Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2101–2150 af 3602
    Raða eftir:
    01. nóv. 2020Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Takmörkun á skólastarfi frá 3. nóvember

    Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða tekur gildi 3. nóvember. Sett er það markmið að sem minnst röskun verði á skólastarfi og að starf á leikskólastigi og á fyrsta stigi grunnskóla verði óskert. Að ráði sóttvarnalæknis verður reglu um grímuskyldu breytt þannig að hún eigi ekki við um börn fædd 2011 og síðar.

    30. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breyttar reglur um greiðslur fyrir þjónustu sjúkraþjálfara

    Heilbrigðisráðherra hefur framlengt til 31. desember næstkomandi reglugerð um greiðslur fyrir þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Einnig er gerð sú breyting frá gildandi reglugerð að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna meðferðar verður alfarið bundin því að fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni eða sjúkraþjálfara starfandi í heilsugæslu þar sem fram kemur sjúkdómsgreining.

    30. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hertar sóttvarnaráðstafanir frá 31. október

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi laugardaginn 31. október. Sömu reglur munu gilda um allt land. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Allt íþróttastarf verður óheimilt og sviðslistir sömuleiðis. Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember. Þær verða endurmetnar eftir aðstæðum með hliðsjón af því hvort hægt verði að aflétta þeim fyrr, eða hvort framlenging sé nauðsynleg.

    28. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Minnt á umsóknarfrest um styrki til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála

    Frestur félagasamtaka til að sækja um áður auglýsta styrki heilbrigðisráðherra til verkefna á sviði heilbrigðismála rennur út 2. nóvember næstkomandi. Að þessu sinni leggur ráðherra áherslu á að styrkja verkefni sem lúta ​að endurhæfingu og langvinnum verkjum. Einungis er tekið við rafrænum umsóknum í gegnum umsóknarvef Stjórnarráðsins: http://minarsidur.stjr.is

    26. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Valkvæðum og ífarandi aðgerðum frestað tímabundið

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða og hefur auglýsing þess efnis verið send til birtingar í Stjórnartíðindum. Frestunin tekur gildi frá og með morgundeginum á höfuðborgarsvæðinu en skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins eru heimilar dagana 27. og 28. október. Frestunin gildir til og með 15. nóvember næstkomandi. Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæmda í staðdeyfingu, þ.e. á vakandi sjúklingi, verða áfram heimilar og einnig speglanir í greiningaskyni með þeim takmörkunum þó að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir. Fyrirmæli landlæknis eru eftirfarandi:

    20. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Samkomutakmarkanir og skólastarf frá 20. október

    Í dag tóku gildi reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Gildistími reglugerðanna er til og með 10. nóvember að undanskildum bráðabirgðaákvæðum um takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu sem gilda til 3. nóvember. Breytingar sem reglugerðirnar fela í sér frá fyrri takmörkunum eru raktar hér að neðan.

    20. okt. 2020Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Nýsköpun, Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þróa próf sem styttir greiningu á sýklalyfjaónæmum bakteríum niður í klukkustund

    Sýklalyfjaónæmis og súnusjóður úthlutar í fyrsta sinn. Tvö verkefni tengd grunnrannsóknum í sýklalyfjaónæmi fá hæstu styrkina úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði sem nú úthlutar í fyrsta sinn. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni undir formerkjum „Einnar heilsu“ (e. One Health) í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Verkefnin snúa annars vegar að framlínuforvörnum í heilsu manna og dýra með DNA hraðgreiningar á sýklalyfjaónæmum bakteríum og hins vegar að upprunateikningu á sýklalyfjaónæmum E.coli stofnum með raðgreiningum á erfðamengi þeirra. Sjóðnum bárust 14 umsóknir og alls hljóta níu verkefni og rannsóknir styrki fyrir alls 32.1 milljónir króna í þessari fyrstu úthlutun sjóðsins.

    19. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Um opnun líkamsræktarstöðva

    Ákvæði nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum sem heimilar opnun líkamsræktarstöðva að uppfylltum ströngum skilyrðum, byggist á því að jafnræðis og meðalhófs sé gætt. Horft er til þess að sömu skilyrði gildi um íþróttaiðkun og líkamsrækt, þ.e. að iðka megi hvoru tveggja ef regla um 20 manna hámarksfjölda og 2 metra nálægðarmörk er virt.

    19. okt. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Áform um endurskoðun laga um málefni aldraðra til umsagnar

    Birt hafa verið í samráðsgátt áform heilbrigðisráðherra um endurskoðun laga um málefni aldraðra. Markmið fyrirhugaðra breytinga er að samræma mat á þörf aldraðra fyrir hjúkrunarrými, koma á einum samræmdum biðlista á landsvísu og tryggja betur forgang þeirra að hjúkrunarrýmum sem eru í mestri þörf fyrir slíkt úrræði.

    18. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Reglugerðir um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi 20. október

    Reglugerðir Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi þriðjudaginn 20. október hafa verið staðfestar og verða birtar í Stjórnartíðindum á morgun. Annars vegar er ný reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar og hins vegar breyting á reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar. Reglugerðirnar eru meðfylgjandi.

    17. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Svandís Svavarsdóttir tekur aftur til starfa

    Svandís Svavarsdóttir, sem fór í leyfi fyrir rétt rúmri viku, tekur aftur til starfa sem heilbrigðisráðherra í dag

    16. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    COVID-19: Áformaðar breytingar á sóttvarnaráðstöfunum 20. október

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í meginatriðum þær breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem kveðið verður á um í reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tekur gildi þriðjudaginn 20. október. Breytingarnar eru að mestu þær sömu og sóttvarnalæknir leggur til. Ráðherra kynnti breytingarnar og minnisblað sóttvarnalæknis á fundi ríkisstjórnar í dag. Áfram verður kveðið á um strangari takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu en gilda á landsvísu. Utan höfuðborgarsvæðisins verður gerð sú meginbreyting að nándarmörk milli einstaklinga verða aukin úr 1 metra í 2.

    12. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Áform um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt áform heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu. Með áformaðri lagabreytingu verður ákvæði gildandi laga um tryggingavernd útvíkkað, þannig að tryggingaverndin nái til þátttakenda í klínískum lyfjarannsóknum á heilbrigðisstofnunum þar sem rannsakendur eru ekki með bakhjarl. Frestur til að skila inn umsögnum er til 26. október næstkomandi.

    09. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Bein útsending frá stórviðburði WHO í tilefni alþjóðageðheilbrigðisdagsins 10. október

    Alþjóðaheilbrigðisstofnunin stendur fyrir stórviðburði á morgun þar sem þjóðarleiðtogar, sérfræðingar og heimsþekktar stjörnur tala til heimsbyggðarinnar um hvað unnt sé að gera til að bæta geðheilbrigði þjóða og stuðla að því að allir eigi kost á góðri geðheilbrigðisþjónustu sem á þurfa að halda. Viðburðurinn hefst kl. 14.00 að íslenskum tíma, fer fram á netinu í beinu streymi og er öllum opinn.

    09. okt. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 23/2020

    Með kæru, dags. 8. júní 2020, kærði A, hér eftir nefnd kærandi, synjun embættis landlæknis frá 7. maí 2020 á umsókn um starfsleyfi sem sjúkraliði. Í kæru er þess krafist að ráðuneytið felli úr gildi ákvörðun embættis landlæknis og leggi fyrir embættið að veita kæranda starfsleyfi. Ákvörðun embættis landlæknis frá 7. maí 2020, um að synja kæranda um starfsleyfi sem sjúkraliði, er felld úr gildi og embætti landlæknis falið að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.

    09. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Áhrif sóttvarna á þróun COVID-19 faraldurs rannsökuð

    Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun að veita fimm milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til rannsóknar á áhrifum sóttvarnaaðgerða á þróun COVID-19 faraldursins.

    08. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Þriðji samningur Evrópusambandsins um bóluefni í höfn

    Evrópusambandið hefur gert samning við lyfjafyrirtækið Janssen Pharmaceutica NV, dótturfyrirtæki Johnson & Johnson, um kaup á bóluefni gegn COVID-19. Samningurinn felur í sér að strax og prófunum er lokið og niðurstöður sýna að bóluefnið er öruggt og með fullnægjandi virkni er aðildarríkjum sambandsins tryggður réttur til kaupa á bóluefni fyrir 200 milljónir manna. Eins og áður hefur komið fram munu Ísland og önnur aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins njóta sama aðgangs að bóluefnum sem Evrópusambandið semur um og önnur ríki sambandsins.

    08. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Áform um endurskoðun sóttvarnalaga birt til umsagnar

    Heilbrigðisráðherra hefur birt til umsagnar í samráðsgátt áform um endurskoðun sóttvarnalaga. Áformin eru unnin af starfshópi heilbrigðisráðherra sem vinnur að endurskoðun laganna. Umsagnarfrestur er til 21. október næstkomandi. Ráðherra áætlar að mæla fyrir frumvarpi að endurskoðuðum sóttvarnalögum á Alþingi í janúar næstkomandi.

    07. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Um reglur og tilmæli

    Reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkörkun á samkomum og hertar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu tók gildi í gær. Reglugerðin byggist á minnisblaði sóttvarnalæknis og er þar farið að tillögum hans í öllum meginatriðum. Í minnisblaði hans koma einnig fram ákveðin tilmæli varðandi íþróttastarf og fleiri atriði sem mikilvægt er að fólk taki mið af, þótt tilmælin séu ekki liður í reglugerð ráðherra. Einnig má benda á að ríkislögreglustjóri hyggst birta almenn tilmæli sem ætlað er að styðja við markmið hertra sóttvarnaaðgerða á höfuðborgarsvæðinu.

    07. okt. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samið um byggingu hjúkrunarheimilis í Hveragerði

    Húsnæði hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði verður stækkað með nýrri byggingu með 22 hjúkrunarrýmum til að bæta aðstöðu heimilisfólks í Ási og útrýma tvíbýlum. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri undirrituðu nýlega samning um samstarf bæjarfélagsins og heilbrigðisráðuneytisins um framkvæmdina. Miðað er við að þær hefjist fyrir lok þessa árs og að heimilið verði tilbúið til notkunar fyrri hluta árs 2023.

    07. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjárlagafrumvarpið: Innviðauppbygging, lækkun greiðsluþátttöku og efling heimahjúkrunar

    Framlög til heilbrigðismála verða aukin um ríflega 15 ma.kr. á næsta ári, að frátöldum launa- og verðlagsbótum. Þetta er tæplega 6% raunaukning frá fjárlögum þessa árs. Af þessu renna tæpir 7. ma. kr. til uppbyggingar Landspítala. Mikil áhersla er á framkvæmdir sem efla innviði heilbrigðiskerfisins, s.s. uppbyggingu og endurbætur á húsnæði heilbrigðisstofnana og byggingu hjúkrunarheimila. Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga og efling heilsugæslu og heimahjúkrunar verða áfram forgangsmál. Þetta eru megináherslurnar í heilbrigðismálum eins og þær birtast í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Samtals verða framlög til málaflokka sem heyra undir heilbrigðisráðherra um 283,5 ma.kr. króna á næsta ári sem nemur um fjórðungi af heildarútgjöldum ríkissjóðs.…

    07. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Gegnir störfum heilbrigðisráðherra

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gegnir störfum heilbrigðisráðherra í fjarveru Svandísar Svavarsdóttur, sem er í leyfi til 15. október.

    06. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hertar sóttvarnaaðgerðir á höfuðborgarsvæðinu

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu og taka þær gildi á morgun, 7. október. Samkomutakmarkanir sem kynntar voru í gær gilda óbreyttar annars staðar á landinu. Gildistími þessara takmarkana er til og með 19. október.

    06. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Nýr formaður stjórnar Sjúkratrygginga Íslands

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Vilborgu Þ. Hauksdóttur formann Sjúkratrygginga Íslands. Vilborg tekur við af Brynhildi S. Björnsdóttur sem hefur gegnt formennskunni frá árinu 2017 og eru henni þökkuð vel unnin störf á undanförnum árum.

    06. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Framkvæmdir við Landspítala: Uppsteypa meðferðarkjarnans hefst innan skamms

    Nýr Landspítali ohf. hefur tekið tilboði Eyktar hr. um uppsteypu meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut. Eykt bauð 8,68 milljarða króna í verkið sem er um 82% af kostnaðaráætlun. Nýr meðferðarkjarni verður um 70.000 fermetrar að stærð og verkefnið er meðal stærstu áfanga uppbyggingar Landspítala við Hringbraut. Áætlað er að verkið geti hafist í nóvember og að framkvæmdatíminn verði um þrjú ár.

    06. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Undanþágur frá samkomubanni fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki

    Heilbrigðisráðherra veitti síðastliðið vor undanþágur frá samkomubanni fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki, svo unnt væri að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að áður veittar undanþágur haldi gildi sínu, þannig að hertar sóttvarnaráðstafanir raski ekki umræddri starfsemi. Sömu skilyrði fyrir undanþágum gilda og áður, en þær voru veittar að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

    05. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Aðgerðir til að létta á útskriftarvanda Landspítala

    Heilbrigðisráðuneytið hefur í samvinnu við Landspítala, aðrar heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili unnið að því að létta álagi af Landspítala með því að flytja þaðan sjúklinga sem hægt er að sinna annars staðar sem eru einkum aldraðir hjúkrunarsjúklingar. Frá því um nýliðin mánaðamót hafa rúmlega 20 sjúklingar verið færðir frá spítalanum til annarra stofnana og unnið er að fleiri lausnum í þessu skyni.

    04. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Breyttar reglur um samkomutakmarkanir og skólahald

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýjar reglugerðir um takmarkanir á samkomuhaldi og skólastarfi sem kveða á um hertar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu COVID-19 og taka þær gildi á miðnætti, aðfaranótt 5. október. Eftirfarandi er samantekt um helstu breytingar, m.a. um undanþágur frá hámarksfjölda þeirra sem mega koma saman en meginreglan er 20 manns.

    03. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hertar samkomutakmarkanir taka gildi 5. október

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um hertari samfélagslegar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu Covid-19. Ný reglugerð þess efnis tekur gildi mánudaginn 5. október og verður birt á morgun. Stærstu einstöku breytingarnar verða 20 manna fjöldatakmörkun með ákveðnum undantekningum en þar má nefna 50 manna hámark í útförum og 100 manna hámark í tilteknum verslunum. Krám, skemmtistöðum, spilasölum og líkamsræktarstöðvum verður lokað. Sundlaugar verða áfram opnar en með þrengri fjöldatakmörkunum, eða 50% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi. Ekki verða breytingar á starfsemi leik- og grunnskóla. Í framhalds- og háskólum munu gilda 25 manna fjöldatakmarkanir og er þar miðað við algenga bekkjarstærð.…

    02. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Þingmál heilbrigðisráðherra á 151. löggjafarþingi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra áformar að leggja 11 lagafrumvörp og tvær þingsályktunartillögur fyrir Alþingi á 151. löggjafarþingi sem sett var í gær. Af einstökum þingmálum má nefna frumvarp til breytinga lögum um lífsýnasöfn sem tryggja á að gagnagrunnar og lífsýnasöfn innan heilbrigðiskerfisins séu opin vísindamönnum sem hafa tilskilin leyfi til vísindarannsókna. Frumvarp um endurskoðun sóttvarnalaga verður lagt fram í janúar og tillaga til þingsályktunar um lýðheilsustefnu í mars. Hér á eftir eru talin öll þingmál ráðherra ásamt stuttri umfjöllun um hvert þeirra.

    02. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki af safnliðum fjárlaga frá íslenskum félagasamtökum vegna verkefna á sviði heilbrigðismála. Að þessu sinni leggur heilbrigðisráðherra áherslu á að styrkja verkefni sem lúta að endurhæfingu og langvinnum verkjum. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00, mánudaginn 2. nóvember 2020.

    02. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Auglýst eftir þátttakendum í tilraunaverkefni um rafræna fylgiseðla

    Fyrsti áfangi tilraunaverkefnis um innleiðingu rafrænna fylgiseðla er hafinn og hefur Lyfjastofnun auglýst eftir þátttakendum í verkefninu. Verkefnið snýst um að nota rafrænan fylgiseðil í stað pappírsseðils og takmarkast við lyf sem notuð eru á heilbrigðisstofnunum (H-merkt lyf). Markmið verkefnisins er að meta hvort notkun rafrænna fylgiseðla tryggi með fullnægjandi hætti örugga lyfjameðferð sjúklings. Jafnframt verður kannað hvort notkun rafrænna fylgiseðla leiði til þess að H-merktum lyfjum á markaði fjölgi.

    02. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Að lifa með veirunni: umsagnarfrestur framlengdur til 7. október

    Frestur til að skila umsögnum um efni frá samráðsfundinum „Að lifa með veirunni“ sem haldinn var 20. ágúst síðastliðinn hefur verið framlengdur til 7. október. Á fundinum var m.a. fjallað um tilteknar spurningar sem snúa að áhrifum sóttvarnaaðgerða á daglegt líf og helstu áskoranir sem þeim tengjast. Markmiðið með samráðsfundinum og því efni sem tekið var saman á fundinum og birt til umsagnar, er að stilla saman strengi og móta áherslur og leiðarljós sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna COVID-19 á næstu misserum.

    25. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Unnið að gagnkvæmri viðurkenningu vottorða milli Norðurlandaþjóða

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að senda heilbrigðisráðherrum hinna Norðurlandaþjóðanna erindi með ósk um samstarf sem miði að því að taka upp gagnkvæma viðurkenningu vottorða vegna COVID-19. Markmiðið er að hægt verði að undanskilja einstaklinga frá kröfum á landamærum framvísi þeir viðurkenndu vottorði, t.d. um að þeir hafi sýkst af veirunni og séu ekki smitberar eða hafi myndað virkt mótefni gegn henni. Málið var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    25. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Sóttvarnalögin endurskoðuð

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að semja drög að frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum og er hópurinn tekinn til starfa. Tekin verða til skoðunar og skýrð nánar ákvæði núgildandi laga um opinberar sóttvarnaráðstafanir og valdheimildir stjórnvalda þar að lútandi. Við endurskoðunina verður horft til reynslu síðustu mánaða af COVID-19. Dr. Páll Hreinsson hefur að beiðni forsætisráðherra unnið álitsgerð um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarna samkvæmt sóttvarnalögum og verður hún meðal annars lögð til grundvallar við vinnu starfshópsins.

    25. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Sætaskylda innleidd á öllum vínveitingastöðum

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis sem felur í sér að öllum vínveitingastöðum verði skylt að hafa sæti fyrir alla gesti sína og tryggja að gestir séu að jafnaði í sætum eins og almennt tíðkast á veitingahúsum og kaffihúsum. Reglugerð þessa efnis tekur gildi mánudaginn 28. september. Frá sama tíma er aflétt tímabundinni lokun kráa og skemmtistaða á höfuðborgarsvæðinu en með fyrrnefndu skilyrði um sætaskyldu. Í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis verða aðrar samkomutakmarknir framlengdar óbreyttar í þrjár vikur til og með 18. október næstkomandi.

    25. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Valdheimildir rýmri eftir því sem hættan er meiri

    Þeim mun smitnæmari og hættulegri sem smitsjúkdómur er, því víðara svigrúm hafa stjórnvöld til að bregðast við til verndar lífi og heilsu manna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í álitsgerð Dr. Páls Hreinssonar sem hann hefur tekið saman að beiðni stjórnvalda um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana í ljósi meginreglna stjórnsýsluréttar og mannréttindaákvæða.

    24. sep. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Aukin endurhæfing

    ​Við lifum á fordæmalausum tímum eins og svo oft hefur verið sagt síðustu mánuði. Covid19-veiran veldur nýjum og alvarlegum sjúkdómi sem við erum að læra inn á á sama tíma og þeim sem veikir eru fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Þekkingunni um veiruna og sjúkdóminn sem hún veldur hefur fleygt fram á síðustu mánuðum en við erum enn að læra. Eitt af því sem við höfum komist að er að margir þeirra sem hafa veikst af sjúkdómnum en batnað glíma við erfið og langvinn eftirköst í kjölfar veikindanna.

    22. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    COVID-19: Heilbrigðisráðherra veitir 200 milljónir króna í aukna endurhæfingu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að semja um aukna endurhæfingu, meðal annars fyrir fólk sem glímir við eftirköst í kjölfar veikinda af völdum COVID-19 en einnig fyrir þá sem eru á biðlista eftir endurhæfingu af öðrum ástæðum. Allt að 200 milljónum króna verður varið til verkefnisins.

    22. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ráðherra styrkir Rótina um 10 milljónir króna til nýsköpunarverkefnisins Ástuhúss

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Rótinni; félagi áhugakvenna um konur, áföll og vímugjafa, 10 milljóna króna styrk til uppbyggingar nýsköpunarverkefnisins Ástuhúss. Ástuhús er hugsað sem meðferðarúrræði þar sem konur geta nálgast þjónustuna á annan hátt en hefð er fyrir í núverandi fíkniefnameðferðarkerfi, meðal annars með ríkri áherslu á göngudeildarmeðferð.

    22. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Utanríkisráðuneytið

    COVID-19: Ísland og Noregur fjármagna kaup á tveimur milljónum skammta af bóluefni

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í samkomulagi sem Norðmenn hafa gert um þátttöku í samstarfi ríkja um að tryggja öllum þjóðum aðgang að bóluefni við COVID-19 (COVAX). Noregur og Ísland leggja í sameiningu fé til verkefnisins sem gerir kleift að fjármagna kaup á allt að tveimur milljónum bóluefnaskammta fyrir lágtekjuþjóðir.

    21. sep. 2020Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Lokun kráa og skemmtistaða framlengd til 27. september

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja tímabundna lokun skemmistaða og kráa til og með sunnudagsins 27. september næstkomandi. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur verið send til birtingar í Stjórnartíðindum. Sem fyrr tekur lokunin til kráa og skemmtistaða í Reykjavík, Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Kjósarhreppi og á Seltjarnarnesi.

    21. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bakvarðasveitin: Óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista

    Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar var sett á fót í upphafi COVID-19 faraldursins í vor þegar ljóst var að mikilvægar heilbrigðisstofnanir gætu lent í mönnunarvanda vegna veikindafjarvista starfsfólks eða fjarvista vegna sóttkvíar. Þetta fyrirkomulag gaf góða raun og gerði heilbrigðisstofnunum kleift að manna í stöður með hraði þegar á þurfti að halda.…

    18. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjármagn fyrir legudeildarbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri í fjármálaáætlun

    Gert er ráð fyrir 6,5 milljörðum króna í framkvæmdir við nýbyggingu fyrir nýja legudeild við Sjúkrahúsið á Akureyri á tíma fjármálaáætlunar árin 2021–2025. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra greindi frá þessu þegar hún ávarpaði ársfund Sjúkrahússins á Akureyri í gær.

    18. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu lokað tímabundið

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að loka skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu, tímabundið í fjóra daga frá 18. – 21. september. Þetta er gert til að sporna við útbreiðslu COVID-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur þegar tekið gildi. Meðfylgjandi er minnisblað sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra um þessar ráðstafanir.

    17. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir úr lýðheilsusjóði lausir til umsóknar

    Embætti landlæknis hefur auglýst lausa til umsóknar styrki úr lýðheilsusjóði árið 2021. Styrkjum úr sjóðnum skal varið til að styrkja lýðheilsustarf og úthlutar heilbrigðisráðherra styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins. Umsóknarfrestur er til 15. október næstkomandi.

    15. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Þættir sem sóttvarnalæknir leggur til grundvallar tillögum til ráðherra vegna COVID-19

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag minnisblað sóttvarnalæknis þar sem fjallað er um þá þætti sem sóttvarnalæknir leggur til grundvallar að tillögum til heilbrigðisráðherra um takmarkanir/aðgerðir vegna COVID-19. Minnisblaðið er meðfylgjandi.

    15. sep. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Öflugra heilbrigðiskerfi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um þróun útgjalda til heilbrigðismála, framkvæmdir við Landspítala, eflingu heilsugæslunnar og fleiri verkefni í blaðagrein sem birtist í dag.

    15. sep. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Öflugra heilbrigðiskerfi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um þróun útgjalda til heilbrigðismála, framkvæmdir við Landspítala, eflingu heilsugæslunnar og fleiri verkefni í blaðagrein sem birtist í dag.

    14. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bein útsending frá 70. fundi Evrópuskrifstofu WHO

    Forgangsröðun á sviði heilbrigðismála og staðan af völdum COVID-19 verða mál í brennidepli á 70. ársfundi Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem haldinn er í dag og á morgun. Þátttakendur á fundinum koma frá 53 aðildarríkjum Evrópuskrifstofunnar. Fundurinn fer fram á vefnum og er hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu á vef WHO. Þetta er fyrsti ársfundurinn undir forystu Dr. Hans Kluge sem kjörinn var framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofunnar á liðnu ári.

    • First
    • Prev
    • 41
    • 42
    • 43
    • 44
    • 45
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband