Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 151–200 af 1917
    Raða eftir:
    21. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Reglugerð um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir kynnt til umsagnar

    Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir drög að nýrri reglugerð til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Reglugerðin skýrir hvernig ákvarðanir eru teknar þegar börn með miklar og fjölþættar stuðningsþarfir þurfa vistun í sérhæfð úrræði á vegum ríkisins.

    20. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Börn móta reglur um símafrí og notkun samfélagsmiðla með ráðherra

    Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, bauð ungmennum víðs vegar af landinu til vinnustofu þar sem markmiðið var að fá þau til að móta með ráðherra þá reglugerð sem fyrirhugað er að setja um símafrí í skólum og aldurstakmark á samfélagsmiðlum. „Ekkert um ykkur án ykkar,“ sagði ráðherra.

    17. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna

    Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn hefur tekið til starfa. Markmið Púlsins er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi.

    16. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Uppbygging verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja

    Mennta- og barnamálaráðuneytið vinnur að uppbyggingu verknámsaðstöðu framhaldsskóla víðs vegar um landið. Meðal fyrirhugaðra framkvæmda er uppbygging Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

    15. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ávarp mennta- og barnamálaráðherra á þingi Kennarasambandsins

    Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, flutti ávarp á þingi Kennarasambands Íslands á Hilton Reykjavík Nordica í dag þar sem hún fjallaði um málefni kennara og menntun barna.

    15. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Umsækjendur um þrjú embætti skólameistara

    Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust níu umsóknir um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum, skólameistara Borgarholtsskóla og rektors Menntaskólans við Hamrahlíð.

    14. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Bætt yfirsýn yfir stöðu barna með uppfærðu mælaborði

    Mælaborð um farsæld barna hefur verið uppfært með nýjustu niðurstöðum úr grunnskólakönnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) frá árinu 2025. Með uppfærslunni er nú hægt að nálgast samfelldar tölulegar upplýsingar um stöðu barna árin 2023 til 2025, sem veitir stjórnvöldum og almenningi betri innsýn í stöðu barna hér á landi.

    13. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samvinna um miðlun niðurstaðna Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og eftirfylgni

    Mennta- og barnamálaráðuneytið, Háskóli Íslands, Menntavísindasvið, Háskólinn í Reykjavík (HR) og Rannsóknir og greining (R&G) hafa undirritað nýjan samstarfssamning um þróun samstarfs og miðlun niðurstaðna grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) árið 2026. Þetta er í fyrsta sinn sem samkomulag er gert við HR og R&G um miðlun niðurstaðna úr grunnskólakönnun ÍÆ, og markar það nýtt skref í auknu samstarfi þessara aðila sem nú standa þétt saman að verkefninu.

    13. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Sprotasjóði 2026

    Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 64.370.000 kr. til 20 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026–2027. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu á laugardag.

    06. apr. 2026Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Kallað eftir mati kennara á stöðu námsgagna í stærðfræði

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur sett af stað tvær kannanir um stöðu námsgagna í stærðfræði, fyrir kennara sem kenna stærðfræði annars vegar í grunnskólum og hins vegar í framhaldsskólum. Á undanförnum misserum hefur verið bent á að skortur sé á nýju og heildstæðu námsefni, að kennarar þurfi að útbúa eigið efni og að samfella í stærðfræðinámi frá grunnskóla yfir í framhaldsskóla sé ekki alltaf nægilega skýr.

    06. apr. 2026Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Kallað eftir mati kennara á stöðu námsgagna í stærðfræði

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur sett af stað tvær kannanir um stöðu námsgagna í stærðfræði, fyrir kennara sem kenna stærðfræði annars vegar í grunnskólum og hins vegar í framhaldsskólum. Á undanförnum misserum hefur verið bent á að skortur sé á nýju og heildstæðu námsefni, að kennarar þurfi að útbúa eigið efni og að samfella í stærðfræðinámi frá grunnskóla yfir í framhaldsskóla sé ekki alltaf nægilega skýr.

    05. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Íþróttir styrkja samfélagið – endurskoðuð íþróttastefna til 2030

    Endurskoðuð íþróttastefna til ársins 2030 hefur nú verið kynnt. Hún tekur mið af þeim breytingum sem hafa orðið í íþróttastarfi á undanförnum árum, meðal annars með nýjum svæðisstöðvum íþróttahéraða, Afreksmiðstöð Íslands og öðrum mikilvægum umbótum. Í stefnunni eru sett skýr markmið og aðgerðir sem verða í forgangi á næstu árum.

    03. apr. 2026Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkir til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum, þ.e. eðlisfræði, efnafræði og líffræði, á árinu 2026.

    03. apr. 2026Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi

    Niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði munu verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra hefur nú gefið út. Jafnframt hafa niðurstöður lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár nú verið birtar í fyrsta sinn og eru þær birtar eftir sveitarfélögum.

    02. apr. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Öflugt frístundastarf gegn ofbeldi meðal barna

    Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag samning um að styðja við og auka aðgengi barna og ungmenna á aldrinum 16–25 ára að skipulögðu frístunda- og félagsstarfi í Breiðholti. Samningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna.

    27. mar. 2026Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fáir kennsludagar í íslenskum grunnskólum

    Fjöldi kennsludaga og kennslustunda í grunnskólum á Íslandi er einn sá lægsti í Evrópu. Á sama tíma eru útgjöld á hvern nemanda þau hæstu innan OECD er árangur nemenda í íslenskum grunnskólum langt undir meðaltali OECD í PISA-rannsókninni.

    27. mar. 2026Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ný skýrsla UNESCO um aðgengi og jöfnuð í menntun – Global Education Monitoring Report 2026

    Ný skýrsla mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), Global Education Monitoring Report, sem kynnt var í vikunni fjallar um aðgengi og jöfnuð í menntakerfum heimsins. Niðurstöðurnar sýna að enn er langt í land að ná fram heimsmarkmiði um menntun fyrir alla. Ísland er meðal þeirra ríkja sem standa vel þegar kemur að aðgengi og jöfnuði í menntun.

    23. mar. 2026Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tímamót í skólakerfinu: Í fyrsta sinn heildstæð yfirsýn yfir skólagöngu barna á Íslandi

    Innritun í 1. bekk grunnskóla, sem hófst í febrúar, fer nú í fyrsta sinn fram með miðlægum hætti í nýjum Nemendagrunni. Þetta markar þau tímamót að í fyrsta skipti er hægt að fylgjast með því á landsvísu að öll börn á skólaskyldualdri séu í skóla og tryggja að mikilvæg gögn fylgi barninu í gegnum alla skólagönguna. Með tilkomu Nemendagrunns er jafnframt lagður grunnur að gagnadrifnu menntakerfi þar sem ákvarðanir um skólastarf, stuðning og stefnumótun byggjast á heildstæðum og áreiðanlegum gögnum.

    17. mar. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 4/2026-Úrskurður

    Kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

    17. mar. 2026Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Tillögur um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda kynntar í ríkisstjórn

    Tillögugerð starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Í skýrslu starfshópsins eru lagðar fram sjö tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við börn með vímuefnavanda.

    16. mar. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum um rekstrarstyrki til tónlistarskóla

    Mennta- og barnamálaráðuneyti auglýsir til umsóknar rekstrarstyrki til tónlistarskóla sem bjóða upp á hljóðfæranám á framhaldsstigi eða söngnám á mið- og framhaldsstigi, á árinu 2026. Á undanförnum árum hefur verið skýrt ákall frá tónlistarskólum sem kennt hafa söngnám á mið- og framhaldsstigi og hljóðfæranám á miðstigi um aukið fjármagn vegna síversnandi rekstrarstöðu.

    13. mar. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Umsækjendur um tvö embætti skrifstofustjóra

    Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust 54 umsóknir um tvö embætti skrifstofustjóra.

    06. mar. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkir til kennslu grunnnáms í listdansi 2026

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki vegna grunnnáms listdansskóla fyrir skólaárið 2025–2026.

    27. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samið um stuðning við verkefni Glóar er varða fötluð börn og ungmenni

    Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, undirrituðu í dag samning við Gló um stuðning við fötluð börn og ungmenni í sumar. Markmiðið er að draga úr félagslegri einangrun fatlaðra barna og ungmenna og styðja við fjölskyldur þeirra.

    25. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stuðningur við Ævintýrabúðir Glóar

    Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ekki tekið ákvörðun um fjárveitingu til Ævintýrabúða Glóar í sumar.

    23. feb. 2026Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Minna um vopnaburð og börnum líður betur

    Árið 2024 vöktu alvarleg ofbeldismál þar sem börn komu við sögu mikla athygli og áhyggjur almennings. Ný stöðuskýrsla aðgerðahóps stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum sýnir jákvæða þróun á ýmsum sviðum og um leið nýjar áskoranir.

    19. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Íþróttasjóði 2026

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur samþykkt tillögu Íþróttanefndar um úthlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2026. Úthlutað er til 76 verkefna fyrir alls 32 milljónir króna.

    18. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Menntarannsóknasjóði

    Fimm rannsóknarverkefni hlutu styrk úr Menntarannsóknasjóði að heildarupphæð 148,5 m.kr. Markmið menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.

    18. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Áform um fyrstu ungmennastefnuna til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda

    Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir áform um mótun ungmennastefnu sem á að lýsa því hvernig stjórnvöld styðja við ungmenni og tryggja þeim raunveruleg tækifæri, réttindi og rödd í samfélaginu.

    07. feb. 2026Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samræmd viðmið um skólasókn á næsta skólaári

    Mennta- og barnamálaráðuneytið undirbýr útgáfu landsviðmiða um skólasókn grunnskólanemenda fyrir skólaárið 2026–2027. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu.

    29. jan. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 640/2025-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráðs um umgengni kæranda við son hennar

    21. jan. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skipulagsbreytingar í mennta- og barnamálaráðuneytinu

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur innleitt nýtt skipurit og verklag í kjölfar mats á hlutverki og verkefnum ráðuneytisins. Markmið breytinganna er að styrkja faglega stjórnsýslu, skýra ábyrgð og umboð, bæta ákvarðanatöku og tryggja að ráðuneytið sé enn betur í stakk búið til að sinna lögbundnu hlutverki sínu á sviði mennta- og barnamála. Breytingarnar fela í sér endurskipulagningu skrifstofa og breytta verkaskiptingu. Með þeim á að skýra ábyrgð og auka gagnsæi um leið. Dregið verður úr yfirbyggingu um leið og fagleg sérþekking og sérhæfing innan málaflokka er styrkt. Áfram verður vel stutt við samhæfingu barna- og menntamála.

    17. jan. 2026Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Breyting á forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra

    Samkomulag hefur orðið milli félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra, með staðfestingu forsætisráðuneytisins, að Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fari með stjórnarmálefni um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir eldra fólk. Ábyrgðin á stjórnarmálefninu mun þó enn liggja hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

    15. jan. 2026Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tillögur spretthóps um Kveikjum neistann

    Spretthópur um Kveikjum neistann skilaði tillögum sínum til mennta- og barnamálaráðuneytisins. Spretthópnum var ætlað að meta stöðu þróunar- og rannsóknarverkefnisins Kveikjum neistann, árangur þess og tækifæri og koma með tillögur að möguleikum í þróun verkefnisins í þágu barna hér á landi.

    15. jan. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 664/2025-Úrskurður

    Staðfest ákvörðun barnaverndarþjónustu um að loka máli vegna sonar kæranda.

    15. jan. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 721/2025-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráðs um umgengni kærenda við son þeirra.

    15. jan. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 759/2025-Úrskurður

    Ekki fallist á að óhóflegur dráttur hefði orðið á meðferð máls

    10. jan. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið, Tímabundnar nefndir

    Starfshópur um eftirfylgni með innleiðingu og umbætur á framkvæmd samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum. Starfshópurinn skal taka mið af niðurstöðum og fylgja eftir tillögum sem fram koma í skýrslu Barna- og fjölskyldustofu frá árinu 2025 um stöðu innleiðingar farsældarlaganna í framhaldsskólum á Íslandi, leggja mat á stöðu innleiðingar samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum og greina helstu áskoranir og úrbótatækifæri. Hópurinn skal jafnframt stuðla að samræmdu verklagi, upplýsingagjöf og samstarfi hlutaðeigandi aðila og gera tillögur um stuðning, fræðslu og mælikvarða

    10. jan. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Menntastefna

    Breytingar á námsmati við lok grunnskóla

    Markmið fyrirhugaðra breytinga á námsmati við lok grunnskóla er að gera framsetningu einkunna skýrari og samræmdari og þannig stuðla að auknu jafnræði nemenda, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Jafnframt er stefnt að því að bæta upplýsingagjöf til nemenda og foreldra þannig að þeir eigi auðveldara með að átta sig á stöðu í námi, framförum og þeirri hæfni sem nemandinn hefur náð.

    10. jan. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál

    Casa Christi í MR opni að nýju til kennslu haustið 2030

    Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, lýsa yfir sameiginlegum vilja að undirbúa endurbætur á Casa Christi við MR. Markmiðið er að húsið verði kennsluhæft á ný haustið 2030 og að allt skólastarf MR geti þá farið fram á skólareitnum við Lækjargötu.

    10. jan. 2026Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ungt fólk mótar framtíðina á Vísinda- og nýsköpunarþingi 2026

    Fræðsla um gervigreind, jöfn tækifæri til menntunar og ábyrg nýting tækni voru meðal áherslna framhaldsskólanema á Vísinda- og nýsköpunarþingi 2026, sem fór fram í Grósku föstudaginn 25. september.

    10. jan. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 21/2026-Úrskurður

    Felldur úr gildi úrskurður umdæmisráð um úrræði án samþykkis foreldra vegna sonar kærenda

    06. jan. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Allt framhaldsskólanám á Íslandi á sama stað – framhaldsskolanam.is

    Nýr vefur mennta- og barnamálaráðuneytisins, framhaldsskolanam.is, hefur verið tekinn í notkun. Þar eru í fyrsta sinn birtar allar viðurkenndar námsbrautir framhaldsskóla á einum stað. Markmiðið er að auðvelda aðgengi að upplýsingum um námsframboð framhaldsskóla í notendavænu viðmóti. Birtingin er liður í aðgerðum stjórnvalda að bæta yfirsýn yfir menntakerfið og auka stafræna þjónustu.

    21. des. 2025Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Eyjólfur Ármannsson í tímabundið leyfi vegna feðraorlofs

    Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sem einnig fer með málefni mennta- og barnamálaráðuneytisins, er farinn í tímabundið leyfi vegna feðraorlofs. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun leysa Eyjólf af á meðan leyfinu stendur og fara með málefni innviðaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis.

    18. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fyrsta starfsár Hvatasjóðs íþróttahreyfingarinnar

    Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar hefur lokið úthlutun styrkja á sínu fyrsta starfsári. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

    12. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ytra mat hafið í framhaldsskólum með nýjum gæðaviðmiðum

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur hafið framkvæmd ytra mats á framhaldsskólum samkvæmt nýjum gæðaviðmiðum sem kynnt voru í haust. Um er að ræða endurbætt verklag sem mótast hefur í samráði við skólasamfélagið og tekur mið af væntingum um að ytra mat framhaldsskóla sé umbóta- og þróunarmiðað.

    11. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Vinna hefst að fyrstu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur ákveðið að skipa stýrihóp með það hlutverk að móta sértækar og markvissar aðgerðir til að uppræta vítahring fátæktar og tryggja börnum hér á landi jöfn tækifæri óháð efnahag og félagslegri stöðu. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins og formaður Velferðarnefndar Alþingis, mun leiða stýrihópinn.

    09. des. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkja Bergið-headspace um 20 milljónir króna

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra og Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins-headspace undirrituðu í dag styrktarsamning sem kveður á um 20 milljóna króna fjárframlag ráðuneytanna til að styðja við starfsemi Bergsins. Hvort ráðuneyti um sig leggur til 10 milljónir króna. Samningurinn gildir til loka þessa árs.

    08. des. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna

    Samstarfs- og nýsköpunarstyrkir til íslenskunáms innflytjenda

    Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir lausa til umsóknar styrki til að efla samstarf og nýsköpun í íslenskunámi innflytjenda. Úthlutað verður allt að 200 m.kr. í samstarfsverkefni sem ætlað er að ná til fjölbreyttra hópa innflytjenda með nýju námi, aðferðum eða verkfærum sem verða gerð aðgengileg. Gert er ráð fyrir samstarfi þvert á kerfi menntunar, atvinnulífs og/eða velferðar þar sem samstarfsaðilar geta verið skólar, fræðsluaðilar, sveitarfélög, samtök, félög, stofnanir/fyrirtæki eða sérfræðingar.

    03. des. 2025Alþjóðamál, Barnaréttur, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýr staðall fyrir Barnahús á alþjóðavísu

    Nýjar alþjóðlegar og samræmdar kröfur um barnvæna þjónustu fyrir börn sem sætt hafa ofbeldi voru gefnar út í Genf í dag í tengslum við 58. fund mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Um er að ræða alþjóðastaðal sem staðlasamtökin ISO gefa út að frumkvæði mennta- og barnamálaráðuneytisins og byggir á starfsemi Barnahúss.

    • First
    • Prev
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband