25. ágú. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál
Bankamarkaður
Mynd/Hari
Bankamarkaður
Bankamarkaður gegnir veigamiklu hlutverki við miðlun fjármagns frá sparifjáreigendum til lántaka og miðlun greiðslna fyrir vörur og þjónustu. Regluverki á bankamarkaði er ætlað að treysta fjármálastöðugleika og vernda neytendur. Meðal mikilvægustu reglna eru fyrirmæli um eigið fé og laust fé, sem auka getu banka til að mæta óvæntum áföllum, fyrirmæli um virka eignarhluti, sem eiga að tryggja að ráðandi hlutir í bönkum séu í eigu traustra aðila, og fyrirmæli um stjórnarhætti og áhættustýringu, sem stuðla að varfærinni stjórnun banka