Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1951–2000 af 3602
    Raða eftir:
    23. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Líf og heilsa

    COVID-19: Létt á takmörkunum í skólastarfi frá 24. febrúar

    Almennt verður heimilaður hámarksfjöldi nemenda 150 í hverju rými og blöndun milli sóttvarnahólfa heimil á öllum skólastigum, líka í háskólum. Regla um nándarmörk verður 1 metri í stað tveggja og gildir það jafnt milli nemenda og starfsfólks. Aðeins þarf að bera grímur ef ekki er unnt að virða 1 metra regluna. Á öllum skólastigum öðrum en á háskólastigi verður foreldrum, aðstandendum og öðrum utanaðkomandi heimilt að koma inn í skólabyggingar, að uppfylltum reglum um sóttvarnir. Þetta eru meginbreytingarnar á takmörkun skólastarfs sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið.

    23. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Fjöldatakmörk verða 50 manns frá 24. febrúar

    Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns samkvæmt nýjum reglum um samkomutakmarkanir sem taka gildi 24. febrúar. Heimilt verður að hafa að hámarki 200 viðskiptavini í verslunum, á söfnum, í kirkjum og á tilteknum viðburðum. Sund- og baðstöðum og skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Sama máli gegnir um heilsu- og líkamsræktarstöðvar en þar er jafnframt óheimilt að hafa fleiri en 50 manns í rými. Á íþróttakeppnum verður nú heimilt að hafa áhorfendur. Þetta er megininntak tilslakana á samkomutakmörkunum sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

    22. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um notkun leysa, leysibenda og IPL-tækja

    Heilbrigðisráðherra hefur sett nýja reglugerð sem kveður á um innflutning og notkun leysa, leysibenda og IPL-tækja. Með reglugerðinni eru settar skýrar kröfur um menntun þeirra sem heimilt er að nota þessi tæki, meðal annars vegna meðferða í fegrunarskyni. Enn fremur er skýrt kveðið á um aðkomu og ábyrgð læknis, hvort sem um er að ræða læknisfræðilega notkun þessara tækja eða notkun þeirra í fegrunarskyni.

    19. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bólusetningardagatal

    Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við sóttvarnalækni hefur útbúið bólusetningardagatal vegna COVID-19, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna og áætlanir þar að lútandi. Dagatalinu er ætlað að gefa fólki vísbendingu um hvenær líklegt er að bólusetning hefjist í einstökum forgangshópum. Dagatalið er birt með fyrirvara, enda að hluta til um áætlun að ræða sem mun taka breytingum. Gangi forsendur eftir lýkur bólusetningu gegn COVID-19 hér á landi fyrir lok júní næstkomandi.

    19. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Endurhæfingarteymi tekið til starfa við Heilbrigðisstofnun Austurlands

    Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) hefur sett á fót þverfaglegt endurhæfingarteymi sem mun styðja við og efla endurhæfingu fyrir íbúa á Austurlandi. Stofnun teymisins er liður í framkvæmd aðgerðaáætlunar um endurhæfingu til fimm ára sem heilbrigðisráðherra kynnti í lok síðasta árs. Áætlunin gerir ráð fyrir að stofnuð verði endurhæfingarteymi í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og er teymið við HSA það fyrsta sem tekur til starfa.

    19. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: Frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um ávana- og fíkniefni sem fjallar um afglæðavæðingu neysluskammta. Frumvarpið byggist á hugmyndafræði skaðaminnkunar með áherslu á að draga úr neikvæðum afleiðingum vímuefnanotkunar, hvort heldur hjá notandanum, fjölskyldum hlutaðeigandi, nærsamfélagi notandans og samfélagsins í heild. Umsagnarfrestur er til og með 1. mars 2021.

    19. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um lýðheilsustefnu

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að tillögu heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030. Í stefnudrögunum er skilgreind framtíðarsýn fyrir lýðheilsu á Íslandi og fjallað um hvernig styrkja megi stoðir lýðheilsustarfs hér á landi til framtíðar. Tillagan er sett fram með hliðsjón af heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og byggir á sömu meginviðfangsefnum.

    19. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu lausir til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu. Veittir verða styrkir til afmarkaðra verkefna og tæknilausna sem stuðlað geta að umbótum, nýbreytni eða auknum gæðum. Ekki eru veittir ferðastyrkir. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á verkefni sem nýtast heilbrigðisþjónustunni í kjölfar heimsfaraldurs. Verkefnin þurfa að hafa skýran ávinning fyrir heilbrigðisþjónustuna og þann hóp sem þjónustan beinist að.

    17. feb. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 2/2021

    Með bréfi, dags. 23. febrúar 2020, kærði A tannlæknir, hér eftir nefndur kærandi, synjun embættis landlæknis, dags. 18. febrúar 2020, um sérfræðileyfi á sviði samfélagstannlækninga. Í kæru er þess krafist að umsókn verði endurskoðuð.

    16. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra staðfestir reglugerð um stofnun og rekstur neyslurýma

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð um stofnun og rekstur neyslurýma. Reglugerðin er sett með ákvæði til bráðabirgða sem gerir verkefninu Frú Ragnheiði, sem Rauði krossinn í Reykjavík rekur, kleift að nýta annan af tveimur bílum Frú Ragnheiðar tímabundið sem neyslurými þar til varanlegt rými samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar hefur verið opnað.

    16. feb. 2021Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hraðari afhending bóluefna

    16 febrúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Hraðari afhending bóluefna Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Staðan á Covid-19-faraldrinum er góð hérlendis í alþjóðlegum samanburði. Ísland er í grænum flokki samkvæmt litakóðunarkerfi á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu en land fær grænan lit ef nýgengi smita síðustu fjórtán daga á hverja 100 þúsund íbúa er undir 25 og hlutfall jákvæðra sýna undir 4%. Í gær, 15

    16. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Spornað gegn útbreiðslu smita með hertum aðgerðum á landamærum

    Öllum sem koma til landsins frá og með 19. febrúar næstkomandi verður skylt að framvísa nýlegu vottorði um neikvæða niðurstöðu úr PCR-prófi fyrir brottför á leið til Íslands og á landamærum við komuna. Kemur sú ráðstöfun til viðbótar kröfu um tvöfalda skimun. Frá sama tíma verður þeim sem greinast með COVID-19 við skimun á landamærum skylt að dvelja í sóttvarnahúsi ef önnur viðunandi aðstaða til einangrunar er ekki fyrir hendi eða ef einstaklingur er með afbrigði veirunnar sem eru þekkt fyrir að vera meira smitandi en önnur eða valda alvarlegri veikindum. Heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun þessa efnis á fundi ríkisstjórnar í dag og er hún í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir á landamærum.

    15. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bólusetning verður langt komin í lok júní

    Gera má ráð fyrir að hægt verði að bólusetja tæplega 190.000 einstaklinga hér á landi fyrir lok júní næstkomandi með bóluefnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna sem öll eru með markaðsleyfi og komin í notkun hér á landi. Þetta er mun meira en áður var vænst. Mestu munar annars vegar um nýjan samning Evrópusambandsins við Pfizer sem tryggir Íslandi bóluefni fyrir 25.000 til 30.000 manns strax á öðrum ársfjórðungi, til viðbótar fyrri samningum. Gert er ráð fyrir að Ísland undirriti samning um aukið magn bóluefna frá Pfizer á grundvelli nýs samnings Evrópusambandsins fyrir lok þessarar viku. Einnig mun aukin framleiðslugeta AstraZeneca hafa áhrif. Alls verður rúmlega 280.000 einstaklingum boðin bólusetning hér á landi, þ.e. öllum sem eru 16 ára og eldri..…

    15. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Annað

    Styrkir til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu

    / Heilbrigðisráðuneytið Styrkir til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu Heilbrigðisráðuneytið auglýsir árlega eftir umsóknum um styrki til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu. Tilgangur styrkveitinganna er að stuðla að umbótastarfi, nýbreytni og auknum gæðum heilbrigðisþjónustu og jafnframt eru þeir ætlaðir sem hvatning og viðurkenning fyrir störf á þessu sviði. Auglýsing: Styrkir til gæða- og nýsköðunarverkefna í heilbrigðisþjónustu 2023 lausir til umsóknar Efnisorð

    15. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Kröfur til skyndigreiningarprófa

    Heilbrigðisráðherra hefur birt í Stjórnartíðindum fagleg fyrirmæli embættis landlæknis um skyndigreiningarpróf sem heimilt verður að nota hér á landi. Aðeins verður heimilt að nota próf sem mæla mótefnavaka (antigen) og þá einungis þau skyndigreiningarpróf sem hlotið hafa tilskilin leyfi heilbrigðisráðuneytisins. Gerð er krafa um að jákvæðar niðurstöður úr skyndigreiningarprófi verði staðfestar með RT-PCR prófi til að tryggja raðgreiningu veirunnar.

    11. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna

    Ísland hefur samið við fimm lyfjaframleiðendur um bóluefni gegn COVID-19. Bóluefni þriggja þeirra eru komin með markaðsleyfi og bólusetning með þeim hafin hér á landi. Samningar Íslands um þessi þrjú bóluefni, þ.e. Pfizer, AstraZeneca og Moderna, kveða á um skammta sem duga til að bólusetja 304.000 einstaklinga. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum um afhendingu þessara bóluefna er gert ráð fyrir að í lok mars hafi Íslandi borist bóluefni fyrir samtals um 45.000 einstaklinga.

    10. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Auglýst eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2021. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

    10. feb. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 1/2021

    Umsókn félagsins A, um að stétt félagsins yrði löggilt heilbrigðisstétt samkvæmt 3. gr. laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn, var synjað. Að mati ráðuneytisins var hvorki nauðsynlegt að löggilda stéttina með vísan til öryggis og hagsmuna sjúklinga né að stéttin heyrði undir eftirlit embættis landlæknis.

    09. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra úthlutar 85 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 85 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 174 verkefna og rannsókna sem m.a. hafa að markmiði að efla geðheilsu barna og fullorðinna. Einnig voru veittir styrkir til verkefna tengdum áfengis- vímu- og tóbaksvörnum, næringu, hreyfingu og kynheilbrigði. Hæstu styrkirnir, 2,5 milljónir króna renna til þriggja verkefna. Háskóli Íslands fær 2,5 milljónir króna vegna þátttöku í alþjóðlegum rannsóknum á heilsu og líðan ungmenna, SÁÁ fær sömu styrkfjárhæð vegna sálfræðiþjónustu fyrir börn alkóhólista og Rannsóknir og greining vegna rannsóknar á högum og líðan ungmenna á tímum COVID-19.

    08. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ríkið sýknað í Hæstarétti af kröfu Grundar, Áss og Hrafnistu um greiðslu húsaleigu

    Hæstiréttur hefur staðfest dóma Landsréttar þar sem ríkið er sýknað af kröfum Grundar hjúkrunarheimilis og Dvalarheimilisins Áss í Hveragerði annars vegar og Hrafnistu í Laugarási og Hraunvangi hins vegar, um að ríkið skuli greiða þeim endurgjald fyrir fasteignir sem þeir lögðu til undir starfsemi sína á árunum 2013 – 2016.

    08. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyting á sóttvarnalögum samþykkt á Alþingi

    Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til breytinga á sóttvarnalögum var samþykkt á Alþingi í liðinni viku með öllum greiddum atkvæðum. Með lagabreytingunni er kveðið skýrar á um til hvaða ráðstafana er heimilt að grípa vegna farsóttarhættu og útbreiðslu smits, í hvaða tilvikum og með tilliti til meðalhófssjónarmiða. Markmið breytinganna er að tryggja að slíkar skerðingar á stjórnarskrárvörðum réttindum fólks styðjist við viðhlítandi lagaheimild og séu ekki framkvæmdar nema í þágu almannahagsmuna eða til verndar heilsu eða réttindum annarra. Með lagabreytingunni er kveðið á um að meðan á sóttvarnaaðgerðum stendur skuli ráðherra upplýsa Alþingi um sóttvarnaaðgerðir með mánaðarlegri skýrslugjöf hafi aðgerð varað lengur en í tvo mánuði.

    06. feb. 2021Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsa út frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum

    06 febrúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Heilsa út frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Í nýrri úttekt um heilsu út frá jafnréttis- og kynjasjónarmiðum kemur fram að konur virðast búa við lakara heilsufar og verri lífsgæði en karlar og að ástæður þess megi rekja að hluta til félagslegrar og efnahagslegrar stöðu þeirra í samfélaginu. Í úttektinni eru gerðar ýmsar tillögur til úrbóta þar sem áhersla er lögð á að auka heilsufarslegan jöfnuð og stuðla að jöfnu aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu. Í fyrra fól ég Finnborgu S

    05. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Varfærnar tilslakanir á samkomutakmörkunum frá 8. febrúar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á samkomutakmörkunum frá 8. febrúar. Almennar fjöldatakmarkanir verða áfram 20 manns en með rýmri undantekningum en hingað til. Reglur um 2 metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar. Heimilt verður að opna að nýju skemmtistaði, krár, spilasali og spilakassa að uppfylltum skilyrðum. Fjöldatakmörk gesta í sviðslistum verða aukin úr 100 í 150 manns og trú- og lífsskoðunarfélögum verður heimilt að halda athafnir, þar með taldar útfarir, með 150 manns að hámarki. Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum verður 150 manns með hliðsjón af fermetrafjölda og sama gildir um gesti á söfnum.…

    04. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsa og heilbrigðisþjónusta í ljósi kynja- og jafnréttissjónarmiða

    Konur virðast búa við lakara heilsufar og verri lífsgæði en karlar og má rekja ástæður þess að hluta til félagslegrar og efnahagslegrar stöðu þeirra í samfélaginu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri úttekt sem Finnborg S. Steinþórsdóttir, nýdoktor í kynjafræði, vann fyrir heilbrigðisráðuneytið þar sem heilsufar kynjanna er kortlagt úr frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum og lagt mat á hvort heilbrigðisþjónustan mæti ólíkum þörfum kynjanna. Í skýrslu Finnbjargar um efnið eru gerðar ýmsar tillögur til úrbóta þar sem áhersla er lögð á að auka heilsufarslegan jöfnuð og stuðla að jöfnu aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu.

    04. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu

    Alls bárust 13 umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 1. febrúar síðastliðinn. Þriggja manna hæfnisnefnd sem starfar samkvæmt reglum um ráðgefandi nefndir sem meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráðið, mun nú meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð með niðurstöðum sínum til heilbrigðisráðherra.

    04. feb. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilsufar og heilbrigðisþjónusta – Kynja og jafnréttissjónarmið

    febrúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Heilsufar og heilbrigðisþjónusta – Kynja og jafnréttissjónarmið Heilsufar og heilbrigðisþjónusta – Kynja og jafnréttissjónarmið

    03. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Undirritun samnings Íslands um bóluefni CureVac

    Undirritaður hefur verið samningur Íslands um kaup á bóluefni lyfjaframleiðandans CureVac gegn COVID-19 sem dugir fyrir um 90.000 einstaklinga. Vonir standa til að afhending bóluefnisins geti hafist á öðrum fjórðungi þessa árs, að undangengnu mati Lyfjastofnunar Evrópu og útgáfu markaðsleyfis en bóluefnið er nú í fasa III í prófunum. Bóluefnið er af sömu gerð og bóluefni Pfizer og Moderna, að því leyti að hluti af RNA erfðaefni veiru er notað til að vekja mótefnasvar hjá bólusettum einstaklingum. Bólusetja þarf hvern og einn tvisvar sinnum með bóluefninu til að ná fullri virkni.

    01. feb. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Landsráð um mönnun og menntun

    Vakin er athygli á drögum að tillögu heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu sem birt hefur verið til umsagnar í samráðsgátt. Umsagnarfrestur er til 9. febrúar næstkomandi. ​

    29. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Félagasamtök styrkt um 80 milljónir króna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt tæpar 80 milljónir króna í styrki til félagasamtaka til að styðja við starfsemi þeirra á sviði heilbrigðisþjónustu.

    28. jan. 2021Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukin göngudeildarþjónusta

    28 janúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Aukin göngudeildarþjónusta Heilbrigðisráðuneyti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 kemur fram það markmið að árið 2030 verði byggingaframkvæmdum við Landspítala við Hringbraut og Sjúkrahúsið á Akureyri lokið og að þar verði góð aðstaða til að veita bráða og valkvæða heilbrigðisþjónustu og öfluga þjónustu á dag- og göngudeildum.

    26. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umfangsmikil þjónusta í endurgerðu húsnæði Landspítala á Eiríksstöðum

    Landspítali tók fyrir helgi við 3.400 fermetra húsnæði við Eiríksgötu 5 eftir gagngerar breytingar og endurbætur sem gera kleift að sinna þar fjölbreyttri klínískri starfsemi á vegum spítalans. Í húsinu verður veitt göngudeildarþjónusta vegna gigtarsjúkdóma, innkirtlasjúkdóma, erfðaráðgjafar og augnsjúkdóma. Þar verður jafnframt heildstæð göngudeildarþjónusta við konur með krabbamein í brjósti, allt frá skimun til eftirlits að lokinni meðferð. Í húsnæðinu sem kallast Eiríksstaðir eru sérhæfð rými fyrir þessa starfsemi, s.s. skurðstofur, röntgenstofur, skimunaraðstaða, skoðunarrými og viðtalsherbergi.

    25. jan. 2021Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilsuefling aldraðra

    janúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Heilsuefling aldraðra Heilsuefling aldraðra - skýrsla starfshóps

    25. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Leiðir að aukinni heilsueflingu aldraðra

    Ríki og sveitarfélög þurfa að taka höndum saman til að stuðla að aukinni heilsueflingu aldraðra, hvort sem hún snýr að þjálfun, endurhæfingu eða félags- og tómstundastarfi. Skapa þarf greiða leið á milli þjónustustiga, meðal annars þegar bjóða þarf endurhæfingu, hvort heldur í heimahúsi eða sérhæfðri endurhæfingarinnlögn. Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta tillögur um heilsueflingu aldraðra hefur skilað skýrslu með tillögum sínum.

    22. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Öruggar og skilvirkar rannsóknir á krabbameinssýnum

    Ákvörðun um að semja við erlendan aðila um rannsóknir á krabbameinssýnum vegna leghálsskimana í forvarnarskyni byggist á því að tryggja öryggi og gæði rannsóknanna og jafnframt sem stystan svartíma. Með samningi sem verið er að leggja á lokahönd milli Sjúkratrygginga Íslands og danskrar rannsóknastofu verður svartíminn að hámarki 3 vikur en bið eftir niðurstöðum hefur síðustu ár verið 4 til 6 vikur.

    20. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Rafræn bólusetningarvottorð frá 21. janúar

    Í dag og á morgun fær hópur einstaklinga síðari bólusetningarsprautuna gegn COVID-19 og telst þar með fullbólusettur. Hjá embætti landlæknis er verið að leggja lokahönd á rafræna lausn sem gerir fólki kleift að sækja sér bólusetningarvottorð á vefnum; heilsuvera.is. Stefnt er að því að þetta verður mögulegt frá og með morgundeginum. Vottorðið verður að efni og útliti í samræmi við fyrirliggjandi evrópska staðla og alþjóðlega bólusetningarskírteinið. Markmiðið er að greiða för fólks milli landa, þannig að einstaklingar geti framvísað bóluefnarvottorði á landamærum og séu þá undanþegnir sóttvarnaráðstöfunum vegna COVID-19 í samræmi við reglur hlutaðeigandi lands.

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sálfræðiþjónusta við Seyðfirðinga efld með auknu fjármagni

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Heilbrigðisstofnun Austurlands 17 milljóna króna viðbótarfjárframlag til að efla geðheilbrigðisþjónustu í þágu íbúa Seyðisfjarðar í kjölfar hamfaranna sem þar urðu 18. desember síðastliðinn.

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Framvísun bólusetningarvottorða á landamærum

    Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögu vinnuhóps um vottorð, þess efnis að bólusetningarvottorð sem uppfylla leiðbeiningar sóttvarnalæknis og gefin eru út í EES/EFTA-ríki verði tekin gild á landamærum Íslands.

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skimunarskylda á landamærum

    Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag en í ljósi alvarlegrar stöðu faraldursins víða um heim verður núverandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum með tvöfaldri skimun og fimm daga sóttkví á milli framlengt til 1. maí.

    15. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Fyrirkomulag sóttvarna á landamærum frá 1. maí

    Þann 1. maí nk. verða tekin varfærin skref til afléttingar sóttvarnaraðgerða á landamærum sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    13. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingum á aldursviðmiðum brjóstaskimana frestað

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða vegna lýðgrundaðra skimana fyrir brjóstakrabbameinum. Kynna þurfi betur áformaðar breytingar og fagleg rök að baki þeim. Ákvörðun um að hækka efri mörk aldursviðmiðanna úr 69 árum í 74 ár stendur óbreytt.

    13. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alzheimersamtökunum veittur 7 milljóna króna fræðslustyrkur

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Alzheimersamtökunum 7 milljóna króna styrk til verkefnis um jafningjafræðslu á hjúkrunarheimilum til að styrkja starfsfólk sem sinnir umönnun fólks með heilabilunarsjúkdóma. Styrkveitingin er liður í framkvæmd aðgerðaáætlunar heilbrigðisráðuneytisins vegna þjónustu við einstaklinga með heilabilun. Alzheimersamtökin fengu 15 milljóna króna styrk á liðnu ári til sama verkefnis sem hefur farið vel af stað. Styrkurinn sem nú er veittur er ætlaður til að halda áfram vinnu við verkefnið út árið 2021. Áður hafði ráðherra veitt Háskólanum á Akureyri styrk til að koma á fót sérnámi fyrir ráðgjafa á sviði heilabilunar og er það einnig liður í framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar.

    13. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Beint frá málþingi Vísindasiðanefndar í dag um rannsóknir á tímum COVID

    Málþing Vísindasiðanefndar um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði á tímum COVID hefst kl. 13.00 í dag og stendur til kl. 16. Streymt verður beint frá þinginu og þeir sem fylgjast með geta spurt spurninga í gegnum forritið Slido. Markmiðið er að leiða saman fulltrúa rannsóknasamfélagsins, heilbrigðisyfirvalda og eftirlitsaðila til að ræða þá möguleika og þær áskoranir sem felast í rannsóknum meðan á faraldri stendur. Fyrirlesarar eru Alma Möller landlæknir, Vilmundur Guðnason, Helga Þórisdóttir, Karl Andersen, Unnur Valdimarsdóttir og Kári Stefánsson.

    12. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Börn sæti sóttkví við komu til landsins frá 13. janúar

    Frá og með morgundeginum 13. janúar verður börnum fæddum 2005 eða síðar skylt að sæta sóttkví með foreldri eða forráðamanni við komu til landsins, samkvæmt reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar, öðlast gildi 13. janúar og gildir til og með 31. janúar næstkomandi.

    12. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Fyrsta sending bóluefnis Moderna komið til landsins

    Tekið var á móti fyrstu sendingu bóluefnis Moderna í dag. Þetta er annað bóluefnið gegn COVID-19 sem hlýtur markaðsleyfi Evrópsku lyfjastofnunarinnar og tekið er í notkun hér á landi. Áður var bóluefni Pfizer komið með markaðsleyfi og hófst bólusetning með því fyrir áramót. Vonir standa til þess að þriðja bóluefnið, þ.e. frá AstraZeneca fái markaðsleyfi innan tíðar en Lyfjastofnun Evrópu tilkynnti í dag að hún áformi að halda matsfund um bóluefnið 29. janúar næstkomandi.

    09. jan. 2021Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyttar samkomutakmarkanir

    09 janúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Breyttar samkomutakmarkanir Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Þann 10. desember 2020 tók gildi reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar af völdum Covid-19. Síðan sú reglugerð tók gildi hefur staða faraldursins hérlendis verið tiltölulega góð

    08. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Takmarkanir á samkomum rýmkaðar frá 13. janúar

    Fjöldatakmarkanir verða 20 manns, heilsu- og líkamsræktarstöðvum verður gert kleift að hefja starfsemi á ný en með ströngum skilyrðum og skíðasvæðunum sömuleiðis. Íþróttastarf barna og fullorðinna verður heimilað að uppfylltum skilyrðum og sömuleiðis íþróttakeppnir án áhorfenda. Fjöldamörk í sviðslistum verða aukin þannig að 50 manns mega vera á sviði og í sal 100 fullorðnir og 100 börn. Sama gildir um aðra menningarviðburði. Þetta er meginefni breyttra reglna um samkomutakmarkanir sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og kynntar voru á fundi ríkisstjórnar í dag. Áformaðar breytingarnar taka gildi 13. janúar og gilda til 17. febrúar næstkomandi.

    08. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur um bætta barneignaþjónustu

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur að bættri barneignaþjónustu með áherslu á að auka samþættingu milli meðgönguverndar, fæðingarhjálpar og þjónustu við konur í sængurlegu hefur skilað ráðherra tillögum sínum. Tillögurnar taka mið af áherslum heilbrigðisstefnu og fela í sér framtíðarsýn til ársins 2030.

    07. jan. 2021Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Barneignaþjónusta. Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps til ráðherra

    janúar 2021 / Heilbrigðisráðuneytið Barneignaþjónusta. Stöðuskýrsla og tillögur starfshóps til ráðherra Barneignaþjónusta

    07. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: Frumvarp til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að frumvarpi til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu. Þar eru lagðar til breytingar til að skýra heimildir til kvörtunar til embættis landlæknis vegna heilbrigðisþjónustu, auk þess að skýra málsmeðferð í slíkum málum og gera einfaldari þannig að hún falli betur að störfum og hlutverki landlæknis.

    06. jan. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um rafrettur til umsagnar

    Vakin er athygli á að drög að frumvarpi til breytinga á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt. Markmið áformaðra lagabreytinga er að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum, þar á meðal nikótínpúðum. Umsagnarfrestur er til 31. janúar.

    • First
    • Prev
    • 38
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband