Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2201–2250 af 3602
    Raða eftir:
    28. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 til 18. ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum til 18. ágúst.

    21. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 til 4. ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta til 4. ágúst. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin.

    20. júl. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Lýðheilsuvísar fyrir árið 2020 kynntir

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. júlí 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Lýðheilsuvísar fyrir árið 2020 kynntir Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Í lok júní voru lýðheilsuvísar fyrir árið 2020 kynntir

    17. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Fyrirmæli landlæknis um mótefnamælingar vegna COVID-19

    Þann 15. júlí tóku gildi fagleg fyrirmæli landlæknis sem ráðherra hefur staðfest, um mótefnamælingar til greiningar og eftirfylgni á COVID-19 sjúkdómnum auk þess sem breyting á reglugerð um sóttvarnaráðstafanir tók gildi.

    15. júl. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Ferðaþjónusta, Covid-19

    Ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi verða undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví

    Ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi bætast á lista með Færeyjum og Grænlandi og verða frá og með fimmtudeginum 16. júlí undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví vegna Covid-19.

    10. júl. 2020Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Heimkomusmitgát vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnarlæknis, að frá og með 13. júlí nk. skuli þeir sem eru búsettir hér á landi eða eru íslenskir ríkisborgarar og hafa valið að fara í sýnatöku við komuna til landsins viðhafa svokallaða heimkomusmitgát í fimm daga eða þar til niðurstöður úr síðari sýnatöku liggja fyrir. Er þetta gert til að minnka líkurnar á að röng niðurstaða á prófi á landamærum geti leitt til stærri hópsmita á Íslandi.

    03. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ákvörðun um breyttar reglur vegna skimunar á landamærum

    Sóttvarnalæknir hefur lagt til við heilbrigðisráðherra að breyta reglum um skimun á landamærum vegna COVID-19. Breytingin snýr eingöngu að íslenskum ríkisborgurum og þeim sem eru búsettir hér á landi. Sem fyrr verður hægt að velja á milli 14 daga sóttkvíar eða skimunar á landamærum en gert er ráð fyrir að einstaklingar úr fyrrnefndum hópi sem velja skimun þurfi að fara aftur í skimun 4 – 5 dögum eftir komuna til landsins og vera í sóttkví þar til niðurstaða seinni sýnatökunnar liggur fyrir. Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis og er stefnt að því að breytingin komi til framkvæmda eigi síðar en 13. júlí.

    03. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta um þrjár vikur, þ.e. til 26. júlí. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin. Upplýsingagjöf til almennings um einstaklingsbundnar sýkingavarnir verður efld.

    01. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Starfshópur semji drög að frumvarpi varðandi iðnaðarhamp

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að yfirfara lög um ávana- og fíkniefni og gera drög að lagafrumvarpi þar sem kveðið verði á um skýrari lagagrundvöll og ábyrgð stofnana sem þurfa að koma að framkvæmd þegar kemur að leyfisveitingum og eftirliti með ræktun iðnaðarhamps.

    01. júl. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu

    Frumvarp til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu var samþykkt á Alþingi nýverið. Lagabreytingin tengist innleiðingu þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 þannig að lög um heilbrigðisþjónustu endurspegli þær áherslur sem fram koma í heilbrigðisstefnunni. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um þetta í blaðagrein sem birtist í dag.

    01. júl. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu

    Frumvarp til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu var samþykkt á Alþingi nýverið. Lagabreytingin tengist innleiðingu þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 þannig að lög um heilbrigðisþjónustu endurspegli þær áherslur sem fram koma í heilbrigðisstefnunni. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um þetta í blaðagrein sem birtist í dag.

    30. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lagabreyting varðandi vinnslu persónuupplýsinga samþykkt á Alþingi

    Frumvarp heilbrigðisráðherra sem lýtur að vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og miðlun þeirra hefur verið samþykkt á Alþingi. Með frumvarpinu eru gerðar nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum sem heyra undir málefnasvið heilbrigðisráðherra og varða mikilvæg réttindi borgaranna þegar vinna þarf með viðkvæmar persónuupplýsingar, svo sem upplýsingar um heilsufar, til að veita örugga og góða heilbrigðisþjónustu.

    30. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Almannatryggingar og lífeyrir

    Breyting á lögum um sjúkratryggingar samþykkt á Alþingi

    Breytingar verða á stjórn og eftirlitsheimildum Sjúkratrygginga Íslands með breytingum á lögum um sjúkratryggingar en frumvarp heilbrigðisráðherra þess efnis var samþykkt á Alþingi í gær. Lögin öðlast þegar gildi. Heimildir stofnunarinnar til eftirlits verða efldar. Einnig er sú breyting gerð að stjórnin hefur ekki lengur það lögbundna hlutverk gera tillögu til ráðherra um skipun forstjóra.

    30. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Ný heildarlöggjöf um lyfjamál samþykkt á Alþingi

    Frumvarp heilbrigðisráðherra til nýrra lyfjalaga var samþykkt á Alþingi í gær. Miklar breytingar hafa orðið á sviði lyfjamála frá því að heildarlöggjöf á þessu sviði var samþykkt árið 1994 en tæplega fimmtíu breytingar hafa verið gerðar á lögunum frá því þau voru sett fyrir tæpum aldarfjórðungi. Heildarendurskoðun löggjafarinnar var því brýn og tímabær.

    26. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Utanríkisráðuneytið

    Gjald vegna skimunar á landamærum verður lægra en áformað var

    Þann 1. júlí næstkomandi hefst gjaldtaka af komufarþegum vegna skimunar fyrir COVID-19 á landamærum. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gjaldið verði 11.000 kr. ef greitt er á staðnum en 9.000 kr. ef greitt er fyrirfram. Þetta er nokkru lægra gjald en upphaflega var áætlað samkvæmt kostnaðarmati. Nýtt mat byggt á fenginni reynslu og breyttum forsendum leiðir í ljós að kostnaður við hvert sýni er að jafnaði lægra en ætlað var. Reglugerð heilbrigðisráðherra um gjaldtökuna hefur verið send til birtingar í Stjórnartíðindum.

    26. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Lögum um heilbrigðisþjónustu breytt til samræmis við heilbrigðisstefnu

    Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu var samþykkt á Alþingi í dag. Með breytingunum eru lög um heilbrigðisþjónustu færð til samræmis við ályktun Alþingis um heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Kjarni breytinganna felst í því að skilgreiningum á heilbrigðisþjónustu er skipt í þrjú stig, þ.e. fyrsta, annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu, auk þess sem skýrar er kveðið á um hlutverk heilbrigðisstofnana. Gerðar eru breytingar á ákvæðum laganna um framkvæmdastjórnir og jafnframt kveðið á um að á öllum heilbrigðisstofnunum sem ríkið rekur skuli starfa sameiginleg fagráð fagstétta heilbrigðisstarfsfólks á viðkomandi stofnun.

    26. jún. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 19/2020

    Læknir sem kvartað var undan til embættis landlæknis kærði málsmeðferð embættisins á kvörtuninni og taldi einn þeirra þriggja er undirrituðu álit landlæknis hafa verið vanhæfan til að koma að gerð álitsins, á grundvelli 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

    26. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsa og líðan þjóðarinnar samkvæmt nýjum lýðheilsuvísum 2020

    Meira en 60% Íslendinga telja sig mjög hamingjusama og Sunnlendingar einkum. Um 10% landsmanna upplifa oft einmanaleika og yngra fólk finnur frekar fyrir einmanaleika en þeir sem eldri eru. Heldur hefur dregið úr áhættudrykkju fullorðinna en mánaðarleg ölvunardrykkja nemenda í 10. bekk hefur aukist lítillega. Enn dregur úr daglegum reykingum fullorðinna og rafrettunotkun ungmenna. Tíðni sýklalyfjaávísana til barna undir 5 ára heldur áfram að lækka en töluverður munur er á milli heilbrigðisumdæma. Komum á heilsugæslustöðvar á hvern íbúa heldur áfram að fjölga á landsvísu og er aukin notkun íbúa á heilsugæsluþjónustu mest á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma hefur dregið lítillega úr komum til sjálfstætt starfandi sérgreinalækna en umtalsverður munur er hvað það varða á milli heilbrigðisumdæma.…

    24. jún. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Þingsályktunartillaga um siðferðileg gildi og forgangsröðun samþykkt á Alþingi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um þingsályktunartillögu um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu sem Alþingi samþykkti nýverið en þingsályktunin er liður í innleiðingu heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

    24. jún. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Þingsályktunartillaga um siðferðileg gildi og forgangsröðun samþykkt á Alþingi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um þingsályktunartillögu um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu sem Alþingi samþykkti nýverið en þingsályktunin er liður í innleiðingu heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

    22. jún. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Opið og öruggt samfélag

    22 júní 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Opið og öruggt samfélag Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Nú hafa tekið gildi nýjar reglur um komu fólks til Íslands vegna Covid-19-faraldursins. Síðastliðinn mánudag, 15. júní, bættist við sá valmöguleiki að fara í sýnatöku við landamæri ef skilyrði fyrir sýnatöku eru uppfyllt en áður höfðu allir sem komu til landsins þurft að fara í sóttkví í 14 daga

    16. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Álagsgreiðslur heilbrigðisstofnana til starfsfólks vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðuneytið hefur sent erindi til heilbrigðisstofnana vegna álagsgreiðslna til heilbrigðisstarfsfólks sem staðið hefur í framlínunni vegna COVID-19. Ráðgert er að álagið verði greitt út 1. júlí. Álagsgreiðslurnar nema samtals 1,0 milljarði króna með launatengdum gjöldum í samræmi við ákvörðun Alþingis sem birtist í fjáraukalögum nr. 36/2020.

    16. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðuneytið styrkir námskeið í umönnun ætluð atvinnuleitendum

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita fjárstuðning sem gerir kleift að bjóða fólki í atvinnuleit upp á fagnámskeið í umönnun. Námskeiðin verða haldin í samstarfi við stéttarfélagið Eflingu og Mími – símenntun. Megintilgangurinn er að fjölga starfsfólki í umönnunarstörfum og að efla hópinn faglega.

    16. jún. 2020Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.

    15. jún. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Úthlutun 360 milljóna króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 360 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Styrkir voru veittir til 24 verkefna. Um 250 milljónir króna renna til verkefna sem bæta munu aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum og laga aðstæður á heimilunum að viðmiðum ráðuneytisins um skipulag hjúkrunarheimila. Önnur verkefni snúast um smærri viðhaldsverkefni og endurbætur á húsnæði hjúkrunarheimila víðsvegar um landið.

    12. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Skipulag heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem móta á tillögur að heildarskipulagi heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda. Hópurinn á einnig að leggja til aðgerðir sem miða að því að byggja upp þekkingu á málaflokknum meðal heilbrigðisstarfsfólks á öllum þjónustustigum.

    12. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Lagarammi rýndur til að bæta þjónustu við börn með neyslu- og fíknivanda

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að rýna þá löggjöf sem snýr að börnum með neyslu- og fíknivanda og gera tillögur um úrbætur til að laga hann betur að þörfum þeirra og þjónustuveitenda.

    12. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum vegna COVID-19

    Þann 15. júní næstkomandi tekur gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem varðar sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Samhliða taka gildi fagleg fyrirmæli landlæknis sem ráðherra hefur staðfest, um ábendingar fyrir gjaldfrjálsri sýnatöku hjá þeim sýna einkenni COVID-19 auk þess sem breytingar á reglugerð um sóttvarnaráðstafanir taka gildi.

    12. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tímamót í framkvæmdum við nýjan Landspítala

    Sprengivinnu vegna framkvæmda við grunn nýs Landspítala er að ljúka og er stefnt að því að hefja uppsteypu meðferðarkjarnans von bráðar. Meðferðarkjarninn verður stærsta byggingin og þungamiðjan í starfsemi nýs Landspítala. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti framkvæmdasvæðið í gær og hleypti af einni sprengingu, sem er þar með ein af þeim síðustu í þessari risavöxnu framkvæmd.

    11. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Fjöldamörk á samkomum úr 200 í 500 manns 15. júní

    Þann 15. júní næstkomandi tekur gildi auglýsing heilbrigðisráðherra um frekari tilslökun á samkomubanni vegna COVID-19. Meginbreytingin felst í því að fjöldamörk á samkomum hækka úr 200 í 500. Núgildandi takmarkanir á gestafjölda sundlauga og líkamsræktarstöðva við 75% af leyfilegum hámarksfjölda falla jafnframt niður 15. júní. Aðrar breytingar verða ekki.

    09. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þingsályktunartillaga um siðferðileg gildi og forgangsröðun samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti síðdegis í dag þingsályktunartillögu Svandísar Svavarsdóttur um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Ályktunin var samþykkt einróma og mótatkvæðalaust. „Þetta er gleðidagur og enn einn mikilvægur áfangi sem tengist heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem einnig var samþykkt einróma á Alþingi fyrir 3. júní í fyrra“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    09. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundar með ráðherrum

    Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundaði með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra og Páli Magnússyni, ráðuneytisstjóra mennta- menningarmálaráðuneytis í dag.

    09. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fagnám fyrir sjúkraliða og fjölgun nema í hjúkrunarfræði

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, um að fela Háskólanum á Akureyri að koma á fót fagnámi fyrir sjúkraliða á háskólastigi. Ákvörðunin er byggð á niðurstöðum starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði til að gera tillögur um menntun og viðbótarmenntun sjúkraliða sem leitt geta til fjölgunar þeirra sem útskrifast í þessu fagi. Á fundi sínum samþykkti ríkisstjórnin einnig tillögu ráðherranna sem snýr að fjölgun nema í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri um tuttugu við hvorn skóla.

    09. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Gjörbreytt þjónusta heilsugæslustöðva í COVID-19 faraldri

    Komur á heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu voru rúmlega 30% færri í mars en í janúar síðastliðnum. Á sama tíma fjölgaði símtölum til mikilla muna og notkun á Heilsuveru jókst um 77% á tímabilinu. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri samantekt á vef Sjúkratrygginga Íslands. Þar má hvernig fjöldi koma þróaðist hjá einstökum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu, ásamt þróun bókana, fyrirspurna og beiðna um endurnýjun á lyfjum í gegnum www.heilsuvera.is.

    08. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Almannaöryggi, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Breytingar á reglum um komur ferðamanna til Íslands

    Breytingar verða á reglum um komur ferðamanna til Íslands frá og með 15. júní næstkomandi. Er það í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

    06. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tryggt að brjóstaskimanir falli ekki niður

    Vegna ályktunar Krabbameinsfélags Íslands sem samþykkt var á ársþingi félagsins í dag, 6. júní, vilja heilbrigðisráðuneytið og Landspítali koma eftirfarandi á framfæri.

    05. jún. 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur starfshóps til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga

    júní 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur starfshóps til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga Tillögur til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga

    05. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Ákvörðun um gjaldtöku fyrir skimun á landamærum

    Farþegar sem koma til landsins og kjósa að fara í sýnatöku vegna Covid-19 fremur en að sitja 14 daga í sóttkví, munu frá 1. júlí næstkomandi greiða 15.000 kr. gjald vegna sýnatökunnar. Sýnataka á landamærum hefst 15. júní og verður gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar. Börn fædd árið 2005 eða síðar þurfa ekki að fara í sýnatöku. Tillaga heilbrigðisráðherra um gjaldtökuna var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

    04. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Opnun afeitrunardeildar fyrir ólögráða ungmenni mikilvægt framfaraskref

    Afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni var opnuð á Landspítala í vikunni. Deildin heyrir undir fíknigeðdeild sjúkrahússins og verður áhersla lögð á fjölskyldumiðaða þjónustu. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir tilkomu deildarinnar langþráða og um mikilvægt framfaraskref að ræða í þjónustu við afar viðkvæman hóp.

    03. jún. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Netspjallið opið lengur

    03 júní 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Netspjallið opið lengur Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Einn af lykilþáttum heilbrigðisþjónustunnar í viðbrögðum okkar við COVID-19 er þjónusta Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem fram fer í gegnum Heilsuveru. Vefsíðan Heilsuvera er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og embættis landlæknis. Markmið vefsíðunnar er að koma á framfæri margvíslegri fræðslu og þekkingu um heilbrigðismál og áhrifaþætti heilbrigðis, og efla þar með heilbrigði landsmanna

    02. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð um neyslurými til umsagnar

    Reglugerð heilbrigðisráðherra um neyslurými hefur verið birt til umsagnar til 30. júní næstkomandi. Alþingi samþykkti nýlega frumvarp heilbrigðisráðherra til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem fjallar um heimild sveitarfélaga til að stofna og reka neyslurými en reglugerðin á stoð í þeim lögum.

    02. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Rýmri reglur um komur ferðamanna

    Samkvæmt hagrænu mati sem unnið var að beiðni forsætisráðherra og kynnt var í ríkisstjórn í morgun yrðu efnahagslegar afleiðingar þess að viðhalda óbreyttu ástandi ferðatakmarkana gríðarlegar og rétt að draga úr þeim samhliða sóttvarnaraðgerðum.

    29. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Heildarendurskoðun reglugerðar um leysa, leysibenda og IPL-tæki

    Reglugerð heilbrigðisráðherra um innflutning og notkun leysa, leysibenda og IPL-tækja hefur verið endurskoðuð í heild og er nú birt til umsagnar. Ábendingar til Geislavarna ríkisins og kvartanir til embættis landlæknis sem tengjast óábyrgri notkun öflugra leysa í fegrunarskyni eru meginástæða endurskoðunarinnar.

    28. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Netspjall við hjúkrunarfræðinga verði í boði alla daga frá kl. 8.00 – 22.00

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins stefnir að því tryggja landsmönnum aðgang að ráðgjöf og leiðsögn um heilbrigðiskerfið í gegnum netspjall á www.heilsuvera.is alla daga vikunnar frá kl. átta á morgnana til tíu á kvöldin. Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu stofnunarinnar þessa efnis og ákveðið að veita 30 milljónir króna á ársgrundvelli til verkefnisins í tvö ár. Netspjall heilsuveru hefur gefið góða raun á tímum COVID-19 og hefur þeim sem nýta sér þessa þjónustu fjölgað jafnt og þétt.

    27. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Aðild Íslands að norrænum samningskaupum á dýrum frumlyfjum lofar góðu

    Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð hafa boðið BlueBird Bio, markaðsleyfishafa lyfsins Zynteglo, í sameiginleg norræn samningskaup. Þetta er fyrsta lyfið sem til greina kemur að semja um á þennan hátt í samstarfi þjóðanna. Vonast er til að með aðild að norrænum samningskaupum geti Ísland náð mun hagstæðari kjörum við kaup á dýrum frumlyfjum en hingað til, aukið möguleikana á innleiðingu nýrra lyfja og betur tryggt sjúklingum sambærilega meðferð og stendur til boða sjúklingum hjá hinum Norðurlandaþjóðunum.

    27. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Nýsköpun, Opinber innkaup, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stafrænt heilbrigðismót: Stefnumót heilbrigðisþjónustu og frumkvöðla

    Stafrænt heilbrigðismót er hafið og stendur til 15.júlí 2020. Þar geta aðilar sem veita heilbrigðisþjónustu sett fram raunverulegar áskoranir um lausnir í heilbrigðisþjónustu og komið á samstarfi við fyrirtæki og frumkvöðla sem bjóða fram hugmyndir að lausnum.

    27. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstétta

    Heilbrigðisráðherra hefur sett nýja reglugerð sem felur í sér innleiðingu Evróputilskipunar um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum 28. maí. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð mennta- og menningarmálaráðherra um sama efni nr. 461/2011.

    26. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Landamæraeftirlit, Dómsmálaráðuneytið

    Skýrsla um sýnatöku fyrir COVID-19 á landamærum

    Verkefnisstjórn sem heilbrigðisráðherra skipaði til að undirbúa framkvæmd vegna sýnatöku og greiningar á COVID-19 meðal farþega sem koma til landsins, líkt og stjórnvöld áforma, skilaði skýrslu með niðurstöðum sínum í gær. Í stuttu máli er niðurstaða hópsins sú að miðað við gefnar forsendur sem lagðar voru til grundvallar sé verkefnið framkvæmanlegt en að leysa þurfi úr mörgum verkþáttum áður en hægt verður að hefjast handa við skimun á landamærum. Skýrslan var kynnt á fundi ríkisstjórnar í morgun og ákveðið að forsætisráðuneytið muni leiða næstu skref.

    26. maí 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Skýrsla verkefnisstjórnar um sýnatöku fyrir COVID-19 á landamærum

    maí 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Skýrsla verkefnisstjórnar um sýnatöku fyrir COVID-19 á landamærum Skýrsla verkefnisstjórnar um sýnatöku fyrir COVID-19 á landamærum

    25. maí 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Covid-19, Landamæraeftirlit, Heilbrigðisráðuneytið

    Skýrsla verkefnisstjórnar um sýnatöku fyrir COVID19 á landamærum

    Skýrsla verkefnisstjórnar sem heilbrigðisráðherra skipaði til að undirbúa framkvæmd vegna sýnatöku og greiningar á COVID-19 meðal farþega sem koma til landsins. Skýrslunni var skilað í lok maí 2020. Í stuttu máli er niðurstaða verkefnisstjórnar að miðað við gefnar forsendur sem lagðar voru til grundvallar sé verkefnið framkvæmanlegt en að leysa þurfi úr mörgum verkþáttum áður en hægt verður að hefjast handa við skimun á landamærum.

    • First
    • Prev
    • 43
    • 44
    • 45
    • 46
    • 47
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband