18. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Íslandsbanki
Stefnt að sölu eignarhluta í Íslandsbanka á vormánuðum
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á eignarhlutum í Íslandsbanka. Í því felst að ráðherra útbýr nú greinargerð sem lögð verður fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, auk þess að óska umsagnar Seðlabanka Íslands í samræmi við ákvæði laga. Að liðnum umsagnarfresti tekur ráðherra endanlega ákvörðun um hvort sölumeðferð skuli hafin, en miðað er við að honum ljúki um 20. janúar nk.