Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2051–2100 af 3602
    Raða eftir:
    04. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Opið þing um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum 9. desember

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra boðar til vefþings og samráðs um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Ráðstefnan hefst kl. 9.00 með opnunarávarpi ráðherra. Síðan taka við stutt erindi leik- og fagmanna um efnið sem lýkur með pallborðsumræðum. Þeir sem fylgjast með þinginu geta tekið þátt í umræðum og komið spurningum á framfæri í gegnum forritið Slido.

    03. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Helstu staðreyndir um bóluefni hér á landi

    Skrifað verður undir samning Íslands við framleiðanda bóluefnis Pfizer í næstu viku um kaup á bóluefni sem dugar fyrir 85.000 einstaklinga. Vonir standa til að Pfizer fái skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu 29. desember þegar fjallað verður um hvort stofnunin geti mælt með því að lyfið verði tekið í notkun. Ísland hefur þegar gert samning við fyrirtækið AstraZeneca um kaup á bóluefni sem dugir fyrir 115.000 einstaklinga. Það bóluefni er heldur ekki komið með markaðsleyfi í Evrópu en gert ráð fyrir að Lyfjastofnun Evrópu ljúki umfjöllun sinni um í janúar og þann 12. janúar verður fjallað um markaðsleyfi fyrir Moderna.

    03. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýtt hjúkrunarheimili fyrir 60 íbúa á Akureyri

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar hafa undirritað samning um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9 á Akureyri. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er um þrír milljarðar króna sem skiptist þannig að 85% greiðast úr ríkissjóði en Akureyrarbær greiðir 15%. Áætlað er að heimilið verði tilbúið til notkunar í lok árs 2023. Þar með verða hjúkrunarrými á Akureyri rúmlega 230 en þau eru núna um 170.

    03. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Evrópskt markaðsleyfi fyrir bóluefni gegn COVID-19 í sjónmáli

    Lyfjastofnun Evrópu hafa borist umsóknir um skilyrt markaðsleyfi fyrir tvö bóluefni við COVID-19. Þetta er annars vegar bóluefni þróað af BioNTech og Pfizer og hins vegar bóluefni sem Moderna Biotech hefur þróað. Stofnunin mun beita flýtimati á umsóknirnar. Niðurstaða gæti legið fyrir innan nokkurra vikna, en það fer eftir því hvort gögnin sem berast sýna með fullnægjandi hætti fram á gæði, öryggi og virkni bóluefnanna. Reynist gögnin fullnægjandi er gert ráð fyrir að endanlegt mat liggi fyrir varðandi bóluefni BioNTech og Pfizer í síðasta lagi 29. desember og 12. janúar fyrir bóluefni Moderna. Ýtarlega er fjallað um málið á vef Lyfjastofnunar.

    02. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stofnað verði landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu

    Hafinn er undirbúningur að gerð þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um stofnun landsráðs sem verður ráðgefandi vettvangur um mönnun heilbrigðisþjónustunnar og menntun heilbrigðisstétta. Markmiðið er að tryggja til framtíðar nægan fjölda hæfs starfsfólks og að menntun þess fullnægi þörfum heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallaði um þetta í ávarpi á nýafstöðnu heilbrigðisþingi þar sem mönnun, menntun og nýsköpun í heilbrigðisþjónstu var meginumfjöllunarefnið.

    01. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    COVID 19: Gjaldfrjáls sýnataka á landamærum frá 1. desember

    Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um að sýnataka á landamærum vegna COVID-19 skuli vera gjaldfrjáls tók gildi í dag og gildir til 31. janúar næstkomandi. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Markmiðið er að hvetja fólk til að fara í sýnatöku fremur en að fara í sóttkví og draga þannig úr líkum á að smit berist inn í landið.

    01. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Frumvarp um bótarétt vegna bólusetningar

    Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um sjúklingatryggingu sem hefur að markmiði að styrkja réttarstöðu fólks vegna bólusetningar við COVID-19. Með frumvarpinu er kveðið á um bótarétt komi til þess að einstaklingur verði fyrir tjóni sem hlýst af eiginleikum bóluefnisins eða rangri með­höndlun þess, þar með talið við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu af hálfu heil­brigðisstarfsmanns þrátt fyrir að öllum reglum og góðum framleiðsluháttum hafi verið fylgt við þróun og framleiðslu viðkomandi bóluefnis. Með fyrirhugaðri lagabreytingu verður réttarstaða fólks hér á landi sambærileg því sem er í Danmörku og Noregi.

    01. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir til 9. desember

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi óbreyttar til 9. desember næstkomandi. Þetta er gert í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis sem ræður gegn því að slaka á sóttvörnum núna vegna þess hvernig faraldurinn hefur þróast síðustu daga.

    30. nóv. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ávarp ráðherra á heilbrigðisþingi 2020

    30 nóvember 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Ávarp ráðherra á heilbrigðisþingi 2020 Mynd: Heilbrigðisráðuneyti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á heilbrigðisþingi 2020 Komið þið sæl Velkomin á heilbrigðisþing, sem að þessu sinni er haldið við mjög óvenjulegar aðstæður. Covid-19 faraldurinn gerir okkur því miður ekki kleift að hittast með venjulegum hætti. Við höfum þegar frestað þinginu einu sinni í þeirri von að aðstæður myndu lagast og þótt faraldurinn sé nú í rénun hér á landi er útséð um það að fjölmennar samkomur verði haldnar hér á landi í náinni framtíð

    30. nóv. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisþing 2020

    30 nóvember 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Heilbrigðisþing 2020 Mynd: Heilbrigðisráðuneyti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á heilbrigðisþingi 2020 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Í gær, þann 27. nóvember, boðaði ég til rafræns heilbrigðisþings. Þema þingsins var mönnun og menntun í heilbrigðiskerfinu, með áherslu á tækni og nýsköpun, en þingið í ár er þriðja heilbrigðisþingið sem ég boða til í ráðherratíð minni sem heilbrigðisráðherra

    27. nóv. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 25/2020

    Heilbrigðisráðuneytið ákvað með vísan til erindis umboðsmanns Alþingis, dags. 2. október 2018, um kvörtun vegna synjunar ráðuneytisins, dags. 10. júlí 2018, á umsókn A um löggildingu sem heilbrigðisstétt, að endurupptaka mál félagsins. Ráðuneytið sendi Umboðsmanni Alþingis bréf, dags. 31. október 2018, þar sem ráðuneytið tilkynnti um ákvörðun sína.

    27. nóv. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 26/2020

    Heilbrigðisráðuneytið ákvað með vísan til erindis umboðsmanns Alþingis, dags. 2. október 2018, um kvörtun vegna synjunar ráðuneytisins, dags. 10. júlí 2018, á umsókn A á Íslandi um löggildingu sem heilbrigðisstétt, að endurupptaka mál félagsins. Ráðuneytið sendi Umboðsmanni Alþingis bréf, dags. 31. október 2018, þar sem ráðuneytið tilkynnti um ákvörðun sína.

    27. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Forgangsröðun vegna bólusetningar

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna COVID-19. Tilgangur reglugerðarinnar er að ákveða forgangsröðunina á grundvelli málefnalegra sjónarmiða og með eins miklum fyrirsjáanleika og mögulegt er.

    26. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Beint frá heilbrigðisþingi á www.heilbrigdisthing.is - 27. nóvember kl. 8.30

    Allir sem áhuga hafa geta fylgst með vefútsendingu frá heilbrigðisþingi 2020, föstudaginn 27. nóvember, með því að skrá sig til þátttöku á www.heilbrigdisthing.is. Þingið sem fjallar um mönnun, menntun og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu hefst kl. 8.30 með ávarpi heilbrigðisráðherra Svandísar Svavarsdóttur. Dagskrá og upplýsingar um fyrirlesara og pallborðsumræður eru á vef þingsins sem lýkur kl. 12.20. Um 500 manns hafa skráð þátttöku sína.

    26. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Viðmið um skipulag stærri heilsugæslustöðva

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með viðmið um skipulag stærri heilsugæslustöðva, húsnæði þeirra og starfsemi. Viðmiðin verða lögð til grundvallar við frumathuganir og húsrýmisáætlanir þessara stofnana. Viðmiðin taka til heilsugæslustöðva sem þjóna 10.000 manns eða fleirum en geta einnig verið gagnleg til hliðsjónar þótt um minni heilsugæslustöðvar sé að ræða.

    26. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ákvörðun um skimun fyrir krabbameinum

    Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögur landlæknis varðandi fyrirkomulag skimana fyrir krabbameini í brjóstum, leghálsi, ristli og endaþarmi. Tillögurnar eru í samræmi við álit skimunarráðs þessa efnis. Eins og áður hefur verið sagt frá verða jafnframt breytingar á framkvæmd skimana um áramótin þegar heilsugæslan tekur við framkvæmd skimana fyrir krabbameinum í leghálsi og Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri framkvæmd skimana fyrir krabbameini í brjóstum.

    26. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Heilbrigðisráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.

    23. nóv. 2020Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    4,1 milljarður í aukningu til reksturs Landspítala

    Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs verður aðhaldskrafa á allar heilbrigðisstofnanir landsins 0,5%. Hjá Landspítala nemur þessi krafa um 400 milljónum króna. Heildarframlög til reksturs spítalans árið 2021 verða 77,9 milljarðar króna sem er hækkun um 4,1 milljarð króna frá þessu ári.

    20. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Frumvarp til breytinga á sóttvarnalögum lagt fyrir Alþingi á næstunni

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að skýra ákvæði laga um opinberar sóttvarnaráðstafanir í ljósi fenginnar reynslu af COVID-19 heimsfaraldrinum hefur lokið störfum og skilað ráðherra drögum að frumvarpi til breytinga á lögum um sóttvarnir. Heilbrigðisráðherra kynnti frumvarpið fyrir ríkisstjórn í liðinni viku og leggur það fyrir Alþingi á næstunni.

    20. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aukið svigrúm til kennslu í tónlistarskólum

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að draga úr takmörkun á skólastarfi í tónlistarskólum og auka þannig svigrúm til tónlistarkennslu. Tónlistarskólum verður heimilt að sinna einstaklingskennslu en halda skal 2 metra reglu milli starfsfólks og nemenda. Hámarksfjöldi verður sambærilegur og í grunnskólum; 25 hjá eldri nemendunum, þ.e. í 8.–10. bekk en 50 hjá yngri nemendum. Tveggja metra reglan gildir um nemendur í 8.–10. bekk en ef víkja þarf frá henni skulu notaðar andlitsgrímur.

    20. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Óbreytt fyrirkomulag á landamærum til 1. febrúar

    Sóttvarnaráðstöfunum á landamærum Íslands verður fram haldið í óbreyttri mynd þar til 1. febrúar á næsta ári. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnar í morgun. Þar var ennfremur tekin sú ákvörðun að frá og með 10. desember verði vottorð um að fólk hafi fengið COVID-19 og að sýking sé afstaðin tekin gild og veiti undanþágu frá þeim kröfum sem annars eru gerðar.

    20. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Breytt fyrirkomulag krabbameinsskimana frá 1. janúar 2021

    Breytingar verða á skipulagi, stjórn og framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum um næstu áramót. Landspítali í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri tekur þá að sér framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum í brjóstum og heilsugæslan um allt land framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum í leghálsi. Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur annast þetta verkefni um áratuga skeið og unnið mikilvægt brautryðjandastarf í baráttunni við krabbamein hér á landi. Markmið breytinganna er að færa verklag nær því skipulagi sem mælt er með í alþjóðlegum skimunarleiðbeiningum til að tryggja enn frekar öryggi og gæði og er jafnframt í samræmi við framtíðarsýn og meginmarkmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030.…

    19. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Vöktun áhrifa COVID-19 á lýðheilsu og geðheilbrigði landsmanna

    Svandís Svavarsdóttir hefur ákveðið að skipa tvo stýrihópa til að vakta óbein áhrif COVID-19, annars vegar á lýðheilsu og hins vegar á geðheilsu landsmanna. Þetta er gert í samræmi við tillögu landlæknis þessa efnis, þar sem líklegt er talið að óbein áhrif COVID-19 faraldursins og íþyngjandi sóttvarnaaðgerða geti verið margþætt og komi að einhverju leyti ekki fram fyrr en eftir langan tíma.

    19. nóv. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Um farsóttarþreytu

    19 nóvember 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Um farsóttarþreytu Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Þegar við heyrðum fyrst af nýju afbrigði kórónaveiru um eða rétt eftir síðustu áramót, sáum við líklega fæst fyrir okkur að í nóvember 2020 hefðu aðgerðir yfirvalda til að sporna við dreifingu veirunnar enn afgerandi áhrif á okkar daglega líf. Eftir því sem á líður heimsfaraldur upplifir almenningur sóttvarnaraðgerðir yfirvalda smám saman meira íþyngjandi og smám saman minnkar áhugi fólks á að fylgja sóttvarnarleiðbeiningum. Þessu samfélagsástandi má lýsa með einu orði; farsóttarþreyta

    19. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heimildir til hjálpartækjakaupa vegna tiltekinna ólæknandi sjúkdóma verða ævilangar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að Sjúkratryggingum Íslands sé heimilt að ákveða að innkaupaheimildir gildi ótímabundið fyrir einstaklinga með ævilangt sjúkdómsástand, eins og t.d. fyrir einstaklinga með sykursýki 1. Þessi heimild var aðeins gefin út með 5 – 10 ára gildistíma en nú er búið að breyta til hagræðis fyrir alla sem hlut eiga að máli. Reglugerð ráðherra þessa efnis hefur tekið gildi.

    18. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Starfshópur um langvinna verki

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að afla upplýsinga um fjölda, aldur og kyn þeirra sem eiga við langvinna verki að stríða, kortleggja þær meðferðir sem standa til boða og hvar slík meðferð er veitt. Hópurinn á jafnframt að gera tillögur að úrbótum þjónustu við þennan hóp, m.a. með skipulagi sem auðveldar aðgengi fólks að þjónustunni og einfaldar ferli sjúklinga með langvinna verki innan heilbrigðiskerfisins.

    17. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Landsráð

    Heilbrigðisþing um menntun, mönnun og nýsköpun 27. nóvember

    Mönnun, menntun og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu er viðfangsefni heilbrigðisþings 2020. Þingið er liður í vinnu við gerð þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um stofnun sérstaks ráðs á landsvísu um þessi mál. Þingið verður rafrænt og stendur frá kl. 8.30–12.00. Skráning þátttöku fer fram á vefnum heilbrigdisthing.is og þar eru jafnframt upplýsingar um fyrirlesara og aðgengilegar skýrslur sem varða efni þingsins.

    17. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Sýnataka á landamærum gjaldfrjáls tímabundið

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að sýnataka á landamærum verði gjaldfrjáls frá 1. desember næstkomandi til 31. janúar 2021. Ákvörðunin er tekin í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Markmiðið er að hvetja fólk til að fara í sýnatöku fremur en að fara í sóttkví og draga þannig úr líkum á að smit berist inn í landið. Fjallað var um málið á fundi ríkisstjórnar í dag.

    16. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Grímuskylda afnumin í 5. – 7. bekk grunnskóla

    Börn í 5. – 7. bekk grunnskóla verða undanþegin grímuskyldu og 2 metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn. Grímuskylda kennara gagnvart þessum börnum verður einnig afnumin. Skýrt verður kveðið á um að á útisvæðum leik- og grunnskóla séu engar kröfur sem hindra blöndun hópa, né kröfur varðandi fjöldatakmarkanir, nálægðartakmarkanir eða grímunotkun. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þetta í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Reglugerðarbreyting þessa efnis verður birt í Stjórnartíðindum á morgun.

    13. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Dregið úr samkomutakmörkunum 18. nóvember

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum. Breytingarnar taka gildi 18. nóvember. Þær eru helstar að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný. Í framhaldsskólum verða fjöldamörk aukin í 25. Hægt verður að hefja ýmsa þjónustustarfsemi sem krefst snertingar eða mikillar nándar. Almennar fjöldatakmarkanir miðast áfram við 10 manns. Gert er ráð fyrir að hægt verði að draga enn frekar úr samkomutakmörkunum í byrjun desember. ​

    11. nóv. 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um beitingu efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu: Útfærslur starfshóps á innleiðingu

    nóvember 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun um beitingu efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu: Útfærslur starfshóps á innleiðingu Aðgerðaáætlun um beitingu efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu: Útfærslur starfshóps á innleiðingu

    11. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stuðlað verði að hollari neysluvenjum með efnahagslegum hvötum

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur að leiðum til að innleiða aðgerðaáætlun embættis landlæknis til að draga úr sykurneyslu landsmanna hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum. Lagt er til að beitt verði efnahagslegum hvötum til að stuðla að hollari neysluvenjum, draga úr sykurneyslu og hvetja til aukinnar neyslu grænmetis og ávaxta. Þetta er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að skoða möguleika þess að beita efnahagslegum hvötum til að efla lýðheilsu.

    11. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    COVID-19: Aðgengi Íslands að bóluefni Pfizer tryggt

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirritaði í dag samning við lyfjafyrirtækið Pfizer um kaup á 200 milljónum skammta af bóluefni fyrirtækisins við COVID-19 með möguleika á 100 milljón skömmtum til viðbótar. Íslandi er tryggður sami aðgangur að bóluefnum sem Evrópusambandið semur um og aðildarríkjum sambandsins.

    10. nóv. 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aukin framleiðni og gæði heilbrigðisþjónustu með nýju fjármögnunarkerfi og leiðbeinandi viðmiðum

    nóvember 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Aukin framleiðni og gæði heilbrigðisþjónustu með nýju fjármögnunarkerfi og leiðbeinandi viðmiðum Aukin framleiðni og gæði heilbrigðisþjónustu með nýju fjármögnunarkerfi og leiðbeinandi viðmiðum

    10. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla um aukna framleiðni og gæði heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisráðuneytið kynnir nýja skýrslu sem fjallar um innleiðingu á nýju fjármögnunarkerfi heilbrigðisþjónustu og notkun leiðbeinandi viðmiða til að auka framleiðni og gæði. Byggt er á viðamikilli greiningu á mönnun og framleiðni heilbrigðisþjónustunnar hér á landi í erlendum samanburði sem fyrirtækið McKinsey gerði fyrir ráðuneytið og nær til stærstu heilbrigðisstofnananna í landinu. Heilbrigðisráðherra fundaði með forstjórum stofnananna um skýrsluna í dag þar sem rætt var um hvernig best megi nýta niðurstöðurnar og hrinda ákvörðun um breytta fjármögnun heilbrigðiskerfisins í framkvæmd.

    10. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Valkvæðar aðgerðir heimilaðar á ný

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um að fella úr gildi auglýsingu um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða. Ákvörðunin tekur gildi á morgun. Auglýsing heilbrigðisráðherra þessa efnis ásamt fyrirmælum landlæknis hefur verið send til birtingar í Stjórnartíðindum.

    10. nóv. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Aukum geðheilbrigði

    Svandís Svavarsdóttir skrifar um geðheilbrigðisþjónustu, áherslur sínar í þeim efnum og helstu aðgerðir til að efla þjónustuna á síðustu misserum, í grein í Morgunblaðinu í dag. Ráðherra vísar í áskorun Geðhjálpar til stjórnvalda og samfélagsins all um að setja geðheilsu í forgang. „Ég fagna átaki Geðhjálp­ar og tek und­ir mik­il­vægi þess að við höld­um áfram að styrkja geðheil­brigðisþjón­ust­una hér­lend­is. Ég mun halda því áfram" segir ráðherra m.a. í grein sinni.

    10. nóv. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Aukum geðheilbrigði

    Svandís Svavarsdóttir skrifar um geðheilbrigðisþjónustu, áherslur sínar í þeim efnum og helstu aðgerðir til að efla þjónustuna á síðustu misserum, í grein í Morgunblaðinu í dag. Ráðherra vísar í áskorun Geðhjálpar til stjórnvalda og samfélagsins all um að setja geðheilsu í forgang. „Ég fagna átaki Geðhjálp­ar og tek und­ir mik­il­vægi þess að við höld­um áfram að styrkja geðheil­brigðisþjón­ust­una hér­lend­is. Ég mun halda því áfram" segir ráðherra m.a. í grein sinni.

    06. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Líknarrýmum fjölgað á líknardeild Landspítala í Kópavogi

    Heilbrigðisráðherra hefur tryggt Landspítala aukið fjármagn til að fjölga líknarrýmum við líknardeildina í Kópavogi úr 12 í 16. Ákvörðunin er liður í aðgerðum til að létta álagi af bráðamóttöku Landspítala og bæta um leið aðbúnað og þjónustu við sjúklinga með sjúkdóma á lokastigi. Áætlaður kostnaður vegna þessa nemur rúmum 100 milljónum króna á ári.

    06. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Um bætur til hjúkrunarheimila vegna COVID-19 kostnaðar

    Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu halda því ítrekað fram að stjórnvöld hyggist ekki ætla að bæta hjúkrunarheimilum aukinn kostnað sem rekja megi til COVID-19 faraldursins, síðast í Morgunblaðinu í dag. Þetta gera þau þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um annað. Sjúkratryggingar Íslands hafa óskað eftir gögnum frá hjúkrunarheimilum þar sem sýnt er fram á hve hár þessi kostnaður er og í hverju hann er fólginn og stendur sú vinna enn yfir. Þá hefur heilbrigðisráðuneytið óskað eftir fjárveitingu á fjáraukalögum til að koma til móts við heimilin og er stefnt að slíku uppgjöri þegar rekstrarniðurstöður ársins liggja betur fyrir. Þegar fullnægjandi upplýsingar frá hjúkrunarheimilunum liggja fyrir munu Sjúkratryggingar Íslands meta gögnin og afgreiða.

    06. nóv. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Tryggja þolendum ofbeldis aðstoð

    Markmiðið að tryggja þolendum, aðstandendum og gerendum ofbeldis fjölbreyttar leiðir til að leita aðstoðar.

    05. nóv. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samið um rekstur sérhæfðrar COVID-19 hjúkrunardeildar

    Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Hlíðarskjól ehf. um opnun 10 rýma hjúkrunardeildar fyrir aldraða hjúkrunarsjúklinga sem smitast hafa af COVID-19. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn. Deildin er ætluð íbúum hjúkrunarheimila sem veikst hafa af COVID-19 og þurfa tímabundið á sérhæfðri þjónustu að halda svo sem í framhaldi af sjúkrahúsmeðferð.

    05. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sérnámsstöðum í geðlækningum fjölgað

    Heilbrigðisráðherra hefur lagt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) til 23 milljóna króna fjárveitingu til að fjölga sérnámsstöðum í geðlækningum. Þetta gerir kleift að fjármagna stöður tveggja sérnámslækna við geðheilsuteymi heilsugæslunnar. Undanfarin tvö ár hefur rík áhersla verið lögð á að efla annars stigs geðheilbrigðisþjónustu, meðal annars með stofnun geðheilsuteyma í öllum heilbrigðisumdæmum landsins, sérstöku geðheilsuteymi fanga og geðheilsuteymi í fjölskylduvernd sem starfar á landsvísu líkt og geðheilsuteymi fanga, undir stjórn HH.

    05. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Áform um lagasetningu – réttindi sjúklinga (þvinguð meðferð o.fl.)

    Áform heilbrigðisráðherra um breytingar á lögum um réttindi sjúklinga hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt. Markmið frumvarpsins er að tryggja fullnægjandi lagaheimildir til að taka ákvarðanir gagnvart frelsissviptum sjúklingum á heilbrigðisstofnunum og tryggja réttindi sjúklinga, m.a. með því að skýrt sé kveðið á um að þvingunum sé ekki beitt nema í algerum undantekningartilvikum, að meðalhófs verði gætt og ​að eftirlit verði með beitingu þeirra.

    04. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frá fréttafundi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar 2. nóvember um COVID-19

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) heldur reglulega fréttafundi þar sem fjallað er COVID-19 heimsfaraldurinn. Upptökur frá fréttafundum WHO eru aðgengilegar á vef stofnunarinnar og einnig er hægt að fylgjast með fundunum í beinni útsendingu. Hér á eftir stutt samantekt frá síðasta fundi sem haldinn var 2. nóvember síðastliðinn.

    04. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bætt aðgengi íbúa Austurlands að þjónustu sérgreinalækna

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Heilbrigðisstofnun Austurlands varanlegt aukið fjármagn til að tryggja áframhaldandi þjónustu sérgreinalækna við íbúa heilbrigðisumdæmisins með samningum við Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítala. Verkefnið hófst sem tilraunaverkefni í fyrra með samningum um þjónustu bæklunarlækna og þvagfæraskurðlækna. Á 12 mánaða tímabili sinntu læknarnir um 850 komum hjá einstaklingum sem annars hefðu þurft að sækja þjónustuna til Akureyrar eða Reykjavíkur.

    03. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Reglugerðarbreyting varðandi fjölda viðskiptavina í verslunum

    Heimilt er að hafa allt að 50 viðskiptavini í einu inni í lyfja- og matvöruverslunum og allt að 10 viðskiptavini samtímis í öðrum verslunum, að því gefnu að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Um starfsmenn í þessum verslunum gildir að þeir mega ekki vera fleiri en 10 í sama rými og samgangur á milli rýma starfsmanna er óheimill. Öllum er skylt að bera andlitsgrímu í verslunum. Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt breytingu á reglugerð um takmarkanir á samkomum þar sem fjöldatakmörk í verslunum eru skýrð.

    03. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Nýr vefur Lyfjastofnunar tekinn í notkun

    Lyfjastofnun hefur ​opnað nýjan vef með breyttu sniði. Hönnun vefsins byggist á þarfagreiningu sem gerð var meðal hagsmunaaðila og helstu notenda vefsins. Í tilkynningu á nýjum vef stofnunarinnar sem er 20 ára um þessar mundir, kemur fram að vefurinn sé mikilvægt samskiptatól fyrir stofnunina og mikið notaður af heilbrigðisstarfsfólki og starfsfólki apótaka. Hann nýtist m.a. vel við miðlun mikilvægra upplýsinga sem stöðugt þarf að uppfæra, eins og t.d. upplýsingar um lyfjaskort.

    02. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið um áframhaldandi þjónustu geðheilsuteymis fanga

    Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) hafa gert með sér samkomulag um að HH sinni áfram geðheilbrigðisþjónustu við fanga í öllum fangelsum landsins. Gjörbreytt fyrirkomulag geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum landsins með stofnun sérstaks geðheilsuteymis varð að veruleika í fyrra og markaði tímamót. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samkomulag SÍ og HH sem felur í sér samning um óbreytta þjónustu til loka árs 2021.

    02. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyttar reglur: Börn fædd 2011 eða síðar þurfa ekki að bera grímu

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem felur í sér að börn fædd 2011 eða síðar þurfa ekki að bera grímu. Breytingin er gerð í samráði við sóttvarnalækni. Með reglugerðarbreytingunni er jafnframt kveðið á um að spilakassar eigi að vera lokaðir líkt og spilasalir og er það í samræmi við minnisblað sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra frá 29. október. Reglugerðin verður birt í Stjórnartíðindum í dag og tekur þegar gildi.

    • First
    • Prev
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • 44
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband