31. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Evrópusamvinna, Lyfjamál, Covid-19
Ísland aðili að samningi um sameiginleg innkaup Evrópuríkja á aðföngum fyrir heilbrigðisþjónustuna
Íslensk stjórnvöld geta framvegis tekið þátt í sameiginlegum innkaupum Evrópuríkja á læknisfræðilegum viðbúnaðarvörum, eftir að Ísland undirritaði í gær sérstakan samning þar að lútandi. Í samningnum felst að aðildarríki samningsins geta staðið saman að innkaupum á lækningabúnaði, lyfjum, vöru og þjónustu sem nauðsynleg eru hverju sinni og geta þannig fengið hagstæðari kjör og skjótari afgreiðslu. Nær öll aðildarríki Evrópusambandsins, auk Bretlands standa að þessum samningi og Noregur gerðist aðili í síðustu viku.