17. nóv. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Ræður og greinar
Þrautseigja og þekking, hugrekki og hamingja
Menntastefnan var unnin í víðtæku samráði, með aðkomu fjölmargra aðila úr skólasamfélaginu. Stefnumótunin byggðist m.a. á efni og umræðum á fundum með skólafólki og fulltrúum sveitarfélaga um allt land, samræðum á svæðisþingum tónlistarskóla, samstarfi við foreldra, börn og ungmenni, atvinnulíf, Efnahags- og framfarastofnunina (e. OECD) og fleiri hagsmunaaðila.