28. okt. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Mannauðsmál ríkisins
Áskorun stofnana að veita sífellt betri og skilvirkari þjónustu
Áskorun ríkisstofnana felst í því hvernig sífellt er hægt að veita betri og skilvirkari þjónustu og hafa stjórnendur stofnana sýnt mikinn styrk og dug við að halda dampi undanfarin misseri, meðan á heimsfaraldri kórónuveiru hefur staðið. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, á árlegum degi stjórnenda stofnana þar sem yfirskriftin var “Stjórnendur sem frumkvöðlar umbóta”.