25. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd
Viðurkenningar veittar á Degi umhverfisins
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, veitti BYKO í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Sæmundarskóla útnefndir Varðliðar umhverfisins.