETCS einingar á meistarastigi og lýkur með diplóma. Markmiðið er að auka sérþekkingu á þessu sviði hér á landi í samræmi við aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun til ársins 2025.

    11. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðheilbrigðisþing 2020: Framtíðarsýn til 2030

    Á fjórða þúsund manns fylgdust með geðheilbrigðisþingi í beinu streymi þann 9. desember síðastliðinn. Margri tóku virkan þátt í þinginu í gegnum forritið slido og komu á framfæri spurningum og hugleiðingum. Augljóst er af áhuganum að dæma að umræðan um geðheilbrigðismál er þörf, vekur áhuga margra og fólk er reiðubúið að taka virkan þátt í mótun stefnu til framtíðar. Afrakstur af starfi vinnuhópa þar sem fram fór hugmyndavinna og mótun tillagna í þessum mikilvæga málaflokki verður birtur á næstunni til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    11. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID:19: Bóluefni frá Pfizer væntanlegt um áramót

    Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa undirritað samning við bóluefnaframleiðandann Pfizer. Gert er ráð fyrir að Lyfjastofnun Evrópu veiti lyfinu markaðsleyfi í síðasta lagi 29. desember. Samkvæmt dreifingaráætlun Pfizer er ráðgert að Ísland fái rúmlega 21.000 skammta afhenta um áramót og rúmlega 31.000 skammta á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Efnið sem afhent verður við lok þessa árs dugir til að bólusetja þá sem eru í efstu forgangshópum vegna bólusetningar hér á landi samkvæmt reglugerð sem þegar hefur verið birt. Meðal þeirra sem eru mestum forgangi eru allir íbúar dvalar- og hjúkrunarheimila, aldraðir í dagdvölum og starfsfólk á þessum stofnunum. Bólusetja þarf hvern einstakling tvisvar sinnum.

    10. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stórfjölgun hjúkrunarrýma á næsta ári

    Áformað er að auka framlög til hjúkrunarrýma um rúmlega 1,7 milljarða króna á fjárlögum næsta árs og verja stærstum hluta fjármagnsins til að fjölga hjúkrunarrýmum um allt að 90 á höfuðborgarsvæðinu strax á næsta ári. Heilbrigðisráðherra stefnir á að bjóða út húsnæði og rekstur nýrra rýma sem fyrst eftir áramót. Hluta fjármagnsins verður varið til að auka rekstrarframlög til hjúkrunarheimila í samræmi við auka hjúkrunarþyngd íbúa.

    10. des. 2020Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Landbúnaður, Loftslagsmál, Matvælasjóður, Nýsköpun, Ríkisstjórn, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fyrsta matvælastefnan fyrir Ísland kynnt: Stefnan mörkuð til 2030

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynntu í dag Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030.

    10. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Vottorð vegna fyrri sýkingar af völdum COVID-19 tekin gild á landamærum

    Frá og með deginum í dag, 10. desember 2020 verður ekki bara tekið á móti vottorði um staðfesta COVID-19 sýkingu á Íslandi því einnig verða sambærileg erlend vottorð frá löndum innan EES/EFTA-svæðis tekin gild á landamærum Íslands. Tengifarþegar sem fara ekki út fyrir viðkomandi landamærastöð þurfa hvorki að fara í sóttkví eða í sýnatöku.

    09. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir vegna íþróttastarfs

    Heimildir til að stunda íþróttastarf verða rýmri með nýrri reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tekur gildi 10. desember. Sérstaklega er kveðið á um íþróttastarf á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) varðandi heimildir til æfinga meðal afreksfólks og í efstu deildum sambandsins eins og nánar greinir hér.

    08. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum frá 10. desember

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi 10. desember næstkomandi. Varfærnar tilslakanir verða gerðar á reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar og gilda breytingarnar til 12. janúar. Reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar verður að mestu óbreytt til áramóta en gert er ráð fyrir að kynna fljótlega nýjar reglur um skólastarf sem eiga að taka gildi 1. janúar 2021.

    04. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Opið þing um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum 9. desember

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra boðar til vefþings og samráðs um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Ráðstefnan hefst kl. 9.00 með opnunarávarpi ráðherra. Síðan taka við stutt erindi leik- og fagmanna um efnið sem lýkur með pallborðsumræðum. Þeir sem fylgjast með þinginu geta tekið þátt í umræðum og komið spurningum á framfæri í gegnum forritið Slido.

    03. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Helstu staðreyndir um bóluefni hér á landi

    Skrifað verður undir samning Íslands við framleiðanda bóluefnis Pfizer í næstu viku um kaup á bóluefni sem dugar fyrir 85.000 einstaklinga. Vonir standa til að Pfizer fái skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu 29. desember þegar fjallað verður um hvort stofnunin geti mælt með því að lyfið verði tekið í notkun. Ísland hefur þegar gert samning við fyrirtækið AstraZeneca um kaup á bóluefni sem dugir fyrir 115.000 einstaklinga. Það bóluefni er heldur ekki komið með markaðsleyfi í Evrópu en gert ráð fyrir að Lyfjastofnun Evrópu ljúki umfjöllun sinni um í janúar og þann 12. janúar verður fjallað um markaðsleyfi fyrir Moderna.

    03. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýtt hjúkrunarheimili fyrir 60 íbúa á Akureyri

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar hafa undirritað samning um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9 á Akureyri. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er um þrír milljarðar króna sem skiptist þannig að 85% greiðast úr ríkissjóði en Akureyrarbær greiðir 15%. Áætlað er að heimilið verði tilbúið til notkunar í lok árs 2023. Þar með verða hjúkrunarrými á Akureyri rúmlega 230 en þau eru núna um 170.

    03. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Evrópskt markaðsleyfi fyrir bóluefni gegn COVID-19 í sjónmáli

    Lyfjastofnun Evrópu hafa borist umsóknir um skilyrt markaðsleyfi fyrir tvö bóluefni við COVID-19. Þetta er annars vegar bóluefni þróað af BioNTech og Pfizer og hins vegar bóluefni sem Moderna Biotech hefur þróað. Stofnunin mun beita flýtimati á umsóknirnar. Niðurstaða gæti legið fyrir innan nokkurra vikna, en það fer eftir því hvort gögnin sem berast sýna með fullnægjandi hætti fram á gæði, öryggi og virkni bóluefnanna. Reynist gögnin fullnægjandi er gert ráð fyrir að endanlegt mat liggi fyrir varðandi bóluefni BioNTech og Pfizer í síðasta lagi 29. desember og 12. janúar fyrir bóluefni Moderna. Ýtarlega er fjallað um málið á vef Lyfjastofnunar.

    02. des. 2020Menningarmál, Menntamál, Líf og heilsa, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sýnileiki úrræða aukinn: Forvarnarverkefnið Eitt líf fer aftur af stað

    Markmið fræðsluverkefnisins „Eitt líf“ er að sporna við notkun ávana- og fíkniefna, sér í lagi meðal ungmenna.

    02. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stofnað verði landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu

    Hafinn er undirbúningur að gerð þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um stofnun landsráðs sem verður ráðgefandi vettvangur um mönnun heilbrigðisþjónustunnar og menntun heilbrigðisstétta. Markmiðið er að tryggja til framtíðar nægan fjölda hæfs starfsfólks og að menntun þess fullnægi þörfum heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallaði um þetta í ávarpi á nýafstöðnu heilbrigðisþingi þar sem mönnun, menntun og nýsköpun í heilbrigðisþjónstu var meginumfjöllunarefnið.

    01. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Frumvarp um bótarétt vegna bólusetningar

    Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um sjúklingatryggingu sem hefur að markmiði að styrkja réttarstöðu fólks vegna bólusetningar við COVID-19. Með frumvarpinu er kveðið á um bótarétt komi til þess að einstaklingur verði fyrir tjóni sem hlýst af eiginleikum bóluefnisins eða rangri með­höndlun þess, þar með talið við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu af hálfu heil­brigðisstarfsmanns þrátt fyrir að öllum reglum og góðum framleiðsluháttum hafi verið fylgt við þróun og framleiðslu viðkomandi bóluefnis. Með fyrirhugaðri lagabreytingu verður réttarstaða fólks hér á landi sambærileg því sem er í Danmörku og Noregi.

    01. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir til 9. desember

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi óbreyttar til 9. desember næstkomandi. Þetta er gert í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis sem ræður gegn því að slaka á sóttvörnum núna vegna þess hvernig faraldurinn hefur þróast síðustu daga.

    • First
    • Prev
    • 26
    • 27
    • 28
    • 29
    • 30
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband