Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1701–1750 af 3602
    Raða eftir:
    05. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Brýn þörf fyrir fleira fólk í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

    Vegna örrar fjölgunar Covid-19 smita með auknu álagi á heilbrigðiskerfið bráðvantar fleira heilbrigðisstarfsfólk á skrá í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Óskað er eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort sem er í fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

    05. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bólusetningarátak; örvunarskammtar og óbólusettir

    Um 160.000 manns um land allt verða boðaðir í örvunarbólusetningu fyrir áramót. Á höfuðborgarsvæðinu verður bólusett í Laugardalshöllinni á tímabilinu 15. nóvember til 8. desember á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum. Örvunarskammtar eru ætlaðir þeim sem þegar eru bólusettir og fengu síðari bóluefnaskammtinn fyrir a.m.k. fimm mánuðum. Fólk verður boðað með strikamerki sem send verða í smáskilaboðum (SMS). Þeir sem áður hafa fengið boð í bólusetningu en ekki þegið hana, eru hvattir til að mæta.

    05. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Innanlandsaðgerðir hertar vegna mikillar fjölgunar smita

    Skylt verður að bera grímu þegar ekki er unnt að virða 1 metra nálægðarreglu, fjöldatakmarkanir verða 500 manns, veitingastöðum með vínveitingaleyfi verður skylt að loka tveimur tímum fyrr en nú. Með notkun hraðprófa verður heimilt að halda viðburði fyrir allt að 1.500 manns. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar aðgerðir samkvæmt tillögum sóttvarnalæknis sem hefur áhyggjur af mikilli fjölgun smita, auknum veikindum og vaxandi álagi á heilbrigðiskerfið. Reglur um grímunotkun taka gildi á morgun (á miðnætti aðfaranótt 6. nóvember) en aðrar breytingar miðvikudaginn 10. nóvember og gilda í fjórar vikur til þriðjudags 8. desember.

    04. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    COVID-19: Sóttvarnaaðgerðir á landamærum óbreyttar til 15. janúar 2022

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum vegna Covid-19, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Reglugerðin gildir til 15. janúar 2022. Ástæðan er mikil fjölgun smita innanlands að undanförnu. Sóttvarnalæknir bendir á að faraldurinn sé í töluverðum vexti, þeim fari fjölgandi sem veikjast alvarlega og faraldurinn sé farinn að hafa íþyngjandi áhrif á starfsemi Landspítala. Um 2% þeirra sem greinast með Covid-19 þurfa að leggjast inn á sjúkrahús.

    03. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Landsráð

    Fjármögnun og framboð á námsstöðum í sér- og framhaldsnámi heilbrigðisstétta

    Landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu vinnur nú að því að kortleggja hve margar náms- og sérnámsstöður eru fyrir hendi á heilbrigðisstofnunum, greint eftir heilbrigðisstéttum. Heilbrigðisráðuneytið fól landsráði í ágúst sl. að rýna fjármögnun sérnáms á heilbrigðisstofnunum. Í kjölfarið lagði landsráð fram skilgreindar tillögur til heilbrigðisráðherra um leiðir til að tryggja að ávallt liggi fyrir upplýsingar um framboð og mat á þörf fyrir þessar stöður. Heilbrigðisráðherra féllst á tillögur landsráðs sem fela einnig í sér kröfu um að fjármagn til framhaldsnáms og sérnáms í heilbrigðisgreinum verði skilgreint sérstaklega.

    02. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Efri árin – upplýsingar um þjónustu á Island.is

    Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á margvíslegum upplýsingum, m.a. um heilbrigðisþjónustu og þjónustu við fólk á efri árum á vefnum Island.is. Þar eru aðgengilegar á einum stað upplýsingar um þjónustu ríkis og sveitarfélaga, s.s. um heimaþjónustu, heimahjúkrun, þjónustuíbúðir, félagsmiðstöðvar, hjúkrunarrými og fleira og leiðbeiningar um hvernig sótt er um þjónustu.

    28. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Lyfjalöggjöf Evrópusambandsins til endurskoðunar í opnu samráðsferli

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur efnt til opins samráðs um endurskoðun á lyfjalöggjöf sambandsins. Frestur til að koma á framfæri athugasemdum og sjónarmiðum varðandi löggjöfina er til 21. desember næstkomandi. Endurskoðunin er hluti af stefnu sambandsins í lyfjamálum og eins hefur faraldur Covid-19 leitt í ljós veikleika á þessu sviði sem þarf að bregðast við.

    28. okt. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 14/2021

    Umsókn A, um að starfsstéttin B yrði löggilt sem heilbrigðisstétt hér á landi á grundvelli 3. gr. laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn, var synjað. Var það mat ráðuneytisins að löggilding starfsstéttarinnar væri ekki nauðsynleg með tilliti til öryggis og hagsmuna sjúklings. Þá hefði ekki verið sýnt fram á þörf sjúklings fyrir þjónustu stéttarinnar auk þess sem samanburður við önnur ríki mælti ekki með löggildingu stéttarinnar.

    28. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Sóttkví og einangrun – reglur um styttri tíma

    Sóttvarnalæknir hefur lokið endurskoðun á reglum um sóttkví og einangrun vegna Covid-19 og er niðurstaðan sú að stytta megi einangrun smitaðra og sóttkví þeirra sem hafa verið útsettir fyrir Covid, án þess að auka hættu á útbreiðslu veirunnar. Heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð nr. 1100/2021 þessa efnis, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Að uppfylltum skilyrðum getur tími í einangrun orðið skemmstur sjö dagar. Almenn krafa um dvöl í sóttkví styttist úr sjö dögum í fimm, að því gefnu að henni ljúki með neikvæðri niðurstöðu úr PCR prófi. Ef einstaklingur undirgengst ekki PCR próf til að ljúka sóttkví þarf hann að sæta henni í 14 daga. Reglugerðin tekur gildi frá og með 29. október og taka breyttar reglur einnig til þeirra sem þegar eru í sóttkví eða einangrun.

    27. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu virkjuð – heilbrigðisstarfsfólk óskast á skrá

    Vegna fjölgunar COVID-19 smita hefur verið ákveðið að virkja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Þetta er nauðsynlegt viðbragð til að mæta mönnunarvanda sem skapast getur vegna veikinda eða tímabundinnar sóttkvíar heilbrigðisstarfsfólks ef smit kemur upp á heilbrigðisstofnunum, líkt og gerst hefur á Landspítala þar sem deild 12G er nú í sóttkví. Biðlað er til heilbrigðisstarfsfólks sem hefur tök á að veita tímabundið liðsinni ef á reynir um að skrá sig í bakvarðasveitina. Á Landspítala vantar nú einkum hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.

    25. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Staða bólusetninga, horfur og næstu skref

    Smitum af völdum Covid-19 hér á landi hefur fjölgað nokkuð undanfarið og þróun í ýmsum ríkjum Evrópu þar sem fjölgun smita er enn hraðari og sjúkrahúsinnlögnum fjölgar ört, kallar á stöðumat hér. Vitað er að bólusetning gegn veirunni veitir góða vörn og ver fólk fyrir alvarlegum veikindum. Um 76% landsmanna eru nú fullbólusett en til að fyrirbyggja hraðari útbreiðslu og mikil veikindi hér þarf að gera enn betur. Um 34.400 einstaklingar 12 ára og eldri eru óbólusettir.

    21. okt. 2021Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði. Sjóðurinn starfar í samræmi við þingsályktun nr. 40/149 um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna, og nýtur framlaga frá heilbrigðisráðuneytinu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu samtals 30 milljónir kr. á ári í þrjú ár, þ.e. til ársloka 2022.

    19. okt. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 13/2021

    Ákvarðanir Lyfjastofnunar um að synja umsóknum um undanþágu til að ávísa lyfinu ivermectin sem forvörn gegn Covid-19 voru staðfestar. Talið að kærandi hefði ekki sýnt fram á sérstakar og vel rökstuddar ástæður í skilningi a-liðar 1. mgr. 12. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 til að fallast mætti á umsóknirnar. Ráðuneytið gerði jafnframt athugasemdir við ákvarðanir Lyfjastofnunar.

    19. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Verulegar afléttingar innanlandstakmarkana strax og að fullu 18. nóvember

    Almennar fjöldatakmarkanir verða 2.000 manns, grímuskyldu verður aflétt, opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund og skráningarskyldu gesta aflétt. Regla um nándarmörk verður áfram 1 metri. Þetta er megininntak breytinga á reglugerð um samkomutakmarkanir sem tekur gildi 20. október samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Stefnt er að fullri afléttingu samkomutakmarkana innanlands frá og með 18. nóvember.

    18. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Álagi létt af Landspítala – fjölgun legurýma og 30 ný rými á Landakoti

    Ný 16 rýma endurhæfingardeild verður opnuð á við Landspítala á Landakoti í byrjun nóvember og í byrjun febrúar fjölgar þeim um 14 til viðbótar. Þá verða níu líknarrými opnuð á Landakoti í lok október. Í ágúst sl. voru opnuð á Reykjalundi 14 endurhæfingarrými sem aðeins eru ætluð sjúklingum frá Landspítala. Í sama mánuði var sjúkrarýmum fjölgað um samtals 20 við heilbrigðisstofnanirnar á Suðurlandi og Suðurnesjum, 10 á hvorum stað með það að markmiði að draga úr álagi á Landspítala. Ráðist hefur verið í mörg önnur verkefni í þessu skyni. Sum þeirra eru þegar komin til framkvæmda en önnur í sjónmáli. Opnun líknarrýma á Landakoti felur í sér breytingu á þjónustu þar sem ekki hafa verið rekin þar líknarrými síðan árið 2011.

    18. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Framlengdur umsóknarfrestur um embætti forstjóra Landspítala

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja umsóknarfrest um embætti forstjóra Landspítala til 8. nóvember næstkomandi. Í upphaflegri auglýsingu um embættið var veittur tveggja vikna lögbundinn lágmarksfrestur en ráðherra hefur nú ákveðið að veita mögulegum umsækjendum rýmri tíma en áskilið er í lögum nr. 70/1996. Ráðherra hefur jafnframt lengt setningartíma Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur í embætti forstjóra um tvo mánuði, þ.e. til 1. mars næstkomandi.

    15. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum í Lýðheilsusjóð

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr lýðheilsusjóði fyrir árið 2022. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember næstkomandi. Lýðheilsusjóður er starfræktur í samræmi við lög um landlækni og lýðheilsu og hefur það hlutverk að styrkja forvarna- og lýðheilsustarf í landinu í samræmi við markmið laganna.

    15. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Embætti forstjóra Landspítala laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala. Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Á Landspítala starfa á sjötta þúsund starfsmenn og er spítalinn einn stærsti vinnustaður landsins.

    12. okt. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 12/2021

    Ákvörðun Lyfjastofnunar um að synja kæranda um innflutning á lyfjum felld úr gildi. Að mati ráðuneytisins var málið ekki nægilega upplýst af hálfu stofnunarinnar til að unnt hafi verið að taka ákvörðun í því, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá taldi ráðuneytið aðra annmarka jafnframt hafa verið á málsmeðferðinni. Var málið sent til nýrrar meðferðar hjá Lyfjastofnun.

    08. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alþjóðlegur dagur líknarþjónustu, 9. október 2021

    Alþjóðlegur dagur líknarþjónustu er á morgun, 9. október. Tilgangur hans er að vekja athygli á mikilvægi líknarþjónustu og hvers vegna þurfi að tryggja að allir hafi aðgang að henni sama hvar þeir búa, á hvaða aldri þeir eru og hver bakgrunnur þeirra er. Heilbrigðisráðherra staðfesti fyrr á þessu ári aðgerðaáætlun til fimm ára um líknarþjónustu hér á landi sem byggð var á skýrslu tveggja starfshópa og tillögum þeirra um skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar um allt land.

    05. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    COVID-19: Takmarkanir innanlands framlengdar til 20. október

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja gildandi sóttvarnaráðstafanir innanlands vegna faraldurs Covid-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þess efnis hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar og gildir hún til og með 20. október næstkomandi.

    05. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Forstjóri Landspítala lætur af störfum

    Heilbrigðisráðherra hefur orðið við ósk Páls Matthíassonar forstjóra Landspítala um að hann láti af starfi sínu. Páll lætur af embætti frá og með 11. október næstkomandi. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, mun að beiðni ráðherra taka við stöðu forstjóra tímabundið til áramóta, þar til skipað hefur verið í embættið að nýju. Páll mun verða nýjum forstjóra innan handar næstu mánuði.

    04. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælaborð með vísum um gæði og umfang heilsugæsluþjónustu á höfuðborgarsvæðinu

    Heilbrigðisráðuneytið hefur birt mælaborð sem veitir margvíslegar upplýsingar um gæði og umfang heilsugæsluþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Mælaborðið endurspeglar þá vísa sem lagðir eru til grundvallar í fjármögnunarlíkaninu sem stýrir fjármögnun heilsugæslustöðva. Kerfið byggist á því að fjármagn til hverrar heilsugæslustöðvar endurspegli þann hóp fólks sem stöðin þjónar, umfang og gæði veittrar þjónustu og hversu vel viðkomandi stöð nær tilteknum markmiðum um ýmsa þætti þjónustunnar. Mælaborðið gerir meðal annars kleift að bera saman hvernig einstakar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu standa gagnvart þeim vísum sem fjármögnunarlíkanið tekur til.

    04. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Skanni C-19 - Smáforrit fyrir viðburðahaldara

    Embætti landlæknis hefur gefið út smáforritið Skanna C-19 sem er sérstaklega ætlað til að auðvelda þeim sem standa fyrir fjölmennum viðburðum að sannprófa gildi vottorða um neikvæða niðurstöðu úr skimun fyrir Covid-19 (PCR- og hraðpróf) á einfaldan og fljótvirkan hátt.

    04. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki af safnliðum fjárlaga frá íslenskum félagasamtökum vegna verkefna á sviði heilbrigðismála. Úthlutun fer fram einu sinni á ári og eru veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf.

    30. sep. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Lýðheilsumat á óbeinum áhrifum COVID-19 faraldursins á Íslandi - 1. stöðuskýrsla til heilbrigðisráðherra

    september 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Lýðheilsumat á óbeinum áhrifum COVID-19 faraldursins á Íslandi - 1. stöðuskýrsla til heilbrigðisráðherra Lýðheilsumat á óbeinum áhrifum COVID-19 faraldursins á Íslandi - 1

    30. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sýklalyfjanotkun fólks hefur dregist saman um 30% á fjórum árum

    Heildarnotkun sýklalyfja í heilbrigðiskerfinu hér á landi hefur dregist saman um 30% á fjórum árum þegar tekið er mið af heildarsölu sýklalyfja hér á landi, mæld í daglegum lyfjaskömmtum á hverja 1.000 íbúa (DID). Heildarsalan var um 24 DID árið 2017 en var komin niður í um 16 DID árið 2020. Notkunin er þó enn töluvert meiri hér en annars staðar á Norðurlöndunum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri ársskýrslu embættis landlæknis um sýklalyfjanotkun árið 2020.

    29. sep. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um barneignaþjónustu til ársins 2030

    september 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun um barneignaþjónustu til ársins 2030 Aðgerðaáætlun um barneignaþjónustu til ársins 2030

    28. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breyttar reglur um takmarkanir á landamærunum 1. október

    Felld verður niður krafa um að einstaklingar með tengsl við Ísland þurfi að framvísa vottorði um neikvætt Covid próf við komu til landsins. Farþegar í tengiflugi sem ekki fara út fyrir landamærastöð verða einnig undanþegnir framvísun slíks vottorðs. Sem fyrr þurfa þeir sem eru með tengsl við Ísland að fara í sýnatöku eftir komu til landsins, að undanskildum börnum sem fædd eru 2005 eða síðar. Þetta er meginefni breytinga á takmörkunum á landamærum vegna Covid-19 sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og er gert ráð fyrir að þær gildi til 6. nóvember næstkomandi.

    28. sep. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 11/2021

    Staðfest er ákvörðun embættis landlæknis um að synja kæranda um sérfræðileyfi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum enda hafi skilyrði reglugerðar nr. 1222/2012, sem varða starfstíma á heilbrigðisstofnun sem viðurkennd hafi verið til sérnáms, ekki verið uppfyllt.

    24. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðistæknilausnir til að efla þjónustu í heimahúsi

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita 100 milljónir króna til að styðja við notkun heilbrigðistæknilausna í þjónustu við fólk í heimahúsi. Markmiðið er að veita meiri og betri þjónustu heim og auka öryggi og lífsgæði fólks.

    24. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Unnið gegn einmanaleika, kvíða og þunglyndi aldraðra

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að útvíkka geðheilbrigðisþjónustu við aldrað fólk í heimahúsum og bjóða sérstaklega upp á stuðning geðheilbrigðisþjónustu heilsugæslunnar til m.a. að vinna gegn einmanaleika, kvíða og þunglyndi.

    24. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tekur að sér ADHD greiningar og meðferð fullorðinna

    Heilbrigðisráðherra hefur falið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að annast á landsvísu greiningar ADHD hjá fullorðnum. Heilsugæslan hefur um langt skeið sinnt þessari þjónustu við börn en einnig er fyrir hendi hjá stofnuninni mikilvæg reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með ADHD innan geðheilsuteymis fanga. Heilsugæslan mun annast þjónustuna í samvinnu við heilsugæslu og geðheilsuteymi í heilbrigðisumdæmum um allt land. Þess er vænst að með breyttu skipulagi takist að stytta bið eftir greiningum og stuðla að samfelldri þjónustu við einstaklinga með ADHD á viðeigandi þjónustustigi.…

    23. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tímamót: Fjármögnun Landspítala þjónustutengd frá næstu áramótum

    Klínísk starfsemi Landspítala verður frá 1. janúar næstkomandi fjármögnuð í samræmi við umfang veittrar þjónustu þar sem byggt er á DRG; alþjóðlegu flokkunarkerfi sjúkdóma. „Þessi breyting er bylting, jafnt fyrir spítalann og fjárveitingarvaldið. Markmiðið er að fjármögnun spítalans sé sanngjörn og raunhæf, í samræmi við þjónustuna sem sjúkrahúsið veitir og skýr markmið fjárveitingarvaldsins um magn hennar og gæði“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra við undirritun samnings Sjúkratrygginga Íslands og Landspítala um innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar Landspítala í dag. Þetta er stærsti samningur um kaup á heilbrigðisþjónustu sem gerður hefur verið hér á landi.

    23. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Píeta samtökin hljóta 25 milljóna króna styrk til að efla starfsemi sína

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Píeta samtökunum 25 milljónir króna í styrk til að efla þjónustu sína við einstaklinga í sjálfsvígshættu sem þurfa á stuðningi og meðferð að halda. Markmið samtakanna er að fækka sjálfsvígum og sjálfsvígstilraunum og efla fræðslu og forvarnir í því skyni. Þjónusta samtakanna er gjaldfrjáls og stendur til boða öllum sem eru 18 ára eða eldri.

    23. sep. 2021Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Þroska- og hegðunarstöðinni veitt aukið fé til að stytta bið barna eftir greiningu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 75 milljónum króna í tímabundið átaksverkefni til að stytta biðlista og þar með bið þeirra barna sem bíða eftir greiningum hjá Þroska- og hegðunarstöðinni. Biðtíminn hefur lengst síðustu misserin og tilvísunum fjölgað. Árlega fara um 360 börn í gegnum greiningarferli hjá stofnuninni en tilvísanirnar eru 600-700 á ári. Algengustu ástæður tilvísana eru ADHD, einhverfa, kvíði, vanlíðan og hegðunar- og samskiptavandi.

    22. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sérhæfð þjónusta í geðhjúkrunarrýmum Áss og Fellsenda verður efld

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga sem dvelja í geðhjúkrunarrýmum á Ási, dvalar- og hjúkrunarheimili í Hveragerði og Hjúkrunarheimilinu Fellsenda í Dölum. Þetta er gert í samræmi við mat embættis landlæknis sem telur að styrkja þurfi faglega geðheilbrigðisþjónustu á heimilunum þar sem búa einstaklingar með flókna þjónustuþörf á þessu sviði. Í Ási munu geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Ás starfa saman í þessum tilgangi en Fellsendi verður í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vesturlands og fagaðila í geðheilbrigðisþjónustu eftir þörfum. Þetta fyrirkomulag er sett af stað sem tilraunaverkefni til eins árs og verður varið til þess 15 milljónum króna.

    22. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýr samningur við ljósmæður og aðgerðaáætlun um barneignaþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýgerðan rammasamning Sjúkratrygginga Íslands við ljósmæður vegna fæðinga og umönnunar sængurkvenna í heimahúsum. Helsta nýmæli samningsins felst í stóraukinni þjónustu við mæður sem þurfa ráðgjöf vegna brjóstagjafar. Ráðherra hefur jafnframt samþykkt aðgerðaáætlun til ársins 2030 sem miðar að því að bæta barneignaþjónustu, jafnt á meðgöngutíma, við fæðingu barns og í kjölfar fæðingar.

    21. sep. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu til ársins 2025

    september 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu til ársins 2025 Aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu til ársins 2025

    21. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stórt framfaraskref stigið með rafrænum sjúkraflutningaskýrslum

    Þróun rafrænna sjúkraflutningaskýrslna er að ljúka, prófunarferli að hefjast og stefnt að því að innleiðing þeirra hefjist í byrjun næsta árs. Þessi tækni markar tímamót. Hún eykur öryggi sjúklinga með skjótu aðgengi sjúkraflutningafólks að upplýsingum um skjólstæðinga sem gagnast við ákvarðanatöku á vettvangi og skráning nýrra upplýsinga verður samstundis aðgengileg heilbrigðisstarfsfólki sem tekur við meðferð sjúklingsins í kjölfar sjúkraflutnings. Markmiðið með rafrænum sjúkraflutningaskýrslum er að auka gæði skráninga, bæta aðgengi að upplýsingum og efla gæðavísa og gæðastjórnun í utanspítalaþjónustu.

    21. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu til ársins 2025

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur samþykkt aðgerðaáætlun til fimm ára um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu sem hefur að markmiði að efla og styrkja þessa þjónustu á landsvísu og auka gæði hennar. Áætlunin miðar að því að skapa betri yfirsýn yfir framkvæmd þjónustunnar, skilgreina þjónustuviðmið, setja viðmið um viðbragðs- og flutningstíma og tryggja að sjúkraflutningafólk eigi ávallt greiðan aðgang að faglegum stuðningi þegar á þarf að halda. Einnig er fjallað um aðgerðir sem miða að því að efla nám sjúkraflutningafólks og bráðatækna, svo fátt eitt sé nefnt.

    20. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Átaksverkefni um aukna geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn við Sjúkrahúsið á Akureyri

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 13 milljónum króna til að efla tímabundið þjónustu barna- og unglingageðteymis Sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðisráðherra hefur áður ráðstafað 102 milljónum króna í tiltekin átaksverkefni hjá Landspítala sem miða að því að efla geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungt fólk og stytta bið eftir greiningu og meðferð. Fyrir liggur að heimsfaraldur Covid-19 hefur skapað ýmis vandkvæði við veitingu þessarar mikilvægu þjónustu, samhliða því að eftirspurn eftir tilteknum þáttum geðheilbrigðisþjónustu hefur aukist.

    17. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur við Frú Ragnheiði um skaðaminnkandi þjónustu

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gert 20 milljóna samning við Rauða krossinn á Íslandi um skaðaminnkandi þjónustu fyrir einstaklinga í vímuefnavanda árið 2021. Fjármagnið rennur til skaðaminnkunarverkefnisins Frú Ragnheiðar sem starfar á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri.

    17. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aukið aðgengi að hraðprófum með kostnaðarþátttöku ríkisins

    Ráðherra hefur ákveðið með reglugerð að sjúkratryggingar taki þátt í kostnaði við töku hraðprófa hjá einkaaðilum, frá og með 20. september. Markmiðið er að auka aðgengi almennings að hraðprófum þar sem fleiri aðilum verður kleift að bjóða þessa þjónustu, notendum að kostnaðarlausu, óháð tilgangi prófanna.

    16. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Markviss uppbygging geðheilbrigðismála

    Hlutverk heilsugæslunnar hvað varðar geðheilbrigðisþjónustu um land allt hefur verið styrkt með aukinni sálfræðiþjónustu, geðheilsuteymum og þverfaglegri teymisvinnu á undanförnum árum. Til þess að bregðast við neikvæðum afleiðingum af heimsfaraldri COVID-19 og heimskreppu var farið út í frekari aðgerðir til þess að efla geðheilbrigðisþjónustu í landinu sem byggja á grunni þeirra aðgerða sem sannað hafa gildi sitt samkvæmt geðheilbrigðisáætlun Alþingis.

    14. sep. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fjölbreytni lífs í nútíð og framtíð – málþing um líffræðilega fjölbreytni

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið standa sameiginlega að málþingi um líffræðilega fjölbreytni í samstarfi við Stofnun Sæmundar fróða.

    14. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum frá og með 15. september

    Heilbrigðisráðherra kynnti nýjar tilslakanir á sóttvarnarráðstöfunum á fundi ríkisstjórnar í morgun, en þær eru í samræmi við tillögur sóttvarnarlæknis. Reglugerð þessa efnis tekur gildi 15. september og gildir til 6. október.

    10. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Möguleiki á sveigjanlegri dagdvöl og dagþjálfun í Fjallabyggð

    Heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að semja við Fjallabyggð um möguleika á sveigjanlegri dagdvöl og dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun og aðra sem þarfnast endurhæfingar.

    10. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hraðpróf vegna viðburða

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur nú opnað fyrir hraðpróf vegna viðburða á Suðurlandsbraut 34.​

    10. sep. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Lyfjamál, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Mikilvægt að takmarka útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

    Á árinu 2019 undirrituðu Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, yfirlýsingu um sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi. Í kjölfarið skipuðu ráðherrarnir stýrihóp um varnir gegn sýklalyfjaónæmum bakteríum sem vinnur að framgangi aðgerðaáætlunar sem markar stefnu stjórnvalda í málaflokknum. Auk þess settu ráðherrarnir á fót Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð sem fjármagnar verkefni í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi, fjármögnuðu nýjar stöður sérfræðinga í sýklalyfjaónæmi í þremur stofnunum auk fleiri verkefna. Ríkisstjórnin lýsti því yfir á árinu 2019 að hún ætli að vera í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.

    • First
    • Prev
    • 33
    • 34
    • 35
    • 36
    • 37
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband