Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1801–1850 af 3602
    Raða eftir:
    15. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjö sækja um embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

    Sjö umsóknir bárust til heilbrigðisráðuneytis um embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri en umsóknarfrestur rann út þann 12. júlí síðastliðinn.

    14. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Síðasti stóri bólusetningardagurinn

    Í dag er síðasti stóri bólusetningardagurinn fyrir sumarfrí gegn COVID-19 í Laugardalshöll. Sprautað verður með Moderna og Astra Zeneca, en meðal þeirra sem hljóta seinni sprautuna í dag er Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    08. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðuneyti staðfestir ákvörðun landlæknis

    Mánudaginn 28. júní sl. var kveðinn upp í heilbrigðisráðuneytinu úrskurður nr. 6/2021.

    07. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Stafrænt COVID-19 vottorð

    Ný reglugerð um stafræn COVID-19 vottorð tók gildi hér á landi þann 1. júlí síðastliðinn en vottorðin munu gilda í öllum ríkjum Evrópusambandsins auk Íslands, Noregs, Liecthenstein og Sviss.

    05. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Stjórnarráðið, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ársskýrslur ráðherra birtar

    Ársskýrslur ráðherra fyrir árið 2020 eru komnar út. Markmiðið með skýrslunum sem koma nú út í fjórða sinn er að auka gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna en þeim er einnig ætlað að vera grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.

    02. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu við aldraða komin í samráðsgáttina

    Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda og verða aðgengileg þar til umsagnar fram til 1. september næstkomandi.

    01. júl. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ákvörðun tekin um að hefja undirbúning á að rannsóknir á leghálssýnum verði fluttar til Landspítala

    Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins, hefur tekið ákvörðun um að hefja undirbúning á að rannsóknir á leghálssýnum verði fluttar til Landspítalans. Ákvörðunin byggist á því að Landspítali telur sig nú geta sinnt rannsóknunum en einnig til að koma til móts við athugasemdir fagaðila og almennings. Áður en af flutningi verður er mikilvægt að öllum undirbúningi sé lokið og öllum nauðsynlegum forsendum fullnægt, hvort sem er HPV mælingar eða skoðun frumusýna,

    30. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Næringaruppbót niðurgreidd fyrir fyrirbura

    Sjúkratryggingum Íslands er nú heimilt að veita styrki til kaupa á næringaruppbót fyrir fyrirbura sem fæðast fyrir 32 vikna meðgöngu og þarfnast næringaruppbótar þar til þeir hafa náð 40 vikna meðgöngualdri. Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um þetta hefur tekið gildi. Kostnaður foreldra sem hingað til hafa greitt næringaruppbótina að fullu nemur um 60.000 krónum. Styrkur samkvæmt reglugerðinni nemur 57.300 krónum en það sem út af stendur greiða foreldrarnir sjálfir.

    30. jún. 2021Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Virðing og reisn. Samþætt heilbrigðis- og félagsþjónusta fyrir eldra fólk

    júní 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Virðing og reisn. Samþætt heilbrigðis- og félagsþjónusta fyrir eldra fólk Virðing og reisn

    29. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stefnt að opnun dagdvalarrýma í Suðurnesjabæ

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að ósk bæjaryfirvalda í Suðurnesjabæ, að taka upp viðræður um að koma á fót allt að átta almennum dagdvalarrýmum fyrir aldraða í sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að reksturinn verði fjármagnaður með daggjöldum sem ríkið greiðir en að sveitarfélagið leggi til húsnæðið og beri ábyrgð á rekstrinum. Ljóst er að þörf er fyrir fjölgun dagdvalarrýma í heilbrigðisumdæmi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sé horft til nýtingar þeirra rýma sem eru fyrir hendi og mannfjölda í umdæminu.

    29. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Kvennamóttaka sett á fót hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samráði við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að ráðast í tilraunaverkefni um sérstaka móttöku fyrir konur innan heilsugæslunnar. Þetta er gert þar sem vísbendingar eru um að þörfum kvenna fyrir heilbrigðisþjónustu þegar um ræðir sértæk heilsufarsvandamál kvenna, sé ekki mætt sem skyldi. Heilsugæslan hefur fengið 60 milljóna króna viðbótarframlag vegna verkefnisins, þar af fær Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu 15 milljónir króna. Hlutverk þróunarmiðstöðvarinnar verður að tryggja þekkingaröflun á þessu sviði og koma þeim á framfæri á landsvísu.

    28. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað

    Um 100 fulltrúar veitenda geðheilbrigðisþjónustu og notenda þjónustunnar komu saman á vinnustofu nýverið í þeim tilgangi að rýna þjónustuferla í geðheilbrigðisþjónustu og gera tillögur að úrbótum. Markmiðið er að bæta þjónustu við fólk með geðrænan vanda, auka skilvirkni hennar og draga úr biðlistum. Landspítalinn annaðist skipulag og utanumhald vinnustofunnar sem efnt var til að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins.

    28. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Blóðgjafafélagið styrkt um hálfa milljón á afmælisári

    Þann 15. júlí næstkomandi eru 40 ár liðin frá formlegri stofnun Blóðgjafafélags Íslands. Í tilefni afmælisársins hitti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra forsvarmenn félagsins í liðinni viku og veitti félaginu 500.000 króna styrk. Blóðgjafafélagið hefur það markmið að efla blóðgjafastarfsemi og gæta hagsmuna blóðgjafa. Félagið sinnir öflugu kynningarstarfi og vinnur markvisst að því að fjölga blóðgjöfum, enda mikið í húfi eins og endurspeglast í kjörorði félagsins; Blóðgjöf er lífgjöf. Til að mæta þörf fyrir blóðgjöf hér á landi þarf Blóðbankinn um 12.000 blóðgjafir á ári, eða um 250 blóðgjafir á viku.

    28. jún. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 6/2021

    Staðfest er ákvörðun embættis landlæknis um að svipta A starfsleyfi sem læknir vegna skorts á faglegri hæfni og útgáfu rangra og villandi reikninga, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu.

    25. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Embætti laust til umsóknar: Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. september 2021.

    25. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Staða í bólusetningum með besta móti á Íslandi

    Þann 24. júní höfðu 258.120 Íslendingar fengið að minnsta kosti fyrri bólusetningu. Þar af höfðu 174.732 fengið fulla bólusetningu. Staðan hér á landi er nú með besta móti í alþjóðlegu samhengi ef litið er til fjölda sem fengið hefur að minnsta kosti einn skammt bóluefnis.

    25. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Aflétting allra samkomutakmarkana 26. júní

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að frá og með 26. júní næstkomandi falli úr gildi allar takmarkanir á samkomum innanlands. Í þessu felst m.a. fullt afnám grímuskyldu, nándarreglu og fjöldatakmarkana. „Í raun erum við að endurheimta á ný það samfélag sem okkur er eðlilegt að búa í og sem við höfum þráð, allt frá því að heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur voru virkjaðar vegna heimsfaraldurs fyrir rúmu ári, þann 16. mars 2020“ segir heilbrigðisráðherra. Ákvörðun um afléttingu allra samkomutakmarkana er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Þann 1. júlí taka gildi breyttar reglur varðandi sýnatökur á landamærum.

    24. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Svar við ákalli: Að hlusta á þúsund lækna

    Forsvarsmenn fésbókarsamtaka lækna afhentu í gær heilbrigðisráðherra undirskriftalista um þúsund lækna sem lýsa áhyggjum af stöðu heilbrigðismála á Íslandi.

    24. jún. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Nýr vefur með gagnvirkri framsetningu tölfræðiupplýsinga á sviði félags- og heilbrigðismála

    Á vefnum er bæði hægt að finna tölfræði og þemaskýrslur þar sem ákveðin efni eru tekin fyrir og rýnd.

    24. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ákvæði um forgangsröðun við bólusetningu afnumin

    Samkvæmt áætlun verður í lok þessarar viku búið að bjóða öllum bólusetningu gegn Covid-19 sem skilgreindir eru í forgangshópum samkvæmt gildandi reglugerð um bólusetningar. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fella brott ákvæði reglugerðar sem kveður á um forgangshópa. Bólusetning gegn Covid-19 byggist þar með á sömu reglugerðarheimildum og bólusetning við öðrum smitsjúkdómum hér á landi. Með þessari reglugerðarbreytingu verður ákvörðun um bólusetningu vegna Covid-19 alfarið á forræði sóttvarnalæknis samkvæmt læknisfræðilegu mati hverju sinni.

    23. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu

    Alls bárust 18 umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu. Umsóknarfrestur rann út 21. júní síðastliðinn. Hæfnisnefnd skipuð þremur einstaklingum mun nú meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til heilbrigðisráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum um ráðgefandi nefndir um embætti við Stjórnarráð Íslands.

    23. jún. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Heilbrigðisráðuneytið

    Ný norræna skýrsla um mat á gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og foreldra

    Markmið verkefnisins er meðal annars að efla geðheilsu og vellíðan verðandi foreldra á meðgöngu.

    23. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hraðpróf í heilsugæslu

    Heilsugæslan hefur tekið í notkun hraðpróf til greiningar á kórónuveirunni sem veldur Covid-19. Hraðprófin eru ekki notuð við einkennasýnatöku, heldur eru þau eingöngu ætluð þeim sem þurfa á þeim að halda, t.d. vegna ferðalaga, þar sem krafist er neikvæðrar niðurstöðu úr sýnatöku á landamærum og niðurstaða úr hraðprófi er tekin gild. Gjald fyrir sýnatöku með hraðprófi er 4.000 krónur, hvort sem hlutaðeigandi einstaklingur er sjúkratryggður hér á landi eða ekki.

    22. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: Skýrsla um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum til ársins 2030

    Heilbrigðisráðuneytið birtir til umsagnar skýrslu um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 með áherslu á árangur, skilvirkni og gæði þjónustunnar. Skýrslan er afrakstur vinnu sem fram fór í tengslum við fjölmennt geðheilbrigðisþing sem heilbrigðisráðherra efndi til 9. desember síðastliðinn. Umsagnarfrestur er til 6. júlí næstkomandi.

    18. jún. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 5/2021

    Kærandi kærði málsmeðferð embættis landlæknis í máli á grundvelli 12. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu. Byggði kærandi m.a. á því að starfsmaður landlæknis hefði verið vanhæfur. Málsmeðferð landlæknis staðfest.

    18. jún. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 4/2021

    Staðfest er ákvörðun Lyfjastofnunar um að synja umsókn um endurnýjun lyfs, sem hafði fengið markaðsleyfi hér á landi á grundvelli gagnkvæmrar viðurkenningar, sbr. 3. mgr. 7. gr. eldri lyfjalaga nr. 93/1994 og IV. kafla reglugerðar nr. 545/2018.

    16. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hækkun styrkja til kaupa á hjálpartækjum 1. júlí

    Fjárhæðir styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum hækka umtalsvert 1. júlí með nýrri heildarreglugerð heilbrigðisráðherra. Með reglugerðinni eru styrkirnir færðir upp til verðlags sem ekki hefur verið gert frá árinu 2008. Áætlað er að framlög til niðurgreiðslu vegna kaupa á hjálpartækjum aukist með þessu um 214 milljónir króna á ársgrundvelli. Um er að ræða hjálpartæki sem auðvelda fólki að takast á við athafnir daglegs lífs.

    15. jún. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda. - Skýrsla starfshóps

    júní 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda. - Skýrsla starfshóps Framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda

    15. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda

    Birt hefur verið til umsagnar skýrsla starfshóps heilbrigðisráðherra með tillögum að heildstæðu framtíðarskipulagi heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda. Þar eru m.a. skilgreind viðfangsefni fyrsta, annars, og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu út frá samfelldum forvörnum til endurhæfingar og bata. Til grundvallar tillögunum liggur samþætting fræðilegra kenninga og þekkingar um þróun vímuefnanotkunar barna og ungmenna og samspil áhættu og verndandi þátta í því ferli. Frestur til að skila umsögnum er til 29. júní næstkomandi. Í framhaldinu mun heilbrigðisráðuneytið vinna aðgerðaáætlun um framkvæmd tillagnanna.

    14. jún. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu árin 2022 – 2026

    júní 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu árin 2022 – 2026 Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu árin 2022 – 2026

    14. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fimm ára aðgerðaáætlun um framkvæmd heilbrigðisstefnu lögð fram á Alþingi

    Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu hefur verið lögð fram á Alþingi. Aðgerðaáætlunin tekur til áranna 2022 – 2026. Þetta er í þriðja sinn sem fimm ára aðgerðaáætlun er lögð fyrir Alþingi en heilbrigðisstefna til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi í júní 2019.

    12. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Frumvarp varðandi bætur vegna atvinnusjúkdóma orðið að lögum

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um slysatryggingar almannatrygginga. Með breytingunni hefur slysahugtak laganna verið rýmkað og bætur fyrir varanlegt líkamstjón verða miskabætur, skýrt er kveðið á um að tryggingavernd nái einnig til bótaskyldra atvinnusjúkdóma og bætt hefur verið við nýrri lagagrein þar sem atvinnusjúkdómar eru í fyrsta skipti skilgreindir í íslenskum lögum.

    12. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lýðheilsustefna til ársins 2030 samþykkt á Alþingi

    Samþykkt var á Alþingi í dag tillaga Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030. Tillagan var samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum. Lýðheilsustefnan á sér stoð í heilbrigðisstefnu þar sem fram koma þau markmið að lýðheilsustarf með áherslu á heilsueflingu og forvarnir verði hluti af allri heilbrigðisþjónustu og þá sérstaklega þjónustu heilsugæslunnar. Lýðheilsustefnan er liður í því að ná þessu markmiði, jafnframt því að stuðla að markvissri umræðu um lýðheilsu í samfélaginu. Með lýðheilsu er vísað til heilsueflingar og forvarna sem miða að því að viðhalda og bæta heilbrigði fólks og koma í veg fyrir sjúkdóma eins og kostur er.

    12. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um iðnaðarhamp orðið að lögum

    Alþingi samþykkti í dag frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem felur í sér að stjórnsýsla og verkefni sem varða innflutning á hampfræjum til ræktunar á iðnaðarhampi flyst frá Lyfjastofnun til Matvælastofnunar. Við lagasetninguna var horft til þess að iðnaðarhampur er ekki ávana- og fíkniefni heldur nytjaplanta og því eðlilegra að fræ til ræktunar á honum falli undir lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru sem Matvælastofnun hefur eftirlit með.

    11. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    COVID: Allir hafi fengið boð um bólusetningu 25. júní

    Í lok þessarar viku hafa um 215.000 einstaklingar fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni gegn Covid-19 og tæplega 129.000 einstaklingar eru fullbólusettir. Markmiðum afléttingaráætlunar stjórnvalda um að 75% þeirra sem áformað er að bólusetja samkvæmt reglugerð hafi fengið bólusetningu síðari hlutann í júní hefur því náðst. Tæp 77% hópsins, sem eru rúm 61% landsmanna hafa fengið að minnsta kosti einn bóluefnaskammt eða eru með mótefni. Áætlað er að þann 25. júní hafi allir í skilgreindum bólusetningarhópi fengið boð um bólusetningu. Upplýsingar um staðfestar afhendingaráætlanir bóluefna voru uppfærðar á vef Stjórnarráðsins í dag. Nú liggur fyrir hvað berst af bóluefnum frá Pfizer og Moderna í júlímánuði.…

    11. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Óbreyttar reglur á landamærum til 1. júlí

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis að halda óbreyttu fyrirkomulagi sóttvarnaaðgerða á landamærum til 1. júlí næstkomandi. Frá þeim tíma verður slakað á aðgerðum, þar sem hætt verður að skima þá sem framvísa vottorðum um bólulsetningu eða fyrri sýkingu af völdum Covid-19. Einnig verður hætt að skima börn fyrir Covid-19 við komuna til landsins.

    11. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Almennar fjöldatakmarkanir verða 300 manns og nándarregla 1 metri

    Frá og með 15. júní fara fjöldatakmörk úr 150 manns í 300 og nándarregla verður 1 metri í stað tveggja. Á sitjandi viðburðum verður engin nándarregla en öllum skylt að bera grímu. Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, þ.e. til miðnættis. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar breytingar á reglugerð um takmarkanir á samkomum innanlands og eru þær í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

    09. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Landsráð

    Fyrsti fundur landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu

    Landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu hefur tekið til starfa og hélt sinn fyrsta fund í vikunni. Það er skipað af heilbrigðisráðherra og er ætlað að vera ráðgefandi fyrir undirbúning ákvarðana á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu, auk þess að vera samráðsvettvangur á breiðum grundvelli um þessi mál. Á fyrsta fundi landsráðsins var starfið framundan skipulagt með hliðsjón af skipunarbréfi og rætt um helstu áherslumál við upphaf vinnunnar. Gert er ráð fyrir að landsráð skili heilbrigðisráðherra ár hvert tillögum að áætlun um aðgerðir í þágu mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu. Formaður landsráðsins er Bára Hildur Jóhannsdóttir.

    09. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ákvörðun um byggingu heilsugæslustöðvar í Reykjanesbæ

    Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ sem á að þjóna um 15.000 íbúum. Húsnæði stöðvarinnar verður um 1.350 fermetrar. Ríkissjóður fjármagnar framkvæmdina að fullu en Reykjanesbær leggur til lóðina og liggur fyrir ákvörðun um að heilsugæslustöðin verði reist við Tjarnarbraut/Njarðarbraut. Mikil þörf er á bættri aðstöðu fyrir heilsugæsluþjónustu á svæðinu því naumur húsakostur stendur þjónustunni fyrir þrifum og hefur þurft að sinna hluta heilsugæsluþjónustunnar í bráðabirgðaaðstöðu við sjúkrahús Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

    09. jún. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Langvinnir verkir: Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps ráðherra

    júní 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Langvinnir verkir: Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps ráðherra Langvinnir verkir: Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps ráðherra

    09. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla til umsagnar: Þjónusta við einstaklinga með langvinna verki

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að afla upplýsinga um meðferð fyrir einstaklinga með langvinna verki hefur skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum og tillögum til úrbóta. Skýrslan er hér með birt til umsagnar í samráðsgátt. Á grundvelli skýrslunnar og umsagna um hana mun ráðuneytið móta áætlun um aðgerðir til næstu ára til að hrinda úrbótum í framkvæmd. Liður í verkefni starfshópsins var að greina fjölda, aldur og kyn þeirra sem eiga við langvinna verki að stríða, auk þess að kortleggja þá meðferð sem stendur til boða og hvar hún er veitt.

    09. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu. Um er að ræða aðra af tveimur stoðskrifstofum ráðuneytisins. Helstu verkefni skrifstofunnar eru; samningar, innkaup á vöru og þjónustu í heilbrigðiskerfinu, sjúkratryggingar, lyf og lækningatæki, byggingaframkvæmdir, mönnun heilbrigðisþjónustu, úrvinnsla tölfræðiupplýsinga auk þess að framkvæma stefnu stjórnvalda og fylgja henni eftir með gerð lagafrumvarpa og reglugerða.

    08. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra úthlutar 28 milljónum króna í gæða- og nýsköpunarstyrki

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 28 milljónum króna í gæða- og nýsköpunarstyrki til 13 verkefna. Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á verkefni sem nýtast heilbrigðisþjónustunni í kjölfar heimsfaraldurs. Verkefnin þurftu að hafa skýran ávinning fyrir heilbrigðisþjónustuna og þann hóp sem þjónustan beinist að. Styrkirnir voru veittir á sameiginlegri ráðstefnu heilbrigðisráðuneytis og Landspítala 1. júní sl. þar sem fjallað var um þróun heilbrigðisþjónustu á tímum breytinga og þar voru verkefnin sem hlutu styrki kynnt.

    03. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Samræmt evrópskt COVID-19 vottorð fyrir ferðamenn

    Nú er farið af stað tilraunaverkefni um móttöku stafræns evrópsks Covid-19 vottorðs á landamærum Íslands fyrir þá sem koma til landsins. Fyrstu farþegarnir með slík vottorð komu til landsins í gær.

    03. jún. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 3/2021

    Staðfest er ákvörðun embættis landlæknis um að synja umsókn A um tímabundið starfsleyfi sem læknir á grundvelli 11. gr. laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn.

    02. jún. 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    500 milljóna viðbótarframlag til COVAX

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnti í dag um 500 milljón króna viðbótarframlag Íslands til alþjóðlegs samstarfs um bættan aðgang að bóluefnum við COVID-19 (COVAX). Ísland hefur nú varið rúmum milljarði króna til að bæta aðgang þróunarríkja að bóluefnum gegn COVID-19. Forsætisráðherra tilkynnti um framlag Íslands á áheitaráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi.

    01. jún. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Aukið alþjóðlegt samstarf á sviði lyfjamála

    Fimm þjóðir hafa ákveðið að ganga inn í alþjóðlegt samstarf Norðurlandaþjóða (Nordisk Lægemiddel Forum) á sviði lyfjamála. Þetta eru Belgía, Holland, Austurríki, Írland og Lúxemborg sem áður hafa starfað saman undir heitinu „Beneluxa Initiative.“ Samstarfið snýr einkum að verkefnum sem tengjast innleiðingu nýrra lyfja. Þörf fyrir alþjóðlega samvinnu verður sífellt meiri vegna þeirra áskorana sem yfirvöld standa frammi fyrir gagnvart lyfjaverði, greiðsluþátttöku og innkaupum á lyfjum. Markmiðið er að tryggja sjúklingum aðgang að nýjum lyfjum með markvissu samstarfi þjóðanna um áhrifaríkar og skynsamlegar leiðir.

    31. maí 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fókus á börn og ungt fólk - Fyrsta áfangaskýrsla stýrihóps sem vaktar óbein áhrif COVID-19 á geðheilsu

    maí 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Fókus á börn og ungt fólk - Fyrsta áfangaskýrsla stýrihóps sem vaktar óbein áhrif COVID-19 á geðheilsu Fókus á börn og ungt fólk - Fyrsta áfangaskýrsla stýrihóps sem vaktar óbein áhrif COVID-19 á geðheilsu

    31. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Afhending lyfja og umboð fyrir þriðja aðila - reglugerðarbreyting

    Heilbrigðisráðuneytið birti í dag til umsagnar drög að reglugerð sem kveður m.a. á um skýrari reglur um umboð vegna afhendingar lyfja til þriðja aðila fyrir hönd annarra. Sérstaklega er kveðið á um úrbætur hvað þetta varðar vegna þeirra sem hvorki geta nálgast lyfin sín né veitt sjálfir umboð til að innleysa þau, eins og átt getur við um langveika og fatlaða einstaklinga.

    28. maí 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgengi allra að bólusetningu er mikilvægt

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lagði áherslu á aðgengi allra að bóluefni í ávarpi sínu á 74. Alþjóðaheilbrigðisþinginu sem nú stendur yfir í Genf í Sviss.

    • First
    • Prev
    • 35
    • 36
    • 37
    • 38
    • 39
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband