Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 1917
    Raða eftir:
    28. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Langtímasamningur við Lýðskólann á Flateyri

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ákveðið að gera langtímasamning við Lýðskólann á Flateyri. Skólasókn hefur verið góð og námið þar gefið góða raun. „Í Lýðskólanum á Flateyri fer fram mikilvægt starf til að valdefla nemendur og auka trú þeirra á eigin getu,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, sem heimsótti skólann við skólasetningu í haust ásamt Höllu Tómasdóttur forseta Íslands. Skólinn eykur fjölbreytni í menntakerfinu og námsframboð með áherslu á verklegt og upplifunarnám. Samningurinn er gerður til þriggja ára.

    27. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Heimsótti alla framhaldsskóla landsins á innan við tveimur mánuðum

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, sótti heim Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu í liðinni viku. Lauk þar með heimsókn ráðherra í alla 27 opinberu framhaldsskóla landsins á síðustu sjö vikum. Aldrei fyrr hefur ráðherra heimsótt alla skólana á eins skömmum tíma. Markmið heimsóknanna var að ræða málefni framhaldsskóla við skólameistara og starfsfólk, sér í lagi sameiginlega stjórnsýslu á vegum nýrra svæðisskrifstofa.

    26. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Yfirlýsing vegna tilkynningar Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra um Ólympíunefndir Rússlands og Belarús

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, er meðal 34 ráðherra íþróttamála sem lýsa alvarlegum efasemdum um ákvörðun Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra (IPC) að falla frá takmörkunum á þátttöku Rússlands og Belarús á ólympíumóti fatlaðra.

    23. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Um vinnubrögð Morgunblaðsins

    Í frétt Morgunblaðsins á fimmtudag er gefið til kynna að mennta- og barnamálaráðherra hafi sagt ósatt þegar hann vitnaði í nýjar niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknirnar þess efnis að vímuefnaneysla ungmenna hefði ekki aukist. Þar með gefur fjölmiðillinn áfram til kynna að neysla hafi aukist sem er rangt á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

    21. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Rangfærslur um vímuefnaneyslu ungmenna

    Vegna misvísandi upplýsinga í fjölmiðlaumræðu um vímuefnaneyslu ungmenna þá vekur mennta- og barnamálaráðuneytið athygli á útgáfu Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrr í vikunni. Hún er ítarlegasta rannsókn sem framkvæmd er hérlendis á vímuefnaneyslu ungmenna, auk þess að rannsaka fjölda annarra þátta. Í vikunni komu fram fréttir um að unglingadrykkja hafi aukist að nýju en samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar hefur vímuefnaneysla ungmenna ekki aukist í ár eða síðustu ár. Hún hefur frekar verið að dragast saman og ef horft er lengra aftur í tímann hefur vímuefnaneysla ungmenna dregist verulega saman.

    18. nóv. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Vegna fjölmiðlaumfjöllunar um skýrslu um menntamál

    Mennta- og barnamálaráðuneytið birti frétt um útgáfu skýrslu Eurydice-samstarfs 37 Evrópuríkja um viðbrögð við minnkandi grunnfærni nemenda um miðjan október. Mánuði síðar eða í gær birti Morgunblaðið forsíðugrein þar sem gefið er til kynna að verið sé að halda aftur upplýsingum í fréttaflutningi ráðuneytisins. Í ljósi þess er vert að vekja athygli á eftirfarandi:

    18. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Farsældarráði höfuðborgarsvæðisins ýtt úr vör

    Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var formlega stofnað á föstudag. Stofnun ráðsins markar mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki sveitarfélaga og ríkisstofnana um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.

    17. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úttekt á aðgengi nemenda að hljóðbókum á Íslandi

    Nýverið skilaði ráðgjafarfyrirtækið ARCUR af sér skýrslu til mennta- og barnamálaráðherra og menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra um aðgengi nemenda að efni á hljóðbókarformi, bæði námsefni og yndislestarefni. Úttektin var samstarfsverkefni ráðuneytanna tveggja. Námsumhverfi nemenda hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og leiðir til náms og kennslu hafa orðið mun fjölbreyttari. Hluti úttektarinnar fólst í könnun meðal starfsfólks skóla þar sem það var beðið um að leggja mat á aðgengi nemenda að hljóðbókaefni.

    14. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Barnamálaráðherrar Íslands og Noregs ræða öryggi barna í stafrænum heimi

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, átti fund með Lene Vågslid, barna- og fjölskyldumálaráðherra Noregs, í gær. Á fundinum ræddu ráðherrarnir notkun barna á samfélagsmiðlum og snjalltækjum, hættur og mögulegar lausnir.

    13. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Drög að nýjum heildarlögum um barnavernd til umsagnar

    Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að nýjum heildarlögum um barnavernd. Frumvarpsdrögin eru byggð á stefnumótunarvinnu stjórnvalda sem fram hefur farið síðustu ár sem og víðtæku samráði við fagfólk í málaflokknum og börn.

    12. nóv. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 568/2025-Úrskurður

    Staðfest ákvörðun um fósturlaun

    12. nóv. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 554/2025-Úrskurður

    Umgengni. Staðfestur úrskurður umdæmisráð um umgengni kæranda við dóttur sína.

    12. nóv. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 594/2025-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráð um umgengni kæranda við börn hennar.

    12. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tölfræði íþrótta

    Íþróttaiðkun er hagsmunamál allra landsmanna. Hlutverk íþrótta í að fyrirbyggja sjúkdóma og í forvörnum er ótvírætt. Þær skapa jafnframt samstöðu og fyrirmyndir fyrir framúrskarandi árangur. Því er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir íþróttaiðkun hérlendis og fylgjast með þróuninni.

    11. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fimm hundruð milljónir til sveitarfélaga í aðgerðum gegn ofbeldi meðal barna

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur veitt 474 milljónum króna til sveitarfélaga í þágu farsældar barna með áherslu á að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi meðal barna. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum.

    08. nóv. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    ISTP 2025 – lokaskýrsla

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt lokaskýrslu um alþjóðlegan leiðtogafund um málefni kennara sem haldinn var í Reykjavík í vor. Á ISTP 2025 ræddu menntamálaráðherrar og kennaraforysta 22 ríkja menntaumbætur og lögðu fram skuldbindingar sínar fram að næsta fundi. Hann verður haldinn í Eistlandi á næsta ári.

    06. nóv. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Sprotasjóði 2025

    Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 80,8 m.kr. til 30 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2025–2026. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu í dag.

    04. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nemendum Kvikmyndaskóla Íslands boðið nám hjá Tækniskólanum

    Mennta- og barnamálaráðuneytið (MRN) hefur farið þess á leit við Tækniskólann að nemendur Kvikmyndaskóla Íslands fái boð um að innritast í skólann og ljúka námi sínu frá Tækniskólanum. Nemendur yrðu hluti af Tækniakademíu skólans, þar sem nám á fjórða hæfniþrepi fer fram en þar eru fyrir námsbrautirnar stafræn hönnun og vefþróun auk iðnmeistaranáms. Þeir nemendur sem þiggja boð um áframhaldandi nám í Tækniskólanum munu njóta stuðnings náms- og starfsráðgjafa og stjórnenda skólans við yfirfærsluna og öll stoðþjónusta skólans stendur nemendum til boða. Með þessum aðgerðum er verið að koma til móts við þá nemendur, sem ella hefðu ekki kost á að ljúka námi sínu frá Kvikmyndaskóla Íslands, með það að markmiði að mennta þau til brautskráningar í sínu fagi.

    02. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Saman gegn fordómum - nýtt verkfæri

    Mennta- og barnamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu kynna til leiks vefinn Saman gegn fordómum sem opnaði formlega fyrr í dag. Hlutverk hans er að fræða og vekja athygli á fordómum og hatursorðræðu í samfélaginu. Vefurinn býður upp á fjölbreytta fræðslu og verkfæri sem ætlað er að stuðla að aukinni vitund og skilningi meðal almennings.

    31. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fleiri farsældarráð taka til starfa

    Farsældarráð Norðurlands eystra var stofnað við hátíðlega athöfn á Akureyri í gær. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, flutti ávarp í tilefni af viðburðinum að viðstöddum bæjar- og sveitarstjórum, stjórnendum ríkisstofnana og annarra lykilþjónustuveitenda í málefnum barna í landshlutanum. Farsældarráð Norðurlands eystra er hið þriðja í röðinni á eftir Farsældarráði Vesturlands sem stofnað var í byrjun mánaðar og Farsældarráði Suðurnesja sem tók til starfa í sumar.

    24. okt. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ný skýrsla Eurydice skoðar áherslu á nýsköpun og frumkvöðlamenntun í menntakerfum Evrópu

    Skýrsla Eurydice-samstarfsins um nýsköpun og frumkvöðlamenntun í skólum: Entrepreneurship education at school in Europe 2025 kom út í gær. Skýrslan (setja hlekk hér) greinir sex lykilþætti er tengjast nýsköpun og frumkvöðlamenntun í 36 þátttökuríkjum og gefur yfirlit yfir ráðstafanir yfirvalda til að efla slíka menntun í skólum.

    20. okt. 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Dagur náms- og starfsráðgjafar – faglegur stuðningur til farsældar og framtíðar

    Í dag er dagur náms- og starfsráðgjafar haldinn hátíðlegur í nítjánda sinn. Af því tilefni vill mennta- og barnamálaráðuneytið vekja athygli á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar sem lykilþáttar í menntakerfinu, bæði fyrir farsæld einstaklinga og samfélagsins.

    20. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ný stöðutaka undirstrikar þörf á bættri þjónustu og vernd fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis

    Ný stöðutaka aðgerðahóps stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum sýnir að á undanförnum árum hefur orðið veruleg vitundarvakning í íslensku samfélagi um ofbeldi gegn börnum. Í þessari stöðutöku er sjónum beint að börnum sem eru þolendur ofbeldis, en síðasta stöðutaka aðgerðahópsins fjallaði um börn sem sýna áhættuhegðun eða beita ofbeldi.

    18. okt. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf og nýsköpun í tungumálakennslu

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, afhenti verðlaun Erasmus+ fyrir framúrskarandi skólastarf og fyrir nýsköpun í tungumálakennslu á Nauthóli í vikunni.

    17. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkir til flugskóla vegna reksturs bóklegs hluta samtvinnaðs atvinnuflugmannsnáms

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til reksturs bóklegs hluta samtvinnaðs atvinnuflugmannsnáms. Markmið styrkjanna er að styðja við atvinnuflugmannsnám á Íslandi.

    17. okt. 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ný gæðaviðmið fyrir innra og ytra mat í framhaldsskólum

    Gefin hafa verið út ný gæðaviðmið fyrir innra og ytra mat í framhaldsskólum. Ný viðmið eru liður í heildarendurskoðun mennta- og barnamálaráðuneytisins á framkvæmd innra og ytra mats í leik-, grunn- og framhaldsskólum og menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Ytra mat á framhaldsskólum á grundvelli nýrra gæðaviðmiða hófst í vikunni.

    16. okt. 2025Alþjóðamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Skýrsla Eurydice um viðbrögð við minnkandi grunnfærni nemenda

    Skýrsla Eurydice um viðbrögð í menntakerfum Evrópu frá árinu 2020 við minnkandi grunnfærni nemenda hvað varðar læsi, stærðfræði og náttúruvísindi kom út í dag.

    16. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum í menntarannsóknarsjóð 2025

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr menntarannsóknasjóði. Umsóknarfrestur rennur út 21. nóvember nk. kl. 15:00.

    15. okt. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 457/2025-Úrskurður

    Kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

    14. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Frá orðum til aðgerða – saman tryggjum við öryggi barna

    Starfsfólk víðs vegar að úr forvörnum og þjónustu við börn kom saman á vinnufundi um samræmd viðbrögð við ofbeldi meðal barna í gær á Reykjavík Natura. Fundurinn var fjölsóttur með um 320 þátttakendum og markaði hann mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum.

    13. okt. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 513/2025-Úrskurður

    Kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

    13. okt. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 484/2025-Úrskurður

    Felld úr gildi ákvörðun barnaverndarþjónustu um loka máli sonar kæranda.

    13. okt. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 467/2025-Úrskurður

    Kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

    13. okt. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 439/2025-Úrskurður

    Felld úr gildi ákvörðun barnaverndarþjónustu um loka máli dóttur kæranda.

    13. okt. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samráðsferli um eflingu framhaldsskóla hafið

    Mennta- og barnamálaráðuneytið boðaði nýverið samráð um nýtt skipulag fyrir opinbera framhaldsskóla. Markmið breytinganna er að styrkja framhaldsskólastigið, efla starf skólanna og þjónustu við nemendur.

    11. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fyrsta ungmennastefna Íslands væntanleg

    Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður og þingflokksformaður Samfylkingarinnar, mun leiða stýrihóp mennta- og barnamálaráðuneytisins um mótun fyrstu ungmennastefnu Íslands. Markmið hennar er að sameina ólík stefnumál sem snerta ungt fólk og tryggja aukna þátttöku ungs fólks í stefnumótun.

    06. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Byggt við fimm verknámsskóla

    Ríkisstjórn Íslands leggur áherslu á eflingu iðn- og verknáms um land allt. Viðbygging við fimm verknámsskóla víðs vegar um landið er mikilvægur liður í þessu. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í vetur að loknu útboði.

    02. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Aukin þátttaka fatlaðra í íþrótta- og afreksstarfi

    Samningur um áframhaldandi stuðning við Íþróttasamband fatlaðra var undirritaður í mennta- og barnamálaráðuneytinu í dag. Markmið samningsins er að auka þátttöku fatlaðra í íþróttastarfi.

    02. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samningur við Skáksamband Íslands 2025–2027

    Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag samning til þriggja ára við Skáksamband Íslands. Markmið samningsins er að efla starfsemi Skáksambands Íslands og skákiðkun með fjölgun iðkenda í skák.

    01. okt. 2025Innflytjendur, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fræðslufundur: Hvernig stuðlum við að inngildandi samfélagi fyrir börn og fjölskyldur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn?

    Mennta- og barnamálaráðuneytið vekur athygli á fræðslufundi um hvernig við stuðlum að inngildandi samfélagi fyrir börn og fjölskyldur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, þriðjudaginn 21. janúar kl. 10:00-11:30. Barna- og fjölskyldustofa stendur að fundinum í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og er hann haldinn á Teams.

    24. sep. 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tengjumst í leik – foreldrar 300 barna efla samskipti í haust

    Tengjumst í leik foreldranámskeið á vegum Föruneytis barna hefjast í leik- og grunnskólum þessar fyrstu haustvikur í þriðja sinn. Foreldrar og forsjáraðilar um 300 barna víðsvegar um landið taka þátt og markar þessi umfangsmikla þátttaka mikilvægt skref í átt að bættri farsæld barna um land allt. Á námskeiðinu læra þátttakendur gagnreyndar aðferðir til að styrkja jákvæð samskipti, byggja upp traust tengsl og efla vellíðan í fjölskyldunni.

    23. sep. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 391/2025-Úrskurður

    Staðfest ákvörðun barnaverndarþjónustu um fjárstyrk til greiðslu lögmannskostnaðar.

    18. sep. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Guðjón Ragnar Jónasson skipaður skólameistari Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Guðjón Ragnar Jónasson í embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu til fimm ára frá 1. nóvember næstkomandi.

    17. sep. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Skipulagsbreyting á framhaldsskólastigi – sameiginleg stjórnsýsla, sjálfstæðir framhaldsskólar

    Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir í dag áform um nýtt skipulag fyrir opinbera framhaldsskóla. Áformin miða að því að efla stuðning við framhaldsskóla, starf þeirra og þjónustu við nemendur. Næsta skref er að eiga samráð við skólameistara, kennara, starfsfólk, nemendur og nærsamfélag skóla við mótun skipulagsins.

    12. sep. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tímabundið veikindaleyfi ráðherra

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, fer í tímabundið veikindaleyfi frá og með deginum í dag.

    11. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fatlað fólk, Heilbrigðisráðuneytið

    Allir með: Áframhaldandi stuðningur við verkefni sem eykur þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ætla að veita 60 milljónum króna til að auka þátttöku og virkni fatlaðs fólks í íþróttastarfi, einkum fatlaðra barna og ungmenna. Verkefnið er liður í að ná markmiðum 30. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fjallar meðal annars um þátttöku fatlaðs fólks í íþróttum.

    11. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fatlað fólk, Heilbrigðisráðuneytið

    Allir með: Áframhaldandi stuðningur við verkefni sem eykur þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ætla að veita 60 milljónum króna til að auka þátttöku og virkni fatlaðs fólks í íþróttastarfi, einkum fatlaðra barna og ungmenna. Verkefnið er liður í að ná markmiðum 30. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fjallar meðal annars um þátttöku fatlaðs fólks í íþróttum.

    10. sep. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ráðherra skipar Sigurbjörgu Fjölnisdóttur í embætti forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Sigurbjörgu Fjölnisdóttur í embætti forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar til fimm ára frá 1. desember næstkomandi.

    10. sep. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Kristján Arnar Ingason skipaður í embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Kristján Arnar Ingason í embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ til fimm ára frá 1. desember næstkomandi.

    09. sep. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    OECD: Ísland þarf að styrkja fjármögnun háskólastigsins – skýrsla Education at a Glance 2025

    Alþjóðleg skýrsla Efnahags og framfarastofnunarinnar, OECD, Education at a Glance 2025, var birt í dag. Skýrslan kemur út árlega en í ár er sjónum sérstaklega beint að háskólastiginu. Niðurstöður skýrslunnar gefa mikilvægar vísbendingar um stöðu íslensks háskólakerfis í alþjóðlegum samanburði.

    • First
    • Prev
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband