30. jan. 2014Rit og skýrslur, Atvinnuvegaráðuneytið
Hönnunarstefna 2014–2018 / Hönnun sem drifkraftur til framtíðar
<p>Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra kynnti í dag Hönnunarstefnu stjórnvalda fyrir árin 2014-2018. Starfshópur hefur unnið að hönnunarstefnunni síðan í ársbyrjun 2011 í breiðu samstarfi stjórnvalda, atvinnulífs og hönnunarsamfélags. Við sama tækifæri undirrituðu iðnaðar- og viðskiptaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra samkomulag um að rekstur hönnunarsjóðs færist undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.</p>