Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2101–2150 af 2497
    Raða eftir:
    23. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um rafrettur; lögmæt viðskipti og neytendavernd

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir frumvarp um rafrettur stuðla að lögmætum viðskiptum með þessa vöru og tryggja eftirlit og mikilvæga neytendavernd. Aðgengi fólks að rafrettum og reglur um notkun þeirra samkvæmt frumvarpinu geri þeim hægt um vik sem vilja hætta tóbaksnotkun með aðstoð þeirra.

    21. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skaðaminnkandi aðgerðir og rétturinn til heilbrigðisþjónustu

    Tryggja þarf að allir njóti jafns aðgangs að heilbrigðisþjónustu, burt séð frá þjóðfélagsstöðu. Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að jaðarhópar verði ekki útundan og bendir á mikilvægi skaðaminnkandi aðgerða í þessu samhengi fyrir vímuefnaneytendur.

    15. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Endurskoðun reglugerða um lyfjaskömmtun og meðferð lyfja á heilbrigðisstofnunum

    Heilbrigðisráðherra hefur sett af stað vinnu við að endurskoða reglugerð um lyfjaskömmtun ​og reglugerð um val, geymslu og meðferð lyfja á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Starfshópur sem skipaður var til verksins hélt fyrsta vinnufund sinn í gær.

    15. feb. 2018Rit og skýrslur, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Þróun örorku

    Greining KMPG fyrir velferðarráðuneytið um þróun á fjölda öryrkja og kostnaði við kerfið og snertifleti kerfisins gagnvart einstaklingum.

    13. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Loftslagsmál, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Stofnanir móti sér umhverfis- og loftslagsstefnu

    Loftslagsmál eru heilbrigðismál og lofslagsbreytingar ein af helstu áskorununum sem heimurinn stendur frammi fyrir, skrifar Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í blaðagrein þar sem hún hvetur stofnanir sem heyra undir embætti hennar til fylgja fordæmi Landspítala og setja sér stefnu í umhverfis- og loftslagsmálum.

    12. feb. 2018Almannaöryggi, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aukin aðkoma Landhelgisgæslunnar að sjúkraflugi til skoðunar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að meta hvort ávinningur sé af því að auka aðkomu Landhelgisgæslu Íslands að sjúkraflugi. Ráðherra hefur skipað starfshóp um málið sem ætlað er að skila niðurstöðum sínum um miðjan mars næstkomandi.

    09. feb. 2018Líf og heilsa, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Spornað við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að gera tillögur um aðgerðir til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja. Hópnum er ætlað að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 1. maí næstkomandi.

    08. feb. 2018Rit og skýrslur, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ávinningur fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna til samræmis við gang sólar

    febrúar 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Ávinningur fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna til samræmis við gang sólar Greinargerð starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði til að kanna ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna til samræmis við gang sólar. Greinargerð hópsins

    08. feb. 2018Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samþætting líknar- og lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið

    febrúar 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Samþætting líknar- og lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið Skýrsla starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði til að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar á Akureyri, starfsvæði Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða (Hvest), Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). Samþætting líknar- og lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið

    08. feb. 2018Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur um líknarmeðferð á landsbyggðinni

    Starfshópur sem falið var að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar í heilbrigðisumdæmum Vestfjarða, Austurlands og Norðurlands hefur skilað heilbrigðisráðherra skýrslu með tillögum sínum.

    05. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Frumvarp um rafrettur verður lagt fyrir Alþingi

    Heilbrigðisráðherra mun leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um rafrettur sem felur í sér heildstæðar reglur um innflutning, sölu og markaðssetningu á rafrettum og áfyllingum fyrir þær, auk ákvæða um eftirlit og skorður við notkun þeirra. Ráðherra kynnti frumvarpið á fundi ríkissstjórnar í liðinni viku.

    01. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Breyttar reglur um afgreiðslu tiltekinna ávanabindandi lyfja

    Lyfjastofnun hefur ákveðið að breyta reglum um afgreiðslu tiltekinna lyfja sem valdið geta ávana- og fíkn, til að hamla gegn misnotkun. Gert er ráð fyrir að nýjar reglur stofnunarinnar um þetta taki gildi 3. apríl næstkomandi.

    31. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma

    Starfshópur sem falið var að gera tillögur um aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma hér á landi hefur skilað heilbrigðisráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum. Ráðherra skipaði starfshópinn í mars 2017 í samræmi við tillögu frá sóttvarnarlækni.

    30. jan. 2018Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma

    janúar 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma Skýrsla starfshóps heilbrigðisráððherra sem falið var að gera tillögur um aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma. Ráðherra skipaði starfshópinn í mars 2017 í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis

    24. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Líf og heilsa

    Mikilvæg skref í jafnréttisbaráttu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um jafnréttismál í grein í Morgunblaðinu í dag. „Það er óskandi að áhrif #metoo-byltingarinnar verði til þess að það takist að uppræta kynferðislega áreitni, ofbeldi og mismunun í samfélaginu“ skrifar heilbrigðisráðherra meðal annars í grein sinni.

    18. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stefnt að opnun neyslurýma fyrir vímuefnaneytendur

    Heilbrigðisráðherra hefur sett af stað vinnu í velferðarráðuneytinu til að undirbúa opnun neyslurýma fyrir langt leidda vímuefnaneytendur. Neyslurými sem þessi eru þekkt úrræði erlendis og byggjast á hugmyndafræði skaðaminnkunar.

    18. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Landspítalinn er bakhjarl heilbrigðisþjónustunnar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um hlutverk Landspítalans í grein í Fréttablaðinu í dag sem bakhjarl heilbrigðisþjónustu um land allt: „Gott samfélag þarf gott heilbrigðiskerfi og gott heilbrigðiskerfi þarf sterkt móðursjúkrahús. Landspítalinn er slík stofnun“ skrifar heilbrigðisráðherra meðal annars í grein sinni.

    16. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstofnanir heimsóttar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti í liðinni viku Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, ræddi við stjórnendur og annað starfsfólk og kynnti sér starfsemi stofnananna. Á morgun fer hún um Norðurland og heimsækir heilbrigðisstofnanir þar.

    15. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjölgun sálfræðinga í almenna heilbrigðiskerfinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um fjölgun sálfræðinga í almenna heilbrigðiskerfinu í blaðagrein í Morgunblaðinu í dag og eflingu geðheilbrigðisþjónustunnar. Hún segir skýrt ákall í samfélaginu um að þjónusta sálfræðinga verði hluti af hinu almenna opinbera heilbrigðiskerfi.

    11. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Líf og heilsa

    Fjallað um lækkun tannlæknakostnaðar lífeyrisþega

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um aukna greiðsluþátttöku ríkisins í tannlækningum lífeyrisþega. Hálfur milljarður króna er til ráðstöfunar í þessu skyni samkvæmt fjárlögum 2018.

    10. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Birgir Jakobsson verður aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ráðið Birgi Jakobsson aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu. Birgir tekur til starfa 1. apríl næstkomandi þegar hann lætur af embætti landlæknis.

    09. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja

    Heilbrigðisráðherra hefur sett nýja reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja. Með henni er lögð áhersla á rafrænt umhverfi lyfjaávísana. Meðal nýmæla er ákvæði um hertar reglur um ávísanir til að sporna við misnotkun tiltekinna ávanabindandi lyfja. Reglugerðin tekur gildi 3. apríl.

    08. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsækjendur um Embætti landlæknis

    Sex sóttu um Embætti landlæknis sem auglýst var laust til umsóknar á liðnu ári. Umsóknarfrestur rann út 4. janúar síðastliðinn.

    05. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heimsókn heilbrigðisráðherra á Landspítala

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti sér ýmsa þætti í starfsemi Landspítalans þegar hún heimsótti sjúkrahúsið í gær, auk þess sem hún átti fund með framkvæmdastjórn sjúkrahússins.

    05. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýr heilbrigðisstefna með jöfnuð að leiðarljósi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir eitt mikilvægasta verkefnið framundan að móta skýra og markvissa heilbrigðisstefnu sem verði hluti af samfélagssáttmála og snúist um jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag eða búsetu fólks og tryggi skynsamlega nýtingu almannfjár. Slík stefna þurfi jafnframt að lifa af kosningar og breytingar á landsstjórninni.

    03. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Gjaldfrjálsar tannlækningar barna komnar að fullu til framkvæmda

    Öll börn með skráðan heimilistannlækni eiga nú rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum samkvæmt samningi þar að lútandi. Gjaldfrjálsar tannlækningar barna hafa verið innleiddar í áföngum og lauk inneiðingunni 1. janúar sl. þegar börn yngri en þriggja ára öðluðust rétt samkvæmt samningnum.

    03. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Eflum geðheilbrigðisþjónustuna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um áherslur sínar í geðheilbrigðismálum í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Hún segir meginmarkmiðið sem hún muni hafa að leiðarljósi verði að tryggja öllum jafnan aðgang að heilbriðgisþjónustu, óháð efnahag og búsetu.

    27. des. 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    Upplýsingar um biðtíma eftir hjúkrunarrými

    Biðtími fólks eftir búsetu á hjúkrunarheimili hefur lengst á undanförnum árum. Um 30% karla bíða að jafnaði lengur en 90 daga eftir hjúkrunarrými og um 40% kvenna þurfa að bíða 90 daga eða lengur. Embætti landlæknis birtir upplýsingar um bið eftir hjúkrunarrými í nýjum Talnabrunni.

    22. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Framlög til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni aukin um 450 m.kr.

    Ákveðið hefur verið að auka framlög til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni sem nemur 450 milljónum króna umfram það sem áður var gert ráð fyrir í fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Meiri hluti fjárlaganefndar hefur lagt fram tillögu þessa efnis og er hún til umfjöllunar við aðra umræðu um fjárlög næsta árs sem nú stendur yfir á Alþingi.

    22. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra brýnir stjórnendur í baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sent stjórnendum allra stofnana sem heyra undir embætti hennar bréf þar sem hún brýnir þá til að fylgja fast eftir lögum um jafnrétti kynjanna og vinna markvisst að því að uppræta kynbundið ofbeldi og kynferðislega áreitni.

    21. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjárlagafrumvarpið: Aukin framlög til heilbrigðisstofnana um allt land

    Framlög til heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmum landsins verða aukin um 6,8% á næsta ári. Heildaraukningin nemur tæpum 1,5 milljarði króna.

    20. des. 2017Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjárlagafrumvarpið: Aukin framlög til heilbrigðismála

    Framlög til heilbrigðismála verða aukin um 21,5 milljarð króna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Sjúkrahúsþjónustan verður styrkt, geðheilbrigðisþjónusta sömuleiðis, þverfaglegt starf í heilsugæslu verður eflt og áhersla er lögð á að bregðast við útskriftarvanda Landspítalans.

    15. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsóknarfrestur um embætti landlæknis framlengdur til 4. janúar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja umsóknarfrest um embætti landlæknis sem að óbreyttu hefði runnið út 20. desember, til 4. janúar næstkomandi. Embættið var auglýst laust til umsóknar 10. nóvember síðastliðinn.

    13. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra styður átak kvenna í læknastétt

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra styður aðgerðir kvenna í læknastétt til að uppræta kynbundið áreiti, ofbeldi og mismunun í starfi. Ráðherra hvetur konur og karla í heilbrigðisstéttum til að taka höndum saman og uppræta þennan alvarlega vanda.

    13. des. 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    Uppbygging hjúkrunarrýma og aðrar umbætur í öldrunarþjónustu

    Stjórnvöld stefna á stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarrýma á næstu árum auk þess að efla heimahjúkrun og ýmsa aðra þjónustuþætti sem mikilvægir eru til að bæta þjónustu við aldraða. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um þessi áform í grein í blaðagrein í dag og leggur áherslu á að samráð verði haft við notendur þjónustunnar og samtök eldra fólks.

    13. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Kostir rafrænna fylgiseðla með lyfjum til skoðunar

    Lyfjastofnun Evrópu er með til skoðunar hvernig nota megi rafrænar leiðir til að miðla upplýsingum um lyf til sjúklinga á öruggan hátt. Á norrænum vettvangi er rætt um að Norðurlandaþjóðirnar sækist sameiginlega eftir því að fá reglum Evrópusambandsins breytt þannig að heimilt verði að selja lyf með rafrænum fylgiseðlum.

    12. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnustofa um geðheilsu og vellíðan

    Embætti landlæknis stóð nýlega fyrir vinnustofu í samvinnu við velferðarráðuneytið þar sem fjallað var um ýmsar hliðar geðheilbrigðismála s.s. forvarnir, nærþjónustu, stefnumótun og löggjöf á þessu sviði. Vinnustofan er liður í evrópsku samstarfsverkefnis um geðheilsu og vellíðan sem Embætti landlæknis hefur tekið þátt í á síðustu árum.

    11. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sérnám í bæklunarlækningum á Íslandi

    Landspítalinn hefur hlotið viðurkenningu heilbrigðisyfirvalda til að annast sérnám í bæklunarlækningum á grundvelli reglugerðar um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi.

    08. des. 2017Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Iðunn Garðarsdóttir aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ráðið Iðunni Garðarsdóttur aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu.

    01. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Svandís Svavarsdóttir nýr heilbrigðisráðherra

    Svandís Svavarsdóttir kom til starfa í velferðarráðuneytinu í dag sem ráðherra heilbrigðismála í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Svandís tekur við embættinu af Óttari Proppé.

    28. nóv. 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    „Þjónusta við aldraða þarf að vera samfelld og byggjast á samvinnu“

    Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra ræddi um öldrunarmál og eflingu öldrunarþjónustu í víðu samhengi þegar hann ávarpaði ráðstefnu Sjómannadagsráðs um Lífsgæði aldraðra 21. nóvember síðastliðinn.

    23. nóv. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópur um seinkun klukkunnar

    Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að kanna ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna hér á landi til samræmis við gang sólar.

    23. nóv. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leiðir faglega þróun

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um heilsugæslustöðvar sem felur í sér að Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er falið að leiða faglega þróun innan heilsugæslu á landsvísu.

    22. nóv. 2017Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fyrsta skóflustunga að hjúkrunarheimili við Sléttuveg

    Heilbrigðisráðherra, borgarstjórinn í Reykjavík og fyrrum formaður Sjómannadagsráðs tóku í dag fyrstu skóflustunguna að nýju 99 rýma hjúkrunarheimili sem reist verður við Sléttuveg í Reykjavík.

    13. nóv. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla OECD; Health at a Glance 2017, er komin út

    Í skýrslunni er m.a. fjallað um heilbrigðisástand aðildarríkja stofnunarinnar, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, gæði, útgjöld, mannafla, lyfjamál, öldrun, ýmsa áhrifaþætti heilbrigðis og fleira.

    27. okt. 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    Úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur úthlutað um 170 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra, í samræmi við tillögu stjórnar sjóðsins, til verkefna sem ætlað er að bætta aðbúnað aldraðra og auka öryggi og gæði öldrunarþjónustu.

    26. okt. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu efld með 250 m.kr. fjárframlagi

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 250 milljónum króna af safnlið heilsugæslustöðva til að efla heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að auka öryggi fólks sem býr heima og draga úr þörf fyrir stofnanavistun og aðra heilbrigðisþjónustu.

    24. okt. 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa

    Niðurstöður hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Árborg

    Úrslit samkeppni um hönnun nýs hjúkrunarheimilis í Árborg voru kynntar formlega við athöfn á Selfossi í dag. Við sama tækifæri undirrituðu heilbrigðisráðherra og framkvæmdastjóri Árborgar samkomulag um stækkun heimilisins sem nemur tíu hjúkrunarrýmum.

    24. okt. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rekstur sjúkrahótels á lóð Landspítala

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Landspítala ábyrgð á rekstri nýs 70 rýma sjúkrahótels á lóð spítalans við Hringbraut.

    23. okt. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Norræn samvinna um lyfjamál

    Efnt hefur verið til samstarfs fjögurra norrænna þjóða um lyfjamál. Þau lönd sem nú þegar taka þátt í starfinu eru Danmörk, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Ætlunin er að kanna meðal annars möguleika á sameiginlegu útboði við lyfjainnkaup í því skyni að lækka innkaupsverð lyfja.

    • First
    • Prev
    • 41
    • 42
    • 43
    • 44
    • 45
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband