Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1951–2000 af 2497
    Raða eftir:
    04. des. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Helga Björg aðstoðar heilbrigðisráðherra tímabundið

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ráðið Helgu Björg Ragnarsdóttur tímabundið í stöðu aðstoðarmanns til að leysa af Iðunni Garðarsdóttur meðan hún er í fæðingarorlofi. Helga Björg er skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg en verður í leyfi frá störfum sínum þar meðan á afleysingu stendur.

    30. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Frumvarp til nýrra heildarlaga um ófrjósemisaðgerðir

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í morgun frumvarp til nýrra heildarlaga um ófrjósemisaðgerðir. Markmið þess er að tryggja sjálfsforræði fólks við ákvörðun í þessum efnum með áherslu á mannréttindi og mannhelgi einstaklinga.

    28. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Réttar upplýsingar um fjölda fólks yngra en 67 ára á hjúkrunarheimilum

    Sjúkratryggingar Íslands hafa að beiðni velferðarráðuneytisins tekið saman upplýsingar um fjölda þeirra sem eru yngri en 67 ára og búa á hjúkrunarheimilum. Í ljósi opinberrar umfjöllunar um þessi mál telur ráðuneytið mikilvægt að koma þessum upplýsingum á framfæri.

    28. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Drög að heilbrigðisstefnu birt til umsagnar

    Allir sem áhuga hafa geta nú kynnt sér drög að íslenskri heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og komið á framfæri ábendingum. Stefnan hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til 19. desember. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir þetta mikilvægan áfanga: „Árum saman hefur verið kallað eftir skýrri sýn og stefnu í heilbrigðismálum. Nú vonast ég til að við getum sameinast um að skapa slíka stefnu í góðri og almennri sátt. Heilbrigðisstefna á að vera leiðarljós sem sameinar krafta þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu og tryggir sjúklingum bestu þjónustu sem völ er á, þar sem öryggi, gæði og jöfnuður eru í fyrirrúmi“ segir heilbrigðisráðherra. ​

    27. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu lausir til umsóknar

    Velferðarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um árlega styrki til gæðaverkefna á sviði heilbrigðisþjónustu. Tilgangurinn er að stuðla að umbótastarfi, nýbreytni og auknum gæðum heilbrigðisþjónustu, auk þess sem styrkjunum er ætlað að fela í sér hvatningu og vera viðurkenning fyrir störf á þessu sviði. Umsóknarfrestur er til kl. 12.00 á hádegi, föstudaginn 21. desember 2018.

    27. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

    Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Heilbrigðisráðherra mun setja í stöðuna til eins árs og er stefnt að því að það verði gert 1. febrúar 2019. Umsóknarfrestur er til 17. desember næstkomandi.

    27. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

    Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. mars 2019. Umsóknarfrestur er til 17. desember næstkomandi.

    23. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Rekstur sjúkrahótels í traustum höndum

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Landspítalanum að annast rekstur sjúkrahótelsins við Hringbraut, tímabundið til tveggja ára. Spítalinn hefur farið þessa á leit við velferðarráðuneytið, en áður hafði verið miðað við að Landspítalanum yrði falið að bjóða reksturinn út í samvinnu við Ríkiskaup.

    21. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrirhuguð opnun neyslurýmis í Reykjavík á næsta ári

    Opnun neyslurýmis fyrir langt leidda vímuefnaneytendur er fyrirhuguð í Reykjavík á næsta ári. Í frumvarpi til fjárlaga eru 50 milljónir króna áætlaðar til verkefnisins. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mun leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um ávana- og fíkniefni eftir áramót til að tryggja verkefninu fullnægjandi lagastoð.

    20. nóv. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    Heimild veitt fyrir rekstri geðhjúkrunarrýma á Akureyri

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA) heimild til reksturs þriggja hjúkrunarrýma sem verða sérstaklega ætluð til að mæta þörfum hjúkrunarsjúklinga með alvarleg geðræn vandamál.

    16. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Aðgerðir til að bregðast við lyfjaskorti

    Lyfjastofnun hefur gripið til ákveðinna aðgerða til að bregðast við lyfjaskorti. Markmið þeirra er meðal annars að bæta yfirsýn stofnunarinnar yfir stöðuna á hverjum tíma og auðvelda henni þar með að grípa til ráðstafana þegar nauðsyn krefur.

    15. nóv. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    Aukin úrræði fyrir hjúkrunarsjúklinga með alvarlegar geðraskanir

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á ósk stjórnenda hjúkrunarheimilisins Markar í Reykjavík um að breyta tíu almennum hjúkrunarrýmum í sérhæfð geðhjúkrunarrými. Þörf fyrir fjölgun sértækra úrræða sem þessara er brýn til að tryggja hjúkrunarsjúklingum með alvarleg geðræn vandamál þjónustu við hæfi.

    15. nóv. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    Hjúkrunarrýmum fjölgar um tæp 200 innan tveggja ára

    Ný hjúkrunarheimili í Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi verða tekin í notkun snemma á næsta ári og framkvæmdir við byggingu hjúkrunarheimilis í Árborg og við Sléttuveg í Reykjavík eru komnar vel á veg. Með þessum framkvæmdum fjölgar hjúkrunarrýmum um tæp 200 innan tveggja ára.

    14. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Líf og heilsa

    Reglugerð um verkefni vísindasiðanefndar til umsagnar

    Drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um verkefni vísindasiðanefndar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Markmið reglugerðarinnar er að kveða nánar á um verkefni nefndarinnar og um heimild hennar til að setja sér starfsreglur.

    08. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi til laga um ófrjósemisaðgerðir til umsagnar

    Velferðarráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra laga um ófrjósemisaðgerðir.

    02. nóv. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Mikilvægt og löngu tímabært og setja fram skýra stefnu í heilbrigðismálum

    Meiri hluti Evrópuþjóða hefur sett sér heilbrigðisstefnu og það er aðkallandi og mikilvægt að slík stefna verði sett hér á landi. „Heilbrigðisstefna á að vera leiðarljós sem sameinar krafta þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu og tryggir sjúklingum bestu þjónustu sem völ er á, þar sem öryggi, gæði og jöfnuður eru í fyrirrúmi“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra við opnun heilbrigðisþingsins sem haldið er í dag.

    29. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisþing 2. nóvember – heilbrigðisþjónusta fyrir alla

    Minnt er á heilbrigðisþingið 2. nóvember næstkomandi. Þingið verður vettvangur fyrir kynningu og umræður um drög að heilbrigðisstefnu til ársins 2030: „Ég er fullviss um að með markvissri vinnu muni takast að skapa skýra stefnu sem felur í sér öfluga heilbrigðisþjónustu fyrir alla landsmenn“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    26. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla heilbrigðisráðherra um geðheilbrigðismál rædd á Alþingi

    Skýrsla Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um geðheilbrigðismál og framkvæmd geðheilbrigðisáætlunar var til umfjöllunar á Alþingi í gær. Markmið ráðherra með framlagningu skýrslunnar er að veita yfirsýn um stöðu þessara mála og leggja með því grundvöll að skýrari stefnu á þessu sviði.

    26. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Full greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna kaupa á innöndunartækjum

    Sjúklingar með slímseigjusjúkdóm (Cystic Fibrosis) munu hér eftir fá innöndunartæki og nauðsynlega fylgihluti, sér að kostnaðarlausu samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Að jafnaði fæðist eitt barn, annað hvert ár, með þennan alvarlega lungnasjúkdóm og eru innöndunartækin lífsnauðsynleg þessum sjúklingum.

    25. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Um þungunarrof og frumvarp að nýrri löggjöf

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að leggja frumvarp til laga um þungunarrof fyrir Alþingi með rýmri heimildum varðandi tímamörk en miðað var við í drögum að frumvarpinu sem birt voru í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðherra leggur áherslu á að í nýrri löggjöf verði jafnræðis gætt og farið að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

    23. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Mannréttindi og jafnrétti, Menntamál, Almannaöryggi, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn ofbeldi og afleiðingum þess

    Fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar kynntu á fundi hennar í dag tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn ofbeldi og afleiðingum þess, til næstu fjögurra ára. Stýrihópur með fulltrúum hlutaðeigandi ráðuneyta hefur unnið að áætluninni í samstarfi við fjölda aðila á síðustu misserum.

    19. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilsa Evrópubúa – mat á markmiðum Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar

    Nýútkomin Heilbrigðisskýrsla Evrópu 2018 gefur vísbendingar um jákvæða þróun á flestum sviðum þegar mat er lagt á lykilmarkmið heilbrigðisstefnu Evrópu til ársins 2020 sem gefin var út árið 2012. Heilsufarslegur ójöfnuður er hins vegar viðvarandi vandamál, t.d. milli kynja og einnig svæðisbundinn ójöfnuður og er nokkuð fjallað um það í skýrslunni.

    19. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ráðgjafanefnd skipuð um fagleg málefni blóðbankaþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað ráðgjafanefnd um fagleg málefni blóðbankaþjónustu, samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Hlutverk nefndarinnar er að vera heilbrigðisyfirvöldum, Landspítala og blóðbanka spítalans til ráðgjafar um hvaðeina sem lýtur að faglegum þáttum og öryggissjónarmiðum blóðbankaþjónustu. Formaður nefndarinnar er Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómalækninga.

    17. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ísland er friðsælasta ríki heims

    Ísland er friðsælasta ríki heims samkvæmt úttekt Global Peace Index (GPI) fyrir árið 2018.

    17. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þjónusta fyrir konur hjá heilsugæslunni

    Velferðarráðuneytið hefur falið Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar að útfæra tilraunaverkefni um móttöku innan heilsugæslunnar þar sem konur gætu sótt ráðgjöf og ýmsa þjónustu vegna sértækra heilsufarsvandamála sem eru bundin við konur.

    17. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Undirbúningur að samnorrænum innkaupum lyfja heldur áfram

    Ráðherrar heilbrigðismála í Danmörku og Noregi hafa lýst afdráttarlausum vilja til þess að vinna áfram með Íslandi að sameiginlegum innkaupum lyfja og að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra undirriti einnig yfirlýsingu landanna þar að lútandi fyrir Íslands hönd.

    17. okt. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    Mælt fyrir frumvarpi um dvalarrými og dagdvöl

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi á Alþingi sem hefur að markmiði að jafna aðgang þeirra sem þurfa á dvöl í dvalarrými eða dagdvöl að halda, óháð aldri og snýr einnig að forgangsröðun umsókna eftir þörfum viðkomandi einstaklinga.

    16. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar fái heimild til að ávísa getnaðarvörnum

    Bæta á aðgengi kvenna, einkum ungra kvenna, að kynheilbrigðisþjónustu og nýta betur fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra samkvæmt lagafrumvarpi sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að leggja fram á Alþingi. Samkvæmt því verður ljósmæðrum og hjúkrunarfræðingum heimilað að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum. Ráðherra kynnti frumvarpið á fundi ríkisstjórnar í dag.

    16. okt. 2018Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Skýrsla um endurskoðun laga nr. 25/1975 um ráðgjöf og fræðslu vrðandi kynlíf, barneignir, fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir

    október 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Skýrsla um endurskoðun laga nr. 25/1975 um ráðgjöf og fræðslu vrðandi kynlíf, barneignir, fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir Skýrsla nefndar sem vann að heildarendurskoðun laga um ráðgjöf og fræðslu vrðandi kynlíf, barneignir, fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir

    16. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skóflustunga að meðferðarkjarna Landspítalans við Hringbraut

    Laugardaginn 13. október var tekin skóflustunga að nýjum meðferðarkjarna Landspítalans við Hringbraut. Ráðherrar ásamt forstjóra, fulltrúum félaga, hagsmunasamtaka og stofnana tóku skóflustunguna að viðstöddum fyrrverandi heilbrigðisráðherra auk fjölmargra annarra gesta. Áætlað er að meðferðarkjarninn verði tekinn í notkun árið 2024.

    15. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Boðað til heilbrigðisþings 2. nóvember

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings 2. nóvember næstkomandi á Grand hótel, Reykjavík. Þingið verður helgað kynningu á drögum að nýrri heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og umræðu um þau. Þingið er öllum opið og er skráning hafin.

    15. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Efling heilsugæslunnar: Sérnámsstöðum í heimilislækningum fjölgað

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í dag ákvörðun sína um að veita 57 milljóna króna framlag til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til að fjölga sérnámsstöðum í heimilislækningum um fimm. Á fjárlögum þessa árs eru 300 milljónir króna ætlaðar til að efla þverfaglega þjónustu heilsugæslunnar.

    11. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Alþjóðlegur fundur ráðherra um geðheilbrigðismál

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sat í vikunni tveggja daga fund um geðheilbrigðismál í London þar sem ráðherrar heilbrigðismála frá fjölmörgum ríkjum, ásamt færasta fagfólki, frumkvöðlum og sérfræðingum á sviði stefnumótunar báru saman bækur sínar.

    11. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Úttekt á heildsölu lyfja á Íslandi

    Velferðarráðuneytið hefur samið við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um úttekt á heildsölu lyfja hér á landi, í samræmi við ákvörðun heilbrigðisráðherra. Skoðað verður hvernig heildsala hefur þróast í kjölfar lagabreytinga árið 1996, hver sé þörf heildsölu- og dreifingarfyrirtækja fyrir álagningu og hvernig samkeppni á heildsölumarkaði með lyf hér á landi er háttað.

    05. okt. 2018Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samið um fullnaðarhönnun rannsóknahúss við Hringbraut

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra undirritaði í dag samning við Corpus3 hópinn um fullnaðarhönnun rannsóknahúss Landspítala. Rannsóknahúsið er hluti af heildaruppbyggingu Landspítalans við Hringbraut.

    04. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Hjúkrunarrýmum í Hafnarfirði fjölgar um 33

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Hafnarfjarðarbæ heimild sem gerir kleift að fjölga hjúkrunarrýmum í bæjarfélaginu um 33 innan tveggja ára. Hjúkrunarrými í Hafnarfirði verða þar með rúmlega 90. Ráðherra kynnti Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra ákvörðun sína í Hafnarfirði í dag. Ákvörðunin er liður í stórátaki stjórnvalda um uppbyggingu hjúkrunarrýma sem heilbrigðisráðherra kynnti fyrr á þessu ári með framkvæmdaáætlun til ársins 2023.

    02. okt. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Sýklalyfjanotkun og ónæmar bakteríur

    Árleg skýrsla Embættis landlæknis um sýklalyfjanotkun og algengi sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi hjá mönnum og dýrum er komin út. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að sýklalyfjanotkun hjá mönnun jókst um rúm 3% árið 2017 frá fyrra ári. Í tilkynningu á vef embættisins kemur meðal annars fram að á þessu ári hafi verið ráðist í vinnu með læknum sem miðar að því að efla vitund þeirra og bæta ávísanavenjur þeirra vegna sýklalyfja til að draga úr notkun þeirra. Útbreiðsla sýklalyfjaónæmra baktería er álitin ein helsta heilbrigðisógn samtímans segir í tilkynningunni.

    02. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrirkomulag gjaldtöku vegna markaðssetningar á rafrettum sem innihalda nikótín

    Neytendastofa vinnur að útfærslu á gjaldtöku vegna markaðssetningar á rafrettum sem innihalda nikótín og áfyllinga fyrir þær, á grundvelli reglugerðar heilbrigðisráðherra nr. 803/2018. Gert er ráð fyrir að framleiðendur vörunnar sæki um markaðsleyfi og greiði áskilið gjald, nema í tilvikum þegar smásalar kjósa sjálfir að tilkynna vöru á markað.

    01. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Frestun á sameiginlegu norrænu lyfjaútboði

    Sameiginlegu lyfjaútboði Danmerkur, Íslands og Noregs sem kynnt var fyrir völdum tilboðsgjöfum 28. september síðastliðinn hefur verið frestað og tilboðsgjöfum veittur lengri frestur til að gera athugasemdir við framlögð gögn.

    28. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra á leiðtogafundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ávarpaði í gær leiðtogafund 73. allsherjarþings Sameinuðu þjónanna í New York, þar sem fjallað var sérstaklega um langvinna sjúkdóma.

    27. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi til laga um þungunarrof til umsagnar

    Velferðarráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra laga um þungunarrof. Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að tryggja að sjálfsforræði kvenna verði virt með öruggum aðgangi að heilbrigðisþjónustu fyrir þær konur sem óska eftir þungunarrofi.

    26. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ráðherra veitir 40 milljónir króna í stuðningsteymi fyrir langveik börn

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Landspítalanum 40 milljónir króna til að koma á fót sérstöku stuðningsteymi fyrir langveik börn með miklar stuðningsþarfir, meðal annars vegna sjaldgæfra sjúkdóma.

    25. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Tillaga Íslands um rafræna fylgiseðla með lyfjum samþykkt í Strasbourg

    Rannsóknarverkefni sem tengist mögulegri innleiðingu rafrænna fylgiseðla með lyfjum hefst í aðildarríkjum Evrópuráðsins í byrjun næsta árs. Verkefninu er ætlað að sýna hvort þessi leið nýtist til að einfalda og bæta hefðbundna upplýsingagjöf um lyf gagnvart notendum. Einnig er horft til þess að með rafrænum fylgiseðlum megi auðvelda fámennum þjóðum að standa sameiginlega að útboðum og innkaupum lyfja.

    24. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fundað um fyrirkomulag sérgreinaþjónustu og næstu skref

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti hugmyndir sínar um framtíðarfyrirkomulag við kaup á þjónustu sérgreinalækna á fundi í velferðarráðuneytinu í dag. Ráðherra lýsti þar vilja sínum til að framlengja gildandi rammasamning um eitt ár meðan unnið yrði að breyttu fyrirkomulagi.

    24. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Dómur í máli sérgreinalæknis undirstrikar þörf á öðru fyrirkomulagi samninga

    Heilbrigðisráðherra mun ekki áfrýja niðurstöðu héraðsdóms í máli sérgreinalæknis varðandi aðild að rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands. Ráðherra segir niðurstöðu dómsins undirstrika nauðsyn þess að núverandi fyrirkomulag verði endurskoðað með gerð nýrra samninga á öðrum grunni. Byggja þurfi á leiðsögn Ríkisendurskoðunar um að ríkið sem greiðandi þjónustunnar skuli ávallt hafa frumkvæði að því hvaða heilbrigðisþjónusta er keypt, í hvaða magni og af hverjum.

    24. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Brugðist við röngum staðhæfingum varðandi sérgreinalækna

    Þrír læknar birta grein í Morgunblaðinu í dag þar sem þeir halda því meðal annars fram að heilbrigðisráðherra ætli sér að færa þjónustu sérgreinalækna að miklu leyti eða alfarið inn á göngudeildir sjúkrahúsa. Eftirfarandi eru athugasemdir ráðherra við megininntak greinarinnar, þar sem læknarnir fara rangt með staðreyndir.

    20. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði

    Lagt er til að heilbrigðisráðherra verði gert heimilt að setja reglugerð um gjaldtöku vísindasiðanefndar vegna umsókna um leyfi til að hefja eða breyta vísindarannsókn á heilbrigðissviði samkvæmt drögum að frumvarpi sem birt hefur verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    19. sep. 2018Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjarheilbrigðisþjónusta - í takt við nýja tíma

    september 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Fjarheilbrigðisþjónusta - í takt við nýja tíma Skýrsla og tillögur starfshóps um áframhaldandi uppbyggingu og framþróun á skipulagi og framkvæmd fjarheilbrigðisþjónustu um allt land. Fjarheilbrigðisþjónusta - Í takt við nýja tíma

    19. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur um uppbyggingu og þróun fjarheilbrigðisþjónustu

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að móta tillögur um eflingu fjarheilbrigðisþjónustu, skipulag, framkvæmd og áframhaldandi uppbyggingu á því sviði hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum. Hópurinn gerir meðal annars tillögur að nokkrum þróunarverkefnum sem ráðist verði í á næstu tveimur til þremur árum.

    18. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Endurskoðun reglugerðar til að jafna rétt barna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að láta endurskoða ákvæði reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga fyrir tannlækningar og tannréttingar barna vegna afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Ráðherra segir endurskoðun nauðsynlega þar sem gildandi reglugerðarákvæði virðist leiða til mismununar sem sé óverjandi.

    • First
    • Prev
    • 38
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband